Búist við hviðum strax í kvöld/Viðvörun frá veðurstofu um Ofsaveður slyddu og snjókomu á heiðum!!!!!!

Búist við hviðum strax í kvöld
Innlent | mbl.is | 23.4.2011 | 18:14

Búist er við hviðum undir Hafnarfjalli í kvöld og nótt. Lægð með óveðri er nú í uppsiglingu og einkum verður veður slæmt á morgun um landið vestanvert. Vegagerðin segir, að í kvöld frá um kl. 21 til 2 í nótt sé reiknað með hviðum, um 30-40 metrum á sekúndu undir Hafnarfjalli og eins og utanverðu Kjalarnesi.

Í fyrramálið snýst í suðvestanstorm og um leið kólnar. Slydda og krapi verða í byggð en hríðarveður á fjallvegum, skyggni lítið og akstursskilyrði afleit.   Það verður því mjög slæmt ferðaveður á vesturhelmingi landsins á morgun og er fólki er bent á að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð.

Að sögn Veðurstofunnar snýst í suðvestanstorm, 15-23 metra á sekúndu, í fyrramálið með rigningu eða slyddu og snjókomu til fjalla, fyrst suðvestantyl. Slydda og krapi verða í byggð en hríðarveður á fjallvegum, skyggni lítið og akstursskilyrði afleit.  

Undir kvöld fer að draga úr vindi sunnantipl./// við verum að fara að taka mark á veður viðvörunum ekki spurning um það ,spurnigin  er hvað fólk vill að fara eftir þessu en það er oft sagt úlfur úlfur ,og ekkert að marka en það er svo að í flestu ef ekki öllum núna síðara tíma  hefur þetta gengið eftir,en ef ekki er það eithvað sem ekki sest fyrir ,en i öllum tilfellum verum við að taka mark!!!!,ekki hundsa þetta!!!!/Halli gamli   


mbl.is Búist við hviðum strax í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas H Sveinsson

Þegar ég var búinn að búa hérna í Svíþjóð í um áratug var ég einu sinni spurður hvers ég saknaði mest að heiman. Ég svaraði eitthvað um fjölskyldu o.þ.h. Þegar ég kom heim og fór að hugsa um þetta varð niðurstaðan að það sem ég saknaði mest að heiman var suðaustan áttin, þ.e.a.s. rok og rigning. Í þessa rúma þrjá áratugi sem ég hef búið hér hef ég aldrei upplifað almennilegt veður með roki og rigningu, eða þá, eins og meðan ég var í föðurgarði fyrir norðan,  stórhríð með raunverulegum norðan garra.

Tómas H Sveinsson, 23.4.2011 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband