Áfram samstarf vinstrimanna/Kommarnir saman áfram!!!!!!!!!

Áfram samstarf vinstrimanna Innlent | mbl.is | 25.8.2012 | 16:02 „Afstaða fólks til málsins hefur frekar styrkst Katrín Jakobsdóttir er myrk í máli þegar kemur að umræðum...en hitt, við stöndum við okkar stefnu í þeim efnum og erum sammála um að einmitt núna þurfi að fara mjög vandlega yfir stöðu málsins,“ segir Katrín Jakobsdóttir. Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar er nú lokið, en hann fór fram á Hólum í Hjaltadal fyrr í dag.

Utanríkismál voru rædd á fundinum en flokkurinn skilaði ekki af sér ályktun um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. „Engin slík ályktun lá fyrir eftir fundinn. Hins vegar liggur fyrir ályktun samskipti Íslands við aðrar þjóðir eða þjóðabandalög. Fundurinn var ekki haldinn sérstaklega til að álykta heldur fyrst og fremst til að vinna í málefnahópum og ræða málin,“ segir Katrín. „Utanríkismálin voru hins vegar rædd í vinnuhópi um þau mál og sama má segja um fleiri mál, svo sem landbúnaðarmál og kosningaáherslur.

Mjög mikið var lagt í vinnu á þessum fundi til að slá tóninn fyrir veturinn,“ segir hún. Samstarf félagshyggjufólks Aðspurð hvaða viðhorf gagnvart Evrópusambandsaðild hafi verið ríkjandi segir hún stefnu flokksins ekki hafa breyst hvað það varðar.

„Afstaða fólks til málsins hefur frekar styrkst en hitt, við stöndum við okkar stefnu í þeim efnum og vorum sammála að einmitt núna þurfi að fara mjög vandlega yfir stöðu þess,“ segir Katrín. Í almennri stjórnmálaályktun á fundinum kemur fram að „góðum árangri þarf að fylgja eftir með áframhaldandi samstarfi vinstrimanna í íslenskum stjórnmálum á næsta kjörtímabili.“

Aðspurð hvort þetta merki að Vinstri grænir muni sækjast eftir áframhaldandi samstarfi við Samfylkinguna eftir næstu kosningar nái þeir meirihluta segir hún það ekki ljóst. „Að minnsta kosti áframhaldandi samstarfi vinstrimanna. Það er það sem við horfum á - samstarf félagshyggjufólks, já. Það er nákvæmlega það sem það segir, hvorki meira né minna,“ segir Katrín.//////Það er furðulegt að talað er eingöngu við varaformanninn Karínu en ekki hina Formanninn og hans við Björn Val,en svona er þetta Kommarnir hafa völdin og ættla að stafa saman í blíðu og stríðu eftir þennan fund/Halli gamli


mbl.is Áfram samstarf vinstrimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttast fellibyl í Flórída///Eins og Flórida ,er skemmtilegt getur það verið hættulegt!!!

Óttast fellibyl í Flórída Erlent | AFP | 25.8.2012 | 14:29 Hitabeltisstormurinn Ísak gekk yfir fátækustu svæði Haítí snemma í morgun. Einnig var gefin út opinber fellibylsviðvörun í suðurhluta Flórída, en óttast er að ÍsÍsak telst enn vera stormur, en óttast er að hann nái styrk...ak nái þangað fyrir ársþing repúblikana sem haldið verður í Tampa á mánudag. Vindhviður stormsins ná allt að 95 km á klukkustund, en búist er við að hann gangi yfir austanverða Kúbu síðar í dag.

Sérfræðingar fellibyljastofnun Bandaríkjanna spá því að stormurinn verði að fellibyl á morgun á leið sinni til Flórída. Samkvæmt upplýsingu af vef fréttastofunnar AFP er Ísak mjög nærri því að ná styrk fellibyls. Stormurinn gekk yfir svæðið sem varð verst úti í jarðskjálfta á svæðinu 2010, en þar búa þúsundir manna enn í tjaldbúðum og rústum húsa. Birgja sig upp af matvælum Haítí var fátækasta ríki á vesturhveli jarðar áður en jarðskjálftinn reið yfir árið 2010, en 250.000 manns létust í skjálftanum. 400.000 manns búa enn í tjaldbúðum í námunda við hina gjöreyðilögðu höfuðborg landsins, Port-au-Prince.

Í aðvörun fellibyljastofnunarinnar kemur fram að hætta sé á „lífshættulegum flóðum og aurskriðum“ á eyjunni Hispanjólu, sem tilheyrir Haítí og Dóminíska lýðsveldinu, auk þess sem varað var við hitabeltisstorminum í austanverðri Kúbu og Bahama-eyjum. Götur Port-au-Prince voru auðar og mannlausar seint í gærkvöldi, en fyrr um daginn mynduðust langar raðir fyrir utan matvöruverslanir þar sem íbúar birgðu sig upp af matvælum.

„Við vorum ekki reiðubúin fyrir fellibylinn. Þegar rignir stöndum við undir götóttum tjöldum. Hér eru mörg börn og við vitum ekki hvert við ættum að flýja ef okkur verður gert að rýma svæðið,“ segir Martine, starfsmaður í tjaldbúðum sem hýsa mörg þúsund fjölskyldur. Þær hafa hvorki aðgang að salernum né drykkjarvatni, og hafa yfirvöld á Haítí verið harðlega gagnrýnd fyrir vanrækslu gagnvart fjölskyldunum.////////////////Þessi er nokkuð snemma á ferð og öflugur mjög og vonar maður bara að hann breyti um stefnu!!! eins og Flórida er skemmtileg og hlý er þetta fellibilstímabil hættulegt!!!!ég hefi bara einu sinni fengið smá þef og það þótti litið,en sá hörmungarnar sem urðu þarna 1986 eða svo seinna um veturinn,hvílíkt og annað eins ,það var svakalegt//Hali gamli


mbl.is Óttast fellibyl í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki full sátt um ráðherraskiptin/Þetta skiptir okkur engvu máli innanfloksátök þarna,en þjóðina er farið að langa í breytinar,á allri Ríkisstjórn vorri!!!!

Ekki full sátt um ráðherraskiptin Innlent | mbl.is | 25.8.2012 | 11:44 Ekki voru allir á eitt sáttir um tillögu Jóhönnu SDagur B. Eggertsson og Oddný Harðardóttir ræða saman á...igurðardóttur um að Oddný G. Harðardóttir viki sæti í ríkisstjórn fyrir Katrínu Júlíusdóttur sem snýr aftur úr fæðingarorlofi 1. október. næstkomandi.

Soffía Sigurðardóttir, flokksstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar, kvaddi sér hljóðs á fundinum og sagðist vera alfarið á móti skiptunum. Sagði hún að Oddný hefði sinnt starfinu með sóma og þótt Katrín væri „vel hæf til að vera ráðherra, forsætisráðherra, jafnvel forseti - þá erum við það líka mörg hér inni“.

Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði að flokkur sem kenndi sig við jafnaðarstefnu gæti ekki með góðri samvisku hrakið konu sem snýr aftur úr fæðingarorlofi aftast í hringiðuna. Sagðist hann styðja Katrínu í ráðherrastól, en bætti jafnframt við að Oddný hefði gegnt embættinu af stakri prýði.///////Þetta er ekkert nýtt þarna,ósætti þó svo Jóhanna tali um að hemja ketti innan samstarfsflokksins fer þetta meira í felur þarna!!!en undir niðri krómar að komast í forræði þarna ekki spurning og að koma Jóhönnu frá sem sennilega við öll viljum,en vitum ekki hvort betra tekur við,en umfram allt vill fólkið í landinu fá nýja ríkisstjórn sem kemur okkur í betri til öllum lágum sem smáum///Halli gamli


mbl.is Ekki full sátt um ráðherraskiptin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á rólegu nótunum//Nú hvar eru kettirnir,hennar Jóhönnu????

„Allt á rólegu nótunum“ Innlent | mbl.is | 24.8.2012 | 22:39 „Þetta var allt á rólegu nótunum,“ segir Gísli ÁrnasoFrá flokksráðsfundi Vinstri grænna í kvöld.
n formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Skagafirði en fyrri degi flokksráðsfundar af tveimur er lokið. Meðal þess sem fór fram í kvöld var pallborð um störf Alþingis og helstu þingmálin. Gísli segir lítið sem ekkert að frétta eftir kvöldið, eitthvað hafi verið um fyrirspurnir en engar heitar umræður. Hann segist efast um að nokkuð verði um harkalega átök þegar kemur að málefnum VG og komandi kosningabaráttu. Meðal þess sem verður á dagskrá morgundagsins eru málefnahópar um landbúnaðarstefnu flokksins, utanríkismálastefnuna og lýðræðisstefnu.//////////Nú þetta skítur svoltið skökku við hvar er liðið sem Jóhanna kallaði að smala köttum,í kvöldfréttum var sagt það sama,og talað við varaformann Katrínu og sagðun þau mál sem ekki er einhugur um verða rædd???Aftur á móti var Formaðurin ekki mættur kom frá útlöndum í kvöld vís,en eini vinurinn var mættur Björn Valur og sagði víst fátt,biður eftir S.J.S.sem er með þetta lið hinað til í vasanum en sennilega ekki lengur//Halli gamli 

mbl.is „Allt á rólegu nótunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarleg umferð í norðurátt/Akureyri kallar 150 ára afmælið!!!!

GríðarlegÞeir sem ætla að heimsækja Akureyri yfir helgina komast...  
umferð í norðurátt Innlent | mbl.is | 24.8.2012 | 18:39 Gríðarleg bílaumferð er nú frá 
Höfuðorginni til Akureyrar. Að sögn ökumanns sem staddur er í bílaþvögunni hreyfist umferðin löturhægt og mynda bifreiðirnar þétta perlufesti alla leiðina norður. Lögregla sinnir umferðareftirliti víða á leiðinni en að sögn lögreglunnar á Blönduósi hefur umferðin gengið slysalaust fyrir sig, en beinir þeim tilmælum til ökumanna að sýna þolinmæði. Mikið verður um að vera á Akureyri um helgina en þar fer fram Afmælisvaka, er 150 ára afmælishátíð Akureyrar. Hátíðarhöldin hófust í dag en þeim lýkur ekki fyrr en 2. september. Á afmælisdaginn sjálfan 29. ágúst, munu skólabörn safnast saman í miðbænum og gefa Akureyrarbæ einstaka afmælisgjöf. Bæjarstjórn Akureyrar heldur hátíðarfund í Hofi og Afmæliskór Akureyrar flytur Tónagjöf til bæjarbúa, ný verk nokkurra tónskálda sem tengjast bænum. Nánari upplýsingar um dagskrá afmælishátíðarinnar má finna hér./////////////Svona fór það, ein ferðahelgin var eftir afmæli Akureyrar 150 ára og mikið um að verða svo að þarna eru margir brottfluttir að sækja kauspstaðin heim,eða höfuðborg norðurlands ein og hún er köllum,einn fegursti staður landsins/Halli gamli

mbl.is Gríðarleg umferð í norðurátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5,1 milljón tonn af makríl mældust/Þetta mun sína okkur að við getum veitt um 25-30%

5,1 millj5,1 milljón tonn af makríl mældust á rannsóknarsvæðinu, þar...ón tonn af makríl mældust Innlent | mbl | 24.8.2012 | 16:44 Rannsóknir Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga hafa leitt í ljós að í Norðaustur Atlandshafi, á hafsvæðum þjóðanna þriggja, séu 5,1 milljón tonn af makríl, þar af 29% á Íslandsmiðum.

Fiskifræðingar Hafrannsóknarstofnunar tóku í sumar þátt í sameiginlegum leiðangri fiskifræðinga Færeyinga og Norðmanna, en rannsóknirnar voru um borð í fjórum skipum og voru gerðar á tímabilinu 1. júlí til 10. ágúst 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafró, en fundi þjóðanna þriggja líkur í dag í Bergen þar sem farið er yfir rannsóknarniðurstöðurnar.

Í tilkynningu Hafró segir að markmið leiðangursins hafi verið að kortleggja útbreiðslu og magn makríls og annarra uppsjávarfiskistofna í Norðaustur Atlantshafi meðan á ætisgöngum þeirra um norðurhöf stæði ásamt því að kanna ástand sjávar og átustofna á svæðinu.

„Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var í ár að taka þátt í þessum leiðangri í fjórða sinn og þetta árið var í fyrsta sinn sem öll skipin fjögur notuðu samskonar flotvörpu sem sérstaklega hefur verið þróuð fyrir þennan leiðangur,“ segir í tilkynningunni.

Hér sést dreifing afla og hlutfall á milli tegunda í rannsóknarleiðangrunum í júlí og ágúst 2012. Hafrannsóknarstofnun 29% af 5,1 milljóna tonna makríl á Íslandsmiðum „Í heild mældust um 5,1 milljónir tonna af makríl á rannsóknarsvæðinu, og þar af 1,5 milljón tonn innan íslenskrar efnahagslögsögu eða um 29% af heildarmagninu á rannsóknasvæðinu.

Í leiðangri sömu þjóða sumarið 2011 var heildarmagnið 2,7 milljónir tonna en 4,8 milljónir tonna árið 2010. Rannsóknarsvæðið í ár náði yfir 1.530 þúsund ferkílómetra, samanborið við 1.060 árið 2011 og 1.750 þúsund ferkílómetra árið 2010.

Er breytileg stærð rannsóknasvæðisins að hluta talin skýra muninn á heildarmagninu milli ára.“ Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson RE við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn mbl.is/Þorkell Í tilkynningunni segir að þó svo að niðurstöðurnar séu ekki lagðar til grundvallar í mati á heildarstofnstærð makríls innan Alþjóðahafrannsóknaráðsins þá staðfesti þessar niðurstöður víðáttumikla útbreiðslu makrílsins og þær sýni að elsti makríllinn ferðist lengst í sínum ætisgöngum.

Mesti þéttleiki rauðátu var vestan við Ísland „Skörun á útbreiðslu makríls og síldar var einkum vestan til í Austurdjúpi og austur af Íslandi. Á austanverðu hafsvæðinu var lítið af síld. Bergmálsvísitala norsk-íslenskrar síldar mældist 7,2 milljónir tonna og niðurstöður leiðangursins síðustu fjögur ár sýna því svipaða neikvæða þróun stofnstærðar og mat Alþjóðahafrannsóknarráðsins.

Mesti þéttleiki rauðátu (helsta fæða markílsins) var vestan við Ísland þar sem makríllinn var jafnframt í mestum þéttleika. Á öðrum svæðum var þéttleiki átu yfirleitt lítill, líkt og undanfarin ár. Yfirborðshiti sjávar í Norðaustur Atlantshafi var að öllu jöfnu yfir langtíma meðaltali. Það átti einkum við um svæðið suðvestur og vestur af Íslandi meðan að yfirborðshitinn í suðvestanverðu Austurdjúpi norður af Færeyjum var lítið eitt lægri en undanfarin ár. Frekari úrvinnsla á gögnum sem safnað var í leiðangrinum fer fram á næstu mánuðum.“///////Ég get nú ekki annað séð, á þessu að við séum með pálman í höndunum, við samninga þarna !!! við ættum ekki aðþurfa að lúta 10-16% ein og umræðan hefur verið heldur 20-30% ekki mikið minna ,ESB er ekki þarna ráðandi við eigum að standa saman færeyingar og Grænlendingar ekkert ANNAÐ///Halli gamli


mbl.is 5,1 milljón tonn af makríl mældist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talsmaður neytenda kominn til slökkviliðsins/Þeir kannski slökkva í honum það littla sem hann hefur áorkað????

TalsmaðurGísli Tryggvason talsmaður neytenda.
 neytenda kominn til slökkviliðsins Innlent | mbl.is | 24.8.2012 | 16:55 Embætti talsmanns neytendahefur fengið inni að Skógarhlíð 14 þar sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er til húsa ásamt fleiri öryggisstofnunum. Innanríkisráðuneytið tók ákvörðun um þennan flutning eftir að Neytendastofa, þar sem talsmaður neytenda hefur haft aðsetur, „ákvað einhliða að úthýsa embættinu án gildra ástæðna,“ eins og segir á heimasíðu talsmanns neytenda./////////////Að kalla þetta örygisstofun er ekki réttnefni ,ég hefi ekki séð að öryggi sem þetta starf veitir okkur neitendum ,bara als ekki,það er svo að maður ættlast til að svona menn !!!skili árangri en þetta er bara platstarf og ekkert annað að míni álti//Halli gamli

mbl.is Talsmaður neytenda kominn til slökkviliðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landspítalinn rekinn með tapi///á svo segja okkur að nýr spítali upp 30-40 milljara beri sig betur????

LandspíLandspítali talinn rekinn með tapi Innlent | mbl.is | 24.8.2012 | 12:10 Landspítalinn er í fyrsta skipti síðustu þrjú ár rekinn með tapi en hallinn er 84 milljónir fyrstu sex mánuðina.

Engu að síður er stefnt að hallalausum rekstri í ár, segir Björn Zoëga forstjóri Landspítalans í pistli á vef spítalans. „Helstu ástæður fyrir hallanum sem við höfum verið að glíma við þekkið þið; það hefur verið meira að gera á spítalanum, sjúklingar liggja lengur inni og fleira fólk leitar eftir þjónustu spítalans.

Þetta kemur ofan í það að rekstrarfé hefur verið skorið niður um 23% á síðustu árum og erum við nú á þessu ári að reka spítalann fyrir meira en 9 milljarða lægri upphæð heldur en árið 2007, uppreiknað fyrir árið í ár.

Önnur atriði sem einnig hafa áhrif eru að ýmis rekstrarkostnaður hefur aukist og við höfum einnig þurft að taka töluvert af rekstrarfé í kaup og endurnýjun á tækjum sem hafa verið að bila og gefa sig síðustu mánuðina.“ Að sögn Björns stefndi í að Landspítalinn yrði rekinn með 200 milljón króna tapi í ár en farið var í ákveðnar aðgerðir sem hafa skilað árangri.

„Í dag verður einnig birt sjö mánaða uppgjörið sem sýnir að hallinn heldur áfram að minnka og er núna kominn í 61 milljón. Við reiknum með að við náum þrátt fyrir allt að halda spítalanum innan fjárheimilda ársins og samkvæmt okkar áætlunum mun takast að jafna þennan halla út á næstu mánuðum,“ segir Björn.

Tækjaþörfin er uppsafnaður vandi sem hefur aukist jafnt og þétt í 10 ár Töluvert hefur verið fjallað um tækjaþörf spítalans á síðustu vikum en fyrir okkur sem vinnum á spítalanum er það ekkert nýtt, við höfum varað við þessu í langan tíma og þetta er uppsafnaður vandi til fjölmargra ára, segir Björn. „Vandinn hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin 10 ár, hann var til staðar löngu fyrir bankahrunið og áður en niðurskurðurinn varð svona mikill,“ segir Björn.////Okkur almennum Borgurum og auðvitað landsbygðarmönnum ,sem höfum verið einnig sjúklingar þarna,erum bara sæmilega með á nótunum, alveg nóg boðið!!!við eru ekki alveg vitlaust,eins og þetta teymis sem segir okkur að allt falli og standi með nýjum Lanspítala í þessar kvos þarna,rúmið þarna er nóg fyrir næstuárin með viðbyggingu og langtímamál með annað annarstaður hátækni í mynni stíl,þessi þarna mun daga með lagfæringumm og nýjum tækjum og stækkun og 10 þus fermetra uppá nokkra hæðir ekki spurning,og fara svo í farmtíð að byggja þetta hátækni sjúkarhus anarstaðar eftir einhver ár með fjölgun okkar,þessu spítulum sem við eigum fyrir verða svo langleguhús og svo framvegis þvi eftir nokkur ár verum við gamlingjar orðnir 30-40 þus////Halli gamli 


mbl.is Landspítalinn rekinn með tapi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíðin er einstaklingsmiðað nám/Mér lýst vel á þetta og Katrín virðist valda þessu vel,Embættinu meina ég þarna,þþo V.G. sé!!

Framtíðin  Katrín Jakobsdóttirer einstaklingsmiðað nám Innlent | Morgunblaðið | 24.8.2012 | 12:20 „Við skoðuðum þetta eftir að samræmdu prófin voru afnumin 2008.

Þá urðum við ekki vör við neina sveiflu í einkunnum og við munum halda áfram að fylgjast með því,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra um mögulega verðbólgu í einkunnum í grunnskólum.

Skólastjórnendur í framhaldsskólum segja matið á frammistöðu nemenda ójafnt eftir grunnskólum og það bitni á nemendum sem fái villandi skilaboð um eigið ágæti. „Við viljum einstaklingsmiða námið meira og skólinn komi meira til móts við þarfir hvers og eins og að skólarnir geti tekið fram fjölbreyttara námsframboð. Það er í takt við það sem er að gerast allstaðar í heiminum.“

Meira svigrúm við inntökur Katrín segir að framhaldsskólarnir hafi nú meira svigrúm samkvæmt nýrri námskrá til þess að laga inntöku að breyttum tímum.

Nú sækja 96-99% nemenda um framhaldsskóla og segir Katrín það mikla breytingu í samfélaginu á stuttum tíma. „Framhaldsskólar eru að vinna að því að bjóða upp á fjölbreyttara nám sem er meira við hæfi ólíkra hópa.

Skólarnir þurfa ekki að miða bara við einkunnir við val á nemendum í framhaldsskóla. Þeir geta tekið mið af því hvort nemandi er í tónlistarnámi, íþróttum eða sterkur félagslega til dæmis. Þeir geta ákveðið hvort þeir vilji hafa jöfn kynjahlutföll og hvort þeir vilja veita fólki úr hverfinu forgang. Það er algjörlega val skólanna sjálfra. Þetta snýst um að það skiptir máli að námsmatið sé fjölbreytt og það endurspegli skólastarfið.“

Samræmd próf ekki lykillinn Samræmdu prófin í lok 10.bekkjar voru afnumin 2008. Síðan þá hafa verið haldin samræmd könnunarpróf í upphafi 10. bekkjar sem Katrín telur nýtast þeim vel til að fylgjast með framvindu grunnskólanna.

„Framtíðarsýn okkar er að samræmdu könnunarprófin verði rafræn þannig að þau miðist við getu hvers og eins. En þetta eru bara könnunarpróf en ekki endanlegt námsmat, þetta getur þó verið góður kvarði á árangurinn heilt yfir.

Við leggjum áherslu á að það sé fagmennska bæði í grunnskólum og framhaldsskólum, þeir verða að geta treyst hvor öðrum. Samræmd próf eru ekki lykilinn, heldur snýst þetta um að við viljum auka fjölbreyttara námsmat og fagmennsku.“ Skóli án aðgreiningar Guðbjörg Ragnarsdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara, leggur áherslu á að inntökur í framhaldsskóla verði að vera í takt við grunnskólann. „Við erum með skóla sem eru skólar án aðgreiningar, þar er krafa um að við mætum nemendum á því stigi sem þeir eru.

Ef inntökur í framhaldsskóla eiga að vera í takt við það sem við erum að gera þurfa þær að vera einstaklingsmiðaðar.“ Með því að mæta nemendum á því stigi sem þeir eru á, á Guðbjörg við að námsefnið sé aðlagað að nemandanum sem tekur síðan próf úr því efni sem hann hefur fengið í hendurnar. Því fara ekki allir í jafn þung próf. Einnig eru ekki sömu bækur fyrir alla nemendur ásamt því að þeir fá misþung verkefni.

„Í samræmdu prófunum fara allir í sama prófið óháð hvar þeir standa og einstaklingsmiðun er því engin. Auðvitað er nú vandasamt fyrir framhaldsskóla að taka við nemendum þar sem þú veist ekki hvað stendur á bak við einkunnina. Það þarf að finna einhvern flöt á þessu, hvernig við getum gert þetta vel. Þetta mótast allt af lögum og reglum.

Mér finnst þó mun eðlilegra að við mætum nemendum þar sem þeir eru, þar sem við erum með og viljum vera með skóla fyrir alla.“ Einkunnir ekki sambærilegar „Þegar einkunnir eru settar saman hlið við hlið með ólíkan bakgrunn, eru þær í raun ekki sambærilegar,“ segir Sigurgrímur Skúlason, sviðsstjóri prófdeilda hjá Námsmatsstofnun. Hann telur eðlilegt að þeir fáu framhaldsskólar sem nota aðeins einkunnir við inntökur nemenda séu með einhver próf þar á bak við sem eru sambærileg.

„Ég tel þó ekki að við þurfum próf af þeirri stærðargráðu sem samræmdu prófin voru orðin fyrir inntökuna,“ segir Sigurgrímur. Hann telur ekki æskilegt að fara í sama farveg og áður var með samræmdum prófum, en telur þó nauðsynlegt að koma á einhverju kerfi milli skólastiga.///////Manni lýst bara vel á þetta hjá Kartrínu mentamálaráðherra og hún stendur sig bara vel í starfi þessu að mínu mati og flestra!!!þessi breyting er eflaust til hins betra og það ber að geta sem vel er gert,það hefi ég kannski ekki alltaf gert þvi miður!! en skólarnir og unga fólkið er framtíðin og við viljum allt fyrir hana gera til að þeir verði betri þegnar!!!/Halli gamli


mbl.is Framtíðin er einstaklingsmiðað nám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áslaug kemur í stað Geirs í borgarstjórn/Gott að fá Áslaugu,en einnig vont að missa Geir!!!!

Áslaug kÁslaug María Friðriksdóttir
emur í stað Geirs í borgarstjórn Innlent | Morgunblaðið | 24.8.2012 | 12:30 Áslaug María Friðriksdóttir mun taka sæti Geirs Sveinssonar í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokk. Geir hyggur á flutninga erlendis en hann sat í borgarstjórn í fjarveru Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur sem er í barneignarorlofi. Nokkrar hrókeringar verða í setum í ráðum borgarinnar við brotthvarf Geirs. Hann sat í velferðarráði og í íþrótta- og tómstundaráði. Jórunn Frímannsdóttir mun setjast í velferðarráð en Björn Gíslason mun taka sæti Geirs í ÍTR. Áslaug mun áfram sitja í velferðarráði og í menningar- og ferðamálaráði.//////Þetta eru skipti kkemur góð fyrir góðan,það er aftirsjá af Geir Sveinssyni í íþróttamalum og fl. en hún Áslaug er príðis manneskja og veldur þessu vel,og er velkomin//Halli gamli

mbl.is Áslaug kemur í stað Geirs í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Ágúst 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband