16.4.2011 | 17:35
Margir skoðuðu herskipið/það gott því þetta er kurteisisheimsókn,En Borgarstjórin okkar til skammar fyrir okkar hönd!!!!
Innlent | mbl.is | 16.4.2011 | 15:26

Sea King þyrla þýska herskipsins Berlin verður bakvakt fyrir þyrlu Landhelgisgæslunnar dagana 14.-18. apríl. Verið er að klára skoðun á TF-LÍF og var því þýska þyrlan fengin til að vera til aðstoðar TF-GNÁ, ef kemur að útkalli og þörf er á að fljúga út fyrir 20 sjómílurnar.
Þýska herskipið Berlín er meðal stærstu skipa þýska flotans, 174 metrar að lengd og útbúið færanlegri sjúkra- og bráðadeild (Marine Emergency Rescue Centre (MERC)) sem hægt er að flytja á dekk skipsins eða í land. Með skipunum þremur koma samtals 687 manns. Til samanburðar má nefna að lengd íslensku varðskipanna Ægis og Týs er mest 70 metrar. Þór, sem væntanlegur er til landsins í haust er 94 metrar.
Sea King, þyrla þýska herskipsins, er á vakt um helgina hér við land. mbl.is/Sigurður Bogi////// við eigum að hafa gott samband við þjóverja og reyndar öll ríki sem hafa gott samband við okkur,her og svo framvegis mega ekki koma i veg fyrir slíkt als ekki það eru allar þjóðir með her i kringum okkur nema Færeyjar og Grænland,hvernig dettur Borgarstóra okkar að hann geti ekki talað við þessar þjóðir allar af því að hann sjálfur er friðarsinni,nei það er ekki hægt að verja slíka framkomu!!! en það er svo að þjóverjar eru vinir okkur og við berum virðingu fyrir þeim og dugnaði þeirra,og það er það mynsta að gera/Halli gamli
![]() |
Margir skoðuðu herskipið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2011 | 17:19
Vilja stríð þegar friður er í boði/satt það er þeirra stefna: þráhyggjan ,bæði Jóhönnu og Steingríms og c/o !!!!
Innlent | mbl.is | 16.4.2011 | 14:44

Þetta segir í yfirlýsingu frá Samtöku atvinnulífsins um gang kjaraviðræðna í gær, en þeim lauk án þess að samningar tækjust.
Á undanförnum mánuðum hafa Samtök atvinnulífsins barist fyrir því að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni sem felst í því að auka fjárfestingar, skapa störf, minnka atvinnuleysi og auka tekjur. Samhliða þessu yrðu gerðir kjarasamningar til þriggja ára til þess að tryggja vinnufrið, kaupmátt og eyða óvissu.
Í gær stöðvuðust viðræður á vinnumarkaðnum um atvinnuleiðina vegna þess að ríkisstjórnin treysti sér ekki til þess að taka á lykilmálum. Sátt um sjávarútveg, eina helstu útflutningsgrein landsmanna og kjarnagrein byggðar víða um land, er nauðsynleg til þess að fjárfestingar hefjist í greininni á ný og óvissu um rekstrarforsendur fyrirtækjanna sé eytt. Innan SA og aðildarfélaga þeirra er full samstaða um þýðingu sjávarútvegsins og nauðsyn sáttar um hann. Ríkisstjórnin hefur hingað til lítt sem ekkert vilja ræða við forsvarsmenn sjávarútvegsins um starfsskilyrði greinarinnar.
Sprengju var varpað inn í viðræður aðilavinnumarkaðarins við stjórnvöld með frumvarpi um 30 ára nýtingartíma orkufyrirtækja á jarðvarma sem hækkar kostnað og þar með orkuverð án þess að samfélagið hafi af því nokkurn hag. Áform ríkisstjórnarinnar um orkuuppbyggingu ganga of hægt þótt vissulega hafi viðhorf hennar verið að breytast til réttrar áttar.Mikilvægum samgönguframkvæmdum á Suðvesturlandi hefur verið klúðrað þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi lofað skjótum framgangi þeirra í stöðugleikasáttmálanum frá júní 2009.
Þegar viðræðum um atvinnuleiðina lauk var hafist handa um gera samkomulag til skemmri tíma með 50 þúsund króna eingreiðslu auk þriggja 16.700 króna viðbótargreiðslna yfir sumarmánuðina ef ekki tækist að koma atvinnuleiðinni í gegn.
Samtök atvinnulífsins vildu útfæra skammtímasamkomulag þannig að aðilar héldu áfram vinnu við atvinnuleiðina og reyndu til þrautar að komast á þá braut. Í því skyni var nauðsynlegt að fram kæmi sameiginlegur rökstuðningur fyrir samkomulaginu sem gæti hjálpað til við að ná settu marki. Alþýðusambandið hafnaði algjörlega bæði áframhaldandi vinnu við atvinnuleiðina og sameiginlegum rökstuðningi jafnvel þótt sérstaklega væri óskað eftir tillögu frá sambandinu um hvernig slíkur rökstuðningur mætti vera.
Leið Alþýðusambandsins vegna skammtímasamningsins var sú að ljúka honum í flýti og hefja svo miklar deilur um hverjum væri um að kenna að þriggja ára samningur með atvinnuleiðinni hefði ekki náðst. Slíkt hefði aukið enn á upplausn og óvissu. Ríkisstjórnin hefur verið söm við sig og vill viðhalda ófriði um sjávarútveg, orkumál og aðra uppbyggingu þrátt fyrir að friður sé í boði.
Samtök atvinnulífsins hafa lagt sig fram um að ná vinnufriði á grundvelli atvinnuleiðarinnar sem er eina raunhæfa leiðin út úr kreppunni. Ennþá er það verkefni framundan til að leysa og Samtök atvinnulífsins vilja ekki gefast upp við að ná því fram sem er landi og þjóð fyrir bestu.//////ef maður lesa þetta kom á mann tvær grímur ekki spurning um það,að kenna bara gjafarútvegi um, þetta er ekki rétt það er svo að þetta er bara hjúp eitt það átti aldrei að semja, þráhyggja þeirra sem stjórna Jóhönnu og Steingríms,er slík að samningar eru bara á annan vegin það er svo hefur alltaf verið og verður svo nema þau læri það að standa í veikri stjórn þarf að semja og það oft ekki bara einu sinni!!! en það gengur þeim illa að skilja og vilja ekki!! en það kemur að því ekki spurning ,ef ekki verða þessir flokkar ef þeir gefast ekki upp,að skipta um formenn báðir,sem get samið við fólk en ekki bar vaða yfir það,það er öllum holt mínum mönnum einnig og held ég að þeir séu búnir að læra það/Halli gamli
![]() |
Vilja stríð þegar friður er í boði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 16.4.2011 | 9:57

ASÍ segir í upphafi þeirra kjaraviðræðna sem staðið hafa undanfarna mánuði hafi Samtök atvinnulífisins lagt ríka áherslu á að gerður yrði kjarasamningur til þriggja ára. Rökin hafi verið þau að slíkur samningur myndi skapa stöðugleika sem nauðsynlegur væri á vegferð þjóðarinnar út úr mestu kreppu síðari tíma á Íslandi. Þetta hafi verið kallað atvinnuleiðin. Þrátt fyrir takmarkaðan áhuga ASÍ og aðildarsamtaka þess í fyrstu á langtíma samningi, vegna óvissu í efnahagsmálum, var ákveðið að hefja viðræður á þessum nótum og skoða hvað áynnist.
Fljótlega eftir að viðræður hófust kom í ljós að Samtök atvinnulífsins gerðu það að skilyrði fyrir gerð kjarasamninga, að niðurstaða fengist í sjávarútvegsmálum. SA vildi ekki einungis tryggja lausn í sjávarútvegsmálum, heldur náði krafan einnig til þess að lausnin væri SA og LÍÚ þóknanleg. Samninganefnd ASÍ var ekki reiðubúin að setjast að viðræðum á þessum forsendum og sleit viðræðum. Umræða um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafa ekkert með almennar kjaraviðræður á Íslandi að gera. ASÍ og aðildarsamtök þess hafa skoðanir á sjávarútvegsmálum en það hefur aldrei komið til greina hjá Alþýðusambandinu að styðja kröfur SA og LÍÚ varðandi breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.Viðræður hófust aftur í febrúar eftir að miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun þar sem áréttað var að SA bæri samkvæmt landslögum að standa undir þeirri frumskyldu sinni að ganga til kjarasamninga. Sjávarútvegsmálin vofðu þó enn yfir.
LÍÚ var með kverkatak á kjaraviðræðunum. LÍÚ tók 100 þúsund félagsmenn ASÍ í gíslingu. LÍÚ sem er eitt af átta aðildarfélögum SA tók sín eigin samtök í gíslingu og þar með stóra aðila eins og Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar. Allt var þetta gert til að þvinga fram niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem væri útgerðaraðlinum í landinu þóknanleg. Þetta er ofbeldi og vinnubrögð sem eru LÍÚ til vansa. Þetta framferði varð að lokum til þess að sú vegferð um þriggja ára samning, sem SA hóf sjálft í byrjun árs, rann út í sandinn í dag.
Rökin sem SA lagði upp með, að þjóðarheill krefðist langtímasamnings, véku á endanum fyrir hagsmunum LÍÚ. Það er dapurleg niðurstaða. SA beit svo höfuðið af skömminni með því að ganga á bak orða sinna og svíkja undirritun skammtímasamnings sem lá á borðinu og fresta þannig launahækkun hjá okkar fólki, segir í yfirlýsingu ASÍ.//////það er svo að öll þessi samtök eiga að standa saman þegar svona árar ekki spurning,en það virðist ekki geta gengið og sagt að þar sé inni póltík sem er auðvitað alstaðar að hluta,en ég hefi ekki orðið var við að allir útgermenn séu bara Sjálfstæðismenn siður en svo þeir eru í öllum flokkum !!! en svo er þetta og manni finnst ekkert áthugavert að þessi atvinnuvegur vilji verja sitt bakland og almennt veiðar með fiski sem er okkar lifibrauð með gjaldeyrir ásamt öðrum o,og hvað er svo undarlegt með þetta ekkert ,að standa þarna saman atvinnurekendur en ekki sundraðir!!! ekkert til að undra,nema þessa vinstri stjórn sem vill allt þjóðnítt og ekkert ,annað frjálst framtak er eitur í þeirra beinum!!! en það er ekki svo að það verið gefið eftirt !!!!kommar eru bara svona,maður hélt að þeirra tími væri liðin/Halli gamli
![]() |
Tala um gíslatöku LÍÚ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2011 | 11:39
Hætta stuðningi verði farið í virkjanir/þetta var málið heillin,stoppa allt sem hægt er!!!
Innlent | mbl.is | 16.4.2011 | 11:15

Bjarni sagðist nefna þetta vegna þess að virkjanir í neðri hluta Þjórsár væru á lista aðila vinnumarkaðarins yfir fjárfestingar á næstu misserum og árum. Ríkisstjórn væri hins vegar ekki tilbúin til að styðja þessar framkvæmdir vegna þess að þá myndi hún falla, ekki síst núna þegar þingmeirihlutinn hengi á aðeins einum manni.
Bjarni sagði tíðindin í kjaraviðræðum alvarleg. Hann sagði að Samtök atvinnulífsins væru gagnrýnd fyrir að setja fram kröfu um skýra stefnu í sjávarútvegsmálum. Bjarni spurði hvort þetta væri ósanngjörn krafa. Ríkisstjórnin hefði fyrir tveimur árum lýst því yfir að breyta ætti um stefnu í sjávarútvegsmálum. Stjórnin hefði ekki sett fram neinar tillögur ennþá. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefði ekki fram neitt sáttaboð í sjávarútvegsmálum./////það er málið !!!sem heldur þessu saman!! þetta fólk með hvort annað i gíslingu ekki spurnin um það,það er svo að með svona meirihluta einn mann er þetta bara ekki hægt,gengur ekki lengur !! þetta með þjórsá að leifa ekki að virkja þar er bara óskammfeilni það er hagstæðast í dag raðvirkjanir eru þær bestu og kom a best út,svo er maður búin að skrifa mikið um sjáfarútveg og hann einnig mikið alvörumall fyrir okkar framtíð og þar stendur illa fyrir land og þjóð ef á að rusta honum eins og stefna þeirra er ,það er akki bjart framundan eins og Jóhanna og Steingrímur segja hver er það????/Halli gamli
![]() |
Hætta stuðningi verði farið í virkjanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2011 | 21:59
Alvarlegt mál og mikil vonbrigði/ "En það kostar klof að ríða röftum" segir máltækið!!!!!
Innlent | mbl.is | 15.4.2011 | 20:22

Hann segir að gagnvart ASÍ hefðu hlutirnir að mestu leyti verið að sigla í rétta átt en enn hafi átt eftir að klára lífeyrismálin. En það reyndi ekki á það vegna þess að atvinnurekendur lýstu því við okkur að það væri enginn tilgangur í því að halda þessu áfram og vildu snúa sér að því að gera skammtímasamning, segir Gylfi.
Eitthvað hafi staðið útaf varðandi framkvæmdamálin og svo sjávarútveginn og það hafi verið niðurstaða SA að ekki væri hægt að ná samkomulagi um þriggja ára samning.
Hún er dapurleg, hún er alvarleg og okkur þykir það stórundarlegt að atvinnurekendur skuli velja þessa leið miðað við þá stöðu sem atvinnulífið er í. En það er líka alveg ljóst að við teljum það stórundarlegt að ríkisstjórnin láti þessa stöðu koma upp.//////ef það á að semja við okkur öll A.S.Í. ekki eitt þarna hagsmuna að gæta það er allt undir unditstöðu atvinuvegur þjóðarinnar einnig sjáfarútvegur og landbúnaður ferðaþjónusta og allt,bara þetta synir okkur að samasta á að vera á öllu sviðum,en nú ber nýtt við það á að eyðileggja þetta með inngöngu i ESB eða byrja fyrst að bylta sjáfarútvegi sundra öllu áður en við göngum i bandalagið,hver vill þetta samfylking og V.G. er það ekki leint og ljóst svo erum við öll hafin af fiflum og sagt að við styðjum bara sægreifa og svo farmvegis ,það þarf að fiska og það ger útgerðamenn og sjómenn saman og við höfum af því tekjur ríkið i skötum og auðlindagjaldi og allri vinnu sem af þessu hlýtur eða er það ekki,nei það má ymislegt bæta þarna ekki spurning og það var komið a´koppinn og semsagt búið að semja þá var öllu snúið á haus,og allt sett i sama farið bylta öllu og leigja kvótann eftir þeirra hag sem er nátturlega engin vinavæðing eða slíkt nei allt uppí borðum eins og þessi stjórn hefur sagt en stendur ekkert við eða er það,nei spillingin heft þa´fyrir alvöru hver fær hvað og svo framvegis,nei það er svo að þetta mun verða til þessa að seinka öllu sem hægt er í batanum her í landi ekki sspurning um það,en eins og sagt er hvað varðar þessari ríkisstjórn um þjóðarhag??/Halli Gamli
![]() |
Alvarlegt mál og mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Innlent | mbl.is | 15.4.2011 | 16:53

Ljóst er orðið að niðurstaða í kjaraviðræðunum mun ekki nást fyrir kl. 17:15 en forystumenn SA og ASÍ settu í gær þau tímamörk.
Stjórn SA fór yfir stöðuna í höfuðstöðvum SA eftir hádegi og núna stendur yfir fundur samningsaðila með embættismönnum ríkisstjórnarinnar í húsnæði ríkissáttasemjara. Vilhjálmur segir að í beinu framhaldi af þeim fundi verði ákvörðun tekin um framhaldið.
Að sögn Vilhjálms hafa fulltrúar ríkisstjórnarinnar lagt fram eitt og annað í dag en það dugi ekki til. Líkur á að gengið verði frá skammtímasamningi hafi aukist eftir því sem liðið hefur á daginn.
Þar er gert ráð fyrir samningi til 6 mánaða með tveimur 50 þúsund króna eingreiðslum.
Spurður um sjávarútvegsmálið segir Vilhjálmur að það sé vandamálið að það sé ekki verið að ræða um sjávarútvegsmálin.
Enn er hins vegar verið að ræða við ríkisstjórnina um vegaframkvæmdir, lífeyrismál o.fl. ///////þráhyggja þessarar ríkisstjórnar gangnavart sjáfarútvegi á eftir að verða dýkeypt mjög ekki spurning ,það er svo að þetta má alt laga en ekki bylta ,.að að vilja ekki semja kemur bara i hausinn þeim aftur og aftur,það er ekki spurning að sjómen og Útgerðamenn láta ekki spila með sig lengur svona allt i hers höndum og ekkert gert þarna nema að hóta að' bylta öllu og engin samstaða með það,hvað varðar okkur um þjóðarhag segir þar i samfylgingu og V.G. því ef ekki verður samið um þetta er vist að útgerðamenn sigla bara skipunum i land ekki sspurning og hvað þá,er það það sem beðið er eftir maður bara spyr/Halli gamli
![]() |
Líkur á langtímasamningi minnka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2011 | 16:35
Hvað er að gerast hér?/Yfirgangur þessa Þingmans er ekki til framdráttar flokknum nema siðar sé!!!
Innlent | mbl.is | 15.4.2011 | 11:12

Þegar umræðum um störf þingsins var lokið á Alþingi óskaði Ólína að ræða fundarstjórn forseta og kvartaði yfir því að hafa ekki fengið að komast að í umræðunni til að svara ásökunum, sem hefðu verið bornar á hana.
Þegar Ólína ætlaði síðan að rekja þær ásakanir, sem hún sagði að Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefði komið með, greip Ásta Ragnheiður fram í fyrir henni og sagði að ekki mætti fara fram efnisleg umræða um önnur mál þegar rætt væri um fundarstjórn forseta.
Þegar Ólína ætlaði að nýju að rekja ummæli Ragnheiðar Elínar sló Ásta Ragnheiður í bjöllu sína. Ég ætla að vona, frú forseti, að við þurfum ekki að standa hér og endurtaka bjöllusólóið frá því sumarið 2009 þegar ég var rekin úr ræðustóli," sagði Ólína þá.
Þegar Ásta Ragnheiður sagði, að ræðutími Ólínu væri liðinn sagðist Ólína víkja úr ræðustóli en gera alvarlegar athugasemdir við þessa valdbeitingu forseta. Því hér hefur þessi liður verið tilefni efnislegra umræðna í skipti eftir skipti þar sem stjórnarandstaðan hefur haft aðkomu að efnislegum umræðum hér og ég fæ ekki að ljúka máli mínu og fæ ekki að velja mín eigin orð."
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, sagðist vilja gera alvarlegar athugasemdir við fundarstjórn forseta, að leggja það á þingheim að þurfa að hlusta á allt það niðurrifstal stjórnarandstöðunnar, sem menn hefðu orðið vitni að, en taka ekki tillit til óska starfandi þingflokksformanns VG, um að fá að taka þátt í umræðu um störf þingsins.
Ásta Ragnheiður sagðist hafa farið að þingsköpum og gefið þingmönnum orðið eftir þeirri röð sem þeir báðu um það.
Ólína óskaði síðan eftir því að fá að bera af sér sakir og sagði að Ragnheiður Elín hefði borið á sig að hún hefði talað sjávarútvegsmál í ágreining. Sagði Ólína, að fáir þingmenn hefðu gengið lengra en hún í að skýra sjónarmið sín og verið í opinberri umræðu um málaflokk. Því hefði verið svarað með dæmafáum persónuofsóknum.
Nú sló Ásta Ragnheiður í bjölluna og sagði ekki unnt að fara í efnislegar umræður undir þeim dagskrárlið, að bera af sér sakir.
Hvað er að gerast hér?" spurði Ólína þá og óskaði eftir rökstuðningi hvers vegna henni væri ekki heimilt að bera af sér sakir. Þá sagði Ásta Ragnheiður að ræðutími Ólínu væri liðinn fyrir 20 sekúndum.
Þeir Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku til varna fyrir Ástu Ragnheiði. Sagði Guðlaugur Þór að Lilja Rafney hefði viljað ritskoða dagskrárliðinn störf þingsins og koma í veg fyrir að þingmenn tali um eitthvað sem ríkisstjórninni þyki óþægilegt.//////allir sem vilja, hljóta að sjá hvernig Ólína hagar sínum málflutningi frekjan er að fara með hana í orði og verki,það er auðvitað leiðinlegt að þurfa að segja svona en þetta er staðreynd að um hana hefur taðið styr alla tið,hver man ekki eftir látunum þegar hún var skólastjóri á Ísafirði þar var allt í hasar,og hún fór frá!! en svo er þetta fólk er misjafnt og það er í lagi stundum, en ekki þarna á Alþingi sem hún segir að hafi sett mikið niður ,ekki bætur hún það satt að segja,en svo er þetta og ber að stoppa ,þetta er öllum til skammar að haga sér svona/Halli gamli
![]() |
Hvað er að gerast hér? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2011 | 16:14
Vilja fá reglugerð breytt/auðvitað eigum við ekki að láta EASA stjórna okkur svona,og heldur ekki ESA !!!!
Innlent | mbl.is | 15.4.2011 | 15:29

Að sögn dómsmálaráðuneytisins eru aðilar sammála um að reglurnar séu íþyngjandi fyrir einkaflug og að unnt sé að breyta þeim án þess að ógna flugöryggi.
Flugmálafélag Íslands hefur allt frá sumrinu 2010 gagnrýnt þau áhrif sem félagið telur að nýlegar reglugerðir Evrópusambandsins um lofthæfi loftfara hafi á einkaflug á Íslandi. Hélt félagið því fram að þær væru íþyngjandi fyrir rekstur alls þorra einkaflugvéla sem skráðar eru á Íslandi./////þessi innganga i EES á sinum tíma var bara vitleysa að mínu mati ekkert sem kemur .þarna út er nema íþíngjandi fyrir okkur og kostnaður sem a´okkur er lagt ,þessir tollar sem af okkur er létt með þessu eru farnir með þessu regluverki sem yfir okkur dynur ,það er svo að við áttum aldrei að fara þarna inn,við höfum nóga til að kaupa af okkur fiskin og aðrar afurðir svo erum við eyland sem ekki þarf að taka þessu öll als ekki!!! svo eru þessar reglur fáranalegar að mínu mati og flestra, en samt skal ganga þarna inn i ESB og fá meira svona til að borga í hítina þarna/Halli gamli
![]() |
Vilja fá reglugerð breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2011 | 15:39
23 milljóna kostnaðarauki fyrir LSH/það er stefnan að koma okkur fyrir katarnef flestum,hver borgar þá????
Innlent | mbl.is | 15.4.2011 | 14:55

Í föstudagspistli sínumá vef LSH segir Björn ljóst að reyna þurfi að finna leiðir til hagræðingar á móti þessu. Það sé hins vegar stöðugt erfiðara að koma í veg fyrir að kostnaðarhækkanir af þessu tagi komi niður á þjónustu við sjúklinga.
Björn bendir á að hann hafi áður nefnt þann kostnaðarauka sem hljótist af því að Strætó hafi minnkað þjónustu sína á kvöldin og um helgar. Auk þess hafi hann nefnt að síðastliðið haust hafi Orkuveitan ákveðið að hækka sína gjaldskrá og sú hækkun hafi komið til framkvæmdar 1. febrúar sl. Það hafi aukakostnað í för með sér fyrir spítalann upp á 50 milljónir.
Við fengum síðan aðra tilkynningu í þessari viku um enn eina hækkunina hjá Orkuveitunni þar sem um er að ræða 8% hækkun á heitu vatni og 45% hækkun á fráveitugjaldi. Þessar nýjustu hækkanir, sem gilda frá 1. maí, munu leiða til 23 milljóna króna kostnaðarauka fyrir spítalann. Það er ljóst að við þurfum að reyna að finna leiðir til hagræðingar á móti þessu. Finnst mörgum sárt ef svona verðhækkanir og breytingar á þjónustu koma niður á þjónustu við sjúklinga en okkar markmið verður að reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir slíkt. Slík varnarbarátta verður þó stöðugt erfiðari, skrifar Björn.////////þetta á ekki bara við Lansdspitalan og sjúklingana þetta á við okkur öll sem mynna höfum en erum að búa i eigin húsnæði eða leigjum,þessar hækkanir dag efir dag a öllu nema launum ,og svo er ekki komið að endimörkum þessa að við getum borgað meira,eða á þetta að enda eins og í ESB löndunum þar sem fólk hefur ekki efni á að kynda,og hrinur niður i kuldum þar í hópum,það er svo að þetta verður eins og með skattana það kemur bara mynna inn,það er svo að fólk bara hlttir að kynda ef þessu heldur fram,þetta hyski sem stjórnar þarna er vinstra pakk sem vill koma okkur í vont mál og segja það allt öðrum að kenna,en að er komið þarna langt yfir þolmörk,og segum bara verði þessu fólki að góðu sem kaus þetta yfir sig þetta bölvað pakk/Halli gamli
![]() |
23 milljóna kostnaðarauki fyrir LSH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2011 | 13:00
Auka slagkraft með stofnun nýs þingflokks/auðvitað þingflokk, en ekki stjórmálaflokk
Innlent | Morgunblaðið | 15.4.2011 | 5:30

Þetta kemur fram í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.
Með stofnun þingflokks fá þau áheyrnarrétt í nefndum, fjármuni til sérfræðikaupa, aðgang að vikulegum fundum þingflokksformanna og áheyrnaraðild að forsætisnefnd, sem þau ætla að nýta sér.
Heimildir Morgunblaðsins herma að flokksforysta Vinstri grænna hafi stórkostlega vanmetið pólitískan styrk Guðfríðar Lilju og bakland hennar. Forystan hafi áttað sig á því í fyrradag, daginn sem vantrauststillagan var borin fram, að hún ætti engra kosta völ annarra en að setja Árna Þór Sigurðsson, nýkjörinn formann þingflokks VG, af. Ella yrðu átökin í flokknum óviðráðanleg. Ekki er þar með sagt að Guðfríður Lilja sé endilega sátt við stöðuna og því hafi staða hennar styrkst.//////þarna eru þessir þrímenningar að gera rétt ekki spurning,það færi betur eftir allt sem á undan er gengið að fleiri sjái það ofríki sem þessir tveir formenn þessara stjórnarflokka eru einræðiskenndir!!!! og stjórna eftir eigin hag en ekki annarra,her komið mikið meira en nóg og ennþá er lifað að forstíð sem þau segja að allt sá að kenna öðrum en þeim,og þar á Jóhanna stærri hlut,Steingrímur var ekki i ríkisstjórn siðastu 18 ár sem en það vara hún og einnig þegar allt hrundi og kreppan tók okkur i nefið!!! ég er ekkert að afsaka minn flokk þar var margt að en það er i farvegi og ekki hægt að lifa á mistökum annar bara og gera ekkert annað en tala um það,og vera engir betrungar als ekki nema siður sé,hvað hefur breyst sama bankakrísan bankarnir lifa á ,okurlánunum ekkert gert til að stemma stigu við þvi nema kák sem kemur ekki til góða vegna þessa að allir muni missa sitt engin kemst út úr þessari krísu okurlán sem voru verðtryggð og eru að sliga fólkið ,það kvartar en mærir samt þessa ríkisstjórn a fullu,vona bara að fólkið fari að sjá hlutina i rettu ljósi og hætti að hugsa bara um fortíð ,en frari að huga að framtíð/Halli gamli
![]() |
Auka slagkraft með stofnun nýs þingflokks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar