Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 10:09

Hann verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í dag, laugardaginn 7. maí og verður hátíðin sett klukkan 11 í Sólinni, sem er aðalbygging Háskólans í Reykjavík.
Að sögn Jóhanns Hlíðar Harðarsonar, upplýsingafulltrúa Háskólans í Reykjavík, tekur síðan við fjölbreytt dagskrá. Þar má nefna siglingar um Fossvog, sjóbað í Nauthólsvík, rathlaupsleik fyrir fjölskylduna og gönguferðir um Öskjuhlíðina, en þar verða meðal annars skoðaðar stríðsminjar undir leiðsögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings.
Einnig verður starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar kynnt.
Á bílaplani HR verður stærðarinnar skógarsög sem breytir trjám í verðmæta nytjahluti og í aðalbyggingu HR sýna nemendur HR og Listaháskólans gagnvirk listaverk sem þeir hafa skapað í vetur.
Söngvarinn Ragnar Bjarnason skemmtir svo gestum í hádeginu í aðalbyggingu HR og fjögur ljóðskáld flytja ljóð sín í hlíðum Öskjuhlíðar í lok skipulagðra gönguferða.
Undirritað verður samkomulag um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð með það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði.
Að undirritun lokinni heldur Jón Gnarr borgarstjóri sýnikennslu í því hvernig búa á til moltu./////þetta gott að halda þessu sem útistasvæði og ganga þarna vel um ,þetta var hjá okkur her áður og mikið leikið sér
þarna,bæiðn fyrir og eftir herinn sem byggði flugvöllinn !!okkur ,þetta mikið fjör og gaman að leika sér
stríðsminjum þarna, þetta er gósen útivistland fyrir bæði fullorðna og börn!! það að halda þessu við og hafa
gæslu,þarna var ,og samráð fyrirtækja,en á ekki að vera!!!
þetta á að hafa svona og ekkert annað/Halli gamli
![]() |
Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2011 | 10:13
Rigning með köflum//vonandi að sólin hafi viningin hér suðrhorni,við eigum að inni!!!!
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 7:57

Norðuaustan 8-15 m/s á morgun með lítilsháttar vætu norðantil en bjart að mestu sunnantil. Hiti 5 til 14 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi.///maður vonar það i lengstur lög að við höfum sól og blíðu her vesturhornið,við eigum það skilið ekki spurning,það er svo með þetta veður að það er ekki á vísan að róa með það en norðanátt á fyrripart sumar er oft goð og sól með henni en verri d fyrir norðan og vestan og Austan/en ekki hægt að alhæfa það ,en maður má vona,það er N.A. 3 m/s léttskíað+ 8'C /Halli gamli
![]() |
Rigning með köflum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2011 | 21:46
Þráinn fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu/hann kallar ekki allt Ömmu syna,enda skáld á launum!!!
Innlent | mbl.is | 6.5.2011 | 15:01

Mikil umræða hefur spunnist á síðu Þráins í tengslum við færslu sem hann skrifar um sín launamál. Ef einhver heldur að ég geti lifað á kaupinu mínu sem alþingismaður er svarið NEI? Síðan ég tók sæti á Alþingi hef ég sjálfur borgað með mér, skrifar Þráinn, sem er níundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Norður.
Hann segir að svarið við því hvort hann sé á tvöföldum launum, verandi á heiðurslaunum Alþingis, sé bæði já og nei. Hann tekur fram að heiðurslaun Alþingis séu ekki laun heldur viðurkenning og bendir á að starfslaun listamanna séu tæp 300.000 en heiðurslaun Alþingis tæp 140.000.
Það var kúlulaunadrottninginn (þúsund milljónir eða voru það níu hundruð og níutíu) Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem byrjaði á að gera það tortryggilegt að heiðurslaunalistamaður tæki sæti á Alþingi án þess að afsala sér heiðurslaunum á meðan, skrifar Þráinn.
Þetta byrjaði í Silfri Egilis rétt eftir kosningar. Þá benti kúlulána- og íhaldsbeljan Þorgerður Katrín á að það eina sem ég hefði á minni sakaskrá væri að ég Alþingi Íslendinga hefði veitt mér heiðurslaun.////það er ekki allt að var skáld ,ef þeir eru svona einnig á alþingi,eins og þeir gera vist margir þarna,og það stundum nauðsyn,en þetta orðalag er ekki alþingismanni sæmandi ekki einu sinni á bloggi sýnu, hvað þá Alþingi,þetta er ljóður á kalli ekki spurning/Halli gamli
![]() |
Þráinn fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2011 | 21:25
Vilja hækka lægstu laun strax/það er stórt atriði að gera það,það hefði átt að vera,í samningunum í gær!!!
Innlent | mbl.is | 6.5.2011 | 20:59

Það var hávaði í Karphúsinu í morgun. Við byrjuðum daginn á að takast á, fundurinn hófst með látum en eftir hádegi var ágætis vinnufriður. En við komum heldur ekkert þangað til að skrifa undir einhvern pappír til að fá vöfflur.
Við viljum knýja á um að 200.000 króna lágmarkslaun komi strax, en ekki árið 2013. Siðan leggjum við áherslu á aðra uppbyggingu en er á samningnum sem var undirritaður í gær. Þar var samið um 12.000 króna greiðslu á taxta og síðan 4,25% á önnur laun. En við viljum lækka þessa prósentutölu og hækka þess í stað upphæðina. Því að þeir sem eiga erfiðast í dag er fólkið á lægstu kjörunum og við viljum stuðla að því að eyða biðröðum hjá hjálparsamtökunum.
Að sögn Aðalsteins var skilningur á þessum kröfum hjá viðsemjendum. En það er kannski enginn sérstakur áhugi fyrir því að fara einhverja aðra leið en farin var í gær. Enda kemur það fram í samningunum sem undirritaðir voru í gær á milli SA og ASÍ að það yrði ekkert samið um neitt annað.
Samningur við bræðslumenn á Þórshöfn er í höfn og þar verður fylgt flestum atriðum almenna samningsins, sem var undirritaður í gær. Við höfum vilyrði fyrir að fá álíka samning, en viljum nokkrar áherslubreytingar og það verður unnið í því um helgina. Síðan hittumst við aftur á mánudaginn, sagði Aðalsteinn í samtali við mbl.is.////það er svo að þetta er stórt atriði að hækka lægstu laun i 200 þus það lifir engin á mynna,allir vita en engin vill taka af skarið en það er malið að þessu verður að breyta ekki spurning ,það sjá allir sem vilja
![]() |
Vilja hækka lægstu laun strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2011 | 21:15
Paul McCartney trúlofaður/gott þetta þriðja hjónaband ef verður ,þarna snillingur á ferð !!!
Veröld/Fólk | AP | 6.5.2011 | 18:23

Stuart Bell, upplýsingafulltrúi McCartneys, sagði nú síðdegis, að vangaveltur fjölmiðla að undanförnu um trúlofun væru ekki úr lausu lofti gripnar. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um málið að öðru leyti en að segja að allir væru mjög ánægðir fyrir hönd McCartneys.
McCartney, sem verður 68 ára á árinu, hefur tvívegis verið kvæntur áður. Fyrsta kona hans, Linda, lést af völdum krabbameins árið 1998 og hann skildi við aðra konu sína, fyrirsætuna Heather Mills, árið 2008.
Nancy Shevell, sem er 48 ára, er bandarísk og situr m.a. í stjórn almenningssamgangnastofnunar New York ríkis. /////þetta gott að þessi snillingur skuli ná sér i goða konu,ein okkur besti músikkant og lagahöfundur og söngvari ,við sem dáum Bítlana og þeirra músík erum bara kátir með þetta/Halli gamli
![]() |
Paul McCartney trúlofaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2011 | 18:22
Aðildarfélög BSRB hefja kjaraviðræður/þetta þarf að klára sem fyrst,og einnig öll önnur sérfélög!!!
Innlent | mbl.is | 6.5.2011 | 16:33

Fram kemur á heimasíðu BSRB, að fulltrúar bandalagsins áttu á mánudag fund með forsætisráðherra og fjármálaráðherra og afhentu þeim minnisblað um sameiginleg málefni aðildarfélaga sem hafi verið falin bandalaginu til úrlausnar við komandi kjarasamninga.
Hafi aðilar verið sammála um mikilvægi þess að ljúka skyldi við kjarasamninga við opinbera starfsmenn sem fyrst.
Þá átti framkvæmdanefnd BSRB fund með samninganefnd ríkisins í gær þar sem afhent var sama minnisblað og áhersluatriðin rædd. Í kjölfar kjarasamninga ASÍ og SA í gærkvöldi voru aðildarfélög BSRB boðuð á fundi með viðsemjendum sínum.
Segir á vef BSRB, að ástæða þess að aðildarfélög BSRB hafi ekki fengið viðræður um launalið sinna kjarasamninga sé sú að viðsemjendur þeirra hafi viljað bíða eftir niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.////þetta er ná númer eitt að semja við við það opinber og klára það á sama basls og reyndar alla línuna svo margir hópar sem eru sér sambönd,það er búið að ryðja vegin og þetta á að geta gengið vel,það er svo annað mál með ríkisstjórn,þar er teysta á´að allt gangi eftir til að hagvöxtur gangi upp farmkvæmdir bara strax, þau erum búin að tala og tala en nú verður að farmkvæma við biðum ekki legni eftir því/Halli gamli
![]() |
Aðildarfélög BSRB hefja kjaraviðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 23:49
Verðhrun á olíu/en betri fréttir undir kvöldið,vonandi heldur þessi lækkun áfram"!!!
Viðskipti | AFP | 5.5.2011 | 23:07

Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um yfir 12 dali tunnan á markaði í Lundúnum í kvöld. Er það meira verðfall en varð eftir að bandaríski bankinn Lehman Brothers varð gjaldþrota en það gjaldþrot markaði upphaf fjármálakreppunnar.
Verð á olíu í New York fór undir 100 dali tunnan í fyrsta skipti frá því í mars. Miðlarar segja, að hugsanlega sé verðfallinu ekki lokið.////// loksins en betrí fréttir i kvöld og það vonandi heldur áfram ekki er það nema gott en við fögnum bara þessu, og það ekki margt sem gleður þessa dagana!!!! /Halli gamli
![]() |
Verðhrun á olíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 20:18
70-80 milljarða verkefni/Við skulum bara vona að þetta standist!!,ef ekki :fer ílla!!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 19:56

Í yfirlýsingunni segir, að stjórnvöld vilji greiða fyrir aukinni fjárfestingu á sem flestum sviðum, einkanlega þeim sem stuðli að auknum útflutningstekjum. Lögð sé áhersla á að fjárfestingar í virkjunum og gerð raforkusamninga verði á viðskiptalegum grundvelli og taki tillit til umhverfisgæða.
Stefnt er að því að frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða verði afgreitt á vorþingi. Rammaáætlun verði lögð fram á næstu vikum og fer í viðeigandi ferli. Stjórnvöld stefni að því að hún verði afgreidd á næsta haustþingi.
Þegar séu afráðnar fjárfestingar í Búðarhálsvirkjun, stækkun álversins í Straumsvík, kísilveri í Helguvík og í dreifikerfi Landsnets og sé framkvæmd þessara verkefna þegar hafin. Framkvæmdir í Helguvík og fleiri verkefni séu í undirbúningi en mislangt komin.
Þá muni Landsvirkjun halda áfram umfangsmiklum rannsóknum í Þingeyjarsýslum og eigi nú þegar í viðræðum við nokkra aðila um fjárfestingar og orkukaup.///við skulum bara vona að þetta standist en ekki bara hjal út í loftið og ekki bara þetta heldur betur annars er þetta bara samningar sem fara í sugin ,við verum að taká okkur á og huga að framförum en ekki stöðnun,við höfum alla burði og pening til að arður af því borgi það til baka lífeyrissjóðir láni i verkefnin og fái goða ávöxtum til baka,þetta er það eina sem getur komið okkur aftur uppúrskuldum og basli ekki annað betra til ,ef ekki fer allt niðurá við aftur,en það er svo að það þarf aðra rikisstjorn til þessa þessi gerir þetta ekki /Halli gamli
![]() |
70-80 milljarða verkefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 17:55
Olía lækkaði í verði í dag/loksins ein góð frétt!!!/skal lækka hjá okkur á Íslandi ????
Viðskipti | mbl.is | 5.5.2011 | 16:23

Rætt er við Thina Saltvedt, olíuverðssérfræðing hjá Nordea Markets, sem segir að olíuverðshækkunin hafi verið knúin af óróleika sem tengdist ástandi mála í Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Ekki eru vísbendingar um að ástandið þar breiðist til fleiri olíuframleiðslulanda.
Ástand mála hefur bæði áhrif á framboð og eftirspurn.Ýmsar blikur eru á lofti varðandi eftirspurnina, t.d. verra ástand á vinnumarkaði í Bandaríkjunum en reiknað var með, óvissa um evrusvæðið og áform Kínverja um að herða sultarólina til að draga úr verðbólgu.
Saltvedt telur að olíuverðið geti ef til till farið niður í 104 dollara fatið, en hún telur ólíklegt að það lækki niður fyrir það.////kom ein frétt góð og manni bara bergður ekki skrítið en skal Olian á Íslandi lækka það er spurning dagsins ,við bíðum i ofvæni sem viljum aka okkar bifreiðum en höfum vart efni á því/Halli gamli
![]() |
Olía lækkaði í verði í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 17:47
Hafa áhyggjur af stöðu heimila og einstaklinga/það er ekki furða,það er svo að það er óleyst mál !!sem átti að vera mál málanna!!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 16:23

Í ályktu um erfiða fjárhagsstöðu fjölskyldna og einstaklinga segir eftirfarandi:
Prestastefna 2011 lýsir yfir miklum áhyggjum vegna gríðarlega erfiðrar fjárhagsstöðu margra fjölskyldna og einstaklinga í landinu. Prestastefna kallar eftir því að stjörnvöld geri enn betur en orðið er til að liðsinna fólki og greiða úr vanda þess og skapa því þannig vonarríka framtíð hér á landi, m.a. með því að reyna eftir megni að efla atvinnu sem er forsenda þess að efnahagsástandið batni.
Prestastefna þakkar mikilsverðan stuðning hjálparstofnana og fagnar nýjum aðferðum Hjálparstarfs kirkjunnar til að liðsinna þeim sem búa við erfið kjör.
Prestastefna hvetur söfnuði þjóðkirkjunnar um land allt til að vera vakandi fyrir því hvernig þeri geti liðsinnt þeim sem eru í andlegri og veraldlegri neyð. Prestastefnan hvetur kristið fólk um land allt til að styðja hjálparstofnanir og veita með orðum, verkum, von og trú, kærleika og samhug inn í íslenskt samfélag.
Í ályktun um niðurskurð sóknargjalda segir:
Prestastefna 2011 lýsir yfir áhyggjum af miklum niðurskurði sóknargjalda. Eins og ýmsar stofnanir í landinu hafa sóknir þjóðkirkjunnar þurft að hagræða mikið undanfarin ár, en nú er svo komið að fjölmargar þeirra geta vart sinnt lengur grunnþjónustu sinni við t.d. börn, ungt fólk og aldraða. Prestastefna 2011 fagnar ákvörðun innanríkisráðherra um að skipuð verði nefnd til að greina hvaða áhrif niðurskurður sóknargjalda hefur haft og mun hafa á þjónustu og starf þjóðkirkjunnar og sókna hennar um land allt.
Ályktun um samræmda gjaldskrá fyrir afnot af aðstöðu í kirkjum er svohljóðandi:
Prestastefna 2011, haldin í Neskirkju í Reykjavík, 3.-5. maí 2011 vísar því til kirkjuráðs að skoða hvort tímabært sé að tekin verði upp samræmd gjaldskrá fyrir afnot af aðstöðu í kirkjum. Tekið verði tillit til þess hvort um er að ræða sóknarbörn, þjóðkirkjufólk utan soknar og fólks utan þjóðkirkju og leitast skuli við að sóknarbörn fái gjaldfrjáls afnot af kirkju sinni./////hvort sem kallað er þjóðkirkja eð Fríkirkja eða annað er þetta mal sem okkur kemur öllum við ,vill þessi hópur trúleysingja virkilega ekki, að að trúin og kirkjan sem gerir ekkert nema gott,verði sett á gaddinn ,það vill alla vega ekki meirihlutin gera!!! en að gera það sem lengi hefur verið um talað að aðskilja ríki og kirkju að fullu er i lagi að minu áliti og sennilega meirihluta þjóðar vorar!! .að er sko vel hægt það er að segja að ríkið er ekkert of gott til að rukka þetta sóknargjald inn við eigum að inni ekki spurning,kirkjan gerir mikið !!!!gengnir og aldrei meira hlutverki en núna þegar á bjátar og það er svo að meirhluinn vill hafnana ekki spurning sennilega um 85% eða meira en það er svo þegar niður er skorið er aftur komið að sjálfstæði hennar,það er það sem .þarf að gera ,en ekki vera sífellt að jagast á þessu sem ríkið gerir þarna ,við viljum að við bara borgum sem njótum og það eru flestir sem það vilja!!!! hinir trúlausu borga þá bara kirkjugarðsgjald annað ekki/Halli gamli
![]() |
Hafa áhyggjur af stöðu heimila og einstaklinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 2
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 1048571
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 53
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar