Gríðarleg umferð í norðurátt/Akureyri kallar 150 ára afmælið!!!!

GríðarlegÞeir sem ætla að heimsækja Akureyri yfir helgina komast...  
umferð í norðurátt Innlent | mbl.is | 24.8.2012 | 18:39 Gríðarleg bílaumferð er nú frá 
Höfuðorginni til Akureyrar. Að sögn ökumanns sem staddur er í bílaþvögunni hreyfist umferðin löturhægt og mynda bifreiðirnar þétta perlufesti alla leiðina norður. Lögregla sinnir umferðareftirliti víða á leiðinni en að sögn lögreglunnar á Blönduósi hefur umferðin gengið slysalaust fyrir sig, en beinir þeim tilmælum til ökumanna að sýna þolinmæði. Mikið verður um að vera á Akureyri um helgina en þar fer fram Afmælisvaka, er 150 ára afmælishátíð Akureyrar. Hátíðarhöldin hófust í dag en þeim lýkur ekki fyrr en 2. september. Á afmælisdaginn sjálfan 29. ágúst, munu skólabörn safnast saman í miðbænum og gefa Akureyrarbæ einstaka afmælisgjöf. Bæjarstjórn Akureyrar heldur hátíðarfund í Hofi og Afmæliskór Akureyrar flytur Tónagjöf til bæjarbúa, ný verk nokkurra tónskálda sem tengjast bænum. Nánari upplýsingar um dagskrá afmælishátíðarinnar má finna hér./////////////Svona fór það, ein ferðahelgin var eftir afmæli Akureyrar 150 ára og mikið um að verða svo að þarna eru margir brottfluttir að sækja kauspstaðin heim,eða höfuðborg norðurlands ein og hún er köllum,einn fegursti staður landsins/Halli gamli

mbl.is Gríðarleg umferð í norðurátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo eru nú líka margir að fara á tónlistarhátíðina Gæruna á Sauðárkróki.

Jón Brynjar Sigmundsson (IP-tala skráð) 24.8.2012 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband