Vill að borgarstjóri víki/það viljum ábyggilega flest,ekki spurning!!!!

Vill að borgarstjóri víki
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 19:54

Jón Gnarr, borgarstjóri, á fundi borgarstjórnar. Myndin er úr safni. Borgarstjóri veldur ekki starfi sínu og ætti að víkja, sagði Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á fundi borgarstjórnar nú í kvöld. Heitar umræður hafa verið á fundinum og varð forseti borgarstjórnar, að biðja borgarfulltrúa að gæta orða sinna.

Heitar umræður hafa verið á fundinum og varð Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, um tíma að biðja borgarfulltrúa að gæta orða sinna úr ræðustóli og virða fundarsköp.

Á fundinum er m.a. verið að ræða áform meirihlutans í borginni um að sameina leikskóla í borginni. Hægt er að hlusta á útsendingu á fundinum á vef Reykjavíkurborgar.///þetta er orð i tíma töluð og þarna eru margir á sömu skoðun allavega margfaldur meirihluti,og það ekkert grín  ,full alvara ,þetta er bestur á þessu kerfi þarna i henni Borgastjórn að kjósa beri bara á 4 ára festi ekki hægt að breyta því ef við yrðum svo óheppin að frá svona svikaframboði að aftur sem ekkert gerir nema óþarfa og grín og vitsleysu ,leifi mér bara að tala svona þó það sé ekki fallegt að segja það en er satt,þetta gengur ekki lengur/Halli gamli


mbl.is Vill að borgarstjóri víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunur um samráð á markaði/er ekki verið að hengja bakar fyrir smið,eins og máltækið segir ???

Grunur um samráð á markaði
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 16:58

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. „Rannsóknin beinist að grun um samráði á markaði, sem er bannað í samkeppnislögum,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, um húsleitir sem stofnunin gerði hjá Ölgerðinni og Vífilfelli í dag.

Páll Gunnar vildi ekkert tjá sig um hvers vegna rannsóknin hefði hafist. „Við fylgjumst með mörkuðum og tökum við bæði við ábendingum og kvörtunum. Við tökum síðan afstöðu til þess hvaða ráðstafana þarf að grípa til.“

Páll Gunnar sagði að rannsókn á þessu máli væri rétt að hefjast og húsleitirnar hefðu verið hluti af gagnaöflun stofnunarinnar.

Ekki eru liðnar nema nokkrar vikur síðan Samkeppniseftirlitið lagði 260 milljóna króna stjórnvaldssekt á Vífilfell vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum. Páll Gunnar sagði að þessi rannsókn væri alls ótengd því máli.///þetta er eins og ég sagði ekki endilega það sem skoða skal ,finnst eins og máltækið segir "verið að hengja bakara fyrir smið" það er svo margt sem okkur hinum venjulegum borgurum finnst mikið meiri ástæða til að ransaka Eins og  sem ennþá er ekki búið að klára frá þvi áður var kannað og sektað,eins með aðra verslum i smásölu og heildsölu, og margt fleira,eða er Páll þessi bara að sína það sem hann ekki gerðir fyrir hrun,það þarf að skoða þetta veldi þarna nokkuð vel og hvernig þetta er ákvarðað/Halli gamli


mbl.is Grunur um samráð á markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undrandi á forseta Íslands/þvílík þvæla,þeir ættu að skoða eigin rann betur þessir tveir!!!

Undrandi á forseta Íslands
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 17:40

Úr þætti TV2.Þeir Uffe Elleman-Jensen, og Mogens Lykketoft, fv. ráðherrar í Danmörku, eru reglulegir gestir í fréttaskýringaþætti dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Í síðustu viku lýstu þeir mikilli undrun yfir því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefði vísað Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Lykketoft sagði, að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar væri gott dæmi um hvað það væri galið að vísa máli af þessu tagi í þjóðaratkvæðagreiðslu.  

Elleman-Jensen sagði, að Ólafur Ragnar hefði neitað að staðfesta lögin þótt mikill meirihluti á íslenska þinginu hefði samþykkt þau enda hefði Icesave-samningurinn verið hagstæður. 

Lykketoft sagði, að íslenska ríkið vær í mun betri stöðu en til dæmis það gríska eða portúgalska.  En hætta væri á að kjáninn í forsetastólnum hefði skemmt fyrir löndum sínum með því að staðfesta ekki lögin. 

Elleman-Jensen sagði, að nú spyrðu menn sig út í heimi hvort hægt væri að gera samninga við Íslendinga. Sagði hann, að Ólafur Ragnar hefði í raun tekið lýðræðislega kjörið þing Íslendinga úr sambandi og þannig grafið undan lýðræðinu í Íslandi.

Lykketoft sagði, að hann bæri mikla virðingu fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem hefði leitt Ísland gegnum kreppuna og þyrfti á mórölskum stuðningi að halda.///þetta eru púra öfugmæli ef segja má svo ekki  að þessi kallar séu englar ,alls ekki þeir ættu bar að hugsa að eining hag og síns lands og ESB ,það er svo gott að standa á hliðarlinu og segja svona a´ekki að gera þessir sem búa í glerhúsi eiga ekki að kasta grjoti 


mbl.is Undrandi á forseta Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elton John snýr aftur til Vegas/flottur lagahöfundur söngvari og píanisti !!!!

Elton John snýr aftur til Vegas
Veröld/Fólk | mbl.is | 19.4.2011 | 12:12

Sir Elton John.Sir Elton John snýr aftur til Las Vegas í Bandaríkjunum í haust þar sem hann mun skemmta gestum Caesars Palace hótelsins og spilavítisins næstu þrjú árin.

John skemmti síðast í Las Vegas fyrir tveimur árum, en í apríl 2009 lauk fimm ára tónleikaröð popparans, sem nefndist Rauða píanósýningin.

Nýja sýningin nefnist Milljón dala píanósýningin.

Tónlistarmaðurinn segir hótelið sé góður tónleikastaður og þá heitir hann tónlistarveislu.

Sýningin hefst 28. september nk. og þá hefst miðasala á fyrstu 16 tónleikana þann 25. apríl nk.///maðurinn er enn besti lagahöfundur söngavri og píanisti sem til er virkur i heiminum i dag og hefur aldrei komið hingað það leiðinlegt mjög,en vonandi að þvi verði hreyft einhvertíman ,það er unaður að hlusta a´margt sem hann hefur gert/Halli gamli


mbl.is Elton John snýr aftur til Vegas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klæðskerasaumaður samningur /Áróðurðurin á fullu fyrir ESB inngöngu,kotnaður skiptir þar engu!!!!

Klæðskerasaumaður samningur
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 11:23

Eiríkur Bergmann Eiríksson.EES-samningurinn er sem klæðaskerasaumaður utan um þá efnahagslegu þörf Íslands að taka þátt í samstarfi Evrópuríkja á sviði viðskipta en viðhalda um leið formlegu fullveldi sem verið hefur grundvallaráhersla í íslenskum stjórnmálum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem kom út í Noregi í vikunni um áhrif EES-samningsins á íslenskt samfélag. Norska ríkisstjórnin fól landsliði fræðimanna á sviði Evrópufræða að rannsaka tengsl Noregs við Evrópusambandið.

Rannsóknarhópurinn fékk Eirík Bergmann, dósent og forstöðumann Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, til að vinna skýrslu um áhrifin á Ísland. Skýrslan er nú komin út undir heitinu: Iceland and the EEA, 1994-2011.

Í skýrslunni kemur einnig fram, að í ljósi yfirvofandi málshöfðunar ESA fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave-deilunnar sé athyglisvert að Ísland hafi getað staðist langvarandi þrýsting Noregs og framkvæmdastjórnar ESB um að veita EFTA-dómstólnum heimild til að dæma brotleg ríki til fésekta með álíka hætti og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi gagnvart ESB-ríkjum.////það er allt á fullu að koma okkur þarna inn á móti miklum meirihluta fólks Íslandi það er ekkert til sparað ,og við að lesa svo  daglega hvað er að gerast þarna innan bandalagsins ESB sem það er allt i uppnámi evran að falla sem gjaldmiðill og löndin mörg a´barmi gjaldþrots er það þa´hægt að vera að' mæra svona goðgá/Halli gamli


mbl.is Klæðskerasaumaður samningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnrýnir „íhaldsgrýlu“ vinstrimanna/það gerir maður einnig !!!!!

Gagnrýnir „íhaldsgrýlu“ vinstrimanna
Innlent | mbl | 19.4.2011 | 10:51

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður.„Ég er ekki alveg að ná þessari íhaldsgrýlu þeirra sem staðsetja sig á vinstrivæng stjórnmálanna. Íhaldsgrýlan er notuð til að réttlæta tilvist vinstristjórnar sem heldur sig við efnahagsstefnu íhaldsins og fær mikið hrós fyrir frá AGS,“ segir Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, á Facebook-síðu sinni í dag.

Hún segir að í sínum huga skipti innihaldið meira máli en umbúðirnar. Sjálf hafi hún farið út í stjórnmál til þess að „ná fram grundvallabreytingum á íslensku samfélagi.“

Lilja sagði sem kunnugt er skilið við þingflokk Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrr á þessu ári.
///////þetta er mikið rétt hja´Lilju að það er mannskemmandi að setja þetta á oddinn,það ber öllum að taka sig a´og skipta um  gír það er  þar undanskilin allir verða að skoða eigin barm og láta breytingar i ljós og verki, til þessa var þessu skírsla gerð um hrunið,en það sést ekki/Halli gamli


mbl.is Gagnrýnir „íhaldsgrýlu“ vinstrimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlé fram yfir páska/það var viti meir að skoða þetta yfir páska og vita um það hvort kristilegt siðferði veriði til þess að semja nú!!!

Hlé fram yfir páska
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 11:04

Þorbjörn Guðmundsson.„Við lítum ekki á þetta sem alger samningsslit, heldur að menn séu að taka sér hlé,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. Ekki verður tekin ákvörðun fyrr en eftir páska um hvort kjaraviðræðunum við SA verður vísað til ríkissáttasemjara.  

Fundað var um stöðu viðræðnanna hjá landssambandinu í gær og ákveðið að bíða með að taka ákvörðun um hvort vísað verður til sáttameðferðar fram í næstu viku.

„Við ætlum bara að taka þessu rólega fram yfir páska,“ segir Þorbjörn. „Ég hugsa að við tökum ekki afstöðu til þessa fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag eða miðvikudag. Við setjumst yfir þetta eftir páska og endurskoðum þetta allt saman.“

Samninganefnd ASÍ fundar um stöðuna í kjaraviðræðunum eftir hádegi í dag. Ákvörðun um hvort vísa eigi kjaradeilum til sáttasemjara er hins vegar  alfarið á valdi einstakra landssambanda og aðildarfélaga. //////// verður ekki betra að biða með þetta þar til eftir páska og vita hvort menn taki ekki kristilegar notum samninga eftir hátíðina!! það er við því að búast að það verði ,allavega heldur maður það/og semji um hlutina/Halli gamli


mbl.is Hlé fram yfir páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búa sig undir næstu lotu/það er hart barist um hlutina,en vonandi tekst að semja,það stendur í Rikisstjórn vorri,að hluta !!!

Búa sig undir næstu lotu
Innlent | Morgunblaðið | 19.4.2011 | 10:00

Samningamenn ræða málin. í Þungt hljóð er í verkalýðsforingjum landssambanda og aðildarfélaga ASÍ eftir að kjaraviðræðurnar fóru út um þúfur sl. föstudagskvöld. Fæstir reikna með að þær komist aftur á skrið fyrr en eftir páska. Engir fundir hafa verið boðaðir á milli ASÍ og SA, en „menn eru þó alltaf að tala saman,“ eins og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, orðar það.

Forystumenn í launþegahreyfingunni eru mjög ósáttir við framgöngu SA á föstudagskvöldið og segja að samningar hafi verið svo gott sem í höfn þegar SA fór fram á að viðsemjendur stæðu saman að yfirlýsingu með rökstuðningi fyrir samningunum.

„Það kom okkur verulega á óvart að þeir kæmu með þessa yfirlýsingu og að hún þyrfti að vera inni í skammtímasamningnum,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður SGS. „Við höfum oft skammað ríkisstjórnina en sjáum enga ástæðu til að skrifa það inn í haus á samningum. Þetta eru ekki rétt vinnubrögð.“

Áfram er unnið í einstökum málum landssambanda og félaga sem útaf stóðu, að sögn Vilhjálms. „Ef einhverjir hlutir gerast, þá geta þeir gerst hratt,“ segir hann. Forsvarsmenn SA líta ekki svo á að slitnað hafi upp úr viðræðunum. ,,Menn eru svona að draga andann. Á endanum ætlum við að gera samninga. Við viljum fara atvinnuleiðina og erum ekkert að gefast upp við það,“ segir hann.

Meðal mála sem óleyst eru eru kjör ræstingarfólks í viðræðum SA við SGS og Flóafélögin en Vilhjálmur segir að nú verði reynt að klára þau mál.

Umtalsverðar upphæðir í Becromal-samningnum

Verkalýðsfélagið Eining á Akureyri og Becromal skrifuðu undir nýjan kjarasamning sl. föstudag. Innihald þeirra samninga hefur ekki verið opinberað. Vilhjálmur segir um sérstakt mál að ræða, enda nýhafin flókin framleiðslustarfsemi í verksmiðjunni. Lausnin felst í því að taka upp bónuskerfi sem virki en það taki nokkurn tíma að koma því á að fullu og því sé samið um aðfarargreiðslur að því. Hann viðurkennir aðspurður að um umtalsverðar upphæðir sé að ræða á meðan bónuskerfinu verður smám saman komið á.

Starfsgreinasambandið er eina landssambandið sem vísað hefur kjaradeilu við SA til ríkissáttasemjara. Boðað var til sáttafundar í deilunni í gær og þar lagði SGS fram tilboð að kjarasamningi til eins árs með 15.000 kr. taxtahækkun frá 1. mars að telja og almenna kauphækkun upp á 4,5% svo og hækkun lágmarkstekjutryggingar í 200.000 kr.////þetta er staðan og sagt að statndi bara á S.A. en það er als ekki  að mínu mati það er svo að ríkisstórnin stendur ekki við sitt að vera búin að með sjáfarútvegsmalin og það er stóra malið fyrir okkur öll, ekki spurning að þar verður að semja en ekki bylta fólkið sem æpir að þjóðin eigi kvótann fær því framgengt ,sem alltaf hefur verið!!!og hækka gjaldið fyrir veiðarnar og skemmdir af kerfinu og samið verður annars fer allt i hasar þessir samningar ASÍ verða bar afturvirkir annað ekki hægt,en þessu verður að ná saman,ef útgerðin er bylt fer þetta allt illa sem undistöðu atvinnu og gjaldeyrisskapandi mál þjóðar vorar i dag sem aðra daga,sjómen er vanmetin vinnuafli og skapandi!!! ekki orðum um það meira semjið bara /Halli gamli


mbl.is Búa sig undir næstu lotu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meirihlutinn staldri við/Ekki var það að heyra á Dag B. í fréttum !!!!!

Meirihlutinn staldri við
Innlent | mbl.is | 18.4.2011 | 21:38

Frá mótttöku undirskrifta mótmælalista foreldra í Reykjavík... SAMFOK, samtök foreldrafélaga í grunnskólum borgarinnar, krefjast þess að meirihlutinn í borgarstjórn staldri við, endurskoði sameiningaráform sín og forgangsraði af alvöru í þágu barna- og unglinga, eins og segir í yfirlýsingu.

Á borgarstjórnarfundi á morgun verða tillögur um sameiningar í leik- og grunnskólum og sameiningu leikskólasviðs og menntasviðs auk hluta ÍTR teknar til afgreiðslu. Borgarráð hefur sem kunnugt er fjallað um og samþykkt þessar tillögur.

„SAMFOK harmar að á sama tíma og starfsfólki þessara sviða sé ætlað að vera bakland fjölmargra leik- og grunnskóla í viðkvæmu sameiningarferli, sem keyra á í gegn þvert á vilja starfsfólks og foreldra,er þeim gert að takast á við uppsagnir, óvissu og mótun nýs, sameinaðs sviðs undir forystu nýs yfirmanns. Tímasetningin gæti vart verið óheppilegri og sérkennilegt er að á meðan svo harkalega er vegið að skólamálum í borginni hafa ekki verið boðaðar stjórnkerfisbreytingar á öðrum sviðum," segir í yfirlýsingu frá samtökunum.///ekki var það að heyra á Dag B.Eggertssyni að þetta væri nema alveg rétt ákvörðun er hann ekki yfirborgarstjóri með reynsluna í faginu og læknir einnig,er hlægt að komast lengra frá fólkinu i Borginni en þetta maður bara spyr!!!/Halli gamli


mbl.is Meirihlutinn staldri við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fara yfir stöðuna á sáttafundi/það er komin tími á að tala saman í alvöru,sjáfarútvegur er ekki er engin afganstærð!!!!

Fara yfir stöðuna á sáttafundi
Innlent | mbl.is | 18.4.2011 | 11:25

Kjaraviðræður á almenna vinnumarkaðinum fóru út um þúfur...Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins koma saman til sáttafundar hjá ríkissáttasemjara kl. 14 í dag. Þetta er fyrsti fundurinn frá því viðræður ASÍ og SA runnu út í sandinn sl. föstudagskvöld.

Ekki er búist við neinum stórtíðindum á þessum fundi. Kjaradeilu SA og SGS var fyrr í vetur vísað til sáttameðferðar. Var ákveðið á föstudagskvöld að boða til sáttafundarins í dag þó mikil óvissa sé um framhald kjaraviðræðnanna á almenna vinnumarkaðinum.

Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, segir að farið verði yfir málin en hann á ekki von á löngum fundi.

Forystumenn í launþegahreyfingunni eru mjög ósáttir við framgöngu SA á föstudagskvöldið og segja að samningar hafi verið svo gott sem í höfn þegar SA fór fram á að viðsemjendur stæðu saman að yfirlýsingu með rökstuðningi fyrir samningunum.

„Það kom okkur verulega á óvart að þeir kæmu með þessa yfirlýsingu og að hún þyrfti að vera inn í skammtímasamningnum. Það kom okkur alveg í opna skjöldu að setja ætti sem skilyrði að við yrðum með í einhverri ádeilu. Við höfum oft skammað ríkisstjórnina en sjáum enga ástæðu til að skrifa það inn í haus á samningum. Þetta eru ekki rétt vinnubrögð,“ segir Björn.   

Nú er málið í höndum aðildarfélaga og landssambanda sem fara hvert um sig yfir það í dag og á næstu dögum. Reiknað er með að samninganefnd ASÍ muni einnig funda á morgun um þá stöðu sem upp er komin.

Forystumenn innan ASÍ sem rætt var við í morgun eiga ekki von á að eiginlegar kjaraviðræður fari í gang á nýjan leik fyrr en eftir páska. Munu einstök landssambönd og félög m.a. ræða hvort næsta skref sé að vísa kjaradeilum til sáttasemjara./////Það er löngu komin tími til að þessi félög standi saman en ekki sundruð,það er svo að þegar vegið er að einu þeirra eins og sjafarútvegi ber að  standa í labbirnar en ekki sundrast,það er ekki hægt að semja með þessu forholi ,að þetta komi ekki þessu við ,allt er undir þarna fyrir Útvegin og sjómenn,það voru komir samningar um að útvegin en að allt komið i hengla vegna þráhyggju sérlega samfylginnar,að taka allan sjáfratúvegin og bylta og það ekki frá kvikað,svo þetta er eina vopnið sem þessir menn hafa sem eru kallaðir sægreifar,en það er auðvitað margir til sem hafa eyðilagt fyrir útveginum og það ber að lækna og verður auðvitað eins og viðar,en það þarf að semja um hlutina en ein og ég segi áður ekki bara á annan vegin og  þar stendur hnifurinn í  kúnni,svo eru sjómen sem hafa haldið lífinu í okkar þjófélagi i gengum tíðan fordæmdir og haft um Það ljót orð i  blöðum fréttum  og vefnum það er ekki til þess að bæta úr hlutunum als ekki,semja við alla það er það sem þarf ekki bara suma/Halli gamli


mbl.is Fara yfir stöðuna á sáttafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband