Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.12.2014 | 17:37
Ennþá heldur leikaraskapurinn á hinu háa Alþingi,okkur til skammar!!!!
Það er ekkert grín að tala svona dag eftir um sömu setningarnar,vitandi víst að þessu verður ekki breytt,nema lítillega,þar er ég sammála að þarf,en þroski manna er misjafn og þeir kannski forgangsraða ekki alskostar rétt en þessi fjárlög verða samþykkt ,nema ef þeir sjái sig um hönd með matarskattinn í 7% sem okkar veitir ekki af sem valla ná endum saman,en eins og oft er sagt við svona!!! hvað varðar okkur um þjóðarhag ,þykkjast vita betur,en það sem ég vildi sagt hafa er að stjórnarandstan er samt mikið verri á allan hátt,við spreða hitt og þetta,sem ekki er gerlegt,Það er það sem við erum á móti að segjast allt geta betur,og það er baraekki hægt,<jú að vísu hafa þeir nokkuð til síns máls,það átti ekki að fella niður auðlegðarskattin og efsta þrep skattstigan,og hækka veiðileifagjaldið á þá sem vel fiska og hafa uppundir helmings kvótann á leigu,þá væri til meiri peningur!!!/Halli gamli
5.12.2014 | 00:32
Vill gjaldþrotaskipti á Glitni/Loksins kom maður með viti í þetta fjárhættuspil!!!
Viðskipti | mbl.is | 4.12.2014 | 19:20 Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og kröfuhafi í bú Glitnis... Heiðar Már Guðjónsson, eigandi félags sem á almenna kröfu í bú Glitnis hf., hefur lagt inn gjaldþrotaskiptabeiðni á hendur félaginu.
Telur Heiðar að hann eigi ekki að þurfa að bíða þess Glitnir taki þátt í ferli til afnáms gjaldeyrishafta, enda sé ekki vissa fyrir því hvort slíkt ferli gengi eftir.
Samkvæmt 2. og 3. ml. 4. mgr. 103. gr. laga um fjármálafyrirtæki segir að kröfuhafi geti krafist þess að bú fyrirtækis í slitameðferð verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Byggir Heiðar gjaldþrotaskiptakröfu sína á því að öll skilyrði slíkrar kröfu séu uppfyllt.
Í rökstuðningi kröfu Heiðars, segir að slitastjórn hafi um margra ára bil leitað nauðasamnings án árangurs.
Svo virðist honum sem slitastjórnin einblíni á gerð nauðasamnings sem útheimti undanþágu Seðlabanka Íslands, og að slitastjórnin virðist hafa gerst þátttakandi í mótun hugmynda um afnám fjármagnshafta.
Vandséð sé að slíkt samrýmist hlutverki slitastjórnar, sem er einkum að hámarka endurheimtur eigna og úthluta til kröfuhafa við fyrsta mögulega tækifæri, eftir því sem kemur fram í kynningu slitastjórnar Glitnis hf.
mbl.is/​Friðrik Tryggvason Nú eru liðin 6 ár frá því að þessir bankar fóru á hliðina og það ætti að vera fyrir löngu búið að setja þá í þrot, en slitasjtórnin komin langt út fyrir verksvið sitt, segir Heiðar Már í samtali við mbl.is.
Slitastjórnin á bara að finna þá sem eru kröfuhafar, og greiða út það sem er í búinu. Þessi slitastjórn er hins vegar farin að reyna að finna leiðir til þess að leysa gjaldeyrishöftin og semja fyri hönd einhverra kröfuhafa framhjá íslenskum kröfuhöfum, sem snúa að færslu fjármuna frá landinu.
Klára á málið í eitt skipti fyrir öll Heiðar segir ekkert benda til þess að nauðasamningar séu að náðst í bráð.
Slitastjórnirnar í dag eru að rukka um 5 þúsund milljónir króna á hvert þrotabú og miðað við vinnubrögð þeirra viðskiptaáætlun Glitnis sem nær til ársins 2019 þá er ekkert útlit fyrir að þeir séu að fara að leita einhverra samninga.
Glitnir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar. Glitnir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar. mbl.is/​Golli Sérstaklega komi þetta niður á íslenskum kröfuhöfum, að mati Heiðars.
Það er ekki eðlilegt að þeir láti ekki íslenska og erlenda kröfuhafa bara sitja. Þeir eiga bara að ganga frá málinum í eitt skipti fyrir öll.
Aðspurður hvort tímasetning kröfunnar sem nú komi fram eigi sér ástæðu, segir Heiðar svo ekki vera. Það er bara vildi þannig til að það var hægt að gera þetta núna.
Ég byrjaði að tala um það fyrir þremur árum síðan, að það þyrfti að gera eitthvað í þessu, síðan hefur tekið um eitt ár að koma mér í þá stöðu að ég geti komið mér fram með þessa kröfu.
Það er betra seint en aldrei, segir Heiðar. Slitastjórnin hefur breytt þessu í sirkus Aðspurður hvort hann haldi að fleiri kröfuhafa séu sömu skoðunar og hann segist Heiðar telja svo vera.
Það held ég, það eru skýrir hagsmyunir íslenskra kröfuhafa að þessu sé slitið sem fyrst, og líka miklir hagsmunir alþjóðlegra kröfuhafa, því þessar slitastjórnir hafa breytt þessu í einhvern sirkus.
Slitastjórn Glitnis hefur nú fram til 11. janúar að koma með sína hlið á málinu fyrir dómstólum.
Síðan verður bara dómstollinn sem skipaði í slitastjórnina að sjá að nú eru komið á sjöunda ár frá því að slitastjórnin var skipuð, og málið hefur ekkert þokast.
Er ekki rétt bara að klára þetta? Á meðan líður íslenskur almenningur og íslenskt efnahagslíf
fyrir það að þessi höft séu ennþá til staðar vegna þess að það er ekki enn búið að gera upp
gömlu bankana, segir Heiðar að lokum./////////////////Það er lengi búið að tala um þetta ,en hefur engan árangur borið,en slitastjórnir hafa uppúr þessu milljarða,og það er þjóðarskömm milljarða tap á tapið sem vara áður,en skal málið varða tekið föstum tökum núna væri það gott að komst að öllu svindlinu,og láta þetta fólk vera ábyrgð///Halli gamli
![]() |
Vill gjaldþrotaskipti á Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2014 | 00:09
Alþingi er í gjörgjæslu þessa dagana,og við verðum að þola það svo vitlaust er þetta kefi!!!
Sama sagan endurtekur sig dag efir dag á alþingi,kjaftæði um þessi Fjármál fram og til baka,og árangur engin !!!aðeins smá lagfæringar ekkert annað,Við vitum öll að það er ekki hægt svo öllum líki als ekki,en þessi 4 flokkar með komma og Vinstri menn og Sósíalistar,þetta er misgott fólk eins og vera ber,en það á það sameiginlegt að vara á móti öllu,og það gerir gæfumunn,það er ekki þar með sagt að Ríkistjórn og þeir flokkar 2 flokkar séu á eitt sáttir ,þarna er komin ósæti sem við bjuggumst ekki við,og þar er Framsókn, sem er að slá sig til riddara einu sinni ennþá,með því að vara á móti því sem Ríkisstjórnin vill gera, fjármálum komin upp andstaða við að hefja í virkjanir,sem er nauðsyn þegar að kemur að við viljum virkja uppá líf eða dauða,Já ég tek svo sterkt til orða að ef við ætlum að taka við þessum kísilverum og gagnageymslum,verðum við að gera þetta,við eigum ekki að láta plata okkur í sæstreng,hann mun verða mikið dýrari en Virkjanir og með þeim fá fyrirtæki hingað heim,en Framsókn Ráðherra og umkerfismála og einnig Lögfræðingur þeirra,Höskuldur að austan eru nú búnir að mynda teymi á móti,þessum virkjunum,eða tefja sem hinir 4 flokkarnir eru að gera,þar með erum,við sem höfum fylgst með Pólitík í 65 ár vitum alveg söguna af þessum Framsóknarflokki,sem er geymt en ekki gleymt,og það kemur á ljós núna að þetta lið er ekki á eitt sátt,og það ekki gott,en samt meiri hlutinn heldur/En við sjálfstæðismenn erum ekki sáttir við allt sem gera á en samt vonum að matarskatturinn veði bara 7% þessa þarf virkilega//Halli gamli
4.12.2014 | 17:21
Pútín varar við erfiðum tímum/Það gera mikið fleyri,og að sönnu,við sleppum ekki við þessari lægð í því, sem er sennilega verður
Pútín varar við erfiðum tímum Erlent | AFP | 4.12.2014 | 12:13 Vladímir Pútín, forseti Rússlands.
VladímirPútín varar landa sína við því að erfiðir tímar séu framundan.
Hann sakar ríkisstjórnir vestrænna landa um að reisa nýtt járntjald um Rússland.
Þetta er meðal þess sem kom fram í árlegri ræðu hans á rússneska þinginu í morgun en þar lítur hann meðal annars til ársins sem er framundan.
Hann sakar ríkisstjórnir vestrænna landa um að reisa nýtt járntjald um Rússland.
Þetta er meðal þess sem kom fram í árlegri ræðu hans á rússneska þinginu í morgun en þar lítur hann meðal annars til ársins sem er framundan. Hann ávarpaði báðar deildir þingsins.
Verð á olíu landinu hefur fallið að undanförnu og þá hafa mörg lönd lagt viðskiptabann á Rússland.
Ríkisstjórn landsins hefur þegar varað við því að efnahagsleg lægð verði hugsanlega ríkjandi í landinu á næsta ári.
Pútín virðist ekki sjá eftir aðgerðunum á Krímskaga.
Sagði hann að svæðið hefði trúarlega merkingu fyrir Rússland sem ætti rætur sínar að rekja
til upphafs kristnidómsins.///////////////Þetta er svo að Púttin er ekki einn um þetta,als ekki þetta verður, ef framheldur bara kreppa margra ríkja ,og kannski ekki Rússum sem fara verst út þarna,þeir eru öllu vanir,og als ekki eins skuldugir og B.N.A. sem skulda Tryllijarða og önnur ríki einnig,þetta er mál sem á að leysa við viljum ekki kalt stríð aftur,það skal vera hægt að semja við þá,þetta með Krímskaga er bara fyrrverandi eign þeirra,og ekkert skrítið við það,en semsagt þetta ef bandaríkjamenn geta gert þetta og samt unnið nóga olíu,þá þurfa aðrir það,og Rússar eru vanir svona lokunum á innflutning og útfluttnings,við skulum bara sjá hvort þetta fari ekki i að semja//Halli gamli
![]() |
Pútín varar við erfiðum tímum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2014 | 16:23
Bjarni ánægður með niðurstöðuna/Það erum við flest,besta valið enda dugnaðarforkur!!!!
Bjarni ánægður með niðurstöðuna Innlent | mbl.is | 4.12.2014 | 10:42 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir... Ég er gríðarlega ánægður með þessa niðurstöðu.
Við höfum fengið afskaplega hæfa konu, einn af okkur sjálfstæðismönnum, til þess að koma í ráðuneytið og tel að af þessu muni ríkisstjórnin fá aukinn styrk.
Og hún mun þá mæta á ríkisráðfund klukkan eitt í dag og í innanríkisráðuneytið klukkan þrjú til þess að taka við lyklunum.
Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, við fjölmiðla í kjölfar fundar þingflokks sjálfstæðismanna þar sem hann tilkynnti að Ólöf Nordal tæki við embætti innanríkisráðherra af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.
Ég er gríðarlega ánægður með þessa niðurstöðu. Við höfum fengið afskaplega hæfa konu, einn af okkur sjálfstæðismönnum, til þess að koma í ráðuneytið og tel að af þessu muni ríkisstjórnin fá aukinn styrk.
Spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að fara út fyrir þingflokkinn sagði Bjarni eðlilegt að spurt væri að því.
Þetta er vandasöm ákvörðun sem ég stóð frammi fyrir. Fyrst og fremst vildi ég fá einstaklings sem nyti óskoraðs trausts okkar sjálfstæðismanna.
Ég lít á hana sem eina af okkur enda var hún hér á þingi með okkur fram á síðasta ár.
Hún hefur reynslu úr ráðuneytinu, hún er lögfræðimenntuð, býr hér í Reykjavík. Reykvíkingar hafa sem sagt í sjálfu sér innan raða Sjálfstæðisflokksins einungis í dag einn ráðherra í þessum tveimur stóru kjördæmum og það er hægt að halda því fram að hún sem Reykvíkingur geti verið þeirra fulltrúi við þessar aðstæður.
Margir þingmannanna komu til greina Bjarni sagði að þegar allt væri saman tekið nyti Ólöf einfaldlega fulls trausts hans til þess að taka að sér embættið.
Spurður hvort hann treysti þá ekki þingmönnum sjálfstæðismanna sem nefndir hefðu verið sem mögulegir ráðherrar.
Bjarni svaraði því til að margir af þingmönnunum hafi komið mjög til álita.
Það hins vegar er mín ákvörðun að koma með tillögu sem ég tel, að teknu tilliti til allra sjónarmiða, farnist best og ég er mjög ánægður með þá niðurstöðu sem ég hef komist að og ég hef fengið svigrúm hjá þingflokknum til að fylgja henni eftir.
Spurður út í veikindi Ólafar hafi sett einhver strik í reikninginn, en hún greindist með illkynja krabbameinsæxli í sumar og lauk lyfjameðferð nýverið vegna þess, sagði Bjarni: Það er það sem er nú ágægjulegast í þessu er að Ólöf hefur tekist á við veikindin og er útskrifuð úr þeirri meðferð sem hún hefur tekist á við og lítur vel út, er hress, treystir sér og hún hefur stuðning sinna nánustu til þess að taka verkefnið að sér.
Þannig að það er nú kannski bara sérlega ánægjulegt í þessu að með þessu hefst nýr kafli hjá henni, eftir veikindakaflann.
Bjarni var einnig spurður hvort stefnan væri sú að Ólöf yrði ráðherra út kjörtímabilið og svaraði hann á þessa leið: Við erum ekki að taka ákvörðun um framtíðina í sjálfu sér nema hvað það snertir að núna kemur hún inn í innanríkisráðuneytið.
Þá sagði hann einnig aðspurður að dómsmálin færu aftur til innanríkisráðherra í dag.
Ég held að óhætt sé að segja að það verði mikill styrkur að fá hana í ríkisstjórnina, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra um ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að skipa Ólöfu Nordal sem innanríkisráðherra.
Sú skipun var staðfest á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Sigmundur sagði ljóst að Ólöf væri öflugur liðsmaður ríkisstjórnarinnar sem allir þekki frá fyrri tíð.
Sigmundur hefur að undanförnu gegnt embætti dómsmálaráðherra en ákveðið hefur verið að hann láti af því og að Ólöf taki við öllum skyldum innanríkisráðherra.
Hann sagðist eftir ríkisráðsfundinn áfram búast við því að það yrði skoðað hvort ástæða sé til að setja á fót sérstakt dómsmálaráðuneyti en það verði ekki ákveðið alveg á næstunni.
Spurður hvort það lægi fyrir hvenær Framsóknarflokkurinn bæti við sig ráðherra sagði Sigmundur
ekkert liggja fyrir um það.////////////////Góð lausn á þessu máli og ég óska Ólöfu til hamingju með Ráðherrastarfið og þar er komin mjög svo skellegg kona í Embættið um leið og ég óska Hönnu Birnu als hins besta,og bara vona að við fáum að njóta hennar í flokknum áfram,en það er önnur saga hvernig farið vara með hana blessunina,en það þíðir ekki að gefast upp fyrir kommunum(Vinstrimönnum) það fer lélegt og átakanlegt fram dag eftir dag,eins og heyrum í Alþingisrásinni dag efir dag,þar er annað hvort í ökkla eða eyra,öfgarnar daglega,nógir peningar til segja þeir sem vilja stoppa allar framkvæmdir af, má virkja neitt sett stopp það alt,Þessum umkvefisaijatólum er ekki orðið viðbjargandi ,þetta hefur tekið nokkur ár að færa þetta inn og út aftur til virkjunar,þarna sjáum við vintri kommana alla í réttu ljósi,Ég veit að Ómar Ragnarsson skemmtikraftur skáld og hagyrðingur hin ágættasti maður er þarna mjög framaleg í að friða allt hálendið,ekki hreyfa við nokkrum sköpum hlutum,Enda Flýgur hann um allt og skoðar og tekur myndir,og það verðum við lasarusanir að þá að sjá,það ber að þakka það!!!en svona gengur als ekki upp,við förum hratt niðurávið með þessu moldarkofa rausi,tökum nú öll hömdum saman og bærtum úr þvi og setju allavega 3 á nítinarferðið og byrjum strax og við komumst i dágóða stöðu fljótt/////Halli gamli
![]() |
Bjarni ánægður með niðurstöðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2014 | 20:43
Þverpólitísk sátt höfð að engu/Þetta er svíviðileg framkoma,svo ekki sé meira sagt!!!!
Þverpólitísk sátt höfð að engu Innlent | mbl.is | 3.12.2014 | 16:31 Mynd 765911 Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hefur sent frá sér ályktun þar sem hörmuð er sú ákvörðun borgarstjórnarmeirihlutans að breyta deiliskipulagi Hlíðarendasvæðisins með þeim hætti að gertsé ráð fyrir brotthvarfi neyðarbrautar
Með þessari ákvörðun sé borgarstjórnarmeirihlutinn að virða að vettugi þverpólitísku sátt sem náðist með skipan Rögnunefndarinnar svonefndrar og ennfremur að ganga þvert gegn vilja mikils meirihluta borgarbúa.
Lögum samkvæmt þarf ákvörðun borgarstjórnar um að loka flugbraut á Reykjavíkurflugvelli að hljóta samþykki innanríkisráðherra.
Borgarbúar hafa, bæði í skoðanakönnunum sem og með stærstu undirskriftarsöfnun í sögu lýðveldisins, vakið athygli á því að þeir vilji hafa flugvöllinn á sínum stað.
Í ljósi þess krefst stjórn Varðar að innanríkisráðherra hafni þessari umdeildu ákvörðun borgarstjórnarmeirihlutans og standi þannig vörð um öruggar samgöngur, sjúkraflug og mest af öllu vilja kjósenda.
Þegar við hjá Mýflugi erum að koma suður í sjúkraflugi, jafnvel í veðrum, þegar innanlandsflug að öðru leyti liggur niðri , þá hefur það gerst að við höfum orðið að nota þessa flugbraut.
Ef hún hefði ekki verið til staðar hefðum við einfaldlega ekki komist suður.
Þetta segir Þorkell Ásgeir Jóhannsson, yfirflugstjóri hjá Mýflugi, um skýrslur um not-
hæfisstuðul flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.//////////////////////Það er svo að þarna er farið offari gegn miklum meirihluta,fólks bæði í R.vík og landsbyggðinni,hvað finnst ykkur um þetta,svona ósvifni er ekki hægt að líða,að láta minnihluta vaða yfir sig bara verður ekki gert,við Flugvallavinir stöndum saman,á móti svona leikaraskap ///Halli gamli
![]() |
Þverpólitísk sátt höfð að engu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2014 | 19:54
Fá ekki upplýsingar um efni fundanna/Þessi vitleysa er bara geðveila,og stórfeldur Kosnaður!!!
Fá ekkiupplýsingar um efni fundanna Innlent | mbl | 3.12.2014 | 18:58 Enn sem komið er Eyþór Björnsson fiskistofustjóri eini... Verkefnisstjóri úr forsætisráðuneytinu, fiskistofustjóri og nokkrir sviðsstjóra Fiskistofu skipa undirbúningshóp sem stýrir undirbúningi flutnings höfuðstöðva stofnunarinnar frá Hafnarfirði til Akureyrar.
Hópurinn fundar reglulega en annað starfsfólk fær ekki upplýsingar um efni fundanna.
Vinna hópsins hófst um það leiti sem Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra sendi fjörtíu starfsmönnum Fiskistofu í Hafnarfirði bréf og tilkynnti formlega um flutninginn.
Bréfið barst í september.
Ekki vildu allir sviðsstjórar stofnunarinnar Hafnarfirði taka þátt í vinnu undirbúningshópsins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis- og innanríkisráðherra, sagði á Alþingi í gær að undirbúningshópurinn væri að störfum.
Sagði hann einnig að það væri ekki þannig að allir starfsmenn Fiskistofu flyttust norður á einum degi en vonandi næði undirbúningshópurinn sem bestum árangri, þannig að afraksturinn yrði öflug Fiskistofa með ánægt starfsfólk.
Sameining Fiskistofu og Matvælastofnunar? Stefnt er að því að höfuðstöðvar Fiskistofu verði fluttar til Akureyrar fyrir 1. júlí 2015 og að flutningunum ljúki eigi síðar en 1. janúar 2017.
Mestur þungi flutninganna verður á árinu 2015 en nánari útfærsla verður í höndum fiskistofustjóra.
Starfsfólk Fiskistofu skoraði á Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á mánudag. Starfsfólk Fiskistofu skoraði á Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á mánudag.
mbl.is/​Golli Frá og með 10. september á þessu ári verða allir nýir starfsmenn ráðnir með starfsstöð á Akureyri.
Tölvusviðið, sem þjónar bæði Fiskistofu og Hafrannsóknarstofnun, verður ekki flutt. Til skoðunar er hvort það muni í framtíðinni einnig þjóna Matvælastofnun. Stofnaður hefur verið starfshópur um það verkefni.
Kanna verður hvort hentugt sé að sameina starfsstöð Fiskistofu og Matvælastofnunar á höfuðborgarsvæðinu og ef til vill víðar um land.
Fiskistofustjóri vildi fara annað en hætti við Enn sem komið er Eyþór Björnsson fiskistofustjóri eini starfsmaðurinn sem ætlar að flytja til Akureyrar og starfa áfram hjá Fiskistofu þar í bæ.
Hann sótti um stöðu forstjóra Samgöngustofu í júní þegar hún var auglýst laus til umsóknar en dró umsögn sína til baka líkt og Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Eyþór var skipaður fiskistofustjóri til fimm ára í byrjun október árið 2010.
Ráðherra vill draga úr þekkingarrofi Í bréfinu sem Sigurður Ingi sendi starfsfólkinu segir meðal annars: Til að draga úr þekkingarrofi vegna þessara breytinga verður starfsmönnum sem náð hafa 60 ára aldri fyrir árslok 2015 gefinn kostur á að ljúka starfsævi sinni fyrir Fiskistofu á höfuðborgarsvæðinu, kjósi þeir það.
Starfsmönnum sem flytja verður boðið að fljúga norður á kostnað Fiskistofu tvisvar sinnum með fjölskyldu sinni til að skoða húsnæði, kynna sér aðstæður og gera viðeigandi ráðstafanir vegna flutninga í annan landshluta.
Þeir starfsmenn sem kjósa að flytjast ekki til Akureyrar og hætta störf fá greidd laun á uppsagnartíma án þess að vinnuframlags verði krafist.
Fái starfsmaður aðra vinnu á uppsagnartímanum koma laun á nýja vinnustaðnum til frá dráttar. Þórður Ásgeirsson, fyrrverandi Fiskistofustjóri, segir fyrirhugaðan flutning höfuðstöðva stofnunarinnar frá Hafnarfirði til Akureyrar óskiljanlegt glapræði.
Ekki sé um flutning að ræða, heldur hafi ráðherra í huga að leggja Fiskistofu niður, aðeins sé verið að stofna nýja Fiskistofu með nýju fólki á Akureyri.
Við skulum vona að það takist að finna rúmlega tuttugu manns sem geta tekist á við sérhæfð og flókin verkefni Fiskistofu.
Þeirra bíður ekki lítið verk, því allri uppsafnaðri reynslu, kunnáttu og þekkingu á því hvernig þessi verkefni verði best leyst, er kastað fyrir róða," segir Þórður í samtali við mbl.is.
Hann segir að í málefnasamningi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hafi því verið lofað að ríkisstjórnin myndi auka skilvirkni stjórnsýslunnar.
Þessi aðgerð gengur auðvitað þvert á þetta loforð, segir Þórður.
Ég kem satt að segja ekki auga á neitt jákvætt við þessa ráðstöfnun á skattpeningum mínum og
annarra og hef raunar ekki orðið var við nein haldbær rök fyrir henni af hálfu forsætis- og
sjávarútvegsráðherra, sem standa á bak við þetta.///////////////////Maður hefði trúað að ef við væðum i peningum að það hefði mátt ræða málin,en í hvaða heimi lifir þessa ráðherra Sigurður Ingi ég bara veit það ekki ,ætli hann viti það sjálfur,en allt fer svona og að samstarfsflokkurinn stoppi þetta ekki mun koma sér illa fyrir hann,Maður bara skilur ekki tilganginn als ekki eins og þjóðin er stödd peningalega,einhvern tíman hefði maður verið rekinn fyrir svona brjálsemi,segi það aftur og ennþá!!!Við segjum þessari Framsókn bara upp,ef þessi vitleysa gengur eftir Skil ekki í mínum mönnum að versla með svona heimskulegu athæfi og a þessi maður skuli vera með 3 ráðuneyti er bara als ekki í lagi//Halli gamli
![]() |
Fá ekki upplýsingar um efni fundanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2014 | 18:36
ennþá heldur þessi langloka um fjárlögin,er þetta nokkurt gagn í þessu,bara spyr???
Þetta er komið í það að eyðileggja það sem ,nauðsinlega þarf að ræða til að auka peninga, í þessi mál sem verið er að rífast um,og það skilja ekki að við verðum að virkja til þessa,hvað er að þessu fólki ,þrasa um keisarans skegg ,þó okkur vanti stór mál til að byggja upp iðnað sem við þurfum og þá vantar rafmagn ekki spurning!!! allavega 2-3 virkjanir,eins og vitum öll tekur þetta allt tíma þessa vegna verður að byrja strax,ekki stöðva þetta annars mun illa fara,og stöðugleikin draga okkur niður í algjör fátæktarmörg nóg er fyrir af slíki og það vitum við flest sem þekkjum til þessa,og eiginlega vita það allir,þá er verið að þrasa um þetta fjárlaga frumvarp dag eftir dag,og því hefur verið breitt ,og ég sem styð stjórnina hefi töluvert út á það að setja,sérstaklega matarskattinn læt mig ekki með það,en þeir munu sjá eftir því þegar samið verður við Verkalýðina,ekki spurning,minn flokkur sem telur sig flokk allra stétta verður,að fara að viðurkenna allt annað!!!!ansi er ég hræddur um að það komi Kommunum vel!!! //Halli gamli
2.12.2014 | 21:49
Að hlusta á Alþingi er alveg undur veraldar,það er komin á langloka sem enga þiðingu hafa???
Annað slagið er maður búin að hlusta á Alþingi í dag um virðisaukann og þetta er bara endanlegt þras,en svona er þetta menn hafa málfrelsi og nota það til að lengja málið,og þetta er síbylju og þeir um það meðan þetta er lögum samkvæmt,en það mætti einnig breyta því nokkuð!!!Ég er sammála stjórnarastöðu um matarskattinn ,og vel það við erum að klúðra því máli,hann átti bara að vara 7% og bækurnar einni,en þarna er einnig margt gott og getur gengið,en þessi gangur frá 13,00 er víst glataður fyrir okkur sem viljum klára það sem á liggur,semja um Virkjanir og semja við Lækna og verkalýðin, svo maður þurfi ekki að hlusta á fátæktina sem er að ágerast mjög fljótt,ef ekkert gengur telja þeir stjórnarandstaðan sitja að þeir vinni þessa lotu en það verður ekki,að mínu áliti,nema ef þeir bókstaflega hættu að stafa saman Sjálfstæðisflokkur og Framsókn,sem gæti orðið ef Framsóknarmenn eru ekki orðnir samsefshæfir///Halli gamli
Aukinn hagvöxtur - aukin umferð Innlent | mbl.is | 2.12.2014 | 16:50 Reiknað er með að umferðin aukist í ár um 3,3% sem er þá í... Vegagerðin áætlar að umferðin á höfuðborgarsvæðinu hafi aukist um 3% í nóvember borið saman við sama mánuð í fyrra.
Þá er reiknað með því að umferðin á svæðinu í ár aukist um 3,3% og verði mesta umferð sem mælst hefur á einu ári hingað til.
Bent á að mikil fylgni sé á milli hagvaxtar og umferðar á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur ávef Vegagerðarinnar, að þótt umferðin við síðustu mánaðamót hafi aukist aðeins minna en gert hafi veirð ráð fyrir þurfi að leita allt aftur til ársins 2007 til að finna meiri aukningu milli nóvembermánaða.
Ennfremur segir, að líkt og á Hringvegi hafi umferð aukist að jafnaði um 1,7% í nóvember á milli ára á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2005.
Þessi aukning nú sé því tæplega tvöfalt meiri en meðaltalið.
Samkvæmt reiknilíkani umferðardeildar Vegagerðarinnar er staðan orðin þannig að umferðin í desember 2014, má dragast saman um 13,5% miðað við síðasta ár til þess að heildarumferðin endi á pari við síðasta ár.
Þessi sviðsmynd verður að teljast afar ólíkleg því má nánast slá því föstu að nýtt met verði slegið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu nú í ár, eins og fyrri spár höfðu bent til.
Mestar lýkur eru til þess að heildarumferðin verði um 3,0 - 3,5% meiri en hún var á síðasta ári sem myndi þýða um 1 - 1,5% meiri umferð en met árið 2008, segir á vef Vegagerðarinnar.
Þá er bent á, að mikil fylgni sé á milli hagvaxtar og umferðar á höfuðborgarsvæðinu.
Reiknað sé með að umferðin aukist í ár um 3,3% sem sé þá í góðu samræmi við hagvaxtarspá
Seðlabanka Íslands uppá 3,5%.//////////////////////Þetta er ekkert athugavert við þetta ,jafnvel þó vinstra fólkið hafi gert allt til að stöðvar þetta fyrst R-listin í 12 ár og svo afar núna í 6 ár eða svo,það er allt gert til að drepa einkabílinn,og reikningur þeirra var auðvitað að þessu væru öfugt farið,og tala um almenningsvagna og Járbrautir jafnvel rafmagnsvagna,en það hefur ekki gefist sem skildi,og það er ekkert að því að hafa umferð við þurfum helst að breyta vinnutímanum eitthvað svo allir séu ekki á ferð í einu,svona Stýrimenska eins og kommarnir eru með getur ekki gengið/Halli gamli
![]() |
Aukinn hagvöxtur - aukin umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar