Samstöðuyfirlýsing Norðurlanda/svona eiga Norðurlöndin að starfa saman!!!!

Samstöðuyfirlýsing Norðurlanda
Innlent | mbl.is | 5.4.2011 | 13:15

Norrænu utanríkisráðherrarnir í Helsinki í morgun. Össur... Utanríkisráðherrar Norðurlandanna sendu í dag frá sér sameiginlega samstöðuyfirlýsingu, þar sem þeir lögðu áherslu á þau sterku, sameiginlegu gildi sem tengi löndin.

Ráðherrarnir hittust á fundi í Helsinki í dag þar sem þeir ræddu þær ógnir sem að kunna að steðja, bæði náttúrulegar og af mannavöldum, netógnir og hryðjuverk.

Standi norrænt ríki frammi fyrir slíkri ógn munu hin ríkin, að fenginni ósk þess sem um ræðir, koma til aðstoðar.

Að sögn utanríkisráðuneytisins er aukin norræn samvinna í fullu samræmi við öryggis- og varnarstefnu ríkjanna og til viðbótar þeirri Evrópu- og NorðurAtlantshafs-samvinnu sem ríkin eiga aðild að.

Þessari samstöðuyfirlýsingu verður fylgt eftir með aðgerðum, m.a. á sviði bætts netöryggis.

Þá ræddu utanríkisráðherrarnir málefni Líbíu og lýstu stuðningi við auknar  lýðræðiskröfur sem fram hefðu komið víða í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Ráðherrarnir fordæmdu ofbeldi sem friðsamir mótmælendur hefðu verið beittir og minntu á þá skyldu stjórnvalda að vernda mannréttindi íbúa sinna, tjáningafrelsi þeirra og réttinn til að koma saman.

Norrænu ráðherrarnir sögðu Gaddafí ekki lengur lögmætan leiðtoga Líbíu og skoruðu á hann að segja af sér þegar í stað.  Ráðherrarnir ítrekuðu stuðning sinn við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir og loftferðabann yfir Líbíu og sögðu nauðsynlegt að bæta stöðu almennra borgara. Ráðherrarnir kölluðu eftir vopnahléi og frekari aðgerðum til að finna lausn á ástandinu.

Þá ræddu utanríkisráðherrarnir norðurslóðamál, einkum ráðherrafund Norðurskautsráðsins sem haldinn verður í Nuuk á Grænlandi í maí. Ennfremur stöðu mála í Afganistan en ráðherrarnir fordæmdu harðlega árásina sem gerð var sl. föstudag á búðir Sameinuðu þjóðanna í Mazar-e-Sharif þar sem sjö starfsmenn SÞ létu lífið, þeirra á meðal Norðmaður og Svíi.////svona eiga Norðurlöndin að starfa saman ,en ekki sundur
,það er sérstaklega gott ,einkum þetta um Norðurslóðir og það ráð,og standa þar saman en ekki sundrast,það er malið en ekki á vetfangi ESB bara norðurlöndin  !!! það er svo aftur annað mál hvað okkar utanríkisráðherra gerir sem er svo mjög hallur undir ESB ,við skulum vona að hann kunni sig og sé ekki með áróður á að komast þar inn þarna og víðar,það er ekki gott að hafða gátt á  Össur hann lætur svo margt í ljós sem á kannski ekki við!!! en þetta er gott að hafa þarna vinskap ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Samstöðuyfirlýsing Norðurlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Síðast þegar ég gáði eru þrjú Norðurlandanna í ESB og utanríkisráðherrar þeirra eru allir mikli ESB-sinnar -- og ég hef grun um að Jonas Gahr Störe sé síst minni ESB sinni en Össur, þótt ég þekki ekki skoðanir hans út og inn.

Pétur (IP-tala skráð) 5.4.2011 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband