Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.2.2015 | 23:27
Það hittist í dag slegtið sem vill að Rússar gefist upp,og fari með skottið á milli lappa!!!!
Utanríkisráðherra Rússlands segir að verja þurfi rétt íbúa í austurhuta Úkraínu til sjálfstjórnar og ekki verði samið um landamæri Úkraínu að Rússlandi án beinna samninga við uppreisnarmenn. Leiðtogar Þýskalands og Frakklands, auk Úkraínu og Rússlands, komu til friðarviðræðna í Hvíta Rússlandi nú síðdegis.
Það varð að samkomulagi eftir fund Angelu Merkel Þýsklandskanslara og Francois Hollande Frakklandsforseta með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í síðustu viku að boða til friðarviðræðna í Minsk höfuðborg Hvíta Rússlands í dag.
Það er tilraun til að endurvekja friðarsamkomulag sem gert var í september á síðasta ári.
En viðræðurnar fara fram að frumkvæði og snúast um tillgögur sem Merkel og Hollande hafa lagt fram.
PetroPoroshenko forseti Úrkaínu ítrekaði einnig kröfu stjórnarinnar í Kænugarði um full yfirráð yfir austurhluta landsins áður en hann hélt til Minsk í dag og boðaði herlög í landinu á á þyrfti að halda.
Ég mun ekki hika við að setja slík lög ef ábyrgðarlausir uppreisnarmenn magna upp átökin í austurhluta landsins og þau stigmagnast, sagði Poroshenko.
SergeiLavrov utanríkisráðherra Rússlands er í heimsókn í Grikklandi og sagði á blaðamannafundi þar að stjórnvöld í Kænugarði yrðu að semja við sjálfskipað lýðveldi uppreisnarmanna um landamæri Úkraínu að Rússlandi í suðaustur Úkraínu.
Verja yrði réttindi uppreisnarmanna á svæðinu.
Ben Hodges yfirmaður herafla NATO í Póllandi sagði hins vegar í dag að úkraínski herinn ætti ekki í stríði við neina uppreisnarmenn.
Það er mjög mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því að þetta eru ekki aðskilnaðrsinnar. Þetta eru málaliðar Putins Rússllandsforseta.
Það er augljóst af magni vopna og þeim tækjum sem uppreisnarmenn búa yfir að um beina íhlutun
Rússa er að ræða í borginni Debaltseve, segir Hodges.////////////////////Þessar þreifingar eru til einskis og verða það ekki þegar annar á að ráða bara!!!!Pútín mun ekki samþykkja þetta og stendur á sýnu þarna,þetta er svo að Merkel er að reyna að sætta og það vel en B:N:A: vill NATO i málið og stríð,B.N.A. verður að skilja að þeir eru ekki einangraðir í dag flugskeiti með kjarnorku og vettni eru langdræg og engin óhultur,Rússar hlusta á músíkin eins og her á kaldaskíðarunum rétt við Keflavík og kunnu alla músíkina utanað,og það eru þeir við strendur þeirra hlaðnir Eldflaugum,ef eitthvert við er þarna í B.N.A. verða þeir að semja ekki spurning,hart mætir hörðu og engin með -viti vill það tortím heiminum//Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2015 | 21:30
Vopnasending gæti leitt til allsherjarstríðs/Þetta er það sem menn óttast,engin þarf að halda að Rússin sé auðunninin!!!!
Vopnasending gæti leitt til allsherjarstríðs Erlent | mbl.is | 10.2.2015 | 18:22 Þúsundir hafa látist í átökunum í austurhluta Úkraínu.
Náinn samstarfsmaður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta hefur sagt við Evrópuþingið að allsherjarstríð gæti brotist út ákveði bandarísk stjórnvöld að útvega Úkraínumönnum vopn í
baráttunni við aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins.Alexei Pushkov, sem er rússneskur
þingmaður og formaður utanríkismálanefndar neðri deildar þingsins, ávarpaði um 100 Evrópuþingmenn á fundi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins.
Þetta kemur fram á vef BBC. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær, það það kæmi til greina að senda Úkraínumönnum vopn takist mönnum ekki að binda enda á stríðsátökin við samningaborðið.
Pushkov, sem er á lista bandarískra stjórnvalda yfir einstaklinga sem eru beittir viðskiptaþvingunum, sagði að bandarísk vopn myndu leiða til frekari stríðsátaka og ógna öryggi Evrópu.
Pushkov er hins vegar ekki á lista ESB yfir háttsetta rússneska stjórnmálamenn og kaupsýslumenn sem hefur verið meinað að ferðast til Evrópu og eiga eignir sem búið er að frysta í kjölfar þess að Rússa innlimuðu Krímskaga í mars á síðasta ári.
Utanríkismálanefndin bauð honum til Strassborgar.
Þar sagði Pushkov ennfremur, að þátttaka Bandaríkjamanna í Víetnamstríðinu á sjöunda áratug síðustu aldar hafi hafist með vopnaflutningi.
Þeir byrja á því að senda vopn, svo senda þeir hernaðarráðgjafa, og síðan hermenn til að vernda ráðgjafana og loks hermenn til að berast við Víetnamana, sagði Pushkov.
Barack Obama fundaði með Angelu Merkel í dag. stækka Barack Obama fundaði með Angelu Merkel í dag. EPA Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að það komi til álita að útvega Úkraínuher vopn
takist mönnum ekki að ná samkomulagi um leiðir til að binda enda á neyðarástandið sem ríkir í austurhluta landsins.
Obama átti í dag fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, um nýtt friðarsamkomulag. Obama sagði að rússnesk stjórnvöld hefðu brotið öll loforð sem voru gefin þegar samið var um vopnahlé í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, í september sl.
Þó að það vopnahlé sé enn í gildi að nafninu til hafa harðir bardagar geisað frá áramótum í austurhluta Úkraínu, og saka stjórnvöld í Kænugarði Rússa um að hafa sent atvinnuhermenn og þungavopn til aðstoðar rússneskumælandi uppreisnarmönnum.
Hátt settir bandarískir embættismenn hafa þrýst mjög á Obama en þeir vilja að forsetinn útvegi Úkraínumönnum vopn.
Þessu hefur Merkel mótmælt.
Rússar neita því alfarið að þeir hafi sent hermenn yfir til Úkraínu og aðstoðað
aðskilnaðarsinna í baráttunni.//////////////////////Stór ásæða er fyrir okkur öll að fylgjast með þessum ósköpum,og leiðir hugans frá Ísraelum sem stela landi Arabana daglega undir verndarvæng B.N.A. og það lýður heimurinn,en þetta eru bara verið að reyna að koma Rússum í stöðu sem .eir eiga ekki að vara í,að manni finnst,bara als ekki heimatilbúið hjá B.N.A. og Evrópu,en við verðum að skopa þetta mikið betur Íslendingar hvern við eigum viðskipti við í framtíðinni Austurlönd og Japan og Kína og auðvitað Rússa við höfum alltaf haft við viðskipti við þá og Vöru skipti á árum áður þagar engin vildi neitt með okkur hafa,en skoðum bara allt,og tökum ekki þátt í þessum átökum,að einu eða neinu leiti/Halli gamli
![]() |
Vopnasending gæti leitt til allsherjarstríðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2015 | 18:13
Við verðum að fara í að semja við vekalýðin,ekki bíða með það,það kraumar udir!!!!
Nú er þörf en ekki bara mauðsinn g takið ykkur á og komið til móts,við fólkið sem getur stoppað allt ef vill,þar þíðir ekkert að bíða með það og við berum skaðann eða er það ekki,við erum meira en helmingur þessa óviðsamda fólk,og við eru alveg klár með að fara í Verkfall þegar að því kemur,nú mun reyna á Reikisstjórn og sveitastjórnir og þau varða að taka þetta alverlega,inní þessu eru Öryrkjar og Eldri Borgarar/Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2015 | 17:51
Lægstu laun verði hækkuð og vinnuvikan stytt,Af hveju stytt við num ekki endum saman,en það verður að hækka vel ,ekki spurning!!
Lægstu laun verði hækkuð og vinnuvikan stytt Innlent | mbl.is | 10.2.2015 | 16:34 Trúnaðarmannaráð SFR telur nauðsynlegt að hækka lægstu laun og millitekjur verulega í næstu kjarasamningum.
Næg innistæða er fyrir slíkum hækkunum og munu þær hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið.Þetta kemur fram í ályktun sem trúnaðarmannaráð samþykkti á fundi sínum í dag. Þá er lögð áhersla á styttingu vinnuvikunnar.
Á fundinum hélt Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, erindi um launaþróun hér á landi og sýndi sláandi niðurstöður um samanburð á launum hér á landi og á hinum Norðurlöndunum, að því er segir á vef SFR.
Í máli hans kom m.a. fram að laun verkafólks og þeirra sem starfa við þjónustustörf eru langtum lægri hér en á hinum Norðurlöndunum, þrátt fyrir að tekið hefði verið tillit til verðlags og skatta.
Ályktun trúnaðarmannaráðs er svohljóðandi: Trúnaðarmannaráð SFR telur nauðsynlegt að hækka lægstu laun og millitekjur verulega í næstu kjarasamningum.
Næg innistæða er fyrir slíkum hækkunum og munu þær hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið.
Sporna þarf við aukinni misskiptingu í samfélaginu enda er hún meiri en áður þekktist og veldur
hún fátækt. Auka þarf kaupmátt launa þar sem mörg heimili glíma við alvarlegan greiðsluvanda.
Nauðsynlegt er að gefa styttingu vinnuvikunnar aukið vægi í komandi kjarasamningum.
Miðað við Norðurlöndin vinna Íslendingar flesta vinnutíma í fullu starfi og leggur
trúnaðarmannaráð SFR því áherslu á að tekið verði raunhæf skref í átt að styttingu vinnuviku og
þar með fjölskylduvænna vinnuumhverfi.///////////////Falleg hugsun þetta og góðra gjalda verð og allt það,en það sem vantar að stórum hluta er að endar ná ekki saman hjá fólki,það er málið og gott að setja þetta svona upp í framtíðinni ,en fyrst að leiðrétta launin og næst þá að hinum þessir samningar er að við áum laun í áföngum næstu 3 árinn í 3oo þus á mánuðuði og .það er engi goðgá að gera við þurfum enga millistétt en hún skapast auðvitað með lærdómi í mörgum fögum,og þar verður að stighækka,en aftur hækka á þeim stórtekjumönnum aftur um skattþrep,þetta er byrjunin á Jöfnun fólksins i landinu okkar og engin önnur nema þetta bil aukist enn nú meira//Halli gamli
![]() |
Lægstu laun verði hækkuð og vinnuvikan stytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Afar ólík sjónarmið komið fram Innlent | mbl.is | 5.2.2015 | 20:15 Áfengi.
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir að það hafi komið sér á óvart að aðrir nefndarmenn hafi lýst því yfir opinberlega að þeir vilji
svæfa áfengissölufrumvarpið í nefndÞetta segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, um yfirlýsingar annarra nefndarmanna sem
hafa sagt að þeir muni ekki standa fyrir því að frumvarp um áfengissölu verði afgreitt úr nefndinni.
Umræddir þingmenn eru Guðbjartur Hannesson, sem ræddi við Viðskiptablaðið, og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sem ræddi við Vísi.
Unnur Brá mótmælir því ekki að alþekkt sé að mál sofni í nefndum. En nú erum við búin að fara yfir málið, taka alla gesti, aðrar nefndir Alþingis hafa skilað umsögnum, og þess vegna sé ég ekki alveg ástæðuna fyrir því að gera það með þetta mál.
En ég sé að það eru ekki allir sammála mér, segir hún. Nefndinni hafa borist fjölmörg erindi um áfengissölufrumvarpið og hún hefur tekið á móti fjölda gesta, bæði úr verslunargeiranum og heilbrigðisgeiranum.
Unnur Brá segir mjög mismunandi sjónarmið uppi.
Það voru þessi lýðheilsusjónarmið sem voru mest áberandi hjá þeim sem voru andsnúnir málinu, síðan komu fram önnur sjónarmið sem töldu að þetta [frumvarpið] ætti jafnvel bara að ganga enn lengra, segir hún.
Hún segir fyrrnefnd sjónarmið ekki hafa haft áhrif á afstöðu sína til málsins en fyrir liggi ákveðnar breytingartillögur sem byggi á ábendingum. Í umsögn meirihluta velferðarnefndar um
frumvarpið var lagt til að allsherjar- og menntamálanefnd léti gera mat á lýðheilsuáhrifum frumvarpsins og samfélagslegum kosnaði af þeim breytingum sem það boðar.
Spurt að því hvort þessi möguleiki hafi verið skoðaður af nefndinni segir Unnur Brá nefndir Alþingis hvorki hafa fjármagn né starfsfólk til að sinna úttektum af þessu tagi og þá telji hún ekki þörf á því.
Hún segir fjölda rannsókna liggja fyrir hvað þetta varðar en menn séu hins vegar ósammála um áhrif þess að selja áfengi í verslunum.
Það er náttúrulega búið að opna gríðarlega mikið af útsölustöðum víða um land á undanförnum árum og menn eru að vísa í það að með einfaldara aðgengi verði svo mikil aukning.
En nú er búið að auka aðgengi mjög mikið á undanförnum árum í kjölfar þess að það er búið að
opna fleiri sölustaði og ég sé ekki að það hafi breyst mjög mikið neyslan við það, segir hún.
Unnur Brá segir óvíst hvenær niðurstaða um örlög frumvarpsins muni liggja fyrir.
//////////////////////////Unnur Brá. á ekki að taka afstöðu heldur styðja frelsið það sem flokkurinn stendur fyrir.þessi leikaraskapur eins og var lengi með Bjórinn er orðin okar mjög svo þreitandi og kemur okkur á kortið sem algjörum afturhaldseggjum,sem fólk hlær að hvarvetna!!!I næstu kosningum bara hjólum við um þetta og malið dautt!!!þetta er ekki eina málið sem þurfum að kjósa um,þau eru að varða mörg sem þessa þarf,ótalmörg,eða er ekki lýðræði hérna???Drífum í þessu og lofum einu sinni þjóðinni að ráða,þetta er sanngjarnast leiðin og einföld,afgreiðið hana með flýti!!!!/Halli gamli
![]() |
Afar ólík sjónarmið komið fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2015 | 20:36
Allt Vesturlöndum að kenna segir Pútín/Ekki er það nú alveg svo en meirihlutin samt!!
Allt Vesturlöndum að kenna segir Pútín Erlent | mbl.is | 9.2.2015 | 9:21 Vesturlönd bera ábyrgð á átökunum í Úkraínu að sögn Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands.
Pútín lét hafa þetta eftir sér í viðtali við egypskt dagblað í dag.
Að sögn Pútíns hafa vestræn ríki rofið heit um að auka ekki umsvif Atlantshafsbandalagsins og þau hafa neytt lönd til þess að velja á milli sín og Rússlands.
Rússnesk yfirvöld neita því að bera ábyrgð á skæruliðum sem styðja rússnesk yfirráð í Úkraínu. Þau segjast hvorki hafa útvegað þeim vopn né heldur hermenn.
Yfir 5.300 hafa látist og um ein og hálf milljón íbúa í Austur-Úkraínu hafa hrakist á brott af heimilum sínum vegna átakanna undanfarna mánuði.
Í frétt BBC kemur fram að kanslari Þýskalands, Angela Merkel, ætli að fara yfir stöðu
friðarviðræðna með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna en hún og François Hollande, forseti
Frakklands, hafa stýrt viðræðum við yfirvöld í Úkraínu og Rússlandi um vopnahlé.
////////////////Þetta er svo sjaldan einum að kenna þá margir deila,en þetta ofríki ESB og kanana og fleiri, óþolandi fyrir hin vestræna heim og og yfirgangur þessi að kenna Rússum um að vernda sitt fólk er yfirgengilegt,þar spilar inní Auðurinn í B.N.A. ESB og Frakklandi,takið eftir að BRETAR eru ekki hafðir með í ráðum,Pútín er ekki að gera neitt sem ekki aðrar þjóðir gera þegar á þær er ráðist,verja sig og sína,þessi þjóð Rússar hafa lifað hörmungar stórar í öllu ferli sýnu,og það hafa einnig Þjóðverjar og Frakkar gert en ekki B.N.A. utan Perluhöfn og að geta ekki í framhaldi seinni heimstyrjaldar haldið áfram að með að vera ekki i stríði,er ekki í lagi als ekki,samt örlar á skinsemd hjá Merkel vill bera klæði á vopnin og aðvara Obama og varaforseta hans,við að senda hertól til Úkraínu,og svo verður að mynda nýja línu landamæra Rússa og Úkraínu,og koma í veg fyrir árásir NATO þarna inn,þá er komið stríð sem ekki verður auðveldlega stoppað/Halli gamli
![]() |
Allt Vesturlöndum að kenna segir Pútín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2015 | 16:41
Mega nota skotvopn í brýnni neyð/loksins fáúm við að vita sannleikan,gott þó svo einkver sé ósáttur ,er þetta nokkuð vandað!!
Mega nota skotvopn í brýnni neyð Innlent | mbl.is | 9.2.2015 | 16:14 Myndin er úr safni. Lögreglumenn mega aðeins beita skotvopni gegn manni þegar önnur úrræði eru ekki tiltæk og brýna nauðsyn ber til.
Þeir skulu reyna að takmarka þann skaða sem af notkun skotvopnsins hlýst, til dæmis með því að skjóta í fætur viðkomandi.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í reglum um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna sem þáverandi dómsmálaráðherra setti árið 2009.
Leynd hefur hvílt yfir reglunum, en Ólöf Nordal innanríkisráðherra ákvað í dag að birta þær.
Þar kemur meðal annars fram að skotvopni megi aðeins beita gegn manni þegar lögreglumaður verst lífshættulegri árás á sig eða þriðja aðila, til þess að yfirbuga og handtaka afbrotamenn sem
teljast hættulegir lífi fólks eða öryggi ríkisins og koma í veg fyrir alvarlegt ofbeldi gegn
fólki eða að verulegu tjóni sé valdið á þjóðfélagslega mikilvægum hagsmunum eða stofnunum, rekstri þeirra eða starfsemi.
Í ýtrustu neyð skal lögreglumaður miða á stærsta hluta þess líkamshluta sem honum er sýnilegur.
Telji lögreglumaður að því verði við komið og aðstæður leyfa án þess að skapa aukna hættu fyrir hann eða aðra, skal hann reyna að takmarka þann skaða sem af notkun skotvopnsins hlýst svo sem
með því að skjóta í fætur viðkomandi, segir einnig í reglunum og er bætt við að hafi skotvopni verið beitt skuli ávallt veita alla hugsanlega aðstoð eftir á.
Í reglunum eru tilgreindar sex gerðir vopna sem lögregla getur beitt, kylfur, úðavopn, gasvopn, hvellvopn, skotvopn og sprengivopn.
Strangar reglur gilda um beitingu hverrar gerðar.
Lögreglumaður sem staðist hefur árlegt hæfnispróf skal fá afhent sérstakt skotvopnaskírteini til staðfestingar á því að hann hafi heimild til að nota viðkomandi skotvopn.
Í skírteininu skal tilgreina nafn og persónuupplýsingar ásamt upplýsingum um þau skotvopn sem
viðkomandi hefur heimild til að nota og gildistíma, að því er segir í reglunum.
///////////////////Þetta virðist bara vel samið og bara mjög svo öruggt ef vel er æft,þetta er stórt skref til bóta fyrir okkur að vita svona fyrirfram svona áætlanir ,þjappar okkur saman við Lögreglu og það gott,og þeir eiga einnig aðvera opnari sjálfir ekki skemmir það,og við erum þessa vissir að Lögregla verður vandanum vaxin// Einnig á Ráðherrann heiður skilið/Halli gamli
![]() |
Mega nota skotvopn í brýnni neyð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2015 | 16:15
Kannski er það best að hafa þessa Alþingismenn í fríi bara og stjórna utan þeirra!!!
En og aftur spyr maður til hvers er Alþingi Íslendinga sem eru í frí meiri partinn af árinni og tala svo um kauphækkun,halda þessir menn að manni komi þetta ekkert við,það er nú öðru nær í þessari viku núna sem fer til einskið gætum við klárað nokkur mál sem á liggur,þetta er veri að segja okkur sem fylgjumst með að allt sé gert til bóta þarna en fer bara hratt niðuráavið,Hvað er það sem hefur batnað ég bara spyr??Kjaftur stjórnarandstöðunnar eykst stórum og þeir komast upp með það,Einnar Kristinn sem Forseti sagður harður en hann lætur þetta fólk vaða uppí með ósamóma dag eftir dag þegar þeir mæta í vinnu,sem þíðir á mæltu máli að hann dregur taum þeirra sem láta mest.þið bara fólk sem segist skilja pólitík farið að horfa á þessi vinnubrögð og gefið koment/Halli gamli
Tíminn líður og enginn skoðar í alvöru þessar hækkanir sem um er talað,og við þurfum til að lifa af ,og við sem erum eldri en tvævetur erum orðin langeygð,eftir öðru en kæruleysislegum svörum Atvinnurekenda og Ríkis og Sveitafélögum,þetta er að þeir vita sem stjórna að það er komin tími á að fara sínu framá fá réttarbót okkar lægst launuðu,og svo bara stig hækkandi eftir það kannski bara krónutölu sem kemur í veg fyrir meiri verðbólgu,svo má bara taka á verðtryggunni og taka hana af i áföngum,eiginlega er það skilda að gera,svo og taka upp hæsta þrepið aftur í Skattinum,Ég segi og skrifa þetta er þannig að við öll erum búin að fá nóg að misréttinum,og viljum einfaldlega leiðréttingu,En hvað segja okkar menn,Sigmundur sagði borð fyrir Báru,Bjarni Ben. Fjarmálaráðherra er aftur ekki eins viss,og þar er ég hissa,ef flokkurinn okkar Bjarna er ekki tilbúin að vara flokkur allra stétta fer hann að þynnast/Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þau Vladimir Putin, Petro Pororshenko, Angela Merkel og Francois Hollande munu hittast í Hvíta-Rússlandi á miðvikudaginn.
Á fundinum í Minks munu þau reyna að finna lausn á Úkraínudeilunni.
Átök hafa geisað í Austur-Úkraínu frá því í apríl í fyrra og hafa minnst 5.300 látið lífið á þeim tíma.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, of Francois Holland, forseti Frakklands, hafa leitt þessa nýjustu tilraun til að koma á friði, en þau fóru til Rússlands á föstudaginn og funduðu með Putin.
Í dag ræddu þau þrjú, auk Poroshenko, saman í síma og ákváðu að halda fund í Hvíta-Rússlandi.
Samkvæmt BBC ræddu þau sín á milli um margar aðgerðir sem hægt sé að framkvæma til að stuðla að friði á milli aðskilnaðarsinna og stjórnvalda á Austur-Úkraínu.
VladimirPutin, forseti Rússlands, hefur þó gefið út að ekki muni verða af fundinum í Hvíta-Rússlandi ef ekki verði búið að samþykkja nokkur atriði.
Á morgun mun Putin þó fara til Bandaríkjanna og ræða við Barack Obama forseta Bandaríkjanna.
AP fréttaveitan hefur eftir John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að Evrópa og
Bandaríkin hafa íhugað að senda stjórnvöldum í Kænugarði vopn, en Þýskaland og Frakkland hafa
sett sig á móti því og segja að átökin, sem og deila, gæti magnast við það.
Rússar hafa gefið
út að bandarísk vopn í Úkraínu myndu hafa alvarlega afleiðingar.////////////////Það er ná svo að Hrafnarnir farnir að kroppa augun hver úr öðrum!!!En þetta ástand er löngu komið úr böndum og Rússar þar á milli tanna stórveldanna,ég sem hélt að Rússland væri eitt af þeim,eða er maður bara ekki með ennþá um þessar hugmyndir???Lesið um þetta og reynið að skilja hvað er í gangi,en þetta sem þarna er að ske er um Krísuna í Úkraínu og við sem vitum um aðstæður erum ekkert hissa,stór partur af Úkraínu er Rússneskumælandi og þetta fólk vill vetra Rússa megin og þar mun það enda,en Vesturveldin vilja þá inn í NATÓ og jafnvel ESB en það er ekki sjálfstæði þjóðarinnar,Ég sé ekki annað þarna en að þetta verði að vera samkomulag allra,annars stendur til heimstyrjöld og ekkert annað/Halli gamli
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar