Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
29.11.2014 | 16:25
Lúmsk hálka með kólnandi veðri/Þessu erum við vön, samt farið varlega"""
Lúmsk hálka með kólnandi veðri Innlent | mbl.is | 29.11.2014 | 15:29 Mynd 616192 Eftir að lægt hefur um landið vestanvert hefur kólnað og nú yfirdaginn myndast víða lúmsk hálka þegar blautir vegirnir frjósa.
Ekki síst á þetta við um uppsveitir Suðurlands, Borgarfjörð og þjóðveginn um Holtavörðuheiði og Húnavatnssýslursegir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vegir eru að heita má auðir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru þó á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum er mikið autt á láglendi en víða hálkublettir á fjallvegum. Flughálka er á Kleifaheiði.
Norðvestanlands eru vegir að mestu greiðfærir en krap og þoka á Vatnsskarði og hálkublettir á Öxnadalsheiði.
Norðaustanlands eru hálkublettir á örfáum leiðum en á Austurlandi eru vegir auðir. Óveður er á
Vatnsskarði eystra///////////////Eitt orð við þessu að fara mjög varlega og svo versnað veðrið í nótt og morgun ofsaveður riging og rok mikið/Halli gamli
29.11.2014 | 16:25
Lúmsk hálka með kólnandi veðri/Þessu erum við vön, samt farið varlega"""
Lúmsk hálka með kólnandi veðri Innlent | mbl.is | 29.11.2014 | 15:29 Mynd 616192 Eftir að lægt hefur um landið vestanvert hefur kólnað og nú yfirdaginn myndast víða lúmsk hálka þegar blautir vegirnir frjósa.
Ekki síst á þetta við um uppsveitir Suðurlands, Borgarfjörð og þjóðveginn um Holtavörðuheiði og Húnavatnssýslursegir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vegir eru að heita má auðir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru þó á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum er mikið autt á láglendi en víða hálkublettir á fjallvegum. Flughálka er á Kleifaheiði.
Norðvestanlands eru vegir að mestu greiðfærir en krap og þoka á Vatnsskarði og hálkublettir á Öxnadalsheiði.
Norðaustanlands eru hálkublettir á örfáum leiðum en á Austurlandi eru vegir auðir. Óveður er á
Vatnsskarði eystra///////////////Eitt orð við þessu að fara mjög varlega og svo versnað veðrið í nótt og morgun ofsaveður riging og rok mikið/Halli gamli
![]() |
Lúmsk hálka með kólnandi veðri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2014 | 15:58
Blessað veðrið er á milli þáta með logn efir storn og fyrir næsta óveður,sem verður Rok og mikil rigning"""
Við höfum sloppið vel með þennan Vetursennilega hlýjasti Nóvember ever,en þetta er fljótt að breytast,en við bara vonum þessa að veturinn verði svona,en þetta bara óshyggja!!!Maður er að horfa á Enska boltann mitt lið var að vinna W,B,A.en fór bara 0-1 fyrir mína menn Arsenal,svo eru fullt af leikum í dag,en ég er ekki bara að skrifa um knattspyrnu ,heldur um Þjómálinn okkar sem eru á vonarvöl að manni finnst,nú i síðustu rimmu Alþingis var talað um hið sjalsgena mal að fara að huga að virkja um er að ræða 7 virkjanir sem eru í biðflokk,þeim komst að setja þá þar Kommarnir,og aðdáendur þeirra ,sem er algjör misskilningur að við þurfum að koma allavega 4-5 í nýtanlegt hæfi,þessir blessaðir umkverfissinnar eru fastir á að stoppa allt því miður eru öfgarnar eru svo heiftlegar að það hálfa væri nóg,að horfa á Alþingi ´gær tók útyfir allan þjófabálk,þessi Stjórnarandstaða fórlangt yfir strikið og er okkur til mikillar skammar!!!Það vara bókstaflega uppþota þarna!! og allt fór úr böndum,og það er ekki gott,en í alvöru talað er það komin tími á virkjafnir,byrja á einni þetta er tímafrek og tekur langan tíma svo er það raðvirkjanir í Þjórsá 3 stykki allt þetta tekur langan tíma en menn bíða efir orku sem þeir vilja borga vel fyrir, allavega 4 kísilver og og svo gagnaver,og mikið meira er í farvatninu,en það vantar Rafmagn!!!Menn eins og Ómar Ragnarsson sé ágæti drengur er æstur umhvervissini en flugurum allt og sér þetta við allar aðstæður,hann talar um að við séum að pissa í skóinn okkar sem skammgóður vermir.em þessar vikjanir eru sjálbærar og fegrar umkvefið,við erum að gera þetta og engin annar bjargar okkur ,og Kommarnir verða að stilla sig/Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2014 | 16:52
Bara steinhaldið kjafti/Þetta má kalla upphlaup á Alþingi voru,til skammar fyrir Stjórnarandstöðuna!!!
Bara steinhaldið kjafti Innlent | mbl.is | 28.11.2014 | 11:16 Birgitta Jónsdóttir er þingflokksformaður Pírata.
Forseti Alþingis þurfti alloft að biðja þingmenn að veita ræðumanni hljóð á þingfundi í morgun, en þá var oftar en ekki rætt um tillögu Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, um að færa átta virkjanakosti úr biðflokki í nýtingaflokk.
Sitt sýnist hverjum um þá tillögu.Meðal þeirra sem tóku til máls var Píratinn Birgitta Jónsdóttir.
Hún sagði að þessir síðustu dagar á Alþingi væru skrítnir og að hún viti ekki hvernig hægt verði að byggja traust á milli stjórnarandstöðu og stjórnar ef haldið verði áfram á þeirri vegferð sem Jón hefur boðað.
Á meðan Birgitta hélt ræðu sína var hávaði í hliðarsal slíkur að hún bað forseta um að skerast í leikinn.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, tók undir með Birgittu og bað þingmenn um hljóð. Bara steinhaldið kjafti, sagði Birgitta í kjölfarið úr ræðustól og fékk hún eftir það að klára ræðu sína.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði það ekki til fyrirmyndar hvernig Jón hefði hagað sér og sagðist vona að gerðar verði breytingar á því vinnulagi.
Ennfremur sagðist Katrín ekki trúa því að framsóknarmenn ætli að láta Jón Gunnarsson og aðra sjálfstæðismenn keyra yfir það vinnulag sem Framsóknarflokkurinn tók þátt í að leiða í lög og rammaáætlun byggir á.
Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Bjarnason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Alþingi Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Bjarnason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Alþingi Skjáskot af Althingi.is Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, sagði að framganga Jóns Gunnarssonar væri orðið sérstakt vandamál á Alþingi en hann gangi þvert gegn lögum sem þingi ákvað sjálft.
Vanþekking hans á þeim lögum sem Alþingi setur sé ótrúleg.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði tillögu Jóns virðingaleysi gagnvart lögum í landinu og spurði hvers vegna það liggi svona á að keyra í gegn að bæta við fleiri virkjanakostum í nýtingaflokk.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði átakasækni og skort á heildarsýn einkenna störf ríkisstjórnarinnar og að það væri sérstakt áhyggjuefni.
Hann spurði einnig hvaða tilgangi það þjónaði að efna til ófriðar um alla hluti og hvort enginn málaflokkur sé svo mikilvægur að það megi skapa um hann almenna samstöðu.
Ásmundur Friðriksson var eini þingmaður Sjálfstæðisflokks sem tók til máls.
Hann sagði að farið væri mörgum og ljótum orðum um störf atvinnuveganefndar.
Á síðasta kjörtímabili hafi verið framin þau svik að færa virkjanakosti úr nýtingaflokki í
biðflokk og nú sé mikilvægt að stilla klukkuna upp á nýtt.
Við erum að fara vinna með fólkinu og fara að vilja þess í virkjanamálum.///////////////////////////////Þetta er sprengja sem þau öll vissu að yrði,átti als ekki að koma eða hvað virkjanir alveg stopp vegna þessara umkverfisaiatóla sem þykjast eiga landið einir,við eigum það sameiginlega,og við viljum nýta,og ekki veitir okkur okkur af,en svona framkoma er ekki til þessa sætir náist nema síður sé,þessi meirihluti lætur ekki vara sí svona yfir sig,Jón Gunnarsson þessi geðprýðismaður á þetta ekki skilið als ekki,nú fer bara harkan sex í þetta og við framkvæmum það sem er skinsamlegt,og engin stoppar það .lögin eru með okkur!!! og við værum enn í Torfkofunum ef þetta fólk hefði ráðið hér,en samt erum við als ekki umkverfissóðar,bara gera þetta skinsamlega og faglega,og það verður gert,hvað sem tautar og röflar,af hverju ekki að vara í þessu saman öll,það einfaldlega vill þetta öfgafólk bara þrasa,en við verðum að virkja ferlið er svo langt//Halli gamli
![]() |
Bara steinhaldið kjafti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2014 | 15:59
Synd fyrir miðbæinn/það ætti í raun að hætta að kalla þetta miðbæ,þetta er að mestu verslunargata og veitingasölur!!!
Synd fyrir miðbæinn Viðskipti | mbl | 28.11.2014 | 14:27 Skólavörðustígur 21 Ég myndi segja að það sé mikil synd fyrir miðbæinn að þessi flottu verslunarrými fari undir enn einn veitingastaðinn, segir Auður Gná Ingvarsdóttir, eigandi verslunarinnar Insula á Skólavörðustíg 21.
Eigandi Krua Thai hefur keypt húsnæðið og hyggst opna þar veitingastað.Mbl.is greindi frá því í gær að Sonja Lampa, eigandi veitingastaðarins Krua Thai, hefði fest kaup á húsnæðinu þar sem hún hyggst opna Krua Thai á jarðhæðinni auk þess sem íbúðum á efri hæðum hússins verður mögulega breytt í gistiheimili.
Áhugi á innréttingunum Auður er tiltölulega nýbúin að fá tilkynningu um þetta og vonast til þess að finna sambærilegt húsnæði undir Insulu.
Þessi tvö rými eru með fallegri verslunarrýmum miðbæjarins og það ýtti undir þá ákvörðun að koma hingað.
Það gæti orðið flókið að finna eitthvað sambærilegt en auðvitað er það óskandi að svo verði, segir hún.
Auður þarf hugsanlega að rýma húsnæðið í byrjun janúar og segir hún nýja eigendur hússins vonast til þess að rýmin verði tóm sem fyrst.
Ég er einnig að framleiða og hanna undir mínu merki og það er spurning hvort maður fari bara frekar að einbeita sér að því, segir hún.
En það væri líka synd að hætta núna. Auður Gná Ingvarsdóttir, eigandi Insulu, í versluninni. Auður Gná Ingvarsdóttir, eigandi Insulu, í versluninni.
Golli / Kjartan Þorbjörnsson Auk þess sem Insula þarf að hverfa frá fyrir KruaThai, verður veitingastaðnum einnig komið fyrir í rými Skyrtu, þar sem Fatabúðin var áður rekin.
Eigendur Skyrtu héldu í upprunalegar innréttingar Fatabúðarinnar sem eru frá árinu 1947 er þeir opnuðu sína verslun og hafa að sögn Auðar sýnt því áhuga að kaupa innréttingarnar en húsnæði Skyrtu þarf einnig að rýma í byrjun janúarmánaðar.
Stofnandi Fatabúðarinnar byggði húsið Fatabúðin var opnuð í húsinu árið 1927 þegar stofnað var útibú á Skólavörðustíg, en höfuðstöðvar verslunarinnar voru þá í Hafnarstræti 16.
Til skamms tíma var verslunin því rekin á báðum stöðum.
Eigendur Skyrtu héldu í upprunalegar innréttingar frá árinu 1947. Eigendur Skyrtu héldu í upprunalegar innréttingar frá árinu 1947.
Mynd af vefsíðu Skyrtu.is Fyrsta hæð hússins að Skólavörðustíg 21a var byggð árið 1927 en ofan á húsið var byggt árið 1936.
Það var Guðríður Árnadóttir Bramm sem lét byggja húsið en hún stofnaði Fatabúðina og var hún rekin í fjölskyldu hennar allt til 1955.
Guðríður var þar að auki þekkt athafnakona og hafði áður rekið verslun á Ísafirði og lét meðal
annars byggja stórhýsið Fell þar í bæ sem brann í stórum eldsvoða á fimmta áratugnum.
Frétt mbl.is: Krua Thai í stað Fatabúðarinnar////////////////Ég satt að segja er alveg hissa á að hún skuli ekki fá að kaupa þetta,sem hún er þegar búin að gera,en hún er var í þessu að selja Tryggvagötuna vegna þessa að byggja átti þar hótel,það var í gamla miðbænum en skólavörustígurinn,er ekki miðbærin heldur algjörra orðinn verslunar og veitingastaðir,Þessi ágæta duglega kona Sonja Lampa er búin að reka Krúa Thai í mörg ár í Tryggvagötu og annan stað í Kópavogi geysilega vinsælir staðir,og þetta var bara kjörin staður til þessa veitinga,hvað er að þarna er þetta Þjóðremba eða hvað sem veldur því að hún kaupir allt húsið,það er talað um Duggnaðarkonur þarna , því ekki þessi kona sem er Íslenskur ríkisborgari til margra ára meiri háttar dugleg manneskja,ég var nú alin upp í þessu hverfi Skolavörðustíg siðar Þórsgötu og á stríðsárum fluttum við á Lokastíg,síðar Laugaveg 40 sem brann,en enn og aftur þetta er er greinilega aðför að dugnaðar framkvæmda Konu sem við eigum að kunna að meta,en ekki sitja útá,veri hún bara velkomin á mínar æskuslóðir//Halli gamli
![]() |
Synd fyrir miðbæinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2014 | 15:04
Meltingarlæknir birtir uppsagnarbréf//Það er svona komið, og ekkert samið,það verður að ske næstu daga!!!!!
Meltingarlæknir birtir uppsagnarbréf Innlent | mbl.is | 28.11.2014 | 8:31 Mynd 645108 Jón Örvar Kristinsson, meltingarlæknir á Landspítalnum, hefur sagt starfi sínu lausu en er ekki viss um að leit spítalans að öðrum lækni beri árangur.
Ég veit ekki til þessa að íslenskur meltingarlæknir með þessa undirsérgrein hafi hug á að flytja til Íslands , segir hann í uppsagnarbréfi sínu.g raunar veit ég ekki um neinn á síðustu árum sem lagt hefur hana fyrir sig eða er í slíku námi nú, segir hann í uppsagnarbréfi sem birt er á Facebookhópnum Raddir íslenskra lækna.
Jón Örvar bendir á að eftirmaður sinn þurfi að vera lyf- og meltingarlæknir og sinna 60% starfi. Viðkomandi þarf að hafa lokið 6 ára grunnnámi, kandidatsári og einu deildalæknisári við lyflæknisdeild og síðan 8 ára sérnámi.
Kröfu þarf að gera um undirsérhæfingu í speglunaraðgerðum (advanced endoscopy) ásamt að sjálfsögðu breiðri þekkingu á meltingarlækningum.
Eini umsækjandinn hætti við Ég er ekki viss um að skynsamlegt væri að láta viðkomandi vita að síðastliðin 5 ár hafa fjórir meltingarlæknar hætt störfum, einn vegna aldurs en hinir þrír vegna kjara sinna og aðstöðu við spítalann.
Þeir leituðu í önnur störf erlendis (2) og innanlands (1), segir í bréfi Jóns Örvars. Þá hafa nær allir starfandi meltingarlæknar við deildina (6/​8) minnkað við sig stöðuhlufall en aukið það á öðrum vettvangi.
Álagið hefur því aukist mikið á þá sem eftir eru og sífellt verður erfiðara að sinna þeim verkefnum sem berast vegna manneklu.
Það myndi líklega einnig fæla frá ef viðkomandi vissi að frá 2008 hefur enginn bæst í hópinn, auglýst var staða síðastliðið vor, ein umsókn barst en sá aðili hætti við þegar honum voru ljós kjör og vinnuaðstæður, skrifar Jón Örvar.
Fær 180 þúsund fyrir 60% starf Þá segir einnig í bréfinu að ekki verði komist hjá því að láta viðkomandi vita að fyrir þetta 60% starf greiðir Landspítalinn kr. 358.083 í mánaðarlaun og útborguð laun verða því um kr. 180.000.
Launin verða þó eitthvað lægri ef reynsla umsækjanda sem sérfræðingur í meltingarlækningum er eitthvað styttri en sú 10 ár reynsla sem fyrirrennarinn hafði.
Ég er ekki viss um að leitin beri árangur því ég veit ekki til þessa að íslenskur meltingarlæknir með þessa undirsérgrein hafi hug á að flytja til Íslands og raunar veit ég ekki um neinn á síðustu árum sem lagt hefur hana fyrir sig eða er í slíku námi nú.
Það mætti reyna að auglýsa eftir erlendum meltingarlækni en mér er til efs að einhver sæki um þegar erlendis bjóðast margföld laun, segir í bréfinu.
Sinnir frekar öðrum áhugamálum en en að vinna á spítalanum Ég vil óska Landspítalanum alls hins besta, vonandi finnst lausn.
Ég vil líka þakka samstarfsfólki mínu á spítalanum frábært samstarf síðastliðin 8 ár. Skemmtilegra starf hef ég ekki getað hugsað mér.
Mér er líka ljóst að ég kem ekki til með að finna mér meira krefjandi starf á Íslandi eða starf þar sem mín sérþekking nýtist betur.
Vegna stöðu kjaramála lækna á Landspítala en ég hef nú ákveðið að sinna fremur öðrum áhugamálum.
Ég er viss um að fleiri sérfræðilæknar á Landspítala hyggjast gera það sama og rétt að stjórn-
endur íslensks heilbrigðiskerfis átti sig áður en það verður um seinan, segir í bréfinu/////////////////////////Þetta er vandamálið okkar færustu læknar fara frá okkur allavega hætta á Lagspítalanum,Þessi læknir er frábær speglaði mig þegar ég fékk Ristilkrabba og fylgdi því eftir að fá strax Pál Möller til að skera mig strax og þ.að stóðst og komin 4,5 ár síðan,svo vorum hjólhýsi á Ströndum fyrir 2 árum og pilla stóð í hálsi komst ég í símasamband við Hólmavik ekkert hægt að gera send með hraði suður á Akranes ekki þar hægt þó reynt væri,svo Slysavarstofa hring þangað og boðað komu okkar og ég keyrði mikinn og komin á slysa kl 21.00 og þar reyntaaf læknum og einnig háls nef og eyrna,og ekkert gekk,en þetta sást á mynd vel,þá var Jón Örvar kallaður út og tókst homum að lokum þetta blessuðum,enefitt var það!!!En þetta var útidúr,þetta að missa svona lækna sem eru sérfræðinar eins og hann er mikið mál,þetta er svo frábær læknir og mikið lærður,í öllum bænum semið við læknana það verður að gara skinsamlega/Halli gamli
![]() |
Meltingarlæknir birtir uppsagnarbréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2014 | 22:59
Það vara alveg Bíó að horfa á spjallið við Alþingismenn um Landvernar og Vikjunamál í kvöld í Íslandi í dag!!!
Ég er enn að jafna mig eftir að hafa hlustað í dag á Alþingi og svo Ísland í dag í kvöld,þar sem einir 6 sátu fyrir svörum og Heimir fréttamaður spyrill,þetta vara svo mikill leikaraskapur, að það hálfa væri nóg,þetta var svo einlitt sem það gat verið allir á móti nokkrum um að koma þessum biðtíma skoðun á virkjunum yrði við hreyft ,það jaðraði við brjálæði hvernig þetta lið sem er í stjórnarantstöðu lét,Jón vinur minn sem formaður þessarar Nefndar sem fer með þessi mál,og svo Framsóknarmaður,man ekki nafnið en Jón sagði sína meiningu og allt varð vitlaust þær réðust allar 3 frá Samfylkingu V.G, og Píröddum á hann, og einnig frá B.F.Róbert Marshjal hann á sama bát allt á að vara niðurjörfað eins og lög gerta ráð fyrir,þetta er svo fáránlegt það er komin ný ríkisstjórn og hún mun stjórna þessu en ekki þau fráfarandi,það verður að koma því á hreint að það tekur langan tíma þetta ferli og verður að byrja ekki seinna en eftir áramót að setja þetta i ferli,menn gaspra um nóg rafmagn það er als ekki svo þegar og við verður staðið við þá sem eru að semja við okkur um Kísilver og annað,og svo í fimbulvetri getur farið að vanta fyrir okkur,og svo innlenda grænmetisræktun,sem má margfalda,þetta með umkvefið er fyrir sláttur,eins og ég hafið áður sagt er þetta víða bara príði í landinu okkar,svo er það laxinn það kom þarna fram að það verði að taka til hans,ræktið þið bara Laxinn það er mjög arðbært,það er verið að tala um auðlindir okkar, af hverju ekki að nota þær okkur til hagnaðar ,þetta skeður sko ekki 1-2-3 þetta tekur allt tíma að gera þetta vel og byrjun á einni virkjun verður að fara af stað,tíminn er svo langur þar til allt er orðið virkt,þetta afturhalds fólk skiptir það engu máli bara,leggja á skatta fyrir þá sem hafa vinni og hitt á bótum það er þeirra stefna,viljum við það virkilega,með skuldir Ríkisins uppá 2000 milljarða og annað eins nærri i lífeyrjóða ríkisins ,hvar á að taka peningana,það er Sjáfarútvegur Álverin og Ferðamennskan og tæknigeirinn,og svo er þessi passi fyrir ferðamenn og okkur sjálf að skoða ýmsa staði á landinu
okkar sem verður sennilega fyrir átroðningnum og það ekki víst,allt á sömu bókina lært,með það!!!/Halli gamli
27.11.2014 | 17:46
Landvernd mótmælir tillögu Jóns//Það er ekki í samræði við það sem þessi landvernd vill, og veit að það vantar peninga!!!
Landvernd mótmælir tillögu Jóns Innlent | mbl.is | 27.11.2014 | 15:32 Langisjór. Stjórn Landverndar mótmælir harðlega framkominni tillögu Jóns Gunnarssonar, formanns atvinnuveganefndar Alþingis, um að færa átta virkjanahugmyndir úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar.
Stjórnin heldur því fram að fimm af þessum hugmyndum hafi ekki hlotið þá málsmeðferð sem lög mæla fyrir um.og feli í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu.
Þá sé tillagan brot á grundvallarmarkmiði rammaáætlunarlaganna um að nýting byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati.
Verði tillagan samþykkt er rammaáætlunarferlið ónýtt. Stjórn Landverndar bendir á að tillaga atvinnuveganefndar virðist vera í andstöðu við málsmeðferðarreglur rammaáætlunarlaga. Lögin kveði á um skýrt verklag.
Í fyrsta lagi er það umhverfisráðherra sem með lögunum er falið að leggja tillögur um flokkun virkjanahugmynda fyrir Alþingi.
Í þessu máli hefur það ekki verið gert nema um þrjár hugmyndir í neðrihluta Þjórsár.
Í öðru lagi verður ráðherra að byggja tillögur sínar á mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar um rökstudda flokkun virkjunarhugmynda, að teknu tilliti til umsagna almennings og hagsmunaaðila.
Fimm af átta virkjunarhugmyndum sem atvinnuveganefnd leggur til að færa í nýtingarflokk hafa hinsvegar ekki fengið þessa faglegu umfjöllun.
Í þriðja lagi hefur engin átta hugmyndanna verið metin með stigagjöf af faghópum verkefnisstjórnar, en það er hinn lögmæti undanfari mats verkefnisstjórnar.
Stjórn Landverndar segir á að verði tillagan samþykkt og verklag atvinnuveganefndar reynist í
ósamræmi við lög, verði allar ákvarðanir sem byggja á samþykktinni jafnframt ólögmætar og að
engu hafandi.//////////////////Landvernd er góða svo mikið að hún fari ekki úr böndum sem hún hefur gert orðin ríki í ríkinu,ef við snirtilega megum ekki virkja vatntáföllin okkar skinsamlega er þetta búið að tala um auðlindir lansins og megum ekki nota þau til hvers eru þau þá,ég get sagt um allar virkjanir sem ég hefi séð eru bara til fyrirmyndar,og falla vel í landslagið,þetta fólk sem allt við stoppa T.D eins og vinstri grænir er bara als ekki í lagi þetta er ekki náttúruvernd heldur bara þráhyggja,að virkja raðvirkjanir t.d.í Þjórsá er ekki spurning,Ekki get ég séð nema bara fallegt að sjá þessar raðvirkaðir 3 elstu Ljósafoss Írafoss og Steingrímstöð sé nema til fyrirmyndar,svona á að virkja í nýjum virkjunum er þetta ennþá flottar unnið og veglagningar góðar og eru mest neðanjarðar,það er ekki bara annað í stöðunni en að virkja og það vitum við öll,erum við ekki alltaf að hæla okkur af lítilli mengum með hreinni rafmagnsnotkun,og það mun mikið aukast,þessi flokkur fólks sem ekkert vill gera nema stoppa hlutina,er ekkert meira Landverndarfólk en við hin sem viljum byggja fagrar Virkjanir,og það gerir okkur keypt að lifa sómasömu lífi,annast ekki/Halli gamli
![]() |
Landvernd mótmælir tillögu Jóns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2014 | 17:00
Uppþot á Alþingi út af fjáraukalölögum,og allt látið flakka,satt og logið!!!
Þetta var vitað mál að, þetta mundi ske,nú vill stjórnarandstaðan gera allt og núa öllu við,og gerir það með heift mikilli,svo það jaðrað við átök að mínu mati,Nú er ég ekki sammála öllu þarna,nema síður sé,þessi jöfnuðinn sem við berjumst við að fá i gegn viðist oft gleymast,Númer eitt var Lauspítalin og Heilsukerfið allt og virkja Heilsugæslunnar meira og gera það meiri smá aðgerðir,allir sendir í Slysadeild eða sérfræðing þar,málið leist,þessu verður að breyta,það er ekki ef semst viðlækna að geta ekkert gert þar valla hægt að taka línurit eld gamalt dót sem unnið er með enda þetta svelt eins og annað,og þarna verður úr að bæta,þessir Heimislæknar eiga að geta það,þetta mundi spara mikið landspítala og slysadeild,þetta er alltof lítils metið að hafa þetta í lagi,Það er gott að standa í að sitja hjá og sitja útá hlutina,en ég hefi fylgst með henni Pólitík síðan ég var 16 ára og séð allar gengisfellingarnar sem yfir okkur hafa gengið og verðbólgan fór í 30-40-0-100% og við höfum því miður látið þetta yfir okkur ganga alla tíð,við hefðum átt afskipta um gjaldmiðil um það bil þegar við báðum Bandaríkjaher um að vegna okkur um 1050 og þá værum við á grænni grein,að ég fastlega held og get staðið við!!!Þessi verðtrygging er að drepa stóran hluta þjóðarinnar,ég segja það með að gera þetta ekki að afnema vertrygginguna eða skipta um gjaldmiðil verður allt á brauðfótum þar til og mannsflótti mikill,en þetta er því miður ekki á dagskrá,það á að segja okkur að verðbólgan verði engin eða hæðst 2% en við getum ekki teyst því,als ekki látið ekki glepjast,þetta er því miður það sem þeir vilja sem stjórna bæði til Hægri og vinstri,við verum að gera um þetta samtök og kjósa ekki aðra en þá sem vilja skipta um gjaldmiðil///Halli gamli
26.11.2014 | 22:22
Arsenal fór létt með Dortmund - Liverpool gerði jafntefli /Þetta vara bara veisla!!!!
Arsenal fór létt með Dortmund - Liverpool gerði jafntefli Íþróttir | mbl.is | 26.11.2014 | 21:57 Alexis Sánchez var frábær í leiknum í kvöld fyrir Arsenal.
Sjö leikjum í Meistaradeild Evrópu var að ljúka rétt í þessu. Arsenal vann þar meðal annars frábæran 2:0 sigur á Dortmund í D-riðli og kom sér í 16-liða úrslitin.
Þá gerði Liverpool einungis jafntefli gegn Ludogorets í Búlgaríu 2:2 sem þýðir að liðið mun spila gegn Basel hreinan úrslitaleik um 2. sæti riðilsins í næstu umferð.
Í kvöld komust Atlético Madrid, Leverkusen og Arsenal í 16-liða úrslitin. A-RIÐILL Í A-riðli komst silfurlið Meistaradeildarinnar frá því í fyrra, Atlético Madrid í 16-liða úrslit með sigri á Olympiakos á Spáni 4:0 þar sem Mario Mandzukic skoraði þrennu en hann varð um leið sá fyrsti til að gera það fyrir liðið í Meistaradeildinni.
Í sama riðli mætti Juventus í heimsókn til Malmö í Svíþjóð og fóru gestirnir frá Tórínó með sigur af hólmi 1:0 með marki frá Fernando Llorente á 49. mínútu og Carlos Tevez á 88. mínútu. Juventus er í sterkri stöðu varðandi 16-liða úrslitin en liðið hefur þremur stigum meira en Olympiakos í 3. sætinu. 2:0 Atlético Madrid - Olympiacos 0:2 Malmö - Juventus Atlético 12 stig, Juventus 9, Olympiacos 6, Malmö 3. B-RIÐILL Í B-riðli fór Liverpool til Búlgaríu og lenti þar í vandræðum með heimamenn í Ludogorets.
Leikurinn byrjaði skelfilega fyrir Bítlarborgarliðið þegar Simon Mignolet gerði sig sekan um hræðileg mistök þegar hann missti frá sér boltann til Dani Abalo framherja Ludogorets sem skoraði fyrsta markið.
Liverpool svaraði hins vegar fljótt með góðu marki frá Rickie Lambert á fimm mínútum síðar. Á 37. mínútu skoraði Jordan Henderson svo síðara mark Liverpool eftir góðan undirbúning frá Raheem Sterling.
Búlgararnir voru þó ekki hættir og jöfnuðu metin á 88. mínútu með marki Georgi Terziev. 0:1 Basel - Real Madrid 2:2 Ludogorets Razgrad - Liverpool Real Madrid 15 stig, Basel 6, Liverpool 4, Ludogorets 4. C-RIÐILL: Leverkusen tapaði gegn Mónakó í kvöld en eina mark leiksins skoraði Lucas Ariel Ocampos á 72.
mínútu. Þar með hélt hann vonum Mónakó um að komast áfram í 16-liða úrslitin en liðið mun spila úrslitaleik um miða þangað við Zenit í næstu umferð. 1:0 Zenit Pétursborg - Benfica 0:1 Bayer Leverkusen - Monaco Leverkusen 9 stig, Monaco 8, Zenit 7, Benfica 4. D-RIÐILL Í D-riðli tryggði Arsenal sér farseðilinn ásamt Dortmund í 16-liða úrsltin með góðum 2:0 sigri á Dortmund á Emirates.
Mörk heimamanna skoruðu Yaya Sanogo og Alexis Sánchez en Lundúnaliðið var mun sterkari aðilinn í leiknum. 2:0 Anderlecht - Galatasaray 2:0 Arsenal - Dortmund Dortmund 12 stig, Arsenal 10, Anderlecht 5, Galatasaray 1. Þessi lið voru þegar komin áfram í keppninni: Real Madrid, Dortmund, Bayern München, París SG, Barcelona, Chelsea, Porto, Shakhtar Donetsk.///////////////////////////Ekki ætla ég að segja mikið en þetta var hörkugaman að sjá lið sitt brillera og það frábært eftir alltof mörg töp,en þetta kemur allt//Halli gamli
![]() |
Arsenal fór létt með Dortmund - Liverpool gerði jafntefli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.11.2014 kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 1047536
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar