N1 yfirtekið af kröfuhöfum/ekki gott mál þetta en svona er þetta það tóku fleiri lán en íbúðareigendur sem hækkuðu,en bánkarnir verndaðir og eignnast allt!!!

N1 yfirtekið af kröfuhöfum
Viðskipti | mbl.is | 5.4.2011 | 9:42

N1 hefur verið tekið yfir af kröfuhöfum.Arion banki, Íslandsbanki og meirihluti eigenda skuldabréfa á N1 hf, stjórn og stjórnendur N1 hafa komist að samkomulagi um að rekstur félagsins verði tekinn yfir af lánardrottnum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórnarformanni N1, Einari Sveinssyni. Samkomulagið felur í sér að meirihluta skulda félagsins verði breytt í hlutafé.  Eigið fé BNT og Umtaks verður neikvætt í kjölfar samkomulagsins og eru örlög þeirra félaga óráðin.

„Aðkomu fráfarandi eigenda að N1 má rekja til þess þegar hópur fjárfesta undir forystu Bílanausts hf. keypti Olíufélagið ehf. í febrúar 2006. Við kaupin var stofnað eignarhaldsfélagið BNT hf. sem hélt utan um eignarhlutina í Bílanausti hf. og Olíufélaginu ehf. Hluthafar BNT hf. voru á þriðja tug talsins og lögðu þeir 10,2 milljarða króna til félagsins í formi hlutafjár. Fasteignir Bílanausts hf. og Olíufélagsins ehf. voru samhliða þessu færðar yfir í sérstakt fasteignafélag ‐ Umtak fasteignafélag ehf. Í apríl 2007 voru Bílanaust hf. og Olíufélagið ehf. sameinuð í eitt félag – N1 hf. Við þá sameiningu varð til nýtt og kraftmikið verslunar‐ og þjónustufyrirtæki með yfir 600 starfsmenn og 115 þjónustustaði um allt land,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Reiknað er með því að fjárhagslegri endurskipulagningu N1 verði lokið í sumar. Núverandi stjórn mun sitja þangað til endurskipulaginu er lokið, að ósk lánardrottna.////þetta er alvarlegt mál og gott að það er rekið áfram,þarna vinna um 600 mans og það er þjónusta a´115 stöðum!!! en svona er þetta það tóku fleiri lán en við íbúðareigendur það gera fyrirtækin einnig og þetta kemur nú svona út að lánin hækka i hafi og engin getur af þeim borgað reksturinn stendur rekki undir þeim lánum!! en svo er komið fyrir mörgum stórum fyrirtækjum sem ætluð að gera mikið og byggðu og stækkuðu,en Bankarnir þeir velta milljörðum sem áttu að fara yfir ,þar er öllu reddað,en svona er því miður víðar komið fyrir margan,en þetta vonandi kemst á koppinn að þetta verði rekið áfram ekki getur verið annað í stöðunni/Halli gamli


mbl.is N1 yfirtekið af kröfuhöfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feitur köttur veiði ferðamenn/það er ódyrara en ísbjörnin,eða hvað !!!!!!!

Feitur köttur veiði ferðamenn
Innlent | mbl.is | 5.4.2011 | 12:24

 Jón Gnarr, borgarstjóri, sagði á ráðstefnu í dag, að unnt væri að laða marga erlenda ferðamenn að landinu í desember með því að sýna feitasta kött landsins sem jólakött í Húsdýragarðinum

Í fréttum Útvarpsins kom fram, að Jón lét ummælin falla á ráðstefnu um ferðamennsku, sem fyrirtækið Iceland Refund stóð að í morgun.

„Við myndum búa til helli Grýlu í Húsdýragarðinum og þar er jólakötturinn, einhver akfeitur Síams-köttur úr Breiðholtinu,“ hefur vefur RÚV eftir Jóni.

Þá sagði borgarstjóri, að hægt sé að laða að ferðamenn með því að vekja athygli á handritunum og nýta Höfða til friðarviðræðna fyrir til að mynda Ísrael og Palestínu. Þá standi til að Reykjavík verði svonefnd skjólborg, en það er alþjóðlegt verkefni sem snýst um að bjóða ofsóttum landflótta rithöfundum hæli.//////við gerum  grín´ á góðum stundum flest ,en ekki allir reyndar en það gerir þessi Borgarstjóri alltaf það er ekkert nema grín allt hans tal og svo er þetta og sagt að man eigi að taka því ,þetta sem við erum almennt að fjalla um nú i Borginni er ekkert  grín fúlasta alvara ekkert annað ,en þetta látum við bjóða okkur borgararnir ,hingað og ekki lengra,það er svo að við getum ekki endilaust hlusta á svona nema við erum að skemmta okkur,kallin fer yfir strikið aftur og aftur/Halli gamli


mbl.is Feitur köttur veiði ferðamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

11-12% hækkun launakostnaðar/synist allt i uppnámi eins og er!Ríkisstjórnin á Ísafirði að funda!!!

11-12% hækkun launakostnaðar
Innlent | mbl | 5.4.2011 | 12:19

Stíf fundarhöld hafa verið í húsnæði ríkissáttasemjara seinustu daga. Þær hugmyndir um launahækkanir sem Samtök atvinnulífsins lögðu fyrir viðsemjendur sína í gær gera ráð fyrir 11-12% hækkun launakostnaðar á þriggja ára samningstímabili.

Um er að ræða almennar launahækkanir, krónutöluhækkanir taxta og sérstaka hækkun lágmarkslauna, auk eingreiðslu til launafólks þegar samkomulag liggur fyrir, sem á að brúa bilið fram að gildistöku langtímasamnings í júní. Enn er þó alls óvíst hvort samningar nást á þessum nótum skv. heimildum mbl.is en beðið er viðbragða ríkisstjórnarinnar við tillögum aðila vinnumarkaðarins um breytingar á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í seinustu viku.

Þverrandi líkur eru nú taldar á að takist að ljúka gerð kjarasamninga fyrir næstu helgi. Ekki er reiknað með því að forystumenn samtakanna hitti ráðherra fyrr en í fyrsta lagi á morgun og á fimmtudag halda Samtök atvinnulífsins aðalfund sinn.

Í dag funda samninganefndir einstakra landssambanda og félaga með viðsemjendum um sérmál en ekki hefur verið ákveðið hvort samninganefndir ASÍ og SA koma saman í dag.///////maður sér ekki heillindin þarna alls ekki ríkisstjórnin á Ísafirði að funda um atvinnumal þar og fleira ,áhugin er ekki meiri en þetta á að koma á samningum,það er auðvitað einnig verið að kanna hvað vestfirðingar segja með kvótann og fl. en hvað varðar okkur um þjóðarhag sagði kallin her um árið,það ma´að ósekkju segja þetta um þessa ríkisstjórn einnig,þetta er svona að það á sem mynnst að' gera helst ekkert og láta okkur bar i friði með allar hækkanir og niðursveiflur svo er ástandið i dag!!!en að semja til 3 ára ótryggt er vitleysa,og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is 11-12% hækkun launakostnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstöðuyfirlýsing Norðurlanda/svona eiga Norðurlöndin að starfa saman!!!!

Samstöðuyfirlýsing Norðurlanda
Innlent | mbl.is | 5.4.2011 | 13:15

Norrænu utanríkisráðherrarnir í Helsinki í morgun. Össur... Utanríkisráðherrar Norðurlandanna sendu í dag frá sér sameiginlega samstöðuyfirlýsingu, þar sem þeir lögðu áherslu á þau sterku, sameiginlegu gildi sem tengi löndin.

Ráðherrarnir hittust á fundi í Helsinki í dag þar sem þeir ræddu þær ógnir sem að kunna að steðja, bæði náttúrulegar og af mannavöldum, netógnir og hryðjuverk.

Standi norrænt ríki frammi fyrir slíkri ógn munu hin ríkin, að fenginni ósk þess sem um ræðir, koma til aðstoðar.

Að sögn utanríkisráðuneytisins er aukin norræn samvinna í fullu samræmi við öryggis- og varnarstefnu ríkjanna og til viðbótar þeirri Evrópu- og NorðurAtlantshafs-samvinnu sem ríkin eiga aðild að.

Þessari samstöðuyfirlýsingu verður fylgt eftir með aðgerðum, m.a. á sviði bætts netöryggis.

Þá ræddu utanríkisráðherrarnir málefni Líbíu og lýstu stuðningi við auknar  lýðræðiskröfur sem fram hefðu komið víða í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Ráðherrarnir fordæmdu ofbeldi sem friðsamir mótmælendur hefðu verið beittir og minntu á þá skyldu stjórnvalda að vernda mannréttindi íbúa sinna, tjáningafrelsi þeirra og réttinn til að koma saman.

Norrænu ráðherrarnir sögðu Gaddafí ekki lengur lögmætan leiðtoga Líbíu og skoruðu á hann að segja af sér þegar í stað.  Ráðherrarnir ítrekuðu stuðning sinn við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir og loftferðabann yfir Líbíu og sögðu nauðsynlegt að bæta stöðu almennra borgara. Ráðherrarnir kölluðu eftir vopnahléi og frekari aðgerðum til að finna lausn á ástandinu.

Þá ræddu utanríkisráðherrarnir norðurslóðamál, einkum ráðherrafund Norðurskautsráðsins sem haldinn verður í Nuuk á Grænlandi í maí. Ennfremur stöðu mála í Afganistan en ráðherrarnir fordæmdu harðlega árásina sem gerð var sl. föstudag á búðir Sameinuðu þjóðanna í Mazar-e-Sharif þar sem sjö starfsmenn SÞ létu lífið, þeirra á meðal Norðmaður og Svíi.////svona eiga Norðurlöndin að starfa saman ,en ekki sundur
,það er sérstaklega gott ,einkum þetta um Norðurslóðir og það ráð,og standa þar saman en ekki sundrast,það er malið en ekki á vetfangi ESB bara norðurlöndin  !!! það er svo aftur annað mál hvað okkar utanríkisráðherra gerir sem er svo mjög hallur undir ESB ,við skulum vona að hann kunni sig og sé ekki með áróður á að komast þar inn þarna og víðar,það er ekki gott að hafða gátt á  Össur hann lætur svo margt í ljós sem á kannski ekki við!!! en þetta er gott að hafa þarna vinskap ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Samstöðuyfirlýsing Norðurlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spáir 2,3% hagvexti í ár/ á hvaða mælikvarða er Hagstofan,spurnig ????

Spáir 2,3% hagvexti í ár
Viðskipti | mbl.is | 4.4.2011 | 9:00

Gert er ráð fyrir hækkandi verði áls. Ný þjóðhagsspá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir að landsframleiðslan aukist um 2,3% árið 2011 miðað við síðasta ár, um 2,9% árið 2012 og 2,7% árið 2013.

Einkaneysla og fjárfesting eru talin munu aukast á þessu ári í fyrsta skipti frá hruni en samneysla heldur áfram að dragast saman. Gert er ráð fyrir að aukning fjárfestinga og einkaneyslu leiði til vaxtar í landsframleiðslu frá 2011. Talsverður afgangur verður af vöru- og þjónustuviðskiptum, enda er ekki gert ráð fyrir að gengið styrkist mikið á spátímanum.

Hagstofan segir, að efnahagsbati í viðskiptalöndum Íslands og hækkandi verð áls og sjávarafurða ásamt lágu gengi krónunnar stuðli að góðri afkomu útflutningsatvinnuveganna. Afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd verði því áfram hár líkt og verið hafi frá hruni. Vexti sé spáð í útflutningi allan spátímann en afgangurinn minnki þegar á líður vegna þess að reiknað sé með að innflutningur vaxi hraðar vegna aukningar í fjárfestingu og neyslu.

Hagstofan segir, að ýmsir óvissuþættir séu í spánni en meðal þeirra neikvæðu eru þessir:

  • Stóriðjuframkvæmdir verði minni 2012 og síðar
  • Efnahagsbati í viðskiptalöndum Íslands hægist
  • Skuldavandi heimila og fyrirtækja verði áfram sá dragbítur að eftirspurn
    taki ekki nægilega við sér
  • Vöxtur verði ekki nægur til að draga úr atvinnuleysi og vinnumarkaðurinn
    geti ekki tekið við slakanum sem samdráttur samneyslu veldur
  • Niðurstaða kjarasamninga styðji ekki við hagvöxt.
    ////////þá virðist Hagstofan reikna með að essi stjórn verði áran afturhald´+a öllu og V.G. hafi völdin og engar framkvæmdir við virkjanir og engin álver,semsagt gamla kerfið að tíma  grös og hundsúrur og fleira,þetta er svo átakanlegt að það hálfa væri nóg,þetta á að sína framfarir en gerir það ekki,það er allt lok lok læs og ekkert gert,en svona er ekki efnilegt að segja fólki sem er atvinnulaust og að' i nokkur ár,ef ekkert er að ske,þá bara flija þeir sem geta annað ekki i stöðunni/Halli gamli

mbl.is Spáir 2,3% hagvexti í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar og Hollendingar sagðir óttast dómstólaleiðina//þetta herðir okkur í að segja NEI

Bretar og Hollendingar sagðir óttast dómstólaleiðina
Innlent | mbl | 4.4.2011 | 16:16

Mynd 550151Breska dagblaðið Guardian fjallaði í gær um þjóðaratkvæðið um Icesave-samningana sem fram fer hér á landi nk. laugardag. Farið er ítarlega yfir aðdraganda málsins og niðurstöður síðustu skoðanakannana hér á landi.
Þjóðin sé klofin í tvennt í afstöðu sinni til þess hvort samþykkja eigi samningana eða hafna þeim sem þýddi væntanlega að málið færi fyrir dómstóla.

Fram kemur að bresk og hollensk stjórnvöld séu talin óttast mjög að niðurstaða þjóðaratkvæðisins verði sú að Icesave-samningunum verði hafnað þar sem það gæti leitt til þess að tekist yrði á um málið fyrir dómstól Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA).

Þá segir í frétt Guardian, sem skrifuð er af blaðamanninum Simon Bowers, að margir Íslendingar telji að niðurstaða dómstóla myndi sýna fram á að sú skoðun sé ekki á rökum reist að ríki verði samkvæmt löggjöf Evrópusambandsins að hlaupa undir bagga ef innistæðutryggingasjóðir geti ekki bætt innistæður.

„Afgerandi lagalegri niðurstöðu í þá veru yrði ekki fagnað á alþjóðavettvangi þar sem að hún myndi varpa ljósi á það hversu gríðarlega illa fjármagnaðir innistæðutryggingasjóðir í Bretlandi, Hollandi og í raun í öllum heiminum eru,“ segir í fréttinni.

Talsverðar umræður hafa skapast í athugasemdum við frétt Guardian og eru skiptar skoðanir um málið. Flestir virðist þó á þeirri skoðun að Íslendingum beri ekki að greiða fyrir Icesave en mikið af umræðunum snúast um gagnrýni á stjórnvöld í Bretlandi vegna þess hvernig þau hafi tekið á breskum efnahagsmálum.//////Þetta mun bara herða okkur í að neita þessum samningum ekki spurning,svo gerum við það og þeir sem ekki láta sér segjast gera þetta af einhverjum ástæðum sem maður ekki skilur og það er svo að men eiga og meiga hafa sinar skoðanir,en að vera að binda okkur klafa sem er ekki þörf ,við lærum svo lengi sem við lifum vonandi og segjum nei við Icesave !!!/Halli hamli


mbl.is Bretar og Hollendingar sagðir óttast dómstólaleiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja skýringar á misræmi /er það von þetta eru bara afsvör ,og ekkert annað !!!!

Vilja skýringar á misræmi
Innlent | mbl.is | 4.4.2011 | 17:03

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis hafa óskað eftir fundi í nefndinni til að fá skýringar á misræmi, sem þeir segja vera á svörum frá fjármálaráðherra við fyrirspurnum tveggja þingmanna á Alþingi.

Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir, að ekki gæti samræmis í svörum fjármálaráðherra um ríkisábyrgð og lánveitingar til fjármálafyrirtækja, við fyrirspurnum sem Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíusson lögðu fyrir fjármálaráðherra.

Guðlaugur spurði fjármálaráðherra um ríkisábyrgðir og framlög til fjármálafyrirtækja og Kristján Þór Júlíusson um ríkisábyrgð á Arionbanka. Segir í tilkynningunni, að svörum við þessum fyrirspurnum beri ekki saman í veigamiklum atriðum varðandi ríkisábyrgðir hjá Arion banka.

Þá veki athygli, að í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þór er ekki minnst á lánveitingar til Saga Capital og VBS. //// Steingrímur er og verður slunginn ,ekki spurning en hvað lengi ,getur hann skautað framhjá hlutunum,spurning sem verður kannski svarað eftir að þessi stjórn er fallin!! sem hlýtur að far að gerast ekki spurning bara hvenær ekki annað!!!hún er bara i sjálfseyðigarherferð engu öðru ekkert að gera fyrir fólkið bar að halda völdum ,og það sem gert er er bara bylting til að bylta ekkert annað,kemur engum að gagni/Halli gamli


mbl.is Vilja skýringar á misræmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ahmadinejad spáir 150 dölum á olíutunnuna/.þetta algjört kjafstögg á flesta sem ekki eiga Olíu!!!!

Ahmadinejad spáir 150 dölum á olíutunnuna
Erlent | AFP | 4.4.2011 | 16:45

Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans talar við blaðamenn í Tehran.Íransforseti, Mahmoud Ahmadinejad, spáði því í dag að verðið á hráolíu muni hækka áfram og ná 150 dollurum á tunnu vegna pólitískra áhrifavalda.
Það eru pólitísku kringumstæðurnar sem ráða verðinu, ekki markaðsaðstæður," sagði Ahmadinejad á blaðamannafundi í dag. Íran situr nú í forsæti OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja. „Þið spyrjið hvort ég haldi að olíuverð haldi áfram að hækka? Já olíuverð mun hækka. Ég held að innan skamms tíma gæti verðið náð 150 dollurum á tunnu," sagði hann án þess að skýra það frekar.

Íran er næststærsta olíuútflutningsríki heims. Hráolíuverð hefur hækkað upp úr öllu valdi síðustu mánuði og í dag kostar tunnan 108 dollara. OPEC ríkin 12 hafa yfirráð yfir rúmlega þriðju fjórðuhlutum af öllum olíulindum heims sem vitað er af en samtökin eru klofin í afstöðu sinni til þess hvort auka eigi framleiðslu til að ná tökum á verðhækkunum.///við öll i þessum tæknivædda heimi erum  samsek að ver að ekki búin að gera ráðstafannir meðannað eldsneyti til að nota almennt,við verum að sæta þessu i bili en leggja allat í sölurnar til að ger annað eldneyti og nota rafmagn og metan og jafnvel alkahol rafmagnið og matanið komið en bara spurning hvernig því verði flýtt svo við getum bara skipt og breitt okkar bílum i þetta eldssneyti  einnig  og skipum einnig,þetta er það eina þessi ríki múslima og annar sem hafa mest olíu eru að bara að hefna sín á okkar fávisku ekkert annað stríð læknar þetta ekki heldur að allir taki sig á og skipti ut  í Rafmagn og Metan,.það er leiðin ,því Olíur komast þarna sem hann segir illfyglið þetta eru það 450 kr literin hver keyrir á því spyr bara/Halli gamli


mbl.is Ahmadinejad spáir 150 dölum á olíutunnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Það var þungt hér í morgun“/er það nokkur furða,það er engin sem lifir af minna en 200 þúsndum!!!

Það var þungt hér í morgun“
Innlent | mbl.is | 4.4.2011 | 16:07

Sigurður Bessason, formaður Eflingar og Gylfi Arnbjörnsson,...„Það var þungt hér í morgun,“ sagði Sigurður Bessason, formaður Eflingar, þar hann var spurður um stöðu kjaraviðræðna. Hann se

Samningamenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hafa verið í Karphúsinu í dag og fundað saman og í sitthvoru lagi. Sigurður sagði að landssambönd ASÍ væru að fara yfir það sem SA hefði verið að setja fram eftir hádegið í dag. Hann sagði það myndi skýrast í kvöld hvort menn væru að þokast nær samkomulagi um launamál eða hvort samningamenn væru að fjarlægjast .

„Það en engin niðurstaða komin í launamálin,“ sagði Sigurður.

ASÍ hefur sett fram þá kröfu að lágmarkslaun verði orðin 200 þúsund í lok samningstímans árið 2014.

gir enn ekki komin niðurstaða um launakröfur ASÍ.////það er viðsættanklegt að fá þetta á 3-4 árum þetta er það sem við vitum öll að við þurfum þetta til að lifa af samkvæmt útreikningum nýjum og á bara að hudsa það?? en þetta er svona að hafa okkur bara í lægsta kantinum sem hægt er svo og segjast gera þetta í aföngum/við bara einfaldlega gengur ekki með þessum hækkunum öllum lifað af mynna,það vita allir engin vill taka af skarið/Halli gamli 

mbl.is „Það var þungt hér í morgun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu/bætir við sig ,er jafn að athvæðum og ríkisstórinin!!!

Sjálfstæðiflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samfylkingin og Vinstri græn í Reykjavík gætu hins vegar myndað saman meirihluta í borgarstjórn, þrátt fyrir að tapa lítillega frá síðustu könnun, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Sjálfstæðiflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samfylkingin og Vinstri græn í Reykjavík gætu hins vegar myndað saman meirihluta í borgarstjórn, þrátt fyrir að tapa lítillega frá síðustu könnun.

Gallup spurði nærri 2.600 atkvæðisbæra Reykvíkinga að því hvað þeir myndu kjósa, yrði gengið til borgarstjórnarkosninga nú. Rúm 70% svöruðu. Aðrir en stóru flokkarnir fjórir fengju samanlagt 2% atkvæða.

41% myndi kjósa sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til borgarstjórnar nú samkvæmt könnun Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn yrði því stærsti flokkurinn með sjö borgarfulltrúa. Þetta er tveimur prósentustigum meira en í síðustu könnun fyrir mánuði en einu prósentustigi minna en í kosningunum 2006. Framsóknarflokkurinn fengi 5% nú, rétt eins og síðast, sem er litlu minna en í kosningunum næði ekki inn manni.

Þriðjungur ætlar sér að kjósa Samfylkinguna, sem tapar einu prósentustigi frá síðustu könnun, en er þó áfram vel yfir kjörfylgi. Þetta myndi skila fimm borgarfulltrúum.

19% segjast ætla að kjósa Vinstri græn sem tapar tveimur prósentustigum frá því síðast en fékk 14% í kosningunum. Tveir borgarfulltrúar þar.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er því fallinn samkvæmt þessu. VG og Samfylkingin gætu hins vegar myndað nýjan átta manna meirihluta. Hvor um sig gæti líka gangið í eina sæng með sjálfstæðismönnum. Meirihluti V og D hefði tíu borgarfulltrúa.

Sterkasti meirihlutinn yrði undir listabókstöfunum S og D og hefði 12 borgarfulltrúa af 15.“///////////////////þetta lofar góðu en ekki var verra að í skoðun um landsmalin er það sama að ske eð við erum að vinna á þar flokkurinn með sama fylgi og ríkisstjórnin 35 % og það bara gott eins og búið  er að útúða honum og allt honum að kenna ,kreppan og allt sem aflga fer ,en stjórinn er fallin og Borgin einnig samt geta samfylgin i Borgini og V.G myndað meirihluta ef kosið yrði i dag,en  ríkisstjórinn er löngu fallin ekki spurning !!!!!!/Halli gamli


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband