Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
24.11.2014 | 17:08
Wenger verður að viðurkenna mistök/Mikið sammál þessu,og bara taktu þig á strax Wenger!!!!
Wenger verður að viðurkenna mistök Íþróttir | mbl.is | 24.11.2014 | 15:55 Arsene Wenger. Rússneski kaupsýslumaðurinn Alisher Usmanov, sem er einn stærstu hluthafanna í enska knattspyrnufélaginu Arsenal, segir að knattspyrnustjórinn Arsene Wenger verði að viðurkenna þau mistök sem hann hafi gert, ef hann ætlar sér að fá meira út úr liðinu
.Arsenal hefur aðeins unnið fjóra af fyrstu 12 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og er í 8. sæti, fimmtán stigum á eftir toppliðinu, Chelsea, og tapaði fyrir Manchester United, 1:2, á heimavelli á laugardaginn.
Enginn snillingur getur haldið sér í sama gæðaflokki, ef hann viðurkennir ekki þau mistök sem hann gerir.
Arsenal þarf að styrkja sig alls staðar á vellinum til að vera samkeppnishæft við lið á borð við Manchester City og Chelsea.
En Wenger á að fá tækifæri til að koma þessu á rétta braut.
Hann er einn fremsti þjálfarinn, ekki bara í Evrópu heldur í heimsfótboltanum," sagði Usmanov í
viðtali við CNBC.//////////////////Þetta eru orð í tíma töluð og hann Wengur verður að taka sig á sem hann getur að mínu mati og einnig af stærðasta eigandanum,við lutum í gras í síðast leik algjörlega í unnum leik ef allt hafði gengið upp.þessi staða hans er óþolalandi eins og er en hann getur tekið sig á kalinn ekki spurning,ef ekki þá hættir hann bara ,öllum til eftirsjá sem styðja liðið/Halli gamli
![]() |
Wenger verður að viðurkenna mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
MagnúsCarlsen heimsmeistari Erlent | mbl.is | 23.11.2014 | 16:12 Magnús Carlsen og Viswanathan Anand teldu í Sochi í Rússlandi. Norðmaðurinn Magnus Carlsen varði í dag heimsmeistaratitil sinn í skák.
Hann sigraði Indverjann Viswanathan Anand.
Carlsen sigraði með sex og hálfan vinning, en Anand fékk fjóra og hálfan vinning.Carlsen stýrði hvítu mönnunum í dag og vann nokkuð sannfærandi sigur.
Þar með lauk einvíginu.
Carlsen og Anand kepptu líka um heimsmeistaratitilinn í fyrra, en þá sigraði Carlsen.
Anand var heimsmeistari frá 2007 til 2013.
Carlsen er með 2.882 skákstig og hefur enginn skákmaður í sögunni náð svo mörgum stigum.
Carlsen tefldi hér á landi árið 2004, þá aðeins 13 ára gamall, og aftur 2006.
Hann varð stórmeistari í skák árið 2004 og stigahæsti skákmaður heims árið 2008.////////////////////////////Þetta vara mikið einvígi eins og þau eru berst,og við náttúrlega í skíjunum af að Norðurlanda búi nái þessum frábæra árangri,til hamingju með það Norðmenn og Carlsen!!!!/Halli gamli
![]() |
Magnús Carlsen heimsmeistari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2014 | 18:30
Búist við stormi í nótt/Þá breitist góða veðrið að mestu aðeins kólnandi einnig!!!
úist við stormi í nótt Innlent | mbl.is | 23.11.2014 | 13:33 Mynd 778075 Búist er við stormi, meira en 20 m/s, á Suður- og Vesturlandi í nótt og fyrramálið að sögn Veðurstofu Íslands.
Veðurhorfur á landinu eru svohljóðandi: Hæg suðlæg átt.
Víða bjartviðri norðanlands, annars skýjað en úrkomulítið. Vaxandi suðaustanátt suðvestantil síðdegis.
Suðaustan 15-23 m/​s og rigning eða slydda sunnan- og vestanlands í nótt, en sunnan 8-13 m/​s og skúrir eða él nálægt hádegi.
Sunnan 10-18 og dálítil rigning á norðaustanverðu landinu á morgun, hægari vindur síðdegis.
Hiti yfirleitt 0 til 8 stig./////////Það hlaut að koma að þessu og það ekki annað en bara stormur sem við erum vön,samt er gott að vita þetta ekki spurning,vonum bar að allt fari vel/Halli gamli
![]() |
Búist við stormi í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2014 | 18:20
Sunudagur í landi og sætsúpa til sjós,Ennþá er ósamið við þá blessaða og Lækna og Hlóðfðfærakennara,einnig Vekalýðin!!!!
Já það má nú segja að þessi sjómenska er ekkert gín á veturna,og í raun allt árið,gopar tekjur eru þar á mestum flotanum en ekki öllum,als ekki,samningar þeirra eru lausir í ein 2-3 ár,það getur dregið saman aflin og stóru fyrirtækin gleypa mest,og þá eru grunnlaun þeirra afleit,og þessir blessaðir menn eiga allt gott skilið!!!,en þetta blessað þjóðfélag þarf meiri gjaldeyrir það er svo mikið flutt inn að þarfa og einnig óþarfa,og þar kemur ferðamenskan sterk inn samt er verið að þrasa um hver eigi að halda þessu við,en það þarf að gera þarna mikið og eigendur mega ekki taka gjald fyrir,sem færi beint á aðgerðir við staðina,en ef ríkið tæki þetta er það als ekki víst í hvað það fer,als ekki,að rukka bara ferðamenn sem inn í landið koma er hægt,og þá færu sennilega fleiri á þessa staði,en það þíðir mikið meira sem þarf til að halda þessu við,nú þegar er þetta allt að verða troðið niður!!!Komum nú að læknadeiluna,við þá verður að semja bara mátulega um 20% er hámark og svo auðvitað koma til móts við þá um hagræði og vinnutíma,í beinni líni við þetta er bygging þessa Spítala fyrt og fremst á glötuðum stað,við eigum nóg af lóðum undir hann,en ekki að vera að troða honum þarna í hvossina,sem er í raun brjálæði,en semja um að fá pening úr veiðileifagjaldi til að borga nýjan spítala og nokkrum hæðum ,en ekki ganga uppá nokkra kílómetra,en þetta er smá Sunnudagshugvekja,!!!!/Halli gamli
22.11.2014 | 20:40
Henry Kissinger segir þetta mistök að hefja refsiaðgerðir við Rússa,eins og ég hefi verið að skifa um,byrti um leið Bogg vinar míns!!!
Kissinger: Mistök að hefja refsiaðgerðir gegn Rússlandi Henry Kissinger fyrrum utanríkisráðherra Nixons Bandaríkjaforseta segir það mistök að Vesturlönd hafi gangsett refsiaðgerðir og þvinganir gegn Rússlandi vegna Úkraínu
Úkraína var rússneskt land í langan tíma.
Úkraína ætti ekki að gera sér vonir um aðild að NATO.
Kissinger segir að bandalagið muni aldrei samhljóða samþykkja Úkraínu sem meðlim
Það voru hrapalleg mistök [heiladautt og ábyrðarlaust athæfi] að Evrópusambandið skyldi nálgast Úkraínu
Evrópusambandið mun aldrei viðgangast mistök sín og aldrei sýna ábyrga hegðun í alþjóðlegu samhengi né hvað þá á þeirri spínatstöppu
sem sambandið hefur búið til úr Evrópu með óðu og umboðslausu fílatrampi sínu í eigin bakgarði Evrópusambandið er hættulegasta hugmynd nútímans.
Sambandið hefur eyðilagt Evrópu.
Það ógnar friði í álfunni og jafnframt í veröldinni Hvenær skyldi hið utanríkismálalega útkíkk Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu taka mið af því sem í reynd hefur og er að gerast þar.
Hvenær skyldu grundvallar mistökin í mótun þess frá 1871* verða leiðrétt og útkíkkið þar með
verða uppfært og gert sannleikanum samkvæmt?//////////////////Þarna er ég sammál þessu sem hinn mjög svo góði utanríkisráðherra segir Henry Kissinger og þetta er eitt af frumhlaupum sem ESB og Kanar eru að gera,og viðast ætla að halda því áfram,vilja þessir menn heimstyrjöld,eða hvað er í gangi,Einnig er á síðasta snúning fundað um Íran um kjarnorku þeirra sem þeir telja að þeir muni búa til sprengjur úr,en Írarnir ætla að nota það sem orku!!!Allir vita hver stjórnar þessu það eru Ísraelar sem eru með kjarnorkuvopn tilbúin enda útverðir Bandaríkjanna í austurlöndum nær!!!Sjá þetta ekki allir að þarna er að ske hryllingur ekkert annað/Halli gamli
22.11.2014 | 16:58
Nauðsynleg lyf lækka í verði/Þið talið um að einfalada hlutina.þetta er bara til að gera þetta efiðara!!!!
Nauðsynleg lyf lækka í verði Innlent | mbl.is | 22.11.2014 | 16:02 Mynd 773555 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á haustþingi miðstjórnar Framsóknarflokksins
í dag að breytingar á virðisaukaskattskerfinu myndu verða til þess að flestar vörur lækki í verði og nauðsynleg lyf þá sérstaklega.
Þegar allt er talið á matvælaverð ekki að hækka vegna breytinganna um nema í mesta lagi um 1,4% og helst ekki neitt.
Flestar vörur munu lækka í verði og nauðsynleg lyf alveg sérstaklega.
Heildaráhrif breytinganna þýða að neysluskattar lækka verulega og, það sem er mikilvægast, áhrifin verða mest hjá þeim tekjulægstu, sagði Sigmundur.
Hann talaði einnig um niðurstöður skuldaleiðréttingarnar sem voru tilkynntar fyrr í mánuðinum.
Við lítum þó ekki svo á að með þessu sé verið að gefa fólki peninga heldur aðeins að rétta hlut þess á sanngjarnan hátt.
Þó er ánægjulegt að sjá að aðgerðin nýtist fyrst og fremst milli- og lágtekjufólki, dæmigerðum íslenskum fjölskyldum með dæmigerð lán, sagði Sigmundur.
Hann sagði að aðgerðin nýttist samfélaginu öllu því að heimilin eru hornsteinn samfélagsins og
efnahagslífsins.//////////////////////Þetta er að verða hringavitleysa,og ekki á bætandi að koma þarna Lyfjunum inní,það er annað mál,og þarf að gera,en ekki þarna í Virðisaukanum,Mataskattur veður bara 7% og ekki annað um það að segja,við sem erum hliðholl þessari ríkisstjórn,sjáum þetta þetta allt annan máta.Við sjáum að nýtt frumvarp Ráðherra Framsóknar er að koma með nýtt Kvóta og sjalvarútvegs um það verður auðvitað mikið deilt,það er eins og bara LÍÚ hafa bara sett það saman,það ber að semja til 23 ára í senn en svo kemur það sem við ekki sættum okkur við,ef við eigum öll fiskin úr sjónum?? þá er þetta veiðigjald takið fyrir og á að lækka það,það gengur ekki upp fyrir fólkið í landinu,þegar þessar stærri Útgerðir greiða arð til eiganda uppá milljarða eigum við ekki heldur að hækka það þar sem vel gengur,sem er hjá þó nokkrum útgerðum,þarna getum við fengið þá peninga sem vantar,svo það þurfi ekki að svelta stóran hóp af fólki,og launin ekki til, að geta lifað sæmilega,við verður að taka okkur þarna á, og taka þennan launamun á Íslandi fyrir og borga betri laun til verkalýðsins,það er málið sem er aðkallandi/Halli gamli
![]() |
Nauðsynleg lyf lækka í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2014 | 13:43
Er nema von að illa fari eins og Jónas Kristjánsson, skrifar um okkur öll,og Ríkisstjórnina!!!
Hér á eftir tala ég um mann sem svívirðir allt og alla og sem góður penni er hann lesinn,þessi maður er svo orðljótur um hluti og menn sem hann skrifar um að það hálfa væri nóg!!!!==
Hér er opinbert eftirlit skorið niður til að auka svigrúm greifa.
Hér móðgast ráðherra og fer
hvergi, þótt hann margljúgi að öllum í sjónmáli.
Hér er spítali allra landsmanna þvingaður í algert þrot.
Hér magnast landflótti allra, sem sjá sér von í alvörukaupi í útlöndum, til dæmis lækna og hjúkka og vinnuvélastjóra.
Hér er kastað hundruðum milljóna í tilflutning ríkisstofnana.
Hér verða senn engar krabbameinslækningar.
Hér er ósjálfbært lífeyriskerfi og tryggingastofnun reynir að ræna fé fátæklinga.
Hér stela óðir lagatæknar öllu af skuldurum.
Hér stjórnar snargalinn forsætisráðherra.
Hér er ónýtt ríki í boði ónýtra kjósenda.
///////////////////Svo mörg voru þau orð mín um þennan Jónas Kristjánsson,sem hefur haldið ut siðu í mörg ár ,allt fullu að segja allt sé slæmt sem þessi eða hinn gerir,Ekkert er i lagi allt ómugulegt sem gert er,en það sér þetta nátturlega flst fólk sem nennir að lesa þenan áróður hans,Já eg kalla það áróður og ekkert annað,en það eru margir til að taka undir þetta,og oft ratast kjöftugum rétt á munn///Halli gamli
21.11.2014 | 17:05
Hanna Birna: Nú er mál að linni//Skulum þessum mönnum sem ófrægðu hana mest líða betur???
Hanna Birna: Nú er mál að linni Innlent | mbl.is | 21.11.2014 | 15:16 Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir að eftir heilt ár af ósönnum dylgjum um aðkomu hennar að lekamálinu og þá vanlíðan sem þetta hefur kallað yfir mig og þá sem næst mér standa sé einfaldlega nóg komið. Hún ætlar að hætta sem innanríkisráðherra.
Þar segir Hanna Birna m.a. hún hafi ekki haft neinar forsendur til að rengja aðstoðarmann sinn, Gísla Frey Valdórsson, er hann neitaði því að hafa lekið upplýsingum um hælisleitanda í fjölmiðla.
Þá segir hún að þrátt fyrir að hún hafi orðið við öllum beiðnum lögreglu um gögn og upplýsingar og svarað ítrekuðum spurningum umboðsmanns Alþingis og auk þess gripið til ýmissa aðgerða innan ráðuneytisins, m.a. að víkja aðstoðarmanni sínum úr starfi og segja sig frá dómsmálum, hafi hún hins vegar skynjað að ekkert af því skipti raunverulegu máli.
Hanna Birna Kristjánsdóttir. Hanna Birna Kristjánsdóttir. mbl.is/âKristinn Tortryggni og vantraust vegna málsins eru enn til staðar og ákveðnir aðilar og öfl geta og munu áfram halda uppi efasemdum og ásökunum vegna þess.
Það er því miður búið að draga of marga inn í þessa umræðu ítrekað og með ósannindum, þar með talið nú síðast ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytisins, núverandi lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu og aðra embættismenn.
Þau, ekki frekar en ég, höfðu vitneskju um brotið.
Nú er mál að linni. Yfirlýsing Hönnu Birnu: Ég hef jafnframt óskað eftir því að hann geri tillögu við þingflokkinn um arftaka minn enda nauðsynlegt að sem mestur friður ríki um störf ráðherra sem ber ábyrgð á þeim mikilvægu verkefnum sem unnin eru á vettvangi ráðuneytis. Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir. mbl.is/âKristinn Ingvarsson Þessa dagana er ár liðið frá því atburðarás hins svokallaða lekamáls hófst.
Með þær upplýsingar um atburðarásina sem nú liggja á borðinu er ljóst að aðstoðarmaður minn braut af sér án minnar vitneskju.
Hann starfaði í pólitísku umboði mínu og ég bar traust til hans enda hef ég alltaf haft það að leiðarljósi að treysta fólki.
Ég hafði ekki forsendur til að rengja ítrekaðar yfirlýsingar hans um sakleysi í nánast heilt ár og viðbrögð mín voru í samræmi við það.
Játning hans vegna málsins var mér mikið persónulegt áfall og ljóst er að viðbrögð mín á ýmsum stigum málsins hefðu verið allt önnur ef ég hefði vitað hvernig málinu var háttað. Frá upphafi hef ég reynt að vanda til verka í þessu máli og alltaf brugðist við með þeim hætti sem ég taldi satt og rétt.
Ég hef ítrekað sagt frá því sem ég hef getað sagt um málið, reynt að skýra það með eins sönnum hætti og mér hefur verið unnt.
Ég brást strax í upphafi við með sérstakri skoðun í ráðuneytinu, hef orðið við öllum beiðnum lögreglu um gögn og upplýsingar en um leið reynt að vernda mannréttindi og trúnað við aðra en þá sem rannsóknin beindist að, svarað ítrekuðum spurningum umboðsmanns Alþingis og lagt ríka áherslu á að vinna skýrar verklagsreglur og öryggisferla til að bregðast við slíkum málum og kærum.
Ég vék aðstoðarmanni tímabundið frá störfum og síðar sagði ég mig frá verkum dómsmálaráðherra. Um leið og ég fékk fyrst staðfestar upplýsingar um hvernig í málinu lá upplýsti ég málið strax og rak aðstoðarmann minn tafarlaust.
Ég hef ítrekað tjáð mig um að ég hafi ekki blandað mér með óeðlilegum hætti í umrædda rannsókn og það hafa fyrrverandi lögreglustjóri, ríkissaksóknari, rannsakendur og loks héraðsdómur staðfest með niðurstöðum sínum.
Undanfarna daga hef ég hins vegar skynjað að ekkert af þessu skiptir raunverulegu máli.
Tortryggni og vantraust vegna málsins eru enn til staðar og ákveðnir aðilar og öfl geta og munu áfram halda uppi efasemdum og ásökunum vegna þess.
Það er því miður búið að draga of marga inn í þessa umræðu ítrekað og með ósannindum, þar með talið nú síðast ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytisins, núverandi lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu og aðra embættismenn.
Þau, ekki frekar en ég, höfðu vitneskju um brotið. Nú er mál að linni.
Ég hef alltaf átt mér þann draum í stjórnmálum að breyta þeim og gera þau betri og þegar ég skynja að persóna mín, samstarfsfólk eða verkefni valda slíkri reiði, heift og jafnvel hatri í huga einhverra vil ég taka mark á því, vinna með það, leita sátta og velta upp nýjum kostum.
Ég veit að ég á að þekkja að erfiðar pólitískar aðstæður kalla á hefðbundna pólitík hörkunnar og hefðbundna fjölmiðlun fyrirsagna og ég erfi það við engan - en ég hefði hins vegar hvorki trúað því að illskan í umræðunni yrði svo mikil né að hún fengi svo mikið á mig og þá sem næst mér standa.
Undanfarið ár hefur verið mér pólitískt og um leið persónulega erfitt.
Síðast fyrir nokkrum dögum þurftum við fjölskyldan að ræða dylgjur dagsins, útskýra fyrir fjölskyldu og vinum að það sé allt í lagi með okkur og tryggja svo að dætur okkar lesi ekki meiðandi og mannskemmandi ummæli í ýmsum fjölmiðlum.
Við hjónin ákváðum þá að slíkar fjölskyldustundir væru einfaldlega orðnar of margar.
Ég er innilega þakklát fyrir þann mikla stuðning og hvatningu sem ég hef fundið frá fólkium allt land.
Innilega þakklát fyrir að hafa lokið öllum þeim verkum og mikilvægu breytingum sem ég hafði einsett mér á þessum tímapunkti í ráðherraembætti með frábæru starfsfólki innanríkisráðuneytisins og í góðu samstarfi við alla þingflokka og þingmenn á Alþingi.
Ég er sérstaklega þakklát fyrir að eiga traust og stuðning formanns Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, ríkisstjórnarinnar allrar, þingflokka beggja stjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins.
Ég er þakklát fyrir hvernig þau hafa stöðugt og óhikað hvatt mig til áframhaldandi setu og fram á síðustu stundu reynt að telja mér hughvarf - en veit líka að þau skilja að eftir heilt ár af ósönnum dylgjum um aðkomu mína að umræddu máli, endalausum aðdróttunum um heilindi mín gagnvart þingi og þjóð og þeirri vanlíðan sem þetta hefur kallað yfir mig og þá sem næst mér standa - sé einfaldlega nóg komið.
Til að skapa frið um störf ráðuneytisins og til að hlífa þeim sem þetta mál hefur bitnað illa á hef ég nú tilkynnt formanni Sjálfstæðisflokksins að ég óski eftir að hætta sem ráðherra og sækist ekki lengur eftir að gegna embætti innanríkisráðherra.
Hann sýndi þeirri beiðni minni skilning, enda miklu frekar um persónulega en pólitíska ákvörðun að ræða.
Til að axla áfram mína pólitísku ábyrgð gagnvart fólkinu sem kaus mig til forystu á Alþingi til fjögurra ára mun ég að loknu stuttu fríi taka aftur til starfa sem þingmaður og vonandi enn virkari varaformaður Sjálfstæðisflokksins um áramót.
Ég hlakka til þess, nýrra verkefna og nýs árs. Ég mun ekki veita fjölmiðlaviðtöl í dag en verja
næstu dögum með fjölskyldunni.////////////////////Þetta laust mig illa hún sem ég hélt að væri svo sterk,en " svo lengi má brýna deigt járn að það bíti" þetta var ekki samt alveg svona með Hönnu Birnu hún var og er aldrei deig i neinu afburðarmanneskja,en maður lætur þetta flakka til illmanna sem hafa að þessu stuðlað allan tíman ,þeir vonandi taka það til sín sem eiga það,þar eru allir í V.G. og Samfylkingunni inni!!!Svo ættlast þeir til að við teljum þá hæfa til samráðs um hlutina!!!Nei hingað en ekki lengra það er nóg komið af rógi um allt og alla,og Gróa á leyti er þarna á fullu/En ekki meira að sinni,ég mun bara fá að sjá hana áfram á Þingi og innan okkar sjálfstæðismanna ,sem Varaformann///Halli gamli
![]() |
Hanna Birna: Nú er mál að linni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2014 | 21:29
Mjög svo daburt var á Aþingi í dag, hin miklu mál sem við bíðum eftir ekkert rædd!!!
Ég er alveg viss um að málin sem þarf að klára eru bara als ekki dagskrá,þetta er svolítið dæmi gert,þeir ferða drolla þetta þar til þeir fá Jólafríið,og það er langt að vanda,Ég segir fyrir mig sem um þessar mundir horfi mikið á Alþingi og hefur ekki verið samasta allra að klára allt sem á liggur sem fyrst,þetta snobb Alþingis með sínar háttvirta og herra forseti það er það sem þeir fylgja fast eftir,og svona lýðum við bara ekki,það liggur svo mikið fyrir, sem þarfa að klára að mennirnir verða að vinna,við sem höfum fylkst,með þessu mikið síðan þessu var sjónvarpað,er að þessu er alltaf ýtt á undan sér,þar til að síðustu dögum Alþingis þá er unnið dag og kvöld við að klára og allt í klessu,því þeir þurfa að taka sitt sumarfrí fyrr en aðrir og lengra mikið,eða hvað finnst fólki,og nú er komin tillaga um að þessir 11-12 Ráðherrar taki inn varamenn og þá eru þetta 75 Alþingismenn á 320 þus mans,við getum bruðla svona þegar fólk er farið að að lifa ekki á sinum launum í stórum stíl,og Heilsugeirin að hrynja og verkfall er þeirra, núna og svo kemur allt annað verkafólk og þarf kauphækkun ekki minni en læknarnir,er þetta og mikið fleira sem þarf strax,og eftir áramót kemur þessi nýja kvóta og sjalfarútvegsmál á dagskrá og það verður mikið um það rifist enda er þetta ekki það sem við íslendingar viljum als ekki við viljum mikið meira Veiðigjald á þá sem fiska mest,en ekki lækka það,það er glæpurinn!!!/Halli gamli
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1047537
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar