Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Óvissa um fjölgun félagslegra íbúða/Það var nú svo,læknirin talar og talar,en ekki allt rétt því miður!!!

Óvissa umHalldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. fjölgun félagslegra íbúða Innlent | mbl.is | 2.12.2014 | 16:00 Halldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

„Við gætum verið í upphafi þess sem kallast bóla,“ sagði Hall­dór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­vík á borgarstjórnarfundi í dag.

Þar fór fram seinni umræða um fjár­hags­áætl­un Reykja­vík­ur­borg­ar fyr­ir næsta ár. Halldór gagnrýndi áætlunina á fundinum.

Þá sagði hann óvissu ríkja um rekstr­ar­grund­völl fé­lags­legra leigu­íbúða og sagðist skynja mikl­ar áhyggj­ur af því hvernig farið verði að því að reisa 500 nýj­ar leigu­íbúðir á næstu fimm árum, eins og borg­ar­ráð hef­ur samþykkt að gera.

„Það er mik­il óvissa um hvernig eigi að fram­kvæma þetta.

Það var sett fram til­laga með til­vís­un í hug­mynd­ir að stefnu sem er ekki til. Að ríkið eigi að borga eitt­hvað sem ríkið hef­ur ekki ákveðið að borga.

Þetta er svo­lítið í þoku fyr­ir mér.“

Þá sagði hann fé­lags­bú­staði ekki standa nægi­lega vel.

„Eins og sjóðstreymið er núna er veltu­féð of lágt og dug­ar ekki til.“

Hall­dór varpaði fram þeirri spurn­ingu hvað myndi ger­ast ef hús­næðismálaráðherra „ger­ir ekk­ert.

Ætlar meiri­hlut­inn þá að falla frá því að reisa 500 nýj­ar leigu­íbúðir?“ Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, svaraði Hall­dóri og sagði það vissu­lega áhættuþátt við upp­bygg­ingu fé­lags­hús­næðis að ráðherra myndi ekki fara að orðum sín­um.

„En í þeim viðræðum sem ég hef átt við ráðherra hef ég ekki fundið annað en metnað og vilja til

að standa við stóru orðin og ég get ekki annað en treyst því.“/////////////Það grunaði maður að bóla Borgarstjóra mundi ekki gera sig ,ekki spurnin það er því miður ekki !!!,við að sigla inn í kreppu að mínu áliti ef allt skal stoppað sem kemur okkur í framfarir,og meiri afköst til þessa/Halli gamli


mbl.is Óvissa um fjölgun félagslegra íbúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram unnið að flutningunum/Ég vil fyrir okkar hönd okkar sem stiðjum þessa ríkistjórn,alvarlaga huga að geðkvörfum þessa Ráðherra,sem vill kasta peningum í þetta!!!

Áfram unnið að550663 flutningunum Innlent | mbl | 2.12.2014 | 14:37 Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, segir sjálfsagt að hitta og ræða við starfsfólk Fiskistofu um fyrirhugaðan flutning stofnunarinnar til Akureyrar.

Honum hafi þó ekki gefist tími til þess að undanförnu.

Hann segir ekkert nýtt hafa komið fram í málinu sem muni breyta ákvörðun Í áskor­un starfs­fólks­ins kem­ur fram að aðgerðin sé ólög­leg, stofn­un­in hafi þegar borið skaða af, kostnaður við aðgerðina sé meiri en í áætl­un stjórn­valda og að þau byggðsjónamið sem vísað sé til stand­ist ekki þar sem at­vinnu­leysi sé meira í Hafnar­f­irði en á Ak­ur­eyri.

Ofan á það bæt­ist svo grein sem tveir fyrr­ver­andi for­stjór­ar Fiski­stofu skrifuðu og lýstu því yfir að flutn­ing­arn­ir stæðust ekki skoðun og væri stofn­un­inni óhag­kvæm­irStarfs­fólk Fiski­stofu hef­ur ekki fengið viðbrögð frá Sig­urði Inga Jó­hanns­syni sjáv­ar­út­vegs­ráðherra vegna áskor­un­ar sem það af­henti í at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu í gær­morg­un. mbl.is leitaði einnig viðbragða hjá Sig­urði Inga vegna áskor­un­ar­inn­ar en án ár­ang­urs.

Í áskor­un­inni var ráðherr­ann fyrst og fremst hvatt­ur til að hætta við flutn­ing höfuðstöðva Fiski­stofu frá Hafnar­f­irði til Ak­ur­eyr­ar.

„Þú yrðir maður að meiri og um leið leidd­ir þú málið út úr því öngstræti sem það er komið í,“ sagði í til­kynn­ing­unni. Starfs­fólkið hafði gert fjór­ar til­raun­ir á rúm­lega tveim­ur vik­um til að ná sam­bandi við ráðherr­ann og af­henda hon­um áskor­un­ina.

Allt kom fyr­ir ekki og ákvað starfs­fólkið því að mæta í ráðuneytið þar sem áskor­un­in var les­in upp. Er flutn­ing­ur­inn lög­mæt­ur? „Ákvörðun um flutn­ing Fiski­stofu er ólög­mæt, þ.e. heim­ild Alþing­is ligg­ur ekki fyr­ir. Það er al­veg skýrt með vís­an til dóms Hæsta­rétt­ar í máli nr. 312/​1998,“ sagði einnig í áskor­un­inni.

Í gær var til­kynn­ing birt á vef stjórn­ar­ráðsins þar sem meðal ann­ars kom fram að end­ur­vekja ætti al­menna heim­ild ráðherra til að ákveða aðset­ur stofn­ana sem und­ir hann heyra í frum­varpi til laga um breyt­ing­ar á lög­um um Stjórn­ar­ráð Íslands. mbl.is hafði áður greint frá því að þess­ar breyt­ing­ar stæðu til.//////////////////////////Ég hefi þá ljótu skoðun sem ég held að fleiri, hafi að þessu flutningur Fiskisstofu,sé þráhyggja sem er ekki góður kvilli eða verri!!,sem hefur hvílt á mörgum mörgum meðal annars fyrv.Forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttir,en að við þurfum að verða fyrir þessu aftur en slæmt, og meira en það mjög slæmt,en við bara verðum að endurskoða þetta en ekki láta þennan Dýralæknir eyðileggja stjórnarsamstarfið,það mun gerast ef hann heldur þessu áfram,hann er einnig mjög einstaklingsbundið  sem Umkverfisráðherra og þar hefur hann Ráðhverstóla  3 með Landbúnaði og Sjafnarútveg,sem hann er að koma mað sem nýtt frumvarp í,aftur verð ég að segja Framsókn mun eyðileggja þetta samstarf ef svo heldur áfram !!!!/Halli gamli


mbl.is Áfram unnið að flutningunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfelld breyting á hlutverki RÚV blasir við/Þetta er ein hin rétta laustn!!!!

Ríkisútvarpið.Stórfelld breyting á hlutverki RÚV blasir við Innlent | mbl.is | 1.12.2014 | 14:21 Ríkisútvarpið.

Nú stendur til að útvarpsgjaldið lækki um áramótin úr 19.400 kr niður í 17.800 kr ogsvo að útvarpsgjaldið lækki aftur að ári niður í 16.400 kr.

Gangi þessar fyrirætlanir eftir blasir við stórfelld breyting á hlutverki, þjónustu og starfsemi Ríkisútvarpsins„Ef það er vilji Alþing­is að gjör­breyta hlut­verki Rík­is­út­varps­ins og skyld­um, þá er eðli­legt að fram fari umræða og þá með til­heyr­andi breyt­ing­um á út­varps­lög­um áður en tek­in er ákvörðun um að lækka út­varps­gjald.

“ Áskor­un­in í heild: Á und­an­förn­um árum hafa fram­lög til Rík­is­út­varps­ins ít­rekað verið skor­in niður, mikið hef­ur verið hagrætt í starf­sem­inni og dregið úr þjón­ustu.

Síðastliðið vor létu stjórn RÚV og nýir stjórn­end­ur fé­lags­ins gera sjálf­stæða út­tekt á fjár­mál­um fé­lags­ins.

Niðurstaðan var sú að fé­lagið er yf­ir­skuld­sett og er stærst­ur hluti skuld­anna gaml­ar líf­eyr­is­sjóðsskuld­bind­ing­ar.

Þá blas­ir við að tekj­ur duga ekki fyr­ir þeirri þjón­ustu sem fé­lagið veit­ir og grund­vall­ast á út­varps­lög­um.

Í út­varps­lög­um eru skyld­ur lagðar á herðar Rík­is­út­varps­ins og þær nán­ar út­listaðar í þjón­ustu­samn­ingi milli Mennta- og menn­ing­ar­málaráðuneyt­is­ins og Rík­is­út­varps­ins.

Til að standa und­ir þjón­ust­unni er í út­varps­lög­um gert ráð fyr­ir því að Rík­is­út­varpið fái út­varps­gjald sem lands­menn og lögaðilar greiða nú. Útvarps­gjaldið er 19.400 kr á ár­inu 2014 en ríkið hef­ur á und­an­förn­um árum tekið hluta út­varps­gjalds­ins og nýtt í al­ger­lega ótengd verk­efni.

Stjórn Rík­is­út­varps­ins hef­ur ít­rekað að sam­ræmi verði að vera milli þeirr­ar þjón­ustu sem fé­lag­inu ber að veita og þeirra tekna sem fé­lagið fær til að standa und­ir þjón­ust­unni.

Stjórn RÚV hef­ur óskað eft­ir því að Rík­is­út­varpið fái út­varps­gjaldið óskert eins og það er á ár­inu 2014. Sú upp­hæð dug­ar til að standa und­ir starf­sem­inni til framtíðar.

Sam­hliða hafa stjórn RÚV og nýir stjórn­end­ur unnið að eigna­sölu sem von­ast er til að leysi upp­safnaðan skulda­vanda fé­lags­ins.

Útvarps­gjaldið á Íslandi er með því lægsta sem þekk­ist meðal ná­grannaþjóða þrátt fyr­ir að þær séu all­ar mun fjöl­menn­ari.

Fram­lag hvers Íslend­ings til Rík­is­út­varps­ins er t.d. mun lægra en þegn­ar Bret­lands og Nor­egs (BBC, NRK) greiða til sinna rík­is­stöðva og sam­bæri­legt því sem þegn­ar Dan­merk­ur, Svíþjóðar og Finn­lands (DR, YLE og SVT/​SR) greiða til sinna rík­is­stöðva.

Nú stend­ur til að út­varps­gjaldið lækki um ára­mót­in úr 19.400 kr niður í 17.800 kr og svo að út­varps­gjaldið lækki aft­ur að ári niður í 16.400 kr.

Gangi þess­ar fyr­ir­ætlan­ir eft­ir blas­ir við stór­felld breyt­ing á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins með stór­tæk­ari niður­skurðaraðgerðum en áður hafa sést hjá fé­lag­inu.

Aug­ljóst má vera að sú þjón­usta sem Rík­is­út­varpið veit­ir tæki stakka­skipt­um við þessa breyt­ingu með sam­drætti á öll­um sviðum.

Þá er ljóst að áætlan­ir um úr­bæt­ur á til­tekn­um þátt­um í starf­sem­inni eru ófram­kvæm­an­leg­ar en nýir stjórn­end­ur og stjórn hafa hug á að efla þjón­ustu við lands­byggðina, bjarga efni í Gull­kistu Rík­is­út­varps­ins og gera aðgengi­legt þjóðinni, efla fram­boð á vönduðu barna­efni á ís­lensku, leggja aukna áherslu á inn­lenda fram­leiðslu og bæta dreifi­kerfið um land allt.

Ef það er vilji Alþing­is að gjör­breyta hlut­verki Rík­is­út­varps­ins og skyld­um, þá er eðli­legt að fram fari umræða og þá með til­heyr­andi breyt­ing­um á út­varps­lög­um áður en tek­in er ákvörðun um að lækka út­varps­gjald.

Rík­is­út­varpið er ein mik­il­væg­asta menn­ing­ar- og lýðræðis­stofn­un þjóðar­inn­ar. Stjórn Rík­is­út­varps­ins bein­ir þeirri ein­dregnu áskor­un til Alþing­is að það standi vörð um Rík­is­út­varpið með því að falla frá fyr­ir­hugaðri lækk­un á út­varps­gjaldi.

Stjórn RÚV, Ingvi Hrafn Óskars­son, formaður. Ásthild­ur Sturlu­dótt­ir, Björg Eva Er­lends­dótt­ir,

Guðlaug­ur G. Sverris­son, Guðrún Nor­dal, Friðrik Rafns­son, Magnús Stef­áns­son, Mar­grét Frí­mann-­

dótt­ir, Val­geir Vil­hjálms­son, Úlf­hild­ur Rögn­valds­dótt­ir.///////////////////Svo mörg voru þau orð og ekki alveg ný af nálinni,þetta er búið að tala um í mörg ár,og alltaf er þetta sem við köllum afturhald til að stoppa þetta,sama hvar menn eru i Pólitík að manni finnst þetta er barn síns tíma ,oog á bara að einkareka,og ekkert annað!!! Ég er að vona að þetta gangi eftir á næstu árum,og einnig með áfengissöluna að það verði eins og annarstaðar 


mbl.is Stórfelld breyting á hlutverki RÚV blasir við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er það aðalatriðið að finna Innanríkisráðherra,er ekkert annað að gera fyrir Jól ????

Hvað varðar okkuPhoto on 1 1 14 at 1.18 AMr um þjóðarhag gærum við sagt við Ríkisstjórn okkar sem kusum hana,ég orðin ansi hræddur um loforðin varði að engu,það sést ekkert annað og við farinn að örvænta,Kyrrstaða í öllu einnig að láta þessa vinstri flokka stoppa af það ð við viljum nýta auðlindir okkar,og löngu komin á það tími,en þetta að hafa þá afsökun að þora  ekki að vinna á móti öfgunum um friðun er ekki okkur í hag nema síður sé,það er verið að skoða reyndar hvað við þorum að gara við þá sem  við skuldum vitskertu lánum Bankana,við eigum ekki annars koat en að segja þeim að þeir fái þetta í krónum og þeir fjarfesti fyrir það,ef þeir taka því ekki fá þeir ekkert!!Okkur finnst auðvitað að bankarnir beri það mikla ábyrgð,en En þetta er tímafrekt og verður að byrja á eini til tveimur virkjunum og standa við að eiga rafmagn til þeirra sem ætla að koma,kísilver 3 og gagnaver nokkur jafnvel,allt sem á þessari stjórn hvílir er þeim að mínu áliti þeim offiða,semja við Lækna og svo Verkalýðinn um svipaða tölu eða um 20% það mundi sleppa,því mánaðarkaup lækna er 1000 milljón á mánuði yrði þá 1200 þus á mánuði en verkamaður er með  300 þús en yrði 360  þús á mánuði,svo kemur á þetta álag eitthvað, en það má einnig fara í vinnuaðferðir og vaktir og það gott!!!!Þetta er ekki hægt að fara með en bara  vonandi að þeir semji við Sjómenn einnig þá um öryggi á Grunnlaun,en við sem fylgjumst með og verðum með kverjum deginum óánægðari///Halli gamli


Það er merkilegt að hlusta á Alþingismenn ræða um þessa umframpening sem kom úr Fjárlögum,vildi gefan fátækum þjóðum????

Maður verður ekki oftorðPhoto on 1 1 14 at 1.18 AMlaus en í vikunni var rætt um þennan afgang,komu menn í pontu margir þá var þetta áberandi hjá Utanríkisráðherra núverandi vildi styrkja allar þessar þjóðir og NATO einnig sem var varnabandalag er nú orðið hernaðarbandalag,svo kom Össur og var mikið niðurfarin í þessu sama styrkja allt og alla sem væru illa stödd!!!!Ég varð eiginlega kjaftstopp,við sem skuldum svakalega 2000 milljarða ríkið og þar fyrir utan lífeyrisjóði ríkisins,við borgum bara 80 miljarða í vexti af þessu,svo skuldum við eiginlega allt Tónlisthöllina það er er hátt í 1,5 milljarða,svo eru skuldir heimilanna um 1000 milljarðar og margt annað,svo er talað um að við 320 þus sem með þeim ríkustu í heiminum Nei Alþingismenn kynnið ykkur þetta betur svo er það nýr Landspítali með græjum kostar ekki mynna en 100 milljarða,Vegakerfið að hrynja,og allar launahækkanir sem koma/Halli gamli


Þessi Ríkisstjorn er als ekki með nóga samstöðu,Dýralæknirin úr Framsólkn fer bara sínar egin leiðir!!!!

Ef ég réði e550663inhverju þarna sem sjálfstæðismaður mundi ég slíta þessu samstarfi eins og sérstaklega Guðmundir Ingi hagar sér þessi Dyralæknir er okkur mjög erfiður fer bara  sínar eigin leiðir!!!Nú allt í einu vill hann ekki tala um virkjanir,segir þessu ekkert liggja á við höfum ekki rætt þetta í Framsóknarflokknum segir hann!!Þetta er svo fáráðlega sagt,vitandi þess að það klingdi út alla stjórnartíð vinstri stjórna að við ættliðum að fara í arðbæra vinnu og eyða atvinnuleysi,og svo komu kosningar og stjórnarmyndum varð millum Sjalstæðismann og Framsóknarmanna og vissum við ekki annað en þar ríkti svipuð stefna og allir vissu ekki annað,og við bjuggumst við miklu,vissum samt að það mundi vera erfitt,en samt fært og þá yrði að vara mjög góð  samvinna,en þar virðist komin annað á og það af samvinnuflokknum,ég hefi aldrei verið sáttur við þessar ríkistjórnir með þessum flokkum en samt trúði maður að þetta gengi núna með nánast nýju fólki,en þetta er að skírast núna,nokkrir Þingmenn með Guðmundi Inga í fararbroddi eru komnir í nokkurskonar stjórnaraðstöðu,það er þetta með Virkjanir sem við verðum að virkja allavega nokkra til að framleiða rafmang sem er nú að hækka mikið í verði,og við og það eru að koma inn verkefni Kísilver jafnvel 3  og svo gagnaverð nokkur,Haltu mér slepptu mér er þessi Framsókn ,og meira að segja, opinn í báða enda vara sagt,það er bert að koma fram,Dyralæknirinn er með 3 embætti Sjáfarútvegsmál Landbúnaðarmál og umkvefsmál,þetta er honum offiða ekki spurning,stoppa af virkjanir Nýtt sjáfarútveg mál í farvatninu,og ekkert má hreyfa við landbúnaðinum,þetta er ekki það sem maður bjóst við og okkur ber að skoða þetta mjög vel,við erum svo skuldug ,að við verðum að nýta auðlindir okkar,annað er ekki til í dæminu,þetta fólk sem er á móti því að friðlýa allt landið!!!;hvað ætlar það að gera til bjargar okkur,ég bara óska svars!!!Svo ef það yrði að við slítum sambandinu þurfum við ekki að halda að kommarnir og vinstri flokkarnir vildu nokkuð með Framsókn að gera,það efa ég allavega,en þetta er það nýjasta í málunum og ef stærri flokkurinn á að lúffa fyrir hinum er það langt sótt,En semsagt ef þetta verður svona verðum við Sjalfstæðismenn að standa við okkar,en þetta verður slæmur áfangi en vonandi leysist//Halli gamli  


Það er að verða algjört vonleysi okkar manna að við getum staðið við betri afkomu!!!!

Það Photo on 1 1 14 at 1.18 AMer ná svo í þessari blessaðri Pólitík að menn eru bókstaflega orðnir vonlausir ,að þessi Ríkisstjórn,komst til að standa við gefin loforð,þetta meðan Vertrygginguna er að drepa annan kver mann,eða svo er óhætt að segja,sagt er að verðbólga sé  frá 0-2% samt er á lánum hjá Islandbanka  alltaf sömu verðbæturnar,af hverju er þetta ekki skoðað þetta er hreinn fjárdráttur,til þessa að lostna við þessu vitleysu þarf að taka verðtryggsuguna af strax,ekki spurning!!!Eða ef það ekki taka uppi annan gjaldmiðil,taka bara upp dollar,það er besti gjaldmiðillin,eins og þetta er rekið í dag er þetta til þess að meirihluti Landsmanna fer á hausinn ekkert annað,drífið í þessu sjálfstæðismenn og gerið eitthvað í þessu//Halli gamli 


Óveður á Reykjanesbraut/ Þetta mun verða svona um allt land,fárviðri!!!!

Óveður á Reykjanesbraut Innlent | mbl.iMynd 745643s | 30.11.2014 | 12:44 Mynd 745643 Það er byrjað að hvessa á suðvesturhorni landsins og komið óveður á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, á Kjalarnesi og undir Eyjafjöllum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Hviður verða 35-45 m/​s á ut­an­verðu Kjal­ar­nesi og Hafn­ar­fjalli og eins var­huga­verður vind­ur á Reykja­nes­braut­inni.

Læg­ir held­ur í skamma stund síðdeg­is áður en skell­ur á með SV-átt, fyrst á Suður­nesj­um.

Í kvöld og fram­an af nóttu verður sums staðar ofsa­veður, meðal­vind­ur allt að 25-30 m/​s, sér­stak­lega um landið norðvest­an­vert og á annesj­um norðan­lands und­ir miðnætti.

Það eru hálku­blett­ir og élja­gang­ur á Hell­is­heiði og Lyng­dals­heiði og krapi og él á Mos­fells­heiði en ann­ars eru flest­ir veg­ir greiðfær­ir á Suður­landi.

Á Vest­ur­landi er hálka eða hálku­blett­ir á flest­um fjall­veg­um en að mestu greiðfært á lág­lendi. Hálka eða snjóþekja er víða á veg­um á Vest­fjörðum en þæf­ings­færð á Hrafns­eyr­ar­heiði.

Á Norður­landi vestra er að mestu greiðfært en hálka eða hálku­blett­ir nokkuð víða á Norðaust­ur­landi.

Greiðfært er á lág­lendi á Aust­fjörðum en hálku­blett­ir á flest­um fjall­veg­um en þó er hálka á Oddsk­arði. Suðaust­ur­strönd­in er greiðfær.

Byrjað var að kalla út björg­un­ar­sveitar­fólk í Vest­manna­eyj­um og Grinda­vík um há­degið en nú hafa björg­un­ar­sveit­ir á höfuðborg­ar­svæðinu og öll­um Suður­nesj­um verið kallaðar út.

At­hygli vek­ur að þegar eru kom­in þrjú út­köll á höfuðborg­ar­svæðinu vegna fjúk­andi trampólína þrátt fyr­ir ít­rekaðar viðvar­an­ir um að mesti veðurofsi í mörg ár væri vænt­an­leg­ur í dag.

Ólöf S. Bald­urs­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar, seg­ir að björg­un­ar­sveitar­fólk um allt land sé í viðbragðsstöðu enda af­taka­veður í kort­un­um.+

Nú er hvasst á suðvest­ur­horni lands­ins og komið óveður á öllu Reykja­nesi, Kjal­ar­nesi, und­ir Akra­fjalli og Hafn­ar­fjalli.

Einnig er óveður und­ir Eyja­fjöll­um og við Markarfljót. Bú­ast má við hættu­leg­um vind­hviðum við fjöll eft­ir há­degi (jafn­vel yfir 50 m/​s þegar verst læt­ur) og engu ferðaveðri. Hættu­leg­ustu vind­hviðurn­ar verða V-lands síðdeg­is, en á N-verðu land­inu frá því seint í kvöld og fram á mánu­dags­morg­un.

Sam­kvæmt sjálf­virk­um mæl­ing­um Vega­gerðar­inn­ar fer í 45 metra á sek­úndu und­ir Hafn­ar­fjalli. Veðrið á hins veg­ar eft­ir að versna enn frek­ar þegar líður á dag­inn og eru það ein­dreg­in skila­boð frá veður­fræðing­um á Veður­stofu Íslands að fólk haldi sig heima enda ekk­ert ferðaveður og verður það ekki fyrr en þegar líður á dag­inn á morg­un.

Búið er að af­lýsa fjöl­mörg­um flug­ferðum til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og allt inn­an­lands­flug ligg­ur niðri og ljóst að ekk­ert verður flogið inn­an­lands fyrr en á morg­un.

Áætl­un Strætó: Leið 51 frá Höfn kl.10:25 fell­ur niður vegna veðurs.

Leið 51 frá Mjódd kl.11:30 mun ekki aka lengra en á Sel­foss (frá Sel­fossi kl.12:25 að Vík fell­ur niður vegna veðurs).

Leið 57 All­ar ferðir falla niður vegna veðurs.

Leið 58 All­ar ferðir falla niður vegna veðurs. Leið 59 All­ar ferðir falla niður vegna veðurs.

Leið 82 All­ar ferðir falla niður vegna veðurs.///////////////////Þetta er og verður svona um alt land þegar líður á daginn,og verður ofsaveður ef allt gengur eftir,sem það mun gera S.v. stormur og mikið úrfelli rigning!!! þetta,getur verið hættulegt mjög ef fólk fer ekki vel að hlutnum,og passar að vara ekki utanhúsþegar búið er að tala til utanhús,en við bara biðjum fyrir öllum að enginn slys verði,og það er málið allt flug fest niður og það gott og skipin komaa in eða í var//Halli gamli

 

 


mbl.is Óveður á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Núhöldum fyrsta i Aventu á sunnudagi við

Ég var mikið 3240_85622372532_655067532_2464490_96755_ntrúað barn og er það enn,als ekki oppáþrengjandi við aðra ég á magann trúleisingja og annarra trú,og það gefur auðvitaðar sem kuningju,okkur ágætis vinir og ekkert slæst uppá vinskapinn þó við séum sit hverjar trúar.þessa vagna að ekki að vera að okkar trú sé hin eina sanna!!!!En samt átti þetta vera beinn áróður,bara samhendri allra um að hafa okkar hátíðir,Svona laugardagspjall þetta vera meiri svona vinarspjall og ekkert skítkasta af nógu eru að taka sem betur mætti fara leiðinlegt að það náist ekki samkomulag um að taka frá virkjanastaði ,sem við gætum með allri vinsemd, sé að það þarf að virkja á næstunni nokkur þurfa að fara í umkvífismat og á þessu er langt ferli og þessa varlegan veðbyr þetta,er því nauðsint að þessu verður að fíta,og nógu langt þetta ferli, En við þurfum að fara að byrja á fyrsta,og það er beðið eftir rafmagni Kísilver sennilega 3 og gaganageimsla og gangnageimslu sem eru nokkur orkufrekar og þetta kemur fyrn en seinna ekki spurning,als ekki að selja þetta á streng útí heim það er alltof dýrt fyrir okkur og kemur mjög seint!!!en þetta eru mörg járn í  eldinum ,ekki veitir af það þarf klof að ríða röftum ,en skuldir okkar eru dýrara á vöxtum það er ekki minna hjá ríkinu en um 80  milljarða í samborganir á ári,svo erum við bæði Ríki og Borginni að bjarga þessa frægu höll sem við köllum en það vara reyst okur um öxl þetta er Harpa sem er að sliga bæði Ríki og Borgina fyrst eru 300 þus ári en er mikið meira komið í hítina sem Borg og ríkihafi orðið að borga já dýr er listin og dýr lifum ekki á henni,nema margir hafa óarðbæra vinnu!!!Ég er hæddastur um að fólk geri sér ekki alveggein fyrir stöðunni,hún er mjög örðug en samt þarf að snúa kveðju krónu fyrir sér og hætta þessu bruðli í óþarfa1111,að hlusta á Alþingi í gær,við engin að gefa þessum fátæku þjóðum meira,Nógir peningar sagði Utanríkiráherra og Össur og fleiri á hverjumm lyfjum er þetta fólk,hver króna kemur okkur út úr skuldabarslini og það verðum við að gera,annars förum við í greyðluþrot,Ekkert annað,Við erum alltaf linir að koma arðbærri vinnu af stað ,þufum að virka til að selja Rafmagni þeim sem vilja byggja orkufrekan iðnað hérna ,það er það eina//Halli gamli


Óveðrið fyrr á ferðinn,þetta er bara Íssland í dag,og við búum okkur undir þar!!!!

Óveðrið fyrr á ferðinni Innlent | mblSpá fyrir vind kl. 01 aðfaranótt mánudags 1. desember. .is | 29.11.2014 | 16:11 Spá fyrir vind kl. 01 aðfaranótt mánudags 1. desember.

Lægðin, sem veldur óveðrinu sem væntanlegt er á morgun, er að taka á sig mynd suðvestur í hafi og er stödd um 700 km austur af Nýfundnalandi.

Óveðrið gæti skollið á tveimur tímum fyrr en talið var í gær.

Bú­ast má við hættu­leg­um vind­hviðum við fjöll eft­ir há­degi á morg­un (jafn­vel yfir 50 m/​s þegar verst læt­ur) og engu ferðaveðri.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Veður­stofu Íslands gæti óveðrið skollið á tveim­ur tím­um fyrr á morg­un en talið var í gær.

Vind­styrk­ur­inn er hins veg­ar svipaður og áður hafði verið varað við.

Lægðin, sem veld­ur óveðrinu sem vænt­an­legt er á morg­un, er að taka á sig mynd suðvest­ur í hafi og er stödd um 700 km aust­ur af Ný­fundna­landi.

Lægðin er á leið til norðaust­urs, en á morg­un fer hún hratt til norðurs og dýpk­ar ört.

Á morg­un er út­lit fyr­ir vax­andi suðaustanátt, meðal­vind­hraði víða á bil­inu 18-25 m/​s eft­ir há­degið.

Vind­hviður geta náð yfir 40 m/​s vest­an og norðan und­ir fjöll­um á Vest­ur­landi, til dæm­is und­ir Hafn­ar­fjalli.

Suðaustanátt­inni fylg­ir rign­ing og er út­lit fyr­ir tals­vert eða mikið úr­komu­magn á suður­helm­ingi lands­ins.

Það er von á þíðu á lág­lendi, en lík­ur eru á að úr­kom­an verði á formi slyddu eða snjó­komu á heiðum og fjöll­um, einkum í fyrstu.

Und­ir kvöld á morg­un verður lægðin á norður­leið skammt vest­an við land og sunn­an við hana er mik­ill vind­streng­ur sem mun herja á landið.

Nær há­marki um klukk­an 21 Um kl. 21 er út­lit fyr­ir að veðrið nái há­marki suðvest­an­lands með suðvest­an 20-30 m/​s.

Up­p­úr miðnætti fær­ir þessi veðurhæð sig yfir á Breiðafjörð, Vest­f­irði, Strand­ir og Norður­land vestra og einnig á Norður­land eystra.

Má bú­ast við að vind­hviður geti náð yfir 50 m/​s á þess­um slóðum þar sem vind­ur stend­ur af fjöll­um. Með suðvestanátt­inni kóln­ar og mun úr­kom­an á sunnu­dags­kvöldið færa sig yfir í að vera á formi slydduélja og síðar snjóélja.

Á mánu­dags­morg­un­inn er gert ráð fyr­ir suðvest­an stormi (18-25 m/​s), en all­hvass eða hvass vind­ur síðdeg­is (13-20 m/​s).

Útlit er fyr­ir élja­gang, en að létti til norðaust­an- og aust­an­lands.

Áfram kóln­ar í veðri og má bú­ast við hita um og und­ir frost­marki þegar kem­ur fram á dag­inn.

„Af of­an­sögðu er ljóst að spáð er ill­viðri eft­ir há­degi á sunnu­dag­inn og fram á mánu­dag og ekk­ert ferðaveður.

Þessi til­kynn­ing er unn­in með aðstoð tölvu­spáa með grein­ing­ar­tíma kl. 12 á laug­ar­dag,“ seg­ir í

til­kynn­ingu frá veður­fræðing­um Veður­stofu Íslands.///////////Þetta er vond spá og það bar að taka alverleg mjög!!þetta er bara ofsaveður og rigning sem gæti víða flætt inní hús og valdið skaða,tökum þetta alvarlega og gerum ráðstafanir/Halli gamli


mbl.is Óveðrið fyrr á ferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband