Hætt verði við sameiningar/gerræði þessarar Borgarstjórnarmeirihluta mótmælt!!! er það nokkur furða ???

Hætt verði við sameiningar
Innlent | mbl.is | 18.4.2011 | 16:52

Leikskólabörn - myndin tengist efni fréttarinnar að öðru leyti ekki. Leikskólastjórnendur þeirra skóla sem til stendur að sameina í Reykjavík hafa sent borgarstjóra, borgarfulltrúum og sviðsstjóra leikskólasviðs bréf þar sem þeir krefjast þess að fallið verði frá sameiningu leikskólanna sökum gjörólíkrar hugmyndafræði og stefnu þeirra.

Um er að ræða 25 leikskóla af 76 í Reykjavík. Stjórnendur skólanna benda einnig á að hæpið sé að rökstyðja sameiningar með lögum um leikskóla þar sem fram komi í greinagerð að heimild til sameiningar og samrekstur sé hugsuð fyrir fámenn sveitarfélög.

Leikskólastjórnendur telja að jafnrétti barna til leikskólanáms sé stefnt í voða með þessum aðgerðum. Í áskoruninni til borgaryfirvalda lýsa stjórnendur skólanna furðu sinni á því að ekki hafi verið tekið tillit til yfirgnæfandi fjölda neikvæðra umsagna og ábendinga. „Við skorum því á borgaryfirvöld að hlusta á þau rök sem fram hafa komið og falla frá fyrirhuguðum sameiningartillögum," segir í áskoruninni///furða sig nokkur á þessu að gerræði þessarar Borgarsjónarmeirihluta skuli mótmælt,eða er það nokkur sem hægt er að stjórna svona á móti fólkinu i Borginni okkar ,ef þetta gengur fram er allt komið á annan  endann að mínu áliti,það er sagt að þetta sé svo sparandi sem það er ekki,hver er þá ávininigurinn,spyr bara,við mótmælum þessu bara öll ungir sem gamli allir eiga her hlut að máli sem búa hér í höfuðborginni/Halli gamli


mbl.is Hætt verði við sameiningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Leikurinn var búinn/von að kallin Wenger sé sár,það erum við einnig stuðningsmenn!!!

Wenger: Leikurinn var búinn
Íþróttir | mbl.is | 17.4.2011 | 17:48

Arsene Wenger vonsvikinn á Emirates í dag.Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sem reifst við Kenny Dalglish kollega sinn hjá Liverpool í leikslok á Emirates í dag, sagði að jöfnunarmark Liverpool hefði aldrei átt að líta dagsins ljós þar sem leikurinn hefði verið búinn.

Átta mínútum var bætt við leiktímann og á 8. mínútu uppbótartímans skoraði Robin van Persie úr vítaspyrnu og virtist hafa tryggt Arsenal sigurinn. Á 11. mínútu í uppbótartímanum fékk hinsvegar Liverpool vítaspyrnu og úr henni jafnaði Dirk Kuyt, 1:1.

„Mér finnst þetta mjög ósanngjarnt því leiktíminn var liðinn. Það var átta mínútum bætt við. Og ég held að þetta hafi ekki heldur verið vítaspyrna en Lucas var klókur, hann stoppaði fyrir framan Eboué og lét hann fara í sig. En við verðum að sætta okkur við jafnteflið og berjast áfram," sagði Wenger.

Lið hans er nú sex stigum á eftir Manchester United þegar bæði lið eiga sex leikjum ólokið./////það er sanngjarnt að tapa eða gera jafntefli ef allt er i lagi en þarna var það ekki,það sjá allir sem vilja ,en svo er þetta það þíðir vist ekki að deila við Dómarann ,en enn og eftir er það þeir sem vinna leikin og er ekki sanngjarnt ,þetta synir aftur það það beri að rannsaka svona mál betur!!! en samt við gerðum jafntefli og við verum bara að vinna það sem eftir er og M.U.N. að tapa 2 leikjum!!!/Halli gamli


mbl.is Wenger: Leikurinn var búinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýmsar hættur steðja að efnahag/tökum mark á Kalli,þessa vegna verðum við að koma verkefnum og vinnu af stað Íslendingar!!!

Ýmsar hættur steðja að efnahag
Viðskipti | mbl.is | 17.4.2011 | 12:23

Robert Zoellick í Washington í gær. „Við erum einu áfalli frá fjármálakreppu," sagði Roberg Zoellick, forstjóri Alþjóðabankans, í lok árlegs vorfundar bankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington í gær.

Zoellick sagði, að hækkandi matvælaverð, atvinnuleysi, ólga í Miðausturlöndum og Norður-Afríku og veik fjárhagsstaða í þróuðum hagkerfum stofni efnahagsbata í hættu. 

„Fjármálakreppan kenndi okkur að forvarnir eru betri en lækning. Við höfum ekki efni á að gleyma þeirri lexíu," sagði  Zoellick. ///nei við skulum ekki geyma því als ekki heldur við Íslendingar,það þarfá fullu að koma atvinuvegum og farmkvæmdum af stað' sem fyrst svo við lendum ekki illa út þarna koma okkur í horf til að vera sjálfstæðir og nóga vinnu,og það er ekki þessi ríkisstjórn okkar að gera,heldu skattleggja okkur til nauðþurftar,og svo að eyðileggja og sjalfarútvegin og vill ekki virkja meira/er þetta til að koma okkur áfram maður bara spyr 
/Halli gamli


mbl.is Ýmsar hættur steðja að efnahag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggja ekki stein í götu okkar/ það sem helst hann varast kann,varð að kom yfir hann,segir máltækið!!!

Leggja ekki stein í götu okkar
Innlent | mbl.is | 17.4.2011 | 19:01

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.Viðbrögð Hollendinga og Breta við sjónarmiðum Íslendinga í Icesave-málinu eru ekki þess eðlis að búast megi við að þeir reyni að leggja stein í götu í framgangi mála Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þetta segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.
en hann er staddur í Washington þar sem hann og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa í dag fundað með fulltrúum hollenskra stjórnvalda og lánshæfismatsfyrirtækinu Moody's.

Nú liggi beint við að koma á framfæri ítarlegum upplýsingum til Breta og Hollendinga um hvernig bú Landbankans muni geta staðið undir útgreiðslum. Þau mál skýrist núna frá mánuði til mánaðar.

Þegar hæstaréttardómar liggi fyrir um forgangsröðun innistæðna í Landsbankanum þá verði stærsta óvissuþættinum eytt. Það ætti að verða fljótlega núna á seinni helmingi ársins.

Þá ætti líka að skýrast í ljósi nýrra upplýsinga frá slitastjórninni með endurheimtuhorfurnar. Þær verði aldrei minni en 90% og mögulega meiri. Endurgreiðslur munu geta hafist síðar á þessu ári.

„Ég held að það skipti miklu máli að gefa Bretum og Hollendingum eins miklar upplýsingar um þessa þætti og mögulegt er. Svo skulum við bara sjá hvað setur,“ segir hann.

Á fundinum með Moody's hafi fulltrúar Íslands farið yfir það að efnislega hefði ekkert gerst sem réttlætti lækkun á lánshæfismati. Engin teikn væru á lofti um að höfnun Icesave-samningsins í þjóðaratkvæðagreiðslu hefði valdið slíkum efnahagslegum óróa að það réttlætti lækkun á matinu.

„Við auðvitað bíðum ákvörðunar frá lánshæfismatsfyrirtækjunum. Þau gefa nú lítið upp í framhaldi af fundi. Það er auðvitað þeirra síðan að meta staðreyndir mála,“ segir Árni.// maður segir bara svona um.þessa menn báða Árna Pál og Steingrím j .að " það sem helst hann varst kann ,varð að koma yfir hann",þetta segir máltækið og það er svona að sena þessa menn þarna  sem vildu bara borga þetta í 3 gang  til að tal okkar málstað er bara neikætt og ekkert annað því miður sjá allir sem vilja að þessum mönnum er ekki trúandi  til þessa als ekki það eru svo að ,þetta er bara verið að styrkja inngöngu okkar i ESB ekkert annað að mínu mati!!!!Halli gamli


mbl.is Leggja ekki stein í götu okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndur hópur finnur sig ekki í flokknum/ef svo yrði ,er Framsókn búin að eyða sér alveg!!!!

Frjálslyndur hópur finnur sig ekki í flokknum
Innlent | mbl.is | 17.4.2011 | 18:16

Siv Friðeifsdóttir. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í viðtali við blaðið Reykjavík um helgina, að frjálslyndur hópur í flokknum finni sig þar ekki alveg í augnablikinu.

Í viðtalinu segir Siv að hún telji mjög ólíklegt að hún eigi eftir að segja skilið við Framsóknarflokkinn.

„Mér finnst það mjög, mjög ólíklegt. En það skal viðurkennt að það er frjálslyndur hópur í flokknum, sem finnur sig ekki alveg í flokknum í augnablikinu. Í þeim hópi eru til dæmis miklir stuðningsmenn mínir," segir Siv.

Hún segir að þetta sé jafnvel fólk, sem sé frekar andsnúið Evrópusambandinu en vilji sjá hvernig aðildarviðræðunum vindi fram og gera það þá upp við sig. „Þetta er fólk sem vill taka upplýsa ákvörðun þegar það er tímabært með staðreyndirnar fyrir framan sig. Þessi viðhorf fara saman við mínar skoðanir," segir Siv og segir einnig að hópur innan flokksins hafi tekið niðurstöðuna á nýafstöðnu flokksþingi Framsóknarflokksins nærri sér. Þar var samþykkt í ályktun um utanríkismál að Framsóknarflokkurinn telji hag Íslands best borgið utan Evrópusambandsins.

Siv hefur talað fyrir því, að reynt verði að mynda nýja ríkisstjórn núverandi stjórnarflokka og Framsóknarflokksins. Hún segir í viðtalinu, að  það kæmi henni á óvart ef formenn flokkanna færu ekki að setjast niður á næstu dögum og vikum./////flokkurinn fer ekki trúi því ekki þetta yrði hans banabiti að mínu áliti og fleiri en að taka um frjálslindi að vilja ganga i ESB er ekki eðlilegt það mundi ég ekki kalla svo ,en að þessu sköthjú sem  nú stjórna landinu mundu aldreir kvika frá neinu er Siv heldur það,þetta fólk er haldið þráhyggju á mjög svo háu stigi,en Siv og sennileg Guðmundu vilja þetta ,en segjast ekki vilja kljúfa flokkinn/Halli gamli


mbl.is Frjálslyndur hópur finnur sig ekki í flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekur ekki ákvarðanir út frá vinsældum/það er svo að vinsæltir fólksins eru að aukast á Forseta vorum!!!

Tekur ekki ákvarðanir út frá vinsældum
Innlent | mbl.is | 17.4.2011 | 11:44

Ólafur Ragnar Grímsson. . Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni, að enginn forseti geti leyft sér að taka ákvarðanir út frá því hvort hann telji þær fallnar til vinsælda.

„Ef menn halda það að ég að sækjast eftir sviðljósinu, þá get ég sagt það við þig, að á þessum fimmtíu árum, sem ég hef verið í sviðsljósinu þá er ég fyrir löngu búinn að fá nóg af því,“ sagði Ólafur Ragnar við Sigurjón M. Egilsson, sem stýrir þættinum.

Ólafur Ragnar sagði, að fórnarkostnaður forsetans væri ansi mikill en eins og sæist á því  hvernig gamlir stuðningsmenn hans og jafnvel vinir hefðu snúist gegn honum vegna þeirra ákvarðana, sem hann tók að vísa Icesave-lögum tvívegis í þjóðaratkvæðagreiðslu.////það er ennþá vegið að Forsetanum og hans störfum þó svo  og það þá vinsældir hans hafi aldrei verið meiri en núna,nema hjá þeim Vinstri mönnum sem nú stjórna og vilja einræði og engin hafi skoðanir aðrir en þeir,það er ekki furða að minnstri villan vilji breyta sjórnarskránni er i það að vera á moti Forsetanum sem hægt er að það hálfa væri nóg/Ólafur á að vera Forseti vor áfram,ekki spurning og fa´að raða meiru þá væri málin betri !!!/Halli gamli 


mbl.is Tekur ekki ákvarðanir út frá vinsældum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólheimum boðin óskert framlög/haf það sem sannara reynist,samt er ekki samið,allt hefur hækkað!!!

Sólheimum boðin óskert framlög
Innlent | mbl.is | 17.4.2011 | 10:23

Frá Sólheimum.Sveitarfélagið Árborg segir að Sólheimum ses. hafi verið boðið að gera þjónustusamning vegna ársins 2011 á grundvelli sömu fjárframlaga og fyrir árið 2010, 275 milljóna króna.

Fulltrúaráð Sólheima sendi í gær frá sér tilkynningu og sagði, að samningaviðræður við Árborg um nýjan þjónustusamning hefðu staðið yfir í rúma 3 mánuði án árangurs. Mikil óvissa sé um með hvaða hætti rekstur Sólheima verður tryggður.  Þessi staða sé algjörlega óviðunandi fyrir starfsemi Sólheima.

Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem segir m.a., að gert sé ráð fyrir að samningaviðræðum við Sólheima verði framhaldið eftir páska. Segir Ásta, að Sólheimum hafi verið boðið að gera samning vegna ársins 2011 á grundvelli sömu fjárframlaga og fyrir árið 2010, 275 milljóna króna. Á sama tíma þurfi flestar stofnanir ríkis og sveitarfélaga að taka á sig lækkun rekstrarframlaga á milli ára.

Tilkynning Árborgar er eftirfarandi:

Í janúar s.l. hófust formlegar samningaviðræður þjónustusvæðis um málefni fatlaðra á Suðurlandi og Sólheima ses. um áframhaldandi þjónustu Sólheima ses. við fatlaða íbúa á Sólheimum. Samningahópinn skipa tveir fulltrúar Sólheima og tveir fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar f.h. þjónustusvæðisins á Suðurlandi. Samkomulag var gert um að málefni samningaviðræðna yrðu ekki rædd við fjölmiðla og hefur það samkomulag verið virt af hálfu beggja aðila, allt þar til ályktun fulltrúaráðs Sólheima var send fjölmiðlum í gær.

Í tilefni af ályktuninni skal tekið fram að allt frá því að ákvörðun var tekin um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hefur Sólheimum ses. verið boðið að gera samning vegna ársins 2011 á grundvelli sömu fjárframlaga og fyrir árið 2010, 275 millj. kr. Bent er á að á sama tíma þurfa flestar stofnanir ríkis og sveitarfélaga að taka á sig lækkun rekstrarframlaga á milli ára.

Jafnframt því að leitast hefur verið við að ná samningi fyrir árið 2011 hefur verið unnið að gerð samnings vegna áranna 2012 til 2014. Af hálfu þjónustusvæðisins hefur ítrekað verið boðið að gerður yrði samningur til lengri tíma en eins mánaðar í senn.

Legið hefur fyrir frá því að ákvörðun var tekin um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga að greiðslur skv. nýju mati á þjónustuþörf fatlaðra einstaklinga, svonefndu SIS mati, munu hefjast um næstu áramót, og mun væntanlegur samningur fyrir árin 2012 til 2014 taka mið af því.

Af hálfu þjónustusvæðis um málefni fatlaðra á Suðurlandi er gert ráð fyrir að
samningaviðræðum við Sólheima verði framhaldið eftir páska.////það er náturlega rétt skal vera rétt en það verður að semja um meira þetta hefur sérstöðu þessi staður og ríki og sveitafélagið verða að ver þarna saman ef vel á að fara að spara þarna er eflaust gert en það er ekki hægt að leggja þetta niður eða fara að reka þetta á gamla mátun með harðri hendi og minka við fólkið mikið,ríkið getur ekki komist hjá því að gera þarna bragabót/Halli gamli


mbl.is Sólheimum boðin óskert framlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi ný samningalota eftir páska/auðvitað talast menn við,ekki annað í stöðunni!!!

Vonandi ný samningalota eftir páska
Innlent | mbl.is | 17.4.2011 | 10:37

Upp úr viðræðum ASÍ og SA slitnaði á föstudagskvöld. Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni, að hann gerði sér vonir um að aðilar vinnumarkaðarins geti sest niður aftur eftir páskana og gert aðra atlögu að því að ná kjarasamningi, helst samningi til þriggja ára.

Helgi sagði, að stjórnvöld yrðu að koma að því máli. Hann sagði, að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefði sl. fimmtudag lagt fram svokallaða sáttatillögu í sjávarútvegsmálum vegna kjaraviðræðnanna.

Las Helgi upp úr tillögunni þar sem sagði m.a. að markmið nýrra laga um stjórn fiskveiða væri að brjóta upp núverandi kvótakerfi og reisa skorður við því að kvótaeigendur geti fénýtt þá sameign landsmanna, sem fiskimiðin eru, með því að leigja eða selja öðrum veiðiheimildir á himinháu verði.

„Stjórnvöld lýsa því yfir, að þau muni fara með hagsmunaaðilum yfir þá úttekt sem nú liggur fyrir og meta með þeim hvort og þá hvaða breytingar þurfi að gera ef úttektin sýnir, að fyrirhugaðar breytingar kvótakerfis  hafi umtalsvert neikvæð áhrif umfram það sem eðlileg gjaldtaka hefur í för með sér." 

„Það á semsagt að breyta kerfinu þannig að það hafi neikvæð áhrif og meta hvort það séu neikvæð áhrif umfram það sem eðlilegt er. Ef þetta er sáttatillaga frá Jóhönnu Sigurðardóttur þá leikur mér forvitni á að vita hvernig hún myndi orða stríðsyfirlýsingu," sagði Helgi. ////skulum bara að men vitkist eitthvað um Páskahelgina og láti af þessum þvergyðingshætti á báða vegu ekki annað i stöðunni ,það ber að semja  og ríkisstjórn  að lát að af sínu og semja um hluti en ekki bara á annan vegin/Halli gamli


mbl.is Vonandi ný samningalota eftir páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matur hefur hækkað um 40 prósent/skal Ríkisstjórnin vita þetta??,það er ljót að segja hennar gróði!!!

Matur hefur hækkað um 40 prósent
Viðskipti | Morgunblaðið | 16.4.2011 | 5:30

 Matvælaverð á Íslandi hefur hækkað um tæp fjörutíu prósent á þremur árum, sem er umtalsvert umfram hækkun á vísitölu neysluverðs sem hefur hækkað um tæp þrjátíu prósent á sama tíma.
Hafa ber hins vegar í huga að stór hluti neysluverðsvísitölu er einmitt matvælaverð og því hækkar neysluverðsvísitalan eftir því sem matvælaverð hækkar.

Hagstofan reiknar út neysluverðsvísitölu mánaðarlega og hluti af henni er undirvísitala matar- og drykkjarvara. Þessi undirvísitala hefur hækkað um 38,6 prósent frá því í mars 2008 á meðan neysluverðsvísitalan sjálf hefur hækkað um 27,8 prósent á sama tíma.///maður bara spyr  ætli ríkisstjórnin viti þetta hún er að græða á virðisauka og tollum eftir verði og skulu einnig samninganefndir sem eru að semja um kaup og kjör okkar bara skynja þetta þegar talað er um að hækka lægstu launá 3 árum í 200 þus krónur,þetta er svo að margt fólk á ekki fyrir nauðsynjum og illa það,og svo er verið að tala um að hækka kaup um 9% á þremur árum,manni dettur bari hug grín þegar maður heyrir svona r tölur,en það er náttúrlega númer eitt að hafa vinnu og hann vantar fyrir 15 þus mans/Halli gamli


mbl.is Matur hefur hækkað um 40 prósent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fram vann með einu marki/ gott þetta áfram Fram !!!!!

Fram vann með einu marki
Íþróttir | mbl | 16.4.2011 | 17:33

Ólafur Gústafsson, FH, og Framarinn Magnús Stefánsson í...Fram vann FH, 27:26, í æsispennandi og fjörugum leik í undanúrslitum N1-deildar í handknattleik rétt áðan. Þar með mætast liðin á nýjan leik í oddaleik í Kaplakrik á mánudagskvöldið.

Fram var undir allt þar til á 52. mínútu að þeir komust yfir, 25:24. Eftir það var gríðarleg barátta í leiknum. Magnús Gunnar Erlendsson varði vítakast Ásbjörns Friðrikssonar þegar 50 sekúndur voru eftir í stöðunni, 27:26. Lína var dæmd á Fram þegar hálf mínúta var eftir og lína einnig dæmd á FH þegar 10 sekúndur lifðu af leiknum./////þetta setur spennu i þetta mjög gott að mínir menn Framara taka sig á og vinna leikin þá mjótt sé á munum en það setur í þetta spenni og það ekki gaman ,segi bara áfram Fram!!!/Halli gamli


mbl.is Fram vann með einu marki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband