27.10.2012 | 21:47
Hver er Mitt Romney?////Þetta er það sem fólkið á að vita,en veit ekki!!!
Hver er Mitt Romney? Erlent | mbl | 28.8.2012 | 20:37 Flokksþing Repúblikanaflokksins hófst í dag, en á fimmtudaginn flytur Mitt Romney, sem verður formlega útnefndur forsetaefni flokksins á þinginu, mikilvægustu ræðu á sínum stjórnmálaferli.
Romney er 65 ára gamall. Hann er kvæntur Ann Romney og þau eiga saman fimm syni. Faðir hans var ríkisstjóri í Michigan.
Romney var kosinn ríkisstjóri í Massachusetts árið 2002, en gegndi embættinu bara í eitt kjörtímabil því hann var búinn að setja stefnuna á forsetaembættið.
Honum tókst ekki að tryggja sér útnefningu flokksins árið 2008 þegar hann tapaði fyrir John MaCain, en í ár náði hann markmiði sínu. Romney er milljarðamæringur eftir að hafa efnast vel á því að kaupa og selja fyrirtæki.
Andstæðingar hans nota það gjarnan gegn honum að hann viti ekkert um lífsbaráttu venjulegs fólks og sé úr tengslum við bandarískt samfélag.
Stuðningsmenn Obama hafa líka hamrað á því að Romney hafi á viðskiptaferli sínum bútað fyrirtæki í sundur og lagt niður störf í stað þess að byggja upp atvinnulíf í Bandaríkjunum.
Hófsamur stjórnmálamaður Romney kemur ekki úr hægri armi Repúblikanaflokksins. Það er almennt ekki mikil eftirspurn eftir mjög hægrisinnuðum stjórnmálamönnum í Massachusetts og því rak Romney hófsama pólitík þar meðan hann var ríkisstjóri.
Hann beitti sér m.a. fyrir breytingum á heilbrigðislöggjöfinni sem stuðningsmenn Obama segja að feli um margt í sér svipaðar áherslur og Obama beitti sér fyrir í upphafi kjörtímabils síns.
Repúblikanar hafa gagnrýnt heilbrigðislöggjöf Obama harðlega og Romney hefur tekið undir þá gagnrýni.
Hnotskurn Mitt Romney fæddist 12. mars 1947. Hann er mormóni, en trúmál skipta alltaf máli í kosningum í Bandaríkjunum.
Áætlað er að eignir Romneys séu um 30 milljarðar króna. Verði Romney kjörinn verður hann einn af ríkustu forsetum í sögu landsins.
Þegar Romney var að berjast fyrir því að verða forsetaefni kom skýrt fram að flokksmenn úr hægriarmi flokksins vantreystu honum.
Þeim þótti hann vera of reikull og efuðust um að hann væri rétti maðurinn til að fylgja eftir stefnubreytingu sem þeir telja nauðsynlega til að koma Bandaríkjunum á rétt spor eftir stjórnartíð Obama. Ann Romney flytur ræðu á þinginu í kvöld.
AFP Romney hefur því þurft að leggja talsvert á sig til að telja hægrisinnuðum kjósendum í Bandaríkjunum, m.a. í Teboðshreyfingunni, trú um að hann sé rétti maðurinn. Jafnframt þarf hann að fá þá sem eru á miðjunni og eru óánægðir með Obama til að kjósa sig.
Hann þarf að ná til minnihlutahópa og kvenna. Ræðumenn á flokksþinginu sem hófst í dag sækja m.a. fylgi sitt til þessara hópa. Efnahagsmálin vega þyngst Styrkleikar Romneys liggja ekki síst á sviði efnahagsmála.
Skoðanakannanir sýna að kjósendur treysta Romney betur en Obama til að laga það sem úrskeiðis hefur farið í efnahagsmálum. Ef Romney á að sigra þarf honum að takast að láta kosningabaráttuna snúast um efnahagsmál og frammi
stöðu Obama í þeim málum. Þess vegna hefur Romney tæplega verið ánægður með framlag Todds Akins, þingmanns frá Missouri, sem sagði í sjónvarpsviðtali að konur gætu komist hjá því að sönn nauðgun leiddi til þungunar.
Í nokkra daga var ekki fjallað um annað en fóstureyðingar og stefnu flokksins í þeim málum. Þessi umræða var eins og himnasending fyrir Obama og hefur án efa fengið sumar konur til að hugsa sig um tvisvar áður en þær ákvæðu að kjósa Romney.
Obama með heldur meira fylgi Kannanir síðustu vikur sýna að Obama er með um 1,4% meira fylgi en Romney.
Obama er með meira fylgi en Romney í lykilríkjum eins og Flórída, Ohio, Michigan og Virginíu. Romney vonast eftir að honum takist að ná eyrum kjósenda á flokksþinginu sem dugi til að hann nái forskoti í könnunum. Það er því mikilvægt fyrir hann að vel takist til á þinginu, en því miður fyrir hann hefur athygli fjölmiðla beinst síðustu tvo daga að fellibylnum Ísak sem nú er að ganga á land í suðurríkjum Bandaríkjanna.
/////////////Þetta er í stuttu máli ferill hans og það að hann er braskari er það árátta að kalla okkur sjálfstæðismenn hlynnta honum ,það erum við held ég als ekki,nema auðvitað einhverjir?? en þetta er ekki maður allra og er auðkífingur sem sennilega hefur aldrei difið hendinni i kalt vatn eð unnið neitt slíkt nema kaupa og selja og græða!! persónulega er ág á móti flestu sem hann er með á prjónum ,nema hann er núna allt í einu að mildast og vill bæta þetta og hitt,þvi miður er hægri armur flokksins það sterkur að þessu verður ekkert fylgt eftir,en við bara skoðum málin og vonum að fellibylurinn verði ekki eins slæmur og Ramney er í eðli sínu,en þetta er bara mín skoðun!!!!/Halli gamli
![]() |
Hver er Mitt Romney? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 21:18
Er ekki með klámmyndapíku/Nei ekki er maður neitt hneiklaður!!!!!
Er ekki með klámmyndapíku Innlent | mbl | 27.10.2012 | 20:25 Aðgerðum á skapabörmum kvenna hefur fjölgað á undanförnum árum. Því er oft haldið fram að þær megi rekja til klámmyndavæðingar og séu helst gerðar á ungum stúlkum.
Lýtalæknir segir það ekki rétt. Rúmlega fertug kona, sem fór í slíka aðgerð fyrir nokkru, segir þá hafa valdið sér ýmsum óþægindum. g ekki þarf annað en að slá setningunni aðgerðir á skapabörmum upp í leitarvélum á netinu til að sjá ýmsar fullyrðingar um að þetta sé enn eitt dæmið um útlitskúgun kvenna.
Þá er því gjarnan haldið fram að kornungar stúlkur séu í meirihluta þeirra sem fara í aðgerðir sem þessar. Mbl.is ræddi við rúmlega fertuga konu sem lét minnka skapabarma sína fyrir nokkrum árum.
Hún segir þá hafa valdið sér óþægindum, bæði andlegum og líkamlegum, en segist ekki hafa sagt sínum nánustu frá aðgerðinni vegna fordóma og ranghugmynda um aðgerðir af þessu tagi.
Hnotskurn Aðgerðir á skapabörmum kvenna hafa færst í vöxt á undanförnum árum. Ágúst Birgissonlýtalæknir segir það ekki algengt að ungar stúlkur fari í slíkar aðgerðir. Yfirleitt sé um eldri konur að ræða.
Hann segir umhugsunarefni hvers vegna svo miklir fordómar séu gagnvart aðgerðum á skapabörmum kvenna, þegar karlar sem fari í aðgerð á forhúð mæti allt öðru viðhorfi. Lýtalæknir, sem hefur framkvæmt allnokkrar aðgerðir af þessu tagi segir fáar kvennanna vera tiltölulega ungar og í langflestum tilvikum taki þær þessa ákvörðun að vel athuguðu máli og vegna þess að þær hafi orðið fyrir óþægindum vegna stórra skapabarma.
Hann segir aðgerðina ekki ósvipaða því þegar karlar láti minnka forhúð sína, en það sé aftur á móti ekkert feimnismál. Eins og aðrir líkamspartar fólks eru ytri og innri skapabarmar kvenna mjög mismunandi, bæði hvað varðar hvað form og stærð.
Sumum konum finnst skapabarmar þeirra vera stórir og stundum hefta þeir þær við íþróttaiðkun, hjólreiðar eða við kynmök.
Í aðgerðinni eru skapbarmarnir minnkaðir. Það er yfirleitt gert í staðdeyfingu og tekur um eina klukkustund. Konurnar fara heim til sín stuttu eftir aðgerðina, saumarnir eyðast sjálfir og þarf því ekki að fjarlægja þá.
Aðgerðirnar eru bæði framkvæmdar af lýtalæknum og kvensjúkdómalæknum og fengust ekki upplýsingar um hversu margar aðgerðir af þessu tagi hafa verið gerðar hér undanfarin ár. Ekki hægt að tala um tískufyrirbrigði Einn þeirra lýtalækna sem hafa gert aðgerðir á skapabörmum kvenna er Ágúst Birgisson. Það er varla hægt að segja að það sé mikið gert af þessum aðgerðum. Þeim fer fjölgandi en það er alls ekki hægt að tala um tískufyrirbrigði í þessu sambandi, segir Ágúst.
Þær eru algengari í nágrannalöndunum, til dæmis í Svíþjóð. Hann segir aðalástæðu þess að konur fari í aðgerðir sem þessa vera þau óþægindi sem stórir skapabarmar valdi. Með því að minnka skapabarmana náum við mjög góðum árangri og yfirleitt eru konur mjög ánægðar eftir þessar aðgerðir.
Ágúst segir aðgerðirnar yfirleitt ganga vel fyrir sig. Þetta er tiltölulega lítil aðgerð. En það er eins með þetta eins og allar aðrar skurðaðgerðir. Þær geta valdið aukaverkunum; sýkingum eða blæðingum.
Ef farið er of nálægt viðkvæmum svæðum í aðgerðinni, þá getur það valdið vandamáli í kynlífi. En þegar þetta er gert varfærnislega, þá eru þessi vandamál miklu sjaldgæfari.
Þannig að það er hægt að framkvæma þessa aðgerð á mismunandi vegu. Fordómar gagnvart þessum aðgerðum Hann segist greinilega hafa orðið var fordóma gagnvart konum sem fari í aðgerðir á skapabörmum og hefur borið saman þessar aðgerðir og aðgerðir á forhúð karla.
Það þykir engum tiltökumál ef karlmaður fer í minnkun á forhúð. En svo þykir það stórmál þegar konur fara í skapabarmaaðgerðir, sem er reyndar nokkuð minni aðgerð. Almenningur lítur mismunandi á þessar tvær aðgerðir, það er gríðarleg vanþekking á þessari aðgerð úti í samfélaginu og margir vita ekkert um í hverju hún er fólgin. Sumir halda líka að verið sé að gera aðgerð á innri kynfærum.
En konurnar sjálfar eru líka feimnar við að láta það fréttast að þær hafi farið í slíka aðgerð. Hefur ekkert með klám að gera Sumir tala um að skapabarmaaðgerðir séu afsprengi klámvæðingarinnar og að þeir sem fari í slíkar aðgerðir séu ungar stúlkur, sem eigi eftir að taka út andlegan og líkamlegan þroska.
Ég á erfitt með að tjá mig um nákvæmlega hvers vegna einstakar konur velja að fara í svona aðgerð, segir Ágúst. En ég held að ég geti fullyrt að það hafi ekkert með klám að gera. Konur láta minnka skapabarmana einfaldlega vegna þess að þeir valda þeim óþægindum, til dæmis nuddast þeir við buxur á reiðhjóli eða á hestbaki.
Vissulega er þetta á gráu svæði; hvað er útlit og hvað er óþægindi? Við erum að tala um konur á öllum aldri, en fáar þeirra eru mjög ungar. Það sem flestar þeirra segja eftir aðgerðina er að þær vildu óska þess að hafa látið gera hana miklu fyrr.
Var strítt á útliti kynfæranna Rúmlega fertug kona, sem fór í aðgerð á skapabörmum fyrir nokkrum árum, segist ekki vilja segja vinum og vandamönnum frá því vegna þess að svo oft sé rætt um slíkar aðgerðir sem afsprengi klámmynda og útlitsdýrkunar. Hún ákvað að fara í aðgerðina vegna þess að henni var strítt á útliti kynfæranna þegar hún var barn og vegna þess að stórir skapabarmar ollu henni óþægindum. Hún segir mbl.is sögu sína.
Upphafið var þegar ég var 11 eða 12 ára og var í sturtu eftir leikfimi. Ein af stelpunum fór að gera grín að kynfærunum á mér fyrir framan allan hópinn, segir konan. Fram að þessu hafði ég ekki hugmynd um að það væri eitthvað athugavert við kynfærin á mér, ég hafði aldrei skoðað þetta svæði líkamans og vissi ekki að ég væri öðruvísi en aðrir á nokkurn hátt. Ég hafði verið afar sátt við mig og minn líkama. En þennan dag var mér sagt hvað væri að mér. Rey
ndi að komast hjá því að fara í almenningssturtu Eftir þetta var ég að drepast úr minnimáttarkennd vegna þessa. Ég varð ofsalega feimin þegar ég átti að fara í almenningssturtur og reyndi að komast hjá því eins og ég gat.
Ef það var ekki hægt, þá reyndi ég stilla mér þannig upp að kynfærin á mér sæjust ekki, ég setti annað lærið framfyrir hitt eða sneri baki í alla hina. Ég var svo meðvituð um þetta og jafnaði mig aldrei á þessu. Þegar ég skoðaði síðan á mér kynfærin, þá sá ég að þau litu öðruvísi út en á öðrum. Innri skapabarmarnir voru óvenjulega síðir og þeir ytri mjög litlir.
Læknirinn lét eins og þetta skipti engu máli Konan segir að mörgum árum síðar, er hún fór að stunda kynlíf, hafi þetta setið mjög í henni. Ef fólk hefur miklar áhyggjur af líkama sínum, þá slakar það ekki á og nýtur þess ekki.
Ég var viss um að ég væri allt öðruvísi en aðrar konur. Enginn af kærustum mínum gerði neinar athugasemdir. En aftur á móti fann ég hjá ungum stúlkum í almenningssturtum að þeim þótti eitthvað athugavert við mig.
Ég lenti til dæmis oftar en einu sinni í því í sundi að unglingsstúlkur störðu á kynfærin á mér og pískruðust á. Fljótlega eftir tvítugt ákvað konan að taka af skarið og ræða þetta við kvensjúkdómalækni sinn, en þá voru skapabarmarnir farnir að valda henni margvíslegum óþægindum. Það var rosalega erfitt að vekja máls á þessu.
Þess vegna var það áfall þegar læknirinn lét eins og þetta skipti engu máli. Nokkrum árum síðar ákvað ég að ræða þetta við annan lækni sem sýndi þessu skilning. Hún sagði að ég væri vissulega með síða skapabarma, en sagðist hafa séð verri tilvik og vildi ekki gera aðgerð á mér til að minnka þá. Af hverju fór ég ekki fyrr í aðgerðina?
Síðan liðu nokkur ár. Þá rakst ég á viðtal í blaði við lýtalækni sem gerði svona aðgerðir. Þá hugsaði ég með mér: Þetta hefur angrað mig í 30 ár.
Af hverju geri ég ekki eitthvað í málinu? Ég fór til læknisins, sem samþykkti strax að gera aðgerðina. Hún gekk vel, ég náði mér fljótt og núna er ég miklu sáttari við mig en ég var. Ég hugsa oft: Af hverju fór ég ekki fyrr í aðgerðina?
Seinna fór ég til kvensjúkdómalæknisins míns, þeirrar sem neitaði mér um aðgerðina á sínum tíma, og sagði henni að ég hefði farið í skapabarmaaðgerð. Hún sagði að ef hún hefði vitað hvað þetta væri mikið mál fyrir mig, þá hefði hún gert þessa aðgerð á mér.
Það er talað um svona aðgerðir á lítilsvirðandi hátt Ég hef ekki sagt vinum mínum eða ættingjum frá því að ég hafi farið í svona aðgerð og ætla ekki að gera það. Það er aðallega út af því að margir tengja aðgerðir á skapabörmum við klámmyndavæðingu.
Það er talað um svona aðgerðir á lítilsvirðandi hátt og spurt hvað sé eiginlega að konum sem fari í aðgerðir sem þessar. Ég hafði ekki séð klámmynd þegar ég var 11 ára og uppgötvaði að kynfærin á mér voru öðruvísi en á flestum öðrum.
Reyndar hef ég ekki séð margar klámmyndir um ævina, en það kemur málinu bara ekkert við. Þetta var einfaldlega eitthvað sem olli mér vanlíðan bæði á líkama og sál. Aðgerðin tókst vissulega vel, en ég er ekki með neina klámmyndapíku, eins og sumir vilja kalla það./////////Auðvitað er þetta oft feimnismál!!! en á ekki að vara það hvorki hjá karli eða Konu, þetta er heilbrygðismál oft!! og mjög þarft að geta tjáð sig um svona við lækni sinn og Jafnvel foreldra eða umráðmenn,þetta á bara að kenna um i skolum eins og kynlof og annað í eldri bekkjum,það er svo margt sem þarf að kynna meira i lífinu það er óteljandi sem hægt er að fræða fólk án kláms og svoleiðis,þetta á að gera meira af ekki spurning/Halli gamli
![]() |
Er ekki með klámmyndapíku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 17:13
Vilja að tekið verði á svartri atvinnustarfsemi///það ætti alltaf að hafa verið!!!!

![]() |
Vilja að tekið verði á svartri atvinnustarfsemi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 16:56
Arteta tryggði Arsenal sigur á QPR//naumt var það stórskotlið,en markmaður QPR flottur!!!
Arteta valsdeildinni í fótbolta í dag en Mikel Arteta skoraði sigurmarkið á 84. mínútu. QPR missti mann af velli þegar Stéphane Mtryggði Arsenal sigur á QPR
Íþróttir | mbl.is | 27.10.2012 | 15:35 Arsenal vann sigur á QPR, 1:0, í ensku úrbia lét reka sig af velli fyrir heimskulegt brot.
QPR hefur enn ekki unnið leik í deildinni og það sama má segja um Reading sem gerði jafntefli við Fulham á heimavelli í dag, 3:3, í skemmtilegum leik.
Stoke og Sunderland skildu jöfn, markalaus, og þá vann Wigan sigur á West Ham, 2:1. Úrslit dagsins má sjá hér að neðan.
Arsenal - QPR 1:0 LEIK LOKIÐ (Mikel Arteta 84.) Reading - Fulham 3:3 LEIK LOKIÐ (Mikele Leigterwood 26., Garath McCleary 85., Hal Robson-Kanu 90. Bryan Ruiz 61., Chris Baird 77., Dimitar Berbatov 88.) Stoke - Sunderland 0:0 LEIK LOKIÐ Wigan - West Ham 2:1 LEIK LOKIÐ (Iván Ramis 8., James McArthur 47. James Tomkins 90.) --- ÖLLUM LEIKJUNUM ER LOKIÐ. READING JAFNAÐI Í 3:3 OG WEST HAM KLÓRAÐI Í BAKKANN GEGN WIGAN. 15.46 MARK Á MADJESKI! - 2:3.
Eða ekki! Dimitar Berbatov kemur Fulham aftur yfir á 88. mínútu. 15.43 MARK Á MADJESKI! 2:2. Reading jafnar. Garath McCleary skorar á 85. mínútu.
Enn tími til að tryggja sér fyrsta sigurinn í deildinni. 15.40 MARK Á EMIRATES! - 1:0. Eftir stórkostlega markvörslu Júlios Cesars og darraðadans í teignum skorar Mikel Arteta í annarri tilraun af stuttu færi fyrir Arsenal á 84. mínútu. QPR verður áfram án sigurs eftir þennan leik. 15.37 RAUTT! Stéphane Mbia gerir sig sekan um heimskulegt brot á Vermaelen og er rekinn af velli.
Hann sparkar á eftir Belganum því hann er fúll að hafa ekki fengið aukaspyrnu.
QPR manni færri.
15.36 MARK Á MADJESKI! - 1:2. Reading er ekki að fara vinna sinn fyrsta leik í dag. Fulham kemst yfir á 77. mínútu með marki Chris Baird eftir hornspyrnu Ruiz. 15.20 MARK Á MADJESKI! - 1:1. Fulham jafnar gegn Reading. Bryan Ruiz skorar á 61. mínútu leiksins. Reading er enn án sigurs.
15.05 MARK Á DW-VELLINUM - 2:0. Wigan er komið í góða stöðu gegn West Ham. James McArthur bætir við öðru marki á 47. mínútu fyrir heimamenn. 15.01 Seinni hálfleikur er að hefjast. 14.47 Hálfleikur hjá Arsenal og QPR, enn markalaust. 14.27 MARK Á MADJESKI! - 1:0. Nýliðar Reading taka forustuna gegn Fulham. Mikele Leigertwood skorar á 26. mínútu eftir sendingu frá Jobi McAnuff. 14.10 MARK Á DW-VELLINUM! - 1:0. Wigan skorar fyrsta markið í leikjunum sem hófust klukkan tvö. Það er Iván Ramis sem kemur liðinu yfir á 8. mínútu gegn West Ham.
14.00 LEIKIRNIR ERU AÐ HEFJAST 13.57 Liðin eru að ganga út á völlinn á Emirates-vellinum í London.
Jack Wilshere fær eðlilega hressilegt lófatak enda að snúa aftur eftir 16 mánaða fjarveru. 13.35 Það eru gleðitíðindi úr herbúðum Arsenal því Jack Wilshere er í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í langan tíma. Það sama má segja um Bakary Sagna. Arsenal: Mannone, Vermaelen, Mertesacker, Santos, Sagna, Arteta, Cazorla, Wilshere, Ramsey, Podolski, Giroud QPR: Cesar, Diakite, Traore, Taarabt, Wright-Phillips Granero, Nelsen, Bosingwa, Hoilett, Zamora, Mbia. //////////loksins tókst Arsenal að vinna leik,komin tími á það,en þetta var erfitt mjög,og rétt að við höfðum þetta,en vonandi brítur þssi leikur upp hæfinina til lengri tíma!!en það mátti ekki muna miklu að þeir jöfnuðu þetta QPR!!!!!/Halli gamli
![]() |
Arteta tryggði Arsenal sigur á QPR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 15:33
Barist um nýja og gamla Ísland//nú er hún gamla Gríla dauð,minn tími kom og var misnotaður???
Barist um nýja og gamla Ísland Innlent | mbl.is | 27.10.2012 | 13:57 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag að Sjálfstæðisflokkurinn væri og yrði höfuðandstæðingur jafnaðarmanna.
Samfylkingin vill áfram nýja Ísland en Sjálfstæðisflokkurinn hið gamla, sagði Jóhanna á fundinum. óhanna sagði við flokksmenn sína að Samfylkingin gæti svo sannarlega borið höfuðið hátt núna þegar líður að lokum þessa kjörtímabils.
Í næstu kosningum verður kosið um það hvort þjóðin vill halda áfram á þeirri braut sem við jafnaðarmenn höfum nú markað í átt til nýja Íslands, eða hvort horfið verður til baka til gamla Íslands áranna fyrir hrun, sagði Jóhanna. Vill stjórnarskrá sprottna úr jarðvegi dagsins í dag Jóhanna sagði að með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um síðustu helgi hefði verið stigið risavaxið skref í því stóra baráttumáli jafnaðarmanna að þjóðin fengi nýja stjórnarskrá, nútímalega og sprottna úr íslenskum jarðvegi dagsins í dag.
Þjóðinni hefur nú tekist, það sem þingheimi hefur mistekist allt frá lýðveldisstofnun, að móta Íslandi nýja stjórnarskrá í stað þeirra sem samþykkt var við lýðveldisstofnun til bráðabirgða. Þessi niðurstaða þjóðarinnar er fengin í einu lýðræðislegasta mótunarferli sem nokkurn tíma hefur verið reynt í öllum tilraunum til að breyta stjórnarskránni frá lýðveldisstofnun
. Sú staðreynd gerir vandaða niðurstöðuna enn ánægjulegri en ella í mínum huga, sagði Jóhanna. Jóhanna vék að nýlegum dómi Hæstaréttar og sagði: Í ljósi nýjasta dóms Hæstaréttar eru allar grundvallarforsendur varðandi útreikningana komnir á borðið og því ekki eftir neinu að bíða með endurreikning lánanna amk hvað varðar heimilin og öll smærri fyrirtæki landsins. Frekari undansláttur fjármálastofnannavarðandi þessa útreikninga verður ekki liðinn lánin þarf að endurreikna strax!
Boðaði átök við Sjálfstæðisflokkinn um ríkisfjármál Jóhanna sagði að í kosningabaráttunni yrði tekist á um hvort skera ætti meira niður í ríkisfjármálum eða ekki.
Hún sagðist ekki telja að hægt væri að ganga lengra í niðurskurði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sagt það alveg skýrt, að komist þeir til valda muni þeir ráðast í verulegan niðurskurð, að ekki sé nægjanlega skorið niður á fjárlögum og þekki ég þá rétt verður velferðarkerfið þar helst undir.
Það blasir við öllum að slíkur niðurskurður verður mjög sársaukafullur. Við erum einfaldlega komin inn að beini í ríkisrekstrinum eftir aðhaldsaðgerðir undan genginna ár.
Það blasir einnig við að stórfelldur niðurskurður á ríkisútgjöldum mun bitna mest á þeim sem síst skyldi, öldruðum, öryrkjum, atvinnulausum, skuldsettum heimilum og millitekjuhópum eða þeim sem starfa eða sækja þjónustu velferðarkerfisins heilbrigðisstofnunum, skólum eða öðrum samfélagslegum verkefnum okkar.
Slíkur niðurskurður getur aldrei orðið annað en leiftursókn gegn lífskjörum þeirra sem síst skyldi, sagði Jóhanna.
Afdrifarík ákvörðun um ESB á næsta kjörtímabili Jóhanna sagði að ein afdrifaríkasta ákvörðun þjóðarinnar á næsta kjörtímabili muni lúta að mögulegri aðild Íslands að ESB. Þar er um slíka hagsmuni að tefla fyrir heimili og fyrirtæki þessa lands að fátt eitt mun breyta eins miklu um lífskjör á Íslandi næstu áratugina og sú ákvörðun.
Enn er ósamið um nokkra mikilvæga kafla í ferlinu, svo sem í gjaldmiðlamálum og sjávarútvegsmálum, en það sem þegar hefur komið fram í viðræðunum gefur okkur fullt tilefni til bjartsýni um að samningamönnum okkar takist að ljúka góðum samningi fyrir Ísland.
Öll þekkjum við þá stórauknu möguleika sem aðild að ESB myndi færa ungu fólki og vísindasamfélaginu, þau hagstæðari rekstrar skilyrði sem fyrirtæki myndu njóta, bæði til fjárfestinga hér á landi og ekki síður til að sækja fram á nýja markaði.
Og öll þekkjum við þær samfélaglegu umbætur , frið og farsæld sem ESB hefur haft í för með sér og hafa nú orðið til þess að sambandinu hafa verið veitt friðarverðlaun Nobels. Allt mælir þetta með aðild Íslands að ESB þegar til framtíðar er litið
. Möguleg aðild að ESB og upptaka evru er háð því að Samfylkingin verði áfram í forystu við ríkisstjórnarborðið á næsta kjörtímabili. Samfylkingin er og hefur verið brjóstvörn allra þeirra sem hafa viljað láta á aðild að ESB reyna. Vegna Samfylkingarinnar erum við komin þangað sem við erum komin í því ferli, sagði Jóhanna.//////////////Þessi manneskja er bara frekja og engin jafnaðarmaður,hefur aldrei rekist vel í flokki nema ráða helst öllu,flakkað burt,og sagt minn tími mun kom,og það varð drap allt sér og komst í formanninn í Samfylgingu!!þar í stjórn með sjálfstæðisflokki,og er þar ráðherra,en þá kemur kreppan á vakt þeirra beggja,en kerla kann þetta,os sá sér leik á borði og samdi við Steingrím V.G.um mynnihlutasjórn að kosningum og einnig plataði hún Sigmund nýkjörin formann Framsóknar í að verja hana falli,og kvað allt í upplausn við Alþingi gerð árás eftir árás,og hiti í fólki,og kosningar og þau vinna meirihluta tæpan og gera samning,en skít í Framsókn og Sigmund og svo vita allir árangurin!!!og við nú að vona að við sem í stjórnaranstöðu höfum verið fáum fylgi til að stjórna þessu landi til sóma!!!ég held að það sé það eina rétta/Halli gamli
![]() |
Barist um nýja og gamla Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.10.2012 kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.10.2012 | 14:01
Brimborg frumsýnir rafmagnsbí///það er kannski framtíðin eftir nokkur ár!!!
Brimborg frumsýnir rafmagnsbíl Bílar | mbl.is | 26.10.2012 | 16:55 Þeim fer sífjölgandi rafmagnsbílunum sem í boði eru hér á landi.
Einn þeirra er af Citroën-gerð, ber nafnið C-Zero og verður frumsýndur í Brimborg á morgun. Með hækkandi heimsmarkaðsverði á bensíni og auknum álögum stjórnvalda er rafmagnsbíll kostur sem sífellt fleirum finnst orðinn fýsilegur.
Með því að festa kaup á rafbíl geta menn sparað tugþúsundir króna í hverjum mánuði þar sem eldsneytiskostnaður dettur algerlega út.
Auk þess hafa stjórnvöld afnumið vörugjöld á rafbílum og enginn virðisaukaskattur er greiddur við kaup á Citroën C-Zero. Það er því ekki nema von að margir velti því fyrir sér af alvöru hvort ekki sé rétt að fjárfesta í rafbíl þar sem fjárhagslegur ávinningur slíkra kaupa getur verið töluverður auk þess sem þeir eru vistvænir og losa ekkert koldíoxíð út í andrúmsloftið.
En þar sem margir hafa ekki reynslu af því að eiga rafbíla er eðlilegt að menn velti því fyrir sér hver sé helsti ávinningur, hverjir hugsanlegir ókostir fylgi slíkum kaupum og hvort rafmagnsbíll sé rétti bíllinn fyrir sig.
Sýningargestum gefst færi á að hitta ráðgjafa Brimborgar sem munu svara spurningum um bílinn og þeir hafa tekið saman lista með 49 algengum spurningum og svörum um Citroën C-Zero. Þar geta menn fengið svör við spurningum á borð við hvað kosti að reka slíkan bíl á ári, hve lengi hleðslan dugi, hvernig árekstrarvörnum sé háttað og hver akstursdrægnin sé. Kynning bílsins stendur frá kl. 12 til 16 á morgun./////////Ég hefi mikin áhuga eins og margir fyrir rafmagnsbifreiðum!!en ættla að skoða þennan næstu daga,endilega en þetta er bara innabæjarbíll að mínu áliti,drægni í kulda ekki meiri en 80 km er of lítið fyrir lengri leiðir,við áhugasamir um umkverfismál og sparnað á gjaldeyri,og getum ekki átt tvo bíla,verðum að bíða eftir stærri og langdrdrægari bíl sem kemst 400 km á hleðlu og það með öllu!!!þetta er allt í hönnun,en það er einnig,Metanið ég ek einum slíkum Jeppa frá Benna Cevrolett Captífu og kemst hann um 400 km á hleðlunni,en þarna er komið svolitið próblem strax það fjölgar svo ört þarna af bíum að það er oft ekkert af metani til hjá N-1 sem hfur þvi miður einkaleyfi á söllu þarna og bara á einum stað í ártúnsbrekku,á í gám í hafnarf.en það er sagt að nóg hráefni sé til her næstu ár og Akureyri verði tilbúið í febúar á næsta ári,svo er verið að skoða þetta á austfjörðum,hringinn þarf þetta að vera hægt að fara í framtíð!!þetta eru bæði framtíðareldsneiti,því Metan bíllin kemst alltaf áfram á meðan bensín er til!!!en það gerir rafbíllin ekki nema tvinnbílar!!!En þegar maður er búin að skoða þetta betur lítur maður betur á þetta!!!!!///Halli gamli
![]() |
Brimborg frumsýnir rafmagnsbíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 11:31
Gagnrýnir forseta Alþingis/Sitt sýnist hverjum um það,Björn Valur vill rikisendurskoðun burt!!!
Gagnrýnir forseta Alþingis Innlent | mbl.is | 27.10.2012 | 10:38 Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, gagnrýnir Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis á vefritinu Smugunni í dag
Það er pínlegt fyrir þingið að forseti þingsins skuli hafa tekið þessa afstöðu og ekki reynt, hið minnsta að setjast niður og ræða málin við þingmenn og þær þingnefndir sem í hlut eiga, segir Björn Valur Gíslason formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Hann segir að allt sé óbreytt í samskiptum Ríkisendurskoðunar og þingsins. Þar sé trúnaðarbrestur. Ásta Ragnheiður hefur ákveðið að hraða úttekt á Ríkisendurskoðun sem stendur yfir þessa mánuðina af hálfu ríkisendurskoðun í Hollandi, Svíþjóð og Noregi.
Forseti þingsins ákvað að gera þennan vandræðagang að alþjóðlegu vandamáli og vísa þessu til annarra landa án þess að ráðfæra sig við neinn nema ríkisendurskoðanda, segir Björn Valur.
Annað hvort veit forseti Alþingis ekki um hvað úttektin snýst eða hefur fengið rangar upplýsingar sem koma þessu tiltekna máli ekkert við. Við höldum auðvitað okkar striki en þetta voru vonbrigði.
Forseti þingsins hefði getað valið að standa að málinu að myndugleika til að reyna að endurbyggja traust á þinginu og stofnuninni.
Mér fannst þetta vond ákvörðun og hef sagt henni það.////////Björn Valur hefur sterkar skoðanir !!!og þá má hann hafa ,þessi stormur!!! hans fór samt frammúr sér að miklu leiti, allt vill sína sögu hafa og hún ekki til fyrirmyndar,en að hrópa svona upp þetta allt sem er svo bara eiginlega flestum að kenna er ekki það erfiði sem hann ættlaði að koma af stað,það er svo með þennan mann sem að manni snír þarna,þá er hann ekkert annað en kjatfurinn og brigslar öllum eitthvað ílt,þekki manni als ekki persónulega má vera að þarna undir sé ágætis maður,en sögurnar bera það ekki ,en ekki veit ég sann leiksgildi þeirra,við bara vonum að hans líkar fái ekkert framgang í næstu kosningum fyrir okkar allra hönd/Halli gamli
![]() |
Gagnrýnir forseta Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 11:09
Varð að stela þessu frá þessum ágæta penna,segir þetta svo vel,veit með fyrirgefst þetta!!!
Heldur Jóhanna, að hún sé dóttir sama Sigurðar og Jón? 27.10.2012 | 06:39 Sífellt verður undarlegra að fylgjast með stjórnarskrármálinu. Evrópuvaktin skýrir frá því 26. október, að
"Ekki liggur fyrir nein stefna hjá forsætisráðherra eða ríkisstjórninni um hvaða breytingar gera þurfi á stjórnarskránni fyrir eða í kjölfar hugsanlegrar inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn frá Atla Gíslasyni alþingismanni sem lagt var fram á þingi fimmtudaginn 25. október, fimm dögum eftir að ríkisstjórnin lagði fyrir þjóðina spurningar í skoðanakönnun um afstöðu til nýrrar stjórnarskrár." Enn fremur segir í grein Evrópuvaktarinnar:
"Í svari forsætisráðherra segir að ESB-aðildarviðræðurnar feli í sér ítarlega skoðun allra málaflokka og íslenskrar löggjafar í samanburði við löggjöf og regluverk Evrópusambandsins.
Til ráðgjafar og stuðnings í viðræðunum starfi sérstakur hópur um lagaleg málefni. Björg Thorarensen, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er formaður hópsins og jafnframt einn varaformanna viðræðunefndar Íslands við ESB." Hópurinn kom síðast saman 9. janúar í ár.
Engu er líkara en ríkisstjórnin og Jóhanna Sigurðardóttir séu að leika hlutverk í leikriti um arftaka Jóns Sigurðarsonar í sjálfstæðisbaráttu Íslands.
Vandamálið er bara að ef aðildarferlið að ESB, sem er í fullum gangi, er tekið út úr myndinni, þá vantar grundvöll sjálfstæðisbaráttunnar.
Þetta leikrit er greinilega samið af sama leikritahöfundi og "kíkja í pakkann" leikritið. Þá sagði ríkisstjórnin: "Nei, nei, sei, sei, nei. Við erum sko EKKI að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Við erum bara að kíkja í pakkann, og fá að vita hvað það felur í sér að sækja um áður en við ákveðum, hvort við ætlum að sækja um.
" Allir vita, hvað þetta þýddi. Ísland sendi inn umsókn um aðild að ESB og er í bullandi aðlögun að kröfum ESB, sem ríkin þurfa að uppfylla til að geta orðið meðlimir.
Breytingar á stjórnarráðinu, - þar á meðal niðurlegging sjávarútvegsráðurneytisins - eru dæmi um aðlögunina, þótt hagfræðiprófessorinn, formaður Stjórnlagaráðs, sem kom í stað hins ólöglega Stjórnlagaþings, kalli það "nafnabreytingu".
Núna segir ríkisstjórnin: "Nei, nei, sei, sei, nei. Við erum sko EKKI að aðlaga stjórnarskrána að Evrópusambandinu. Við erum bara að búa til nýja fullveldisfullkomnari stjórnarskrá áður en við kíkjum á breytingar vegna hugsanlegrar ESB-aðildar.
" Það er ekki erfitt að skilja, hvað það þýðir. Það er verið að þvinga nýrri stjórnarskrá gegnum þingið, með ákvæðum sem aðlaga stjórnskipun landsins að kröfum ESB og fleygja burtu núverandi stjórnarskrá, sjálfum grundvelli lýðveldisins, sem samþykkt var við stofnun Lýðveldis Íslands 1944.
Nýja leikritið, sem er framhald "kíkja í pakkans" leikritsins gæti þess vegna haft titilinn: Sjálfstæðisbarátta Jóhönnu Sigurðardóttur. Það passar eitthvað svo vel við lýsingu hennar á sjálfri sér í tilkynningu um frumvarpið á Alþingi 23. október. Frelsis- og lýðræðisandi Jóhönnu Sigurðardóttur var slíkur í ræðustólnum, að hvergi glytti í Jón sjálfan nema þegar Jóhanna einu sinni nefndi nafn hans.
Líklega verður að umskrifa alla sögu sjálfstæðisbaráttu Íslendinga eftir þessa neistafullu ræðu forsætisráðherrans, því aldrei hefur sjálfstæðisbarátta Íslendinga fengið þvílíka uppskeru og nýja stjórnarskrárfrumvarpið.
Það læðist að manni sá grunur að þingmeirihlutinn láti taka niður styttuna af Jóni Sigurðssyni og reisa nýja af Jóhönnu Sigurðardóttur í hans stað eða þá að Jón fái að standa við hliðina á fimm sinnum stærri Jóhönnu. Þ
au eru bæði sonur og dóttir Sigurðar, ekki sama mannsins en alla vega sama mannsnafnsins, sem sparar að sjálfsögðu allar nafnabreytingar. Þar skyldi þó ekki vera kominn fram hinn frægi Sigurður Dýrafirðingur, sjálfur skapari sjálfstæðisbaráttu Íslendinga?////////////Gústaf Adólf :skrifar þetta og ég tek mér það bessaleyfi að birta það hefði ekki getað sagt þetta svona skemmtilega og hreint út!!ég veit að hann fyrirgefur mér þjófanðin en ág endurtek svona er þetta allt i pottinn búið og gert samkvæmt áættlun og það mun halda sjó svo lengi sem hægt er en við munum stoppa þetta ekki spurning,svona aðferðir læra menn bera af sögunni og Maffíunni/Halli Gamli
27.10.2012 | 10:45
Ýmsir þingmenn studdu slitastjórnir//Þessi samstaða er skrítin mjög!!!!!

![]() |
Ýmsir þingmenn studdu slitastjórnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2012 | 01:08
Eru menn virkilega að trúa þvi að þessi stjórnarskrá stoppi alla vegferð???
Var að horfa áðan á heimstjórnina hjá INN og Ingvi Hrafn fjarri en var stórnað af Jóni kristinn og þar tóku þátt gestur Guðni Ágútsson f/v ráðherra og Ragnheiður Ríkarðsdóttir þingforserti og Guðlaugur þór Alþingismaður,of f/v ráðherra,mikið rætt og bara gaman á parti og slegið á létta sprengi,og alvarlega!!þetta var rökrætt bæði í gamni og alvöru semsagt!!Guðni fastur fyrir sem alltaf og sögðu öll sína meiningu og tilfellið ekki langt frá hverju öðru,nema í ESB og þjóðskránni!!þar bar á milli,eins svarað Guðni því að engin vildi í stjórn af 4 flokknum með sjálfstæðiflokk!!!Ekki samfylking ekki V.G.sem væru að eyðast upp og sennilega yrði Sigmundur forsætisráðherra!!!!!þá höfum við það!!!En ef svo fer að þessi 3 flokkar ættla að stjórna landinu,þá hefst flóttin fyrir alvöru,og þá er komið dæmið sem Sigmundur lagði upp með,en var svo svikin þegar hann studdi minnihlutann fyrir kosningar!!hann og fl.eru kannski búnir að gleyma þvi!!!En svona lítur þetta út í dag,því miður!!!eftir þessu er það bara okkar að fá 27-30-33 þingmenn til að mark verði tekið á framförum en ekki hraðri niðurleið!!!!/Halli gamli
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 27. október 2012
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047927
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar