Ríkisendurskoðun komi að málinu

RíkisenGuðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,...durskoðun komi að málinu Innlent | mbl.is | 24.10.2012 | 13:22 „Ég hef verið að vekja athygli á þessum sérkennilegu reiknireglum sem voru framkvæmdar í kjölfar lagasetningar ríkisstjórnarinnar á sínum tíma og þessi niðurstaða Hæstaréttar staðfestir það að verið var að hlunnfara lánþega og gæta hagsmuna fjármálafyrirtækja.

“ Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is vegna niðurstöðu Hæstaréttar í síðustu viku í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka vegna gengistryggðra lána. Bendir hann meðal annars á að hann hafi á sínum tíma sett upp sérstaka reiknivél á heimasíðu sinni þar sem hægt hafi verið að fá rétta útreikninga á slíkum lánum.

„Vandinn er sá að þær eftirlitsstofnanirnar sem áttu að gæta hagsmuna lántakenda hafa brugðist. Það er svo mikilvægt að fólk geti treyst því að það fái rétta niðurstöðu.

Flestir hafa sjálfsagt verið sáttir við að fá betri útreikninga en samkvæmt gamla láninu en það breytir því ekki að það hefur eftir sem áður ekki verið rétt reiknað þannig að það hallar á lántakendur,“ segir hann ennfremur.

Dómur Hæstaréttar í síðustu viku var til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í morgun og lagði Guðlaugur fram tillögu á fundinum ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Lilju Mósesdóttur, þingmanni Samstöðu, þar sem meðal annars er lagt til að Ríkisendurskoðun verði falið að fara yfir málið í ljósi þess að ríkið og hefðbundnar eftirlitsstofnanir þess hafi brugðist í málinu.

Tillagan í heild: „Framkvæmd endurútreiknings erlendra lána er mikil harmsaga. Mikilvægt er að henni ljúka sem fyrst farsællega.

Nýlegur dómur Hæstaréttar um mál Borgabyggðar og Arion banki er enn ein staðfesting þess að endurreikningurinn hefur ekki verið rétt framkvæmdur og hafa lántakendur borið mikinn skaða af. Aðstöðumunur er mikill á milli lántakenda og fjármálastofnana.

Mikilvægt er að lántakendur geti sótt sér sem bestar upplýsingar með einföldum hætti. Því miður sýna dómar Hæstaréttar að gagnrýni á stjórnvöld og eftirlitstofnanir á fjármálamarkaði hafa átt að rök að styðjast. Þess vegna er lagt til að stofnun sem heyrir undir alþingi verði falið að setja upp reiknivélina.“//////////Við erum öll orðin eiginlega úrkulna vonar um að það verði nokkuð gert þarna,eða sýnist manni svo vara það er svo að jafanaðarmesnska sem var til!!!!! er heillum horfin engin vill réttalæti sem er við stjórnvölin nema að Guðlausgur og c/o eru að halda þeim við efnið,skítiði svo í hann og hans líka!!!ég sé ekki að þessu eigi að framfylgja og ekki heldur til hinna sem tóku innlendu láninn,þaðá bara að láta menn missa sitt allt og flía land,það mundi ég gera sem yngri maður í dag ekki spurning//Halli gamli


mbl.is Ríkisendurskoðun komi að málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband