Ríkisendurskoðun komi að málinu

RíkisenGuðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,...durskoðun komi að málinu Innlent | mbl.is | 24.10.2012 | 13:22 „Ég hef verið að vekja athygli á þessum sérkennilegu reiknireglum sem voru framkvæmdar í kjölfar lagasetningar ríkisstjórnarinnar á sínum tíma og þessi niðurstaða Hæstaréttar staðfestir það að verið var að hlunnfara lánþega og gæta hagsmuna fjármálafyrirtækja.

“ Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is vegna niðurstöðu Hæstaréttar í síðustu viku í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka vegna gengistryggðra lána. Bendir hann meðal annars á að hann hafi á sínum tíma sett upp sérstaka reiknivél á heimasíðu sinni þar sem hægt hafi verið að fá rétta útreikninga á slíkum lánum.

„Vandinn er sá að þær eftirlitsstofnanirnar sem áttu að gæta hagsmuna lántakenda hafa brugðist. Það er svo mikilvægt að fólk geti treyst því að það fái rétta niðurstöðu.

Flestir hafa sjálfsagt verið sáttir við að fá betri útreikninga en samkvæmt gamla láninu en það breytir því ekki að það hefur eftir sem áður ekki verið rétt reiknað þannig að það hallar á lántakendur,“ segir hann ennfremur.

Dómur Hæstaréttar í síðustu viku var til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í morgun og lagði Guðlaugur fram tillögu á fundinum ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Lilju Mósesdóttur, þingmanni Samstöðu, þar sem meðal annars er lagt til að Ríkisendurskoðun verði falið að fara yfir málið í ljósi þess að ríkið og hefðbundnar eftirlitsstofnanir þess hafi brugðist í málinu.

Tillagan í heild: „Framkvæmd endurútreiknings erlendra lána er mikil harmsaga. Mikilvægt er að henni ljúka sem fyrst farsællega.

Nýlegur dómur Hæstaréttar um mál Borgabyggðar og Arion banki er enn ein staðfesting þess að endurreikningurinn hefur ekki verið rétt framkvæmdur og hafa lántakendur borið mikinn skaða af. Aðstöðumunur er mikill á milli lántakenda og fjármálastofnana.

Mikilvægt er að lántakendur geti sótt sér sem bestar upplýsingar með einföldum hætti. Því miður sýna dómar Hæstaréttar að gagnrýni á stjórnvöld og eftirlitstofnanir á fjármálamarkaði hafa átt að rök að styðjast. Þess vegna er lagt til að stofnun sem heyrir undir alþingi verði falið að setja upp reiknivélina.“//////////Við erum öll orðin eiginlega úrkulna vonar um að það verði nokkuð gert þarna,eða sýnist manni svo vara það er svo að jafanaðarmesnska sem var til!!!!! er heillum horfin engin vill réttalæti sem er við stjórnvölin nema að Guðlausgur og c/o eru að halda þeim við efnið,skítiði svo í hann og hans líka!!!ég sé ekki að þessu eigi að framfylgja og ekki heldur til hinna sem tóku innlendu láninn,þaðá bara að láta menn missa sitt allt og flía land,það mundi ég gera sem yngri maður í dag ekki spurning//Halli gamli


mbl.is Ríkisendurskoðun komi að málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti að taka hótanir alvarlega/Takið mannin bara úr umferð í bili!!!!!!

Ætti að taHéraðsdómur Reykjavíkur ka hótanir alvarlega Innlent | mbl.is | 24.10.2012 | 11:46 Lögreglumenn segja fyllstu ástæðu til að takaalvarlega hótanir karlmanns sem meðal annars er gefið að sök að hafa margoft hótað lögreglumönnum og veist að þeim.

Fyrir nokkrum árum hlaut hann dóm fyrir að bíta einn þeirra lögreglumanna, sem hann er nú ákærður fyrir að hafa ráðist á og hótað. lögreglumönnum og veist að þeim við skyldustörf. Fyrir nokkrum árum hlaut hann dóm fyrir að bíta einn þeirra lögreglumanna, sem hann er nú ákærður fyrir að hafa ráðist á og hótað lífláti.

Aðalmeðferð málsins hófst við héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. Allnokkrir þeirra lögreglumanna sem maðurinn er sakaður um hafa hótað, báru þar vitni og sögðu nokkrir þeirra manninn hafa hótað sér og fjölskyldum sínum líkamsmeiðingum og lífláti.

Sagðist ætla að skera lögreglumann á háls Einn þeirra sagðist hafa elt sakborninginn skammt frá Hlemmi. Hann sagði manninn hafa slegið til sín og þá hefði hann beitt piparúða.

Manninum hefði tekist að komast undan, lögreglumaðurinn hefði aftur beitt piparúða í tvígang og að lokum hefði tekist að handsama hann við illan leik. mbl.is Á leið á lögreglustöðina viðhafði sakborningurinn ýmsar hótanir í garð lögreglumannsins, samkvæmt vitnisburði, en hann hlaut dóm fyrir nokkrum árum fyrir að bíta viðkomandi lögreglumann.

Maðurinn sagðist ætla að drepa lögreglumanninn og varaði hann við því að stíga fæti inn í tiltekna líkamsræktarstöð, að öðrum kosti yrði hann „skorinn á háls“. Að auki sagðist hann ætla að myrða fjölskyldu lögreglumannsins. Starfsfélagi lögreglumannsins staðfesti þetta fyrir dómi. Lögreglumaðurinn, sem um getur sagði fyllstu ástæðu til að taka hótanir mannsins alvarlega.

„Hann hefur sýnt það í gegnum tíðina að hann er bæði ofbeldisfullur og óútreiknanlegur,“ sagði lögreglumaðurinn. Er verjandi mannsins bað hann um að útskýra það nánar tiltók hann nokkur dæmi sem studdu við fullyrðingu hans. Spurður að því hvort hann hefði orðið var við manninn í grennd við heimili sitt, þar sem hann hefði gerst líklegur til að gera alvöru úr hótunum sínum svaraði hann því neitandi, en bætti því við að ekki hefðu verið hæg heimatökin fyrir sakborninginn, þar sem hann hefði verið vistaður í síbrotagæslu fljótlega eftir þetta atvik.

Réðst á afgreiðslustúlku á vídeóleigu Í vitnisburði annars lögreglumanns sagðist hann hafa verið kallaður á vettvang vegna árásar á afgreiðslustúlku á vídeóleigu. Stúlkan hafi bent á manninn, sem lögreglumenn báru kennsl á að væri téður sakborningur, og hann hafi tekið á rás og hlaupið inn í nærliggjandi hús.

Hann segir manninn hafa opnað glugga, öskað á þá og hótað lögreglumönnum ýmsu miður félegu. Nokkur orðaskipti hafi hafist á milli hans og lögreglumannanna sem hafi endað á því að þeir brutust inn í húsið. Þá hafi maðurinn hrækt ítrekað á sig og ekki annað að gera en að breiða dulu yfir andlit hans til að koma í veg fyrir það.

Í vitnisburði ákærða fyrr í morgun sagðist hann hafa þurft að grípa til þess neyðarúrræðis að hrækja á lögreglumanninn til að koma í veg fyrir harðræði sem hann segist hafa verið beittur. Sagðist vita hvar lögreglumaður ætti heima Enn einn af þeim lögreglumönnum sem bar vitni segist hafa handtekið sakborninginn vegna reiðhjólaþjófnaðar.

Við það hafi hann hótað honum ýmsu illu og meðal annars sagst vita hvar hann byggi og að hann myndi „koma heim til hans og ganga frá honum“. Spurður að því hvað hann teldi að sakborningurinn hefði átt við með þessum orðum, sagðist lögreglumaðurinn telja að það væru líkamsmeiðingar, ekki síst ef litið væri til sögu hans og fyrri hegðunar.//////////Hvenær er ástæða ef ekki þarna að taka menn úr umgferð,og lofa bót og betrun ef hægt er annars bara meiri betrun!!!Við eigum ekki að láta menn komast upp með svona als ekki,lögregla hefur í nógu að snúast,annað en í svona og liggja i leyni fyrir okkur sem förum 2-5 km framúr hraða,við viljum samstarf við lögreglu og hún  við okkur enda á Lögregla að gera það!!!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Ætti að taka hótanir alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna er hann kjarnyrtur og segir sannleikna hann Óskar Helgi Helgason segir þarna!!!

Heill og sæll Jóhann Stýrimaður - og aðrir gestir, þínir ! Axel - Ingibjörg - Skúli og Hilmar frændi minn, af Gamla Hrauns meiði !

Jóhann síðuhafi; fer sem oftar, með hárrétt mál, sem hans er von og vísa til. Kerlingarhelvítið; Jóhönnu Sigurðardóttur, væri búið að taka úr umferð, í öllum siðmenntuðum löndum fyrir löngu síðan, en Ísland er; því miður, 5. Heims ríki - og ástand mála eftir því, gott fólk. Þetta Djöfuls skoffín; Jóhanna - og þau 62 hin reyndar (þinghúss packið), leikur sér að örlögum þess fólks, sem beðið hefir leiðréttinga sinna mála, síðan Haustið 2008 - og drepa VILJANDI málum á dreif, með því að draga athyglina, á gjörsamlega óþörfu máli, sem leiðrétting Stjórnarskrárinnar er, og getur alveg beðið, unz; búið er að rétta brýn mál af

. En; takið eftir, gott fólk - stjórnmálahyskið íslenzka, er búið að koma sér vel fyrir í kerfinu, og lifir í ekki minni lúxus, en slekti Loðvíks XVI., fyrir Bastillu byltinguna, forðum.

Skrautsýning alþingis; er óboðleg, öllu skynugu og hugsandi fólki !!! Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason, 23.10.2012 kl. 20:27//////////Þessum varð ég eiginlega að stela þó kannski i óleifi sé,en hann Óskar Helgi segðir svo hreint og tært frá að manni fellst oft hendur,en svo er hann blessaður og er að tala þarna við við minn Jóhann stýrimann en nú landkrabbi, og reyndar fleiri þarna!!!!en getur einnig verið hvassyrtur/En samt ég hefi mjög gaman f þessu ef gengið er ekki um of langt!!!/Halli gamli


Þrír viðræðukaflar opnaðir í morgun///Það er flýtimeðferð bara sett á,allt með ráðum gert!!!!

Þrír viÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.ðræðukaflar opnaðir í morgun Innlent | mbl.is | 24.10.2012 | 10:39 Þrír kaflar voru opnaðir í morgun á sérstakri ríkjaráðstefnu í Brussel í viðræðunum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið til viðbótar við þá sem þegar hafa verið opnaðir samkvæmt fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Um er að ræða kafla 9 um fjármálaþjónustu, kafla 18 um hagtölur og kafla 29 um tollabandalag en fram kemur í tilkynningunni að þar með hafi samtals 21 kafli verið opnaður í viðræðunum af þeim 33 sem semja þurfi um en í heildina eru kaflar viðræðnanna 35.

Viðræðum um 10 kafla hefur verið lokið til bráðabirgða. Þá segir að Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, hafi farið fyrir íslensku sendinefndinni en í henni voru einnig Þórir Ibsen, sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu, Harald Aspelund, skrifstofustjóri Evrópumála í utanríkisráðuneytinu, Bryndís Kjartansdóttir, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, og Auðunn Atlason, ráðgjafi utanríkisráðherra í Evrópumálum.

 

  • Ennfremur kemur fram að næsta ríkjaráðstefna verði haldin í desember næstkomandi og verður það hin síðari í formennskutíð Kýpur hjá Evrópusambandinu sem lýkur um áramótin. Tengdar fréttir — Umsókn um aðild að ESB///////////////Það á bara að kýla á þetta með látum!!!þar í spinnur heilmikið,það eykst bilið á þeim sem vilja þarna inn,og svo er búið að plata fólk til að kjósa um að framselja okkar rétt til að vera sjáfsæð þjóð!!!allt spilar  þetta þarna inn,og þangað skulum við segja Jóhanna Össur og c/o,hvað sem það kostar!!!en ég persónulega held,og þar er meirihluti fyrir að við förum ekki þarna inn,als ekki!!!ný stjórnarskrá 17 júní segir kerla,hvað er hún að gaspra blessunin,henni lýður ekki vel!!!!///Halli gamli  

 


mbl.is Þrír viðræðukaflar opnaðir í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggja allt í sölurnar/Vonadi að Barack Obama vinni þetta ,allra hluta vegna!!!

LegMitt Romney og Barack Obama tókust á í sjónvarpssal í nótt.gja allt í sölurnar Erlent | mbl.is | 23.10.2012 | 20:15 Eftir hálfan mánuð fá Bandaríkjamenn tækifæri til að mæta á kjörstað til að kjósa sér forseta.

Frambjóðendurnir Barack Obama og Mitt Romney hyggjast leggja allt í sölurnar næstu tvær vikurnar í þeim tilgangi að tryggja sér forsetastólinn.

Í nótt mættust forsetaframbjóðendurnir í þriðju og síðustu sjónvarpskappræðunum Eftir hálfan mánuð fá Bandaríkjamenn tækifæri til að mæta á kjörstað til að kjósa sér forseta.

Frambjóðendurnir Barack Obama og Mitt Romney hyggjast leggja allt í sölurnar næstu tvær vikurnar í þeim tilgangi að tryggja sér forsetastólinn.

Obama og Romney munu ferðast vítt og breitt um landið í þessari viku, en þeir munu koma fram á kosningafundum og stefna að því að verja auknu fé til að auglýsa sín framboð í lykilríkjum.

Í nótt mættust forsetaframbjóðendurnir í þriðju og síðustu sjónvarpskappræðunum þar sem þeir tókust á um utanríkismál.

Obama hafði betur ef marka má tvær skoðanakannanir sem voru gerðar í kjölfar kappræðnanna. Obama sótti hart að Romney sem hann sakaði um að vera ekki með neina stefnu í utanríkismálum.

Romney svaraði fyrir sig og sakaði Obama um að hafa ekkert gert til að stöðva glundroðann í Mið-Austurlöndum.

Obama ferðast nú um Flórída og Ohio þar sem hann mun funda með stuðningsmönnum sínum á meðan Romney leitar eftir stuðningi íbúa í Nevada og Colordo. Þeir munu síðan ferðast til sex annarra lykilríkja.///////Mikið er í húfi og hart tekist á ekki málið að það er ekkert gefið eftir ,en málstaður annars er betri að er Obama sem ég held að hafi það vegna betri málstaðar og öruggara lífi Bandaríkjana,ekki þetta stríðsástand sem mun fylgja Romney ,þó hann hefi verið að slá svolítið af í seinni tíð,með margt sem hann  ættlaði að gera,mæra Ísraela og fá Gyðingana til að kjósa sig,herja á Írani og N.Kóreu semsagt halda sjo með herinn að valdi!!!Þetta styttist og það er endaspretturinn sem blífar,og hann hefur Obama það er mitt álit!!!!/Halli gamli


mbl.is Leggja allt í sölurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er svo að sannleikurin er sagna bestur,eða er það ekki????

FORSÍÐA RSS HÖFUNDUR Gústaf Adolf Skúlason Búsettur í Stokkhólmi, Svíþjóð. Tók þátt í andspyrnunni gegn Icesave og nú gegn alríkisþróun ESB. Styð hugmyndir BetraPeningakerfis um breytt peningakerfi, sem við getum fyrst allra þjóða innleitt.

Talsmaður smáfyrirtækja í mörg ár m.a. sem ritari Smáfyrirtækjabandalags Evrópu. Starfa við hönnunar- og auglýsingastofuna 99 DESIGN. LEITA Í ÞESSU BLOGGI Ríkisstjórnin pantaði stjórnarskrá til að uppfylla "acquis" kröfur ESB 23.10.2012 | 13:35 Mikið liggur ríkisstjórninni á að keyra núverandi tillögum Stjórnlagaráðs gegnum þingið, sem þjóðinni var sagt að væru "ráðgefandi" en núna eru "bindandi." Icesave-vinnubrögðin sjást greinilega, hraða á öllu í gegnum þingið án þess að fagaðilar í samfélaginu fái að vinna störf sín.

Lögmenn fengnir til starfa en fá ekki að segja sína meiningu á innihaldi pakkans. Fagmennsku breytt í umbúðir. Allt eftir því, sem tíðin líður og fleiri fagaðilar fá að segja sitt álit, koma ný atriði í ljós, sem eru röng og þarf að lagfæraÞannig sagði einn virtasti lögmaður Íslands, lagaprófessor og emeritus Sigurður Líndal í stuttri og kjarnyrtri grein í Fréttablaðinu s.l. sunnudag undir yfirskriftinni Merkingarlaus þjóðaratkvæðagreiðsla:

"Um hvað snerist þá þessi atkvæðagreiðsla? Um ófullburða plagg sem fullyrða má að landsmenn höfðu afar óljósa hugmynd um, hvað fæli í sér. Tæpitungulaust snerist atkvæðagreiðslan því ekki um neitt. Hér er unnið í anda sýndarlýðræðis sem er vísastur vegur til að rækta jarðveg fyrir pólitíska spillingu, þannig að hún verði stunduð í skjóli teygjanlegs lýðræðilegs umboðs sem túlka megi á hvaða veg sem er og réttlæta hvað sem er.

" Stjórnarskrá Stjórnlagaráðs er pöntuð af ríkisstjórninni til að aðlaga innihaldið, þ.e. stjórnskipan lýðveldisins Íslands að ESB og þjóðin blekkt með fullyrðingum um að komið sé til móts við óskir hennar um aukið lýðræði og sjálfstætt, fullvalda Ísland.

Myrkrarverk ríkisstjórnarinnar þola náttúrulega ekki dagsbirtu og því á að keyra málið í gegn á ógurhraða. Ríkisstjórnin hefur keyrt niður virðinu Alþingis í botn lákúrunnar með vinnubrögðum sínum. Hún hefur einungis haft tvö markmið: 1. Skaða Sjálfstæðisflokkinn eins mikið og hægt er 2. Troða þjóðinni inn í ESB Stjórnarandstaðan verður að halda vörnum fyrir stjórnarskrá lýðveldisins og hrinda þessari árás. Gústaf Adolf Skúlason///////////////Það er eiginlega skilda að lesa þetta,og skoða vel,og gefa á þetta koment!!!sannleikurinn er oft ranglátur,en þarf að kom fram,endilega,ég er þessu alveg sammála,og vel það,við erum höfð að leikshoppi,og við snúum bara okkur í vörn///Halli gamli


Metan hækkað um 70% síðan 2009/Við bara treystum á að við þetta verði staðið að hafa nóg efni og vinna það,ekki hækka meira!!!!

Metan hMetanbíll ækkað um 70% síðan 2009 Viðskipti | mbl.is | 23.10.2012 | 13:40 Verð á metaneldsneyti hefur hækkað úr 88 krónum í byrjun árs 2009 upp í 149 krónur sem það er selt á í dag. Þetta gerir um 70% verðhækkun á tæplega 4 árum.

Á sama tíma hefur bensín hækkað um 80%, eins og mbl.is greindi frá nýlega. Á þessu ári hefur verðið tvisvar verið hækkað, bæði í febrúar og júlí.

Á þeim tíma hefur það hækkað um 23 krónur, sem er svipuð krónutöluhækkun og hefur verið á bensíni á sama tíma. Samkvæmt heimasíðunni Metan hf., sem er í eigu Sorpu, þá er einn rúmmetri af 100% hreinu metani jafngildi um 1,12 lítra af 95 oktana bensíni. Hreinleiki íslenska metansins er allt að 98% og því er orkuinnhald þess heldur meira en sem nemur einum lítra af 95 oktana bensíni.

Þróun bensín- og metanverðs mbl.is Í byrjun árs 2009 var verðmunur á bensíni og metani um 62% en í dag er hann orðinn um 72%. Þess ber þó að geta að metanið kom á markað árið 2007 og hækkaði ekkert það ár, né árið 2008.

Á sama tímabili hafði bensínverð hækkað um 10% hérlendis. Við síðustu hækkun sagði Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri Metans hf. og Sorpu bs. í samtali við Morgunblaðið að hækkunin ætti rætur að rekja til aukinnar eftirspurnar eftir metani.

„Eftirspurnin er orðin það mikil að við þurfum að auka fjárfestingu til þess að anna henni“, en Sorpa samdi fyrr í sumar við bæði Olís og Metanorku um sölu á metani, en hingað til hefur N1 verið eini söluaðilinn. Þessu hafi Sorpa þurft að bregðast við með auknum tækjabúnaði og sé hækkunin til að fjármagna þær breytingar.//////////Við græna fólkið !!!!sem viljum spara gjaldeyrir og mengun!!! eru búinir að fjárfesta í þessu og viljum sanngirni að þesssu verði bara reddað strax !!ekki seinna þegar menn gefast upp,og taka kútana aftur út úr bifreiðunum!!!það er svo að eftir þvi sem maður kynnir sér þetta meira til nóg hráefni,og við skulum bara láta það ske að nytja það i botn og frameiða nóg eftir aukningu hlýtur að komast á þetta aukin hagnaður allra sem það nota og selja og framleiða,allt er dýrara fyrst en jafnar sig með aukinni notkun svo maður tali nú ekki um að þetta mengar ekkert og er það ekki gott!!!En í öllum bænum og fjórð'ungum þarf að koma vinnsla/Halli gamli


mbl.is Metan hækkað um 70% síðan 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Malbikað milli Hólmavíkur og Drangsness///Þetta eftir öðru,byrjað á vitlausum enda!!!

MalbikaFrá höfninni á Hólmavík.ð milli Hólmavíkur og Drangsness Innlent | Bæjarins besta | 23.10.2012 | 10:02 Hafin er vinna við endur- og nýlögn Strandavegar, frá Djúpvegi að Geirmundarstaðarvegi í Steingrímsfirði.

Lesa Verkið var boðið út í júní og buðu fimm verktakar í verkið. Borgarverk ehf., í Borgarnesi, sem átti næsthæsta tilboð í verkið, fékk verkið fyrir ríflega 166 milljónir króna. Þetta kemur fram í frétt Bæjarins besta.

Kostnaðaráætlun verktaka hljóðaði upp á rúmar 194 milljónir króna. Vegarstæðið er niðri í fjöru og að hluta til úti í sjó við Grænanes og Stakkanes.

Um er að ræða framkvæmd á 2,8 kílómetra löngum kafla. Að framkvæmdinni lokinni verður komið á bundið slitlag milli Hólmavíkur og Drangnes.////////////Það er svo að það einkennilegt að taka þetta ekki fyrst í byrjun að klára Hrútafjörðin vestan megin fyrst,svo og kollafjörðn sunnamegin!!þara eru spottar sem er nauðsin að klára fyrir mörgum árum!!!þegar  nýji vegurinn til Hólavíkur var lagður reynar vitlaust,að mati allra nema vegagerðar, "þröskular"heitir hann og er rétt nefni!!oftast ófær í fyrstu snjóum!!en bifreyðar sem kom að norðan fara hrútafjöðin mikið styttri leið,einnig sýndi sig í fyrra að bílar að sunnan stórir fluttninabílar tóku ekki sénsa og fóru lengri leiðina,þessa vegna,af hverju ekki klára þessa spotta þarna,og það strax,ekki alltaf snúa öllu á hvolf//Halli gamli


mbl.is Malbikað milli Hólmavíkur og Drangsness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ættli verði gert á Alþingi fyrir jólafrí,ekkert fyrir fólkið,sem er að missa allt sitt????

Það er stórt spurt,en sennilega lítið svarað??manni finnst,að það sé númer eitt að klára stjórnarskrána fyrstu umferð,allavega,eða þegar blessað fólkið er búið að fagna,sem aldei virðist taka enda!!en komum bara niður á jörðina,og skoðum málin vel,hvað verður gert við þessa skoðunarkönnun,sem tókst svo vel að þeirra áliti sem vilja bylta henni??en ekki bara lagfæra!!en það viljum við flest gera í samráði við sem flesta!!það getur bara tekið okkur 2 þing og verður vekki breytt!!Svo þarf Alþingi að samþykkja ég segi helst með 2/3 hlutum atkvæða!!svo marktækt sé,en síðan aftur eftir kosningar þá búið að kjósa um hana,og þá bara einfaldan meirihluta!!og hún gengur í gegn,sem lög frá Alþingi 2013 ef gefur!!en það er svo margt sem bíður Alþingis sem verður að leist áður en þetta verður að veruleika!!það er að fara í framkvæmdir og atvinnu við virkjanir stækkun álvera og klára Helguvík,núna þegar fiskur er að lækka í heiminum,vegna aukinna veiðiheimilda!!verðum við að treysta á aðrar auðlindir,og þær má nota ekki spurning,og fara bara vel með!!!V.G.eru ekki þeir einu sem vilja fara varlega og gera vel!!við erum það flest,sem betur fer!!!Með því að samstað náist hjá okkur flestum getum við komist  frá skuldum öll og minkað skatt og gjöld og komist jafnvel í álnir!!og þá er komið að okkur að skoða annan gjaldmiðil eða nýkrónu jafnvel??eru bara ekki allir dús með það!!við 327 þús og förum heldur fækkandi,eigum að geta haft það gott á ríkjasambans eða ESB en bara tvíhliða  samninga við þjóðir okkur að skapi,og eigum við bara ekki að taka höndum saman og gera þetta eða annað kannski betra////Halli gamli


Nýr spítali er aðkallandi/Látum skinesemina ráða eini sinni,og tækjavæðum og stækkum bara,salta aðeins spítalan allan!!!

Nýr spítaLandspítalinn við Hringbraut.li er aðkallandi Innlent | mbl.is | 23.10.2012 | 10:21 Hjúkrunarráð Landspítala skorar á Alþingi Íslendinga og Reykjavíkurborg að veita nýjum Landspítala við Hringbraut brautargengi, þrátt fyrir neikvæða umræðu undanfarið. Þetta kemur fram í ályktun ráðsins.

Ákvörðun um staðsetningu Landspítala var tekin fyrir 10 árum.

Helstu rökin voru m.a. nálægð við Háskóla Íslands, að þannig tengdist spítalinn best stórum umferðaræðum og að þar sé mesta byggingarmagn fyrir. Ákvörðunin var tekin í samvinnu við borgaryfirvöld sem töldu að framtíðaruppbygging á þessum stað yrði lyftistöng fyrir miðborgina, segir í ályktuninni.

„Margir hafa áhyggjur af aukinni umferð sem óneitanlega fylgir stórum vinnustöðum sem þessum. Spyrja má hvað byggt yrði í staðinn við Hringbrautina, ef ekki verður af byggingu Landspítala. Myndi dýrmætt byggingarsvæði svo nálægt miðborginni ekki verða nýtt undir aðrar byggingar sem einnig kalla á aukna umferð um svæðið? Það er ljóst að ef byggja á Landspítala upp frá grunni á öðrum stað, yrði sú framkvæmd mjög kostnaðarsöm og myndi tefja uppbyggingu um mörg ár eða áratugi.

Núverandi húsnæði á Landspítala er úr sér gengið. Nýr spítali er aðkallandi og mun gjörbreyta aðstæðum fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra.

Sjúklingar sem leggjast á Landspítala eru mun veikari en áður og þurfa flóknari og sérhæfðari þjónustu. Alvarlegar spítalasýkingar hjá sjúklingum og faraldrar eru einnig vaxandi vandamál í heilbrigðiskerfinu.

Nýr spítali mun gjörbylta allri aðstöðu til að sinna þessum sjúklingum. Einnig þarf að byggja húsnæði yfir tæki og tól sem tilheyra nútíma heilbrigðisþjónustu.

Nálægð Landspítala við Háskóla Íslands er mikilvæg og eykur möguleika á samvinnu, hagræðingu, nýsköpun og hagnýtingu rannsókna.

Fjölmörg sprotafyrirtæki í heilbrigðisvísindum sýna hvers megnug slík samvinna er og ljóst er að tækifærin eru fjölmörg,“ segir í ályktuninni.

/////////////Þarna eru menn als ekki sammála,og að vaða bara áfram með 10 ára áættlun er ekki gerlegt að hefur svo mikið breyst síðan og er enn að breytast,þesssi læti að byja bara og þetta reddast er ekki búið að læra vel á það,allt þetta er að hrinja sem lagt var upp með ,það gerðist einig með kreppuni,við höfum ekki lækna og höfum ekki hjúkrnarfólk,nema það sem er að gefast upp af álagi!!verður þesssi nýji spítali sjálfvirkur eða hvað,nándin  við Hásskólana er ekkert mál á dögum tækni og,og svo er satðsettningin ekki í lagi als ekki ,en svona næsu 15-20 árin mætti byggja við uppá hæðir og kaupa tæki og mannskap með rentu og svo i leiðinni koma öðrum spítala til framtiðar annarstaðar ,þá er þetta bera legudeildir og öldrnardeildir þarna nóg við þetta að gjaöra þjóðin að eldast hratt,og peningar að skornum skammt,i eða er að ekki??? en það er alt hægt ef viljinn er fyrir hendi!!!Þetta mikilmennsku brjálæði ætti að vara liðið svolítið frá,eða högfum  við ekkert lært??þetta er bein lýsing frá´fángalesismálunum ,að byggja þetta núna eftir 20 ára tal um það!!!! sem lúxusfangelsi sem kostar morð fjár ,en væri hægt að byggja!! eða fá USA staðlað fyrir 30% af verðinu uppsett, við erum ekki i lagi þvi miður ,það er ljótt að þurfa að segja það en satt skal það vera/Halli gamli


mbl.is Nýr spítali er aðkallandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Okt. 2012
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband