Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ævisögu Reynis Traustasonar lekið Innlent | mbl.is | 14.11.2014 | 13:42 Færsla Jóns Trausta um lekann til Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns.
Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson birti á samfélagsvefnum Facebook í gær myndir af ævisögu Reynis Traustasonar, fyrrverandi ritstjóra DV, og vitnar til þess sem í henni kemur fram.
Sonur Reynis og fyrrverandi framkvæmdastjóri DV segir að eintakinu hafi verið stolið úr tölvupósthólfum fyrrverandi starfsmanna blaðsins.
Var að ljúka við lestur á handriti af sjálfsævisögu Reynis Traustasonar þ.e.a.s. þeim eitthvað um tvöhundruð síðum sem mér bárust óvænt og óumbeðið.
Margt fróðlegt þar og merkilegt hvað blaðamaðurinn á auðvelt með að segja rangt frá og skýra allt sér í hag, segir Sigurður á Facebook.
Sigurður birtir einnig brot úr óútkominni bók Reynis.
Til að undirstrika sigurinn var hann með hatt og kanínuglott sem lýsti gleði hans. Þetta var eins konar sigurmerki.
Hann hafði náð höfuðleðri mínu og flaggaði því, skrifar Reynir í bókinni um það þegar Sigurður mætti með hatt á stjórnarfund DV, en hattar eru nokkurs konar einkennismerki Reynis.
Reynir tjáir sig einnig um málið á sama vettvangi og segir að Sigurði ætti að vera fulljóst að það sé lögbrot að fara inn á netföng starfsmanna með þeim hætti sem þarna hafi gerst.
Nokkur netföng fyrrverandi starfsmanna eru enn opin.
Fékk um það ábendingu fyrir nokkrum dögum að núverandi framkvæmdastjóri DV hefði sent út gögn sem fengin voru með þessum hætti.
Nú liggur fyrir að Sigurður G. hefur komist í einkapóstana og birtir á Facebook-síðu sinni hugverk sem er stolið. Hann segist jafnframt hafa staðfest að núverandi stjórnendur DV, ritstjóri og framkvæmdastjóri hafa aðgang að umræddum tölvupósthólfum.
Sigurður Guðni Guðjónsson Hæstaréttarlögmaður 1989 hjá Sjálfstæður atvinnurekandi · 290 sameiginlegir vinir · Í gær klukkan 12:32 · Í pósthólfi mínu beið mín merkileg lesning.
Af efninu að dæma virðist sem um einhvers konar drög að sjálfsævisögu Reynis Traustasonar sé að tefla. Á þeim síðum sem ég fékk og fjalla um meint átök um DV ehf.
í haust kemur nafn mitt fyrir í ýmsum myndum liðlega 30 sinnum. Ekki ónýtt að vera svona stórt númer í sjálfsævisögu annars manns, eða þannig.
Deila · 204 Reynir Traustason Mosfellsbær · 493 sameiginlegir vinir · 2 klst. · Sigurður G. Guðjónsson lögmaður er með uppkast að bók minni Afhjúpun sem sent var í einkapósti fyrir mistök á netföng tveggja samstarfsmanna minna á DV.
Enginn vafi leikur á að handritið, sem hann birtir nú á Facebook kemur þaðan. Samstarfsmennirnir sem um ræðir eru hættir en greinilegt er að Sigurður og vitorðsmenn hans eru með aðgang að tölvupóstum þeirra.
Lögmanninnum ætti að vera fulljóst að það er lögbrot að fara inn á netföng starfsmanna með þeim hætti sem þarna gerist.
Nokkur netföng fyrrverandi starfsmanna eru enn opin.
Fékk um það ábendingu fyrir nokkrum dögum að núverandi framkvæmdastjóri DV hefði sent út gögn sem fengin voru með þessum hætti.
Nú liggur fyrir að Sigurður G. hefur komist í einkapóstana og birtir á Facebook-síðu sinni hugverk sem er stolið.
Ég er með staðfest að núverandi stjórnendur DV, ritstjóri og framkvæmdastjóri, hafa aðgang að
umræddum póstum.////////////Okkur sem fylgt haf með þessu máli öllu finnst núna gin frægi lögmaður Sigurður Guðjónsson koma skrýtilega fram,eiginlega Skítlega svo ekki sé meira sagt,allt löglegt en að mér finnst siðlaust,það má ýmisleg um Reynir Traustason segja en svona aðfarir eru bara skömm og ekkert annað,en þessi mál munu skírast,vonandi en Sigurður hlær á meðan/Halli gamli
![]() |
Ævisögu Reynis Traustasonar lekið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2014 | 20:15
Sjálfstæðiskonur styðja Hönnu Birnu/Auðvitað gera þær það,ekki spurning!!!
Sjálfstæðiskonur styðja Hönnu Birnu Innlent | mbl.is | 13.11.2014 | 17:05 Landssamband sjálfstæðiskvenna lýsir yfir stuðningi við... Landssamband sjálfstæðiskvenna hefur sent frá sér ályktun um Hönnu Birnu Kristjánsdóttir, varaformann Sjálfstæðisflokksins og innanríkisráðherra, þar sem þær lýsa yfir stuðningi við hana.
Kemur fram að ályktunin hafi verið samin án aðkomu Þóreyjar Vilhjálmsdóttur, formanns félagsins,sem er aðstoðarmaður ráðherrans.
Ályktunin er svohljóðandi: Stjórn Landsambands sjálfstæðiskvenna (LS) lýsir yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformann Sjálfstæðisflokksins og innanríkisráðherra, og hennar störf á vettvangi flokks og ríkisstjórnar.
Á sama tíma og stjórnin harmar brot fyrrverandi aðstoðarmanns hennar og afleiðingar þess, þá er gott að sannleikurinn sé nú loks kominn í ljós.
Hanna Birna gat ekki fyrr en á þriðjudag í þessari viku gefið skýringar á upplýsingalekanum en hefur á undanförnum mánuðum samt sem áður ekki vikið sér undan að gefa öll þau svör sem hún mögulega gat.
Samfélagið og flokkurinn þurfa á sterkum stjórnmálamönnum af báðum kynjum að halda.
Það er ósk stjórnar LS að Hanna Birna starfi ótrauð áfram að mikilvægum verkefnum á vettvangi
ríkisstjórnar og innan Sjálfstæðisflokksins og óskar henni velfarnaðar./////////////////Þetta er gott að komi fram að hún hefur stuðning kvenna okkar í flokknum,það er gott að við þjöppum okkur saman um hana sem Ráðherra og Varformann flokksins,þetta er svo að þessum vinstri mönnum þykir auðvitað nóg um,og vel það,en þetta sínir að við söndum saman og það gott,þegar illa er á lagt af vinstri mönnum,og við niður nýtt í bak og fyrir/Halli gamli
![]() |
Sjálfstæðiskonur styðja Hönnu Birnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2014 | 16:48
Það er erfitt að vara vinsti maður í dag,að þetta með að bæta verðtryggðum lánum kom þeim í oppna skjöldu og fara hamförum á móti því og segja þetta þjófnað!!!!
Ég verð að taka á þessari vitleysu sem eru í gangi út af þessum bótum á verðtryggðum lánum 2008-9 það hálfa væri nóg af því,Auðvitað er þetta ekki mikla lausn en hún virkar þó fyrir marga,og allur þessi leikur Sjónarandstöðu að gera allt brjálað yfir þessari lausn sem var búið að lofa,auðvitað eru þetta margir sem ekkert fær,og það ekki gott,en við skulum teysta þessum reikningum ef ekki er hægt að kæra!!! en svo náttúrlega bíðum við eftir að Verðtryggingin verði dæmt ógild og það kemur fram ekki seinna en á næsta ári!!!vonum bara að æðsti réttur okkar geri það við eigum síðasta orðið þar vonandi!!!En aftur að vinstri mönnum eða eru þessir 4 flokkar að heita það,þeir óskapast áfram dag eftir dag um sama málið að við séum að stela þessum fjármunum frá öðru sem á að hafa forgang,ég er ekki þessu sammála ,þetta er loforð sem varð að standa við,En síbyljan heldur samt áfram,og mun gera það,En þessi gjörningur er frá og við tekur mikið meira af nógu er að taka//Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ákæruvaldið sendir Hönnu Birnu tóninn Ægir Þór Eysteinsson12. nóvember 2014 Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segir dóminn yfir Gísla Frey Valdórssyni, fyrrverandi aðstoðarmanni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, hafa verið samkvæmt væntingum.
Eins og fram hefur komið hlaut Gísli Freyr átta mánaða fangelsisdóm í morgun vegna lekamálsins svokallaða, en dómurinn kemur ekki til fullnustu haldi Gísli skilorð í tvö ár.
Gísli játaði sekt sína í málinu fyrir Hönnu Birnu í gær, og síðar fyrir dómi í morgun.
Hann segir ákvörðun sína um að játa sekt sína í málinu ekki tilkomna vegna nýrra sönnunargagna sem Ríkissaksóknari gerði verjanda Gísla viðvart um á mánudaginn.
Sérstakur hugbúnaður sem lögregla keyrði á tölvu Gísla um helgina, þykir sanna að Gísli hafi með óyggjandi hætti sent fjölmiðlum trúnaðarupplýsingar um hælisleitandann Tony Omos í nóvember á síðasta ári.
Gísli hefur fram til þessa neitað sök í málinu.
Efaðist aldrei um að sakfellt yrði í málinu Í samtali við Kjarnann segist Helgi Magnús aldrei hafa efast um að sakfellt yrði í málinu, þrátt fyrir að ný sönnunargögn í málinu hafi ekki litið dagsins ljós fyrr en um helgina.
Miðað við þau sönnunargögn sem lágu fyrir, og við byggðum ákæruna á, hefðu þau dugað til þess.
Það var auðvitað mat ákærða hvort hann vildi láta á þetta reyna fyrir dómi, en það var augljóst að eftir að skjalið fannst loks í tölvunni hans, sem við höfðum ekki fundið fyrr af tæknilegum ástæðum, að þá væri nú fokið í flest skjól með vörn hans.
Játning hans kemur í beinu framhaldi af því að ég gerði verjanda viðvart um skjalið og sendi honum afrit af því.
Ákærði þekkir skjalið og mátti búast við því að það fyndist. Helgi Magnús vildi ekki svara því að svo stöddu hvort embættið muni áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
Það hefur mikið gengið á í þessu máli og því miður hafa verið uppi raddir um að embættið hafi gengið einhverra erinda og annað slíkt.
Það spretta alltaf upp einhverjir spekingar sem hafa skoðun á þessum málum, hvort vísa eigi þeim frá eða hverjar hvatir ákæruvaldsins eru, en það er mjög bagalegt ef að umfjöllun um svona mál fer í þá átt að grafa undan trúverðugleika eða trausti fólks á ákæruvaldinu.
Gísli Freyr Gísli Freyr Valdórsson við dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Mikilvægt að allir sitji við sama borð Aðspurður um hvort hann teldi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra hafa reynt að grafa undan trúverðugleika Ríkissaksóknara í málinu, svaraði Helgi Magnús: Ég vil ekki fara svo djúpt í þessa umræðu, en þið þekkið þessa umræðu.
Þið þekki skrif og þið þekkið ráðna ráðgjafa og umfjöllun þeirra um þetta mál, og hvernig þeir hafa matreitt málið.
Þá þekkið þið líka umræðu um að það hafi vegið gengið of langt í því að haldleggja tölvur og leita í tölvum, að það hafi verið einhvers konar inngrip sem hafi verið óeðlilegt.
Það er algjörlega eðlilegt að mál sem snúa að sakborningi á þessu stigi, af þessu kalíberi ef ég má orða það svo, að hann lúti eins og aðrir sakborningar sömu reglum um rannsókn og við getum ekki gert greinarmun á Jóni og Séra Jóni.
Þá sagði Helgi Magnús að leit lögreglu í tölvu hafi einmitt stuðlað að því að sönnungargagnið fannst sem kom fyrrgreindri atburðarrás af stað.
Og það hefur komið fram í öðrum málum, að það er verið að álykta á flokksráðsfundum eða eitthvað slíkt, um að það eigi að fella niður ákærur í einhverjum málum.
Hvað er það? Þá sagði Helgi Magnús aðspurður um hvort hann teldi innanríkisráðherra hafa gengið of hart fram í málinu: Ég held ég láti það bara vera að vera með einhver komment á það. En þið þekkið umræðuna, hún er víðar og er í öðrum málum. [...] Og það hefur komið fram í öðrum málum, að það er verið að álykta á flokksráðsfundum eða eitthvað slíkt, um að það eigi að fella niður ákærur í einhverjum málum.
Hvað er það? Afskipti af ákæruvaldi eru jafn alvarleg og afskipti af dómsvaldi. [...] Það verða aldrei nein sakamál nema ákæruvaldið ákæri, og þær ákvarðanr sem ákæruvaldið tekur um ákærur eru afdrifaríkar vissulega, en þær eru líka grundvöllur þess að einhver maður verði nokkurn tímann dæmdur fyrir refsiverða háttsemi.
Dómstólar taka ekkert slíkt upp hjá sjálfum sér. Ákveðinn manndómur fólginn í ákvörðun Gísla Mér finnst ákveðinn manndómur í þessu sem Gísli hefur nú ákveðið að gera.
Kannski hefði hann átt að gera þetta fyrr, en það er manndómur fólginn í því að ákveða að taka bara slaginn núna og ljúka málinu frekar en að þrælast í gegnum aðalmeðferð með vitnum og öllum slíkum óþægindum og kannski er ekkert algjörlega úr vegi að hann njóti þess eitthvað við ákvörðun refsingar, segir Helgi Magnús.
Ákæruvaldið krafðist þess að Gísli yrði dæmdur í eins árs fangelsi, en benti á að brot hans gæfi tilefni til fangelsisvistar að allt að þremur árum miðað við ásetning hans að hafa áhrif á umræðu.
Ég er bara aðeins að reyna að nota tækifærið til þess að skýra hlutverk ákæruvaldsins og mikilvægi þess að það fái frið til að vinna og hafi traust til að sinna sínum verkefnum.
Það liggur fyrir niðurstaða, það liggur fyrir að ákæra Ríkissaksóknara var réttmæt og við þurfum ekki frekari staðfestingu á því að þetta var ekki einhvers konar pólitískur leikur eða neitt slíkt eins og einhverjir létu eftir sér að ýja að.
Mikilvægt að tryggja sjálfstæði ákæruvaldsins Helgi Magnús segir boðaðan niðurskurð á fjárframlögum til ákæruvaldins mikið áhyggjuefni.
Sjálfstæðið er náttúrulega ekki mikið ef að tilteknir málaflokkar eða mál eru sett í einhver konar hefti út af peningum.
Það er fjármagnið sem ræður því hvort sjálfstæði ákæruvaldsins er tryggt eins og dómstóla.
Það hefur því miður verið þannig að það virðast vera meiri peningar til til að stofna einhverjar nýjar stofnanir og stofur út um hvippinn og hvappinn, heldur en að hlúa að grunnþáttum ríkisvaldsins eins og lögreglu, dómstólum og ákæruvaldi. [...] Við horfum fram á samdrátt, og við horfum fram á drátt á málum með mildun refsinga fyrir sakborninga og auðvitað brot á þeirra rétti, sem er tryggður í mannréttindasáttmálanum og stjórnarskrá, um að þeir fái meðferð sinna mála.
Það er auðvitað ákvörðun stjórnmálamannanna hvort þeir vilja að það nái fram að ganga eða hvort við eigum að fara sömu leið og á spítölunum og það verði bara langir biðlistar.
Aðspurður um hvort Helgi Magnús eigi við boðaðan niðurskurð á fjárheimildum til embættis Sérstaks saksóknara með orðum sínum, sagði hann svo ekki vera. Hann væri að tala á almennum nótum.
Ég er bara aðeins að reyna að nota tækifærið til þess að skýra hlutverk ákæruvaldsins og mikilvægi þess að það fái frið til að vinna og hafi traust til að sinna sínum verkefnum.
Og þá eins líka að almenningur geti treyst því að við sinnum þeim verkefnum sem við erum að sinna, af sömu eljusemi og áhuga hvort sem það er Jón eða Séra Jón sem á í hlut og við beitum þeim úrræðum sem lög gera ráð fyrir.
Það er ágætt að allir viti það og geti treyst því. deildu þessu///////////////////Svo mörg voru þau orð til að koma höggi á Hönnu Birnu,þetta er svo að manni blöskrar mjög að nota þarna Dómsmálin Saksóknara löggæslan og annað sem á að virka mjög vel til að sverta Hönnu Birnu,eftir allan þennan lestur sé sektina hjá henni hún vissi ekkert um þessi mál,Enda að mínu mati mjög auðvirðuleg til þessa að gera úr því allt þetta mál,en það er alveg víst að þessir vinstri menn ætla ekki að gefa sig,finnst þeir vera með kjörið dæmi að koma henni frá,þeir eru hræddir við hana,þykja hún vera og hress til að koma sannaleika mála þeirra illa,og burt skal hún hvað sem það kostar,þetta sjáum við flest,og tökum upp hanskann fyrir hana,og munum ekki láta þetta vinstra fólk,koma óorði á okkar fólk sem er saklaust/Halli gamli
12.11.2014 | 19:33
Þetta mun ennþá meira ,skilja af Vinstrið og hægri ríkisstjórna,og það bara gott!!!
"Fátt er svo með illu gert að ey boði gott" þetta kemur i ljós núna þessa daga,ekki spurning um það.Þessi hasar stjórnarandstöðuna gerir það lýðum ljóst,Þessi stormur í vatnsglasi,er nánast geðveila,þetta er svo svívirðilegt sem þau láta frá sér fara er engum alvöru Alþingismanni sæmandi!!!!En svona er þetta þau trausta á að fólk taki undir með þeim,en þessi mál voru loforð Fyrst Framsóknar,og svo í sáttmálanum þeirra báðir flokkarnir,svo þegar alvaran sýnir sig og þetta á að borgast út í lækkun lánanna,þá bókstaflega springa þeir út,og finna þessu öllu til foráttu,og láta fara frá sér allskonar,sem ekki er hafandi eftir,hvað er að þegar 4 flokkar lýsa okkur þjófa og Bófa að við séum að stela þessu frá öðru sem þurfti að gera og einnig frá börnunum okkar,er hægt að leggjast lægra//Halli gamli
12.11.2014 | 17:56
Sitt sínist mörgum um þetta Mál og loforð Framsóknar og reyndar allra Rikisstjórnar vorar!!
Þetta er mjög svo gott að fá þessa, stjórnaraðstöðu ráðast á þetta eins og þeir gera ,finna þessu öllu til foráttu ,og tala um þjófnað frá öðru ,sem þetta hefði betur farið í Spítanlan og stolið frá Börnunum okkar sagði Steingrímur og reyndar fleiri,hafi manni blöskrað áður er þetta toppurinn,og hingað og ekki lengra,þessi loforð eru nú ekki svikin og þá er bara núið við og sagt þessum peningum stolið,þetta er mjög svo alvarlegt mál að þessir Vinstri flokkar eru bara að pissa út ekkert annað///Halli gamli
12.11.2014 | 17:37
Svíi fékk 1,25 milljarða vinning/Engin smá pottur það,þegar ég var í Las Vegas fékk ég 1200 dollara en tapaði því fljótt aftur!!!
Svíi fékk 1,25 milljarða vinning Erlent | mbl.is | 12.11.2014 | 10:39 Mynd 775921 Svíinn Martin Jacobson var í gær krýndur heimsmeistari í póker eftir harða keppni við Norðmanninn Felix Stephensen í Las Vegas í gærkvöldi.
Verðlaunaféð er ekki af verri endanum, 74 milljónir sænskra króna, 1,25 milljarða íslenskra króna.Jacobson, sem er 27 ára að aldri, var í skýjunum þegar Aftonbladet ræddi við hann. Þetta er eiginlega súrrealískt.
Ég er í áfalli, segir Martin Jacobson. Martin Jacobson er fæddur og uppalinn í Stokkhólmi. Hann byrjaði að spila póker átján ára gamall á netinu.
Hann átti sér enga drauma um atvinnumennsku í póker enda sá hann frekar framtíð sína sem kokkur.
En þegar hann fékk ekki starf sem hann reyndi að fá í Barcelona fór Jacobson að skila af meiri alvöru.
Árið 2008 hafnaði hann í þriðja sæti á Evrópumeistaramótinu í póker í Búdapest og framtíð hans
var ráðin.//////////////////////////Þetta er gaman og óvænt að fá svo greitt fyrir mikla vinnu,og það í Póker,það er einnig mjög erfitt að vara þar klár að vinna svona stórt,svo er þetta bannað á Íslandi að spila uppá pening,en þetta er list gein en ekki bara peningaspil//Halli gamli
![]() |
Svíi fékk 1,25 milljarða vinning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
HannaBirna nýtur stuðnings Innlent | mbl.is | 12.11.2014 | 15:22 Hanna Birna Kristjánsdóttir og Bjarni Benediktsson á... Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra nýtur breiðs stuðnings innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins til að starfa áfram í ríkisstjórn.
Þetta var niðurstaða þingflokksfundar sjálfstæðismanna í dag að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins í samtali við mbl.is.
Eins og fréttavefurinn greindi frá í dag var Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu, dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að leka trúnaðargögnum um hælisleitanda. Hún nýtur trausts til að halda áfram.
Hún nýtur óskoraðs trausts frá mér og það kom fram beiður stuðningur við ráðherrann á þingflokksfundinum.
Það er eðlilegt að menn spyrji sig þegar aðstoðarmaður ráðherra fær dóm á sig í refsimáli hvernig eigi að bregðast við.
Í mínum huga hefur ráðherrann get það sem í hennar valdi stendur til þess að bregðast við, sagði Bjarni.
Hún hafi reynt að aðstoða við að upplýsa málið þó einhver mistök hafi verið gerð undir rannsókn þess. Ekkert benti til þess að Hanna Birna hefði haft aðkomu að málinu.
Þá hefði hún sagt sig frá dómsmálunum og með því axlað ákveðna pólitíska ábyrgð. Hanna Birna var kosin á þing sem leiðtogi okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík, hún er varaformaður flokksins og fyrsti þingmaður Reykvíkinga.
Mér finnst hún líka hafa ábyrgð sem slíkur stjórnmálamaður sem ég veit að hún vill rísa undir. Það gerir hún best með því að halda sínu striki og hefur til þess traust frá mér, sagði Bjarni ennfremur og bætti við aðspurður að hann teldi málið ekki þannig vaxið að henni bæri að víkja sem ráðherra.
Spurður hvernig farið yrði með dómsmálin í framhaldinu sagði Bjarni að hann og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra yrðu að hans mati að ræða í framhaldinu hvernig þeim málum yrði fyrir komið til frambúðar.
Nú er þetta mál upplýst og það gefur að mínu mati tilefni fyrir mig og forsætisráðherra til þess að setjast niður og taka ákvörðun um það hvernig við skipum dómsmálunum út kjörtímabilið.
Það hefur legið fyrir frá því að Hanna Birna óskaði lausnar frá dómsmálunum að ákveðið bráðabirgðaástand hefur verið við lýði varðandi það ráðuneyti og það er langbest að koma því í varanlegar skorður sem fyrst.
Þingflokksfundur Sjálfstæðisflokksins stendur yfir en hann hófst klukkan 13:00. Um er að ræða hefðbundinn fund þingflokksins og fund aðrir þingflokkar á sama tíma.
Meðal mála sem gera má ráð fyrir að fjallað verði um á fundinum er lekamálið svonefnt en eins og mbl.is greindi frá í gær hefur Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, viðurkennt að hafa lekið trúnaðargögnum um hælisleitanda til fjölmiðla í nóvember síðastliðnum.
Hann var í dag dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur./////////////////////////Þetta er það sem ég hefði viljað sjá hjá löndum mínum og flokksbræðrum,Ég veit ekki hver annar sem ég þekki ætti þetta skilið að halda sínu starfi áfram,auðvitað erum við ekki öll ánægð sem þessir blessaðir ráðherra okkar eru að framkvæma lög frá EES,það væri óeðlilegt ef við værum ekki óánægð með mikið af þeim reglum sem als ekki eiga hér heima,en störf hennar hafa verið farsæl og hún mikið samkvæm öllu okkar,nema með Flugvöllin okkar,og síðan hún varð ráðherra á hún að fara eftir samþykktum 1200 manna flokksþings sem fer fram annað hvert ár,hún mun að lokum sjá að þetta er vilji meirihlutans,og eftir honum á að fara,en ekki svikamillu Dags B. Borgarstjóra að ljúga sér til breytinga//Halli gamli
![]() |
Hanna Birna nýtur stuðnings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2014 | 20:02
Rektor segir mikið í húfi//Þetta er ekki meira en Ríkisvá og strax á þetta lög eða gerðardóm ekkert annað!!!
Rektor segir mikið í húfi Innlent | mbl.is | 11.11.2014 | 16:53 Háskóli Íslands Verði af verkfalli Félags prófessora við ríkisháskóla, sem félagsmenn samþykktu í fyrradag, mun um helmingur prófa í Háskóla Íslands fyrir jólin falla niður.
Rektor skólans segir ástandið áhyggjuefni. Mikið hagsmunamál sé fyrir Háskóla Íslands að laun prófessora séu sanngjörn og samkeppnishæf.
Í félaginu eru fastráðnir prófessorar við íslenska ríkisháskóla, þ.e. HÍ, Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólann á Hólum. Fastráðnum dósentum og lektorum við þessa skóla er einnig heimil aðild að félaginu.
77% félagsmanna tóku þátt í kosningu um verkfall og yfir 80% þeirra samþykktu verkfallsaðgerðir 1. - 15. desember.
Samningar hafa verið lausir síðan í mars og félagið mun funda með samninganefnd ríkisins á föstudag.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Eggert Jóhannesson Alls eru 350 í félaginu og þar af starfa um 280 við Háskóla Íslands. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, segir hugsanlegt verkfall mikið áhyggjuefni.
Ef af verkfalli verður, hefði það veruleg áhrif hér í skólanum, sérstaklega á stúdenta því þetta myndi raska þeirra áætlunum og hafa áhrif á greiðslur úr lánasjóði,segir Kristín og bætir við að verkfallið myndi einnig raska skipulagi skólans á vormisseri.
Hún segir að verkfallið hafi áhrif á u.þ.b. helming af þeim 500 prófum sem fyrirhuguð eru í desember.
Skólinn mun gera allt sem hann getur til að vinna að lausn málsins Háskóli Íslands er ekki beinn aðili að kjaraviðræðunum, samninganefnd ríkisins á í viðræðum við félagið.
En skólinn mun gera allt sem hann getur til að vinna að lausn málsins, það er mikið í húfi, segir Kristín.
Spurð um hvaða viðhorf hún hafi til launakrafna prófessora segist Kristín ekki vera í aðstöðu til að tjá sig um þær.
En það er mikið hagsmunamál fyrir Háskóla Íslands að laun þeirra séu sanngjörn og samkeppnishæf.///////////////////////Þetta er pungturni yfir allt,og eiginlega ekkert annað,kvað erum við að gera við alla þessa Prófessora, ekki nema um 19% af þessari tölu,þegar illa árar ,erum við blessunarlega, als ekki að hafa þá þarna,og það gerir það um þessar mundir,en hvað varðar þessum mönnum um þjóðarhag??? Maður bara spyr,engin að segja að þeir sem við notum þurfa sín laun,en þeir eiga bara að fara þarna í leið lækna,og þar kemur að því að þetta verður sett í Gerða dóm ekki spurning það ber svo að framfylgja því,gerðadómur á að reikna þetta út á þeim forsendum sem laun þeirra gætu verið þetta há uppá vinnutilhögun ábyrgð og árangur í starfi,þetta mat er gott að fá,því það eru ekki allir eins og ég fleiri sem höfum umgengis þetta mikið sem sjúklingur //Halli gamli
![]() |
Rektor segir mikið í húfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2014 | 18:53
Gísli Freyr játar lekann//Þetta eru leiðinlegar fréttirmjög,en Hanna Birna á ekki að segja af ,sér als ekki!!!
Gísli Freyr játar lekann Innlent | mbl.is | 11.11.2014 | 17:57 Gísli Freyr Valdórsson Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, hefur játað að hafa afhent skjal úr ráðuneytinu varðandi hælisleitanda til fjölmiðla í nóvember 2013.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá innanríkisráðherra.
Yfirlýsing innanríkisráðherra: Fyrrverandi aðstoðarmaður minn, Gísli Freyr Valdórsson, óskaði síðdegis í dag eftir fundi með mér í framhaldi af tilkynningu frá Héraðsdómi Reykjavíkur um að réttarhöldum í máli ríkissaksóknara gegn Gísla Frey hefði verið frestað.
Gísli Freyr játaði svo á fundinum mér að hann hefði afhent skjal úr ráðuneytinu varðandi hælisleitanda til fjölmiðla í nóvember 2013.
Trúnaðarbrot Gísla Freys gagnvart mér, ráðuneytinu og almenningi öllum er algjört og alvarlegt. Gísli Freyr hefur ítrekað haldið fram sakleysi sínu, ekki aðeins gagnvart yfirvöldum og fjölmiðlum, heldur einnig gagnvart samstarfsfólki sínu og yfirmönnum í ráðuneytinu.
Í framhaldi af játningu Gísla Freys var honum fyrirvaralaust vikið úr störfum í ráðuneytinu.
Ég harma brot Gísla Freys, ekki aðeins gagnvart þeim sem brotið var gegn með lekanum sjálfum, heldur einnig gagnvart því samstarfsfólki sem trúað hefur yfirlýsingum hans um sakleysi og því hvernig athæfi hans hefur varpað skugga á störf ráðuneytisins um margra mánaða skeið.
Sú staðreynd að fyrrverandi aðstoðarmaður minn hafi brotið svo alvarlega á trúnaði gagnvart mér
sem ráðherra, sem ítrekað hef haldið uppi vörnum fyrir hann í því trausti að hann hefði skýrt
mér og öðrum satt og rétt frá, kemur mér algjörlega í opna skjöldu og er þyngri byrði fyrir mig
en ég get lýst í fáum orðum.////////////////////Þetta er kjaftshögg og það svívirðilegt að mínu mati,en þarna erum við komin að hvað þetta þíðir ,ég segi að ekkert þara komi til að kenna Hönnu Birnu illa,ég veit að stjórnarandstaðan,vill að hún taki ábyrgð,en ég sé það ekki en hún á minn stuðning allan,og við flestir erum þarna sammála að ég held//En þetta kemur í ljós allt/Halli gamli
![]() |
Gísli Freyr játar lekann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 1047539
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar