Víða vonskuveður og ófært///við sleppum vel suð vesturlandið!!!!

Víða vonsMynd 583352kuveður og ófært Innlent | mbl.is | 9.11.2012 | 19:08 Óveður er nú víða á norðvestanverðu landinu samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni, allt frá Snæfellsnesi og norður á Tröllaskaga

. Ófært er um Þverárfjall og frá Hofsósi til Siglufjarðar.

Á öðrum leiðum á Norðurlandi vestra er hálka og jafnvel éljagangurEnnfremur er óveður á Holtavörðuheiði og hálka en snjóþekja og éljagangur á Fróðárheiði. Hálka og skafrenningur er á Vatnaleiði. Að sama skapi er óveður í Staðarsveit og í Svínadal.

Annars staðar á Vesturlandi er ýmist autt eða hálkublettir. Ófært er um Víkurskarð á Norðurlandi eystra og hefur skarðinu verið lokað af þeim sökum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri. Einnig er ófært um Dalsmynni.

Víða er ofankoma og ennfremur hálka, snjóþekja eða krap og skafrenningur. Þá er vonskuveður á Hólasandi og þæfingsfærð og ennfremur skafrenningur á Öxnadalsheiði og við Mývatn. Þæfingsfærð og stórhríð er á Fljótsheiði.

Á Vestfjörðum er einnig víða óveður. Stórhríð og þæfingsfærð er þannig á Gemlufallsheiði og stórhríð og snjóþekja í Önundarfirði og Súgandafirði. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Klettsháls og Hrafnseyrarheiði.

Víðast hvar er hálka á Austurlandi eða hálkublettir. Breiðdalsheiði og Öxi eru ófærar en vegur er að heita má auður með ströndinni frá Reyðarfirði og suður úr. Vegir eru hins vegar að mestu auðir um sunnanvert landið en vonskuveður er á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli./////////////Það er á meðan er að við á suðvesturhorninu sleppum vel núna!!!blessað fólkið fyrir Vesta Norðan og Austan verður fyrir barði vestursins,en er bara á meðan er ,við fáum þetta engin hætta að ég helt að við sleppum,en vetur konungur er að setjast að og við bara tökum því!!!/Halli gamli


mbl.is Víða vonskuveður og ófært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama: Ríkir verða að borga meira////alveg hárr rétt hjá Obama!!!!!!


Obama flytur boðskap sinn í efnahagsmálum í Hvíta húsinu í kvöld. Obama :Ríkir verða að borga meira Erlent | mbl.is | 9.11.2012 | 20:22 Barack Obama Bandaríkjaforseti sagðií ávarpi í Hvíta húsinu í kvöld, að pólitískt samkomulag tækist ekki um fjárlagakreppuna, sem yfirvofandi er um áramótin, nema fallist yrði á að hinir auðugu legðu meira til málanna með auknum sköttum.

Obama sagði að fulltrúadeild þingsins yrði að bregðast við svonefndu fjárlagaklifi með lögum sem fælu bæði í sér skattahækkanir og niðurskurð á útgjöldum hins opinbera, þar á meðal til varnarmála.

Á blaðamannafundi sem fram fór um svipað leyti lýsti forseti fulltrúadeildarinnar, repúblikaninn John Boehner, að ekki yrði á skattahækkanir fallist. Náist ekki samkomulag um aðgerðir segja sérfræðingar kreppu yfirvofandi í Bandaríkjunum.

Obama sagðist ekki ofurseldur stefnumálum sínum varðandi skulda- og fjárlagavanda ríkisins; kvaðst opinn fyrir málamiðlunum en sagðist ekki fallast á tillögur sem fælu ekki bæði skattahækkanir og niðurskurð í sér. Hann vitnaði til kosningabaráttunnar vegna forsetakosninganna og sagði stefnu sína hafa orðið ofan á. „Um þetta tókumst við á aftur og aftur.

Á þriðjudagskvöld fundum við út, að meirihluti þjóðarinnar er sammála mér,“ sagði Obama. „Við getum ekki stytt okkur leið til hagsældar.

Sé það alvara okkar að draga úr hallanum verður að fara saman niðurskurður og aukinni tekjuöflun. Það þýðir að við verðum að biðja ríkustu Bandaríkjamennina að borga aðeins meira í skatta,“ sagði Obama. ////////////Þetta er alveg rétt hjá Forsetanum!!þeir bara verða að boga meira,og það ber að gera mikið til að auka atvinnu,jafnvel setja á innflutningsskatta og framleiða meira sjálfir!!þeir eiga þar mikið inni!!þetta ríki sem á að vera til fyrirmyndar,með að brauðfæða eigin þjóð.en þarna er mikið atvinnuleysi og fátækt landlæg,þetta verður Forsetin að taka á núna seinna tímabil sitt,þó erfitt sé,er þetta ærið verkefni,að vinna með fulltrúadeildina á móti sér,en ég treysti honum til þessa!!!!Halli gamli 


mbl.is Obama: Ríkir verða að borga meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svigrúm fyrir nýja þingmenn///enda ágætt val um að ræða!!!!!!!

SvigrúBúist er við fyrstu tölum í prófkjörinu um kl. 19 á laugardagskvöldið.m fyrir nýja þingmenn Innlent | mbl | 9.11.2012 | 20:01 Sjálfstæðismenn í SV-kjördæmi vonast eftir að bæta við sig 1-2 þingmönnum í næstu kosningum. Það þýðir að 2-3 nýir frambjóðendur, sem taka þátt í prófkjöri flokksins á morgun, geta gert sér vonir um að verða þingmenn eftir kosningar.

Reiknað er með að þeir þrír þingmenn sem sækjast eftir endurkjöri verði í tryggum þingsætum.

Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem fram fór vorið 2009 kusu 5.609 manns. Þetta var heldur minni þátttaka en í prófkjörinu árið 2006 þegar 6.409 kusu. Núna eru tæplega 15.000 kjósendur á kjörskrá.

Prófkjörið er opið að því leyti að auk skráðra félaga fá þeir sem skrá sig í flokkinn á kjördegi að taka þátt. Þetta er sama fyrirkomulag og var í síðasta prófkjöri. Fá sex menn kjörna samkvæmt nýrri könnun Sjálfstæðisflokkurinn tapaði miklu fylgi í SV-kjördæmi í síðustu kosningum, en fylgið fór úr 42,6% í 27,6%.

Flokkurinn fékk fjóra menn kjörna, Bjarna Benediktsson sem var í fyrsta sæti, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem var í öðru sæti, Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem var í þriðja sæti og Jón Gunnarsson sem var í fjórða sæti listans.

Hnotskurn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, 1. sæti. Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur, 1. sæti. Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur, 1.-6. sæti. Jón Gunnarsson, alþingismaður, 2. sæti. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður, 2. sæti. Elín Hirst, fjölmiðlafræðingur og sagnfræðingur, 3. sæti. Óli Björn Kárason, ritstjóri og varaþingmaður, 3.-4. sæti. Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri, 3.-5. sæti. Friðjón R. Friðjónsson, ráðgjafi, 4. sæti. Karen Elísabet Halldórsdóttir, varabæjarfulltrúi og skrifstofustjóri, 4. sæti. Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka, 4.-6. sæti. Kjartan Örn Sigurðsson, bæjarfulltrúi, 5. sæti. Sævar Már Gústavsson, sálfræðinemi við HR, 5. sæti. Gunnlaugur Snær Ólafsson, upplýsingafulltrúi, 6. sæti. Þorgerður María Halldórsdóttir, háskólanemi, 6. sæti. Sveinn Halldórsson, húsasmíðameistari, 7.

Þorgerður Katrín ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri og því bjóða þrír þingmenn flokksins sig fram að nýju.

Skoðanakannanir benda til að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig fylgi í næstu kosningum og í nýrri könnun Capacent er flokkurinn með sex þingmenn í SV-kjördæmi.

Hafa þarf í huga að þingmönnum kjördæmisins fjölgar um einn í næstu kosningum. Það er því pláss fyrir nýja frambjóðendur ofarlega á listanum.

Bjarni fær samkeppni um fyrsta sætið Þrír bjóða sig fram í fyrsta sæti. Bjarni Benediktsson, Ragnar Önundarson og Vilhjálmur Bjarnason sem býður sig fram í 1.-6. sæti.

Ganga má út frá því sem vísu að Bjarni muni halda fyrsta sætinu og sú keppni sem hann fær sé fyrst og fremst mæling á styrk hans.

Ragnar hefur skrifað tvær greinar í Morgunblaðið þar sem hann gagnrýndi Bjarna harðlega fyrir aðkomu hans að viðskiptalífinu í aðdraganda hrunsins. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði þessari gagnrýni í grein sem birtist í Morgunblaðinu.

Ragnar hefur bæði fyrir og eftir hrun haldið uppi gagnrýni á áhrifamenn í viðskiptalífinu.

Það hefur Vilhjálmur Bjarnason einnig gert með mjög afgerandi hætti. Vilhjálmur hefur í þessari prófkjörsbaráttu ekki beint spjótum að Bjarna sérstaklega líkt og Ragnar.

Vilhjálmur hefur heldur ekki sett stefnuna eins ákveðið á fyrsta sætið eins og Ragnar. Jón og Ragnheiður keppa um annað sætið Mikil baráttan er um annað sætið, en þar keppa Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Jón Gunnarsson, auk Vilhjálms. Ragnheiði gekk mjög vel í síðasta prófkjöri þegar hún skaust upp í þriðja sætið.

Hún er fyrsti varaforseti Alþingis og situr í velferðarnefnd og fjárlaganefnd. Ragnheiður hefur lýst afdráttarlausum stuðningi við að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandi og gengið þannig gegn stefnu forystu flokksins sem vill gera hlé á viðræðum.

Heimssýn hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum birti í vikunni „minnisblað“á netinu þar sem minnt er á að þrír frambjóðendur í prófkjörinu séu fylgjandi aðild Íslands að ESB. Þetta eru Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir og Vilhjálmur Bjarnason.

Sú spurning hlýtur að vakna hvaða skilaboð er verið að senda til aðildarsinna í Sjálfstæðisflokknum ef Ragnheiði verður refsað fyrir af fylgja ekki línu forystunnar í þessu máli. Jón Gunnarsson hefur setið á þingi síðan 2007. Hann á núna sæti í atvinnuveganefnd.

Hann er talinn hafa styrkt stöðu sína í kjördæminu frá síðustu kosningum. Flestir reikna með að spurningin sé aðeins hvort hann verður í öðru eða þriðja sæti listans. Hörð keppni um 4.-6. sætin Sextán taka þátt í prófkjörinu og ljóst er að baráttan um 4.-6. sæti verður hörð.

Erfitt er að spá fyrir um úrslit. Óli Björn Kárason, ritstjóri og varaþingmaður, stefnir á 3.-4. sæti, en hann náði fimmta sæti í síðasta prófkjöri. Hann hefur skrifað reglulega greinar í Morgunblaðið um stjórnmál og hefur tekið sæti á Alþingi.

Elín Hirst, fjölmiðlafræðingur og sagnfræðingur, stefnir á 3. sætið. Hún nýtur þess að vera þjóðþekkt þó að hún hafi tiltölulega nýlega ákveðið að skella sér út í stjórnmál.

Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Já Íslands, býður sig fram í 3.-5. sæti. Friðjón R. Friðjónsson ráðgjafi stefnir á 4. sætið.

Hann hefur starfað sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar. Karen Elísabet Halldórsdóttir, varabæjarfulltrúi í Kópavogi og skrifstofustjóri, stefnir á 4. sætið.

Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka, býður sig fram í 4.-6. sæti. Kjartan Örn Sigurðsson, bæjarfulltrúi á Álftanesi, stefnir 5. sæti. Þá býður Sævar Már Gústavsson, sálfræðinemi við HR, sig fram í 5. sæti.

Ætla má að þau eigi öll raunhæfa möguleika á að blanda sér í keppni um eitt af efstu sætunum. Aðrir frambjóðendur eru Gunnlaugur Snær Ólafsson upplýsingafulltrúi, 6. sæti, Þorgerður María Halldórsdóttir háskólanemi, 6. sæti og Sveinn Halldórsson húsasmíðameistari, 7. sæti.

Frambjóðendur hafa reynt að nálgast kjósendur sína með því að vera áberandi á netinu, með fundahöldum, símhringingum o.s.frv. Lítið hefur verið um auglýsingar í fjölmiðlum.

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi gaf út blað fyrir skömmu sem dreift var til félagsmanna í Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu. Gert er ráð fyrir að fyrstu tölur verði tilkynntar um klukkan 19:00 í Valhöll í heyranda hljóði. Endanlegar tölur verða tilkynntar í Valhöll um klukkan 22:00.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og fyrirkomulag prófkjörsins er að finna á vef Sjálfstæðisflokksins.

Tengdar fréttir — Þingkosningar 2013 Formaður Bændasamtakanna vill á þing 19:05 Haraldur Benediktsson, bóndi á Vestri Reyni og formaður Bændasamtaka Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, fyrir kosningarnar næsta vor.

Meira Píratar bjóða í vöfflukaffi Ósk sækist eftir 6. sæti Gefur kost á sér í 3. sæti hjá VG í Reykjavík Einn þingmaður dettur út Fleiri fréttir © Árvakur hf.

Öll réttindi áskilin Innlent » Svigrúm fyrir nýja þingmenn 20:01 Sjálfstæðismenn í SV-kjördæmi vonast eftir að bæta við sig 1-2 þingmönnum í næstu kosningum. Það þýðir að 2-3 nýir frambjóðendur, sem taka þátt í prófkjöri flokksins á morgun, geta gert sér vonir um að verða þingmenn eftir kosningar.

Meira Niðurskurður á sóknargjöldum verði leiðréttur 19:44 Skorað er á stjórnvöld í ályktun frá Kirkjuþingi unga fólksins að leiðrétta þann niðurskurð sem átt hefur sér stað á sóknargjöldum til Þjóðkirkjunnar enda séu grunnstoðir í starfsemi safnaða kirkjunnar að hruni komnir vegna fjárhagsvanda.

Meira Víða vonskuveður og ófært 19:08 Óveður er nú víða á norðvestanverðu landinu samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni, allt frá Snæfellsnesi og norður á Tröllaskaga. Ófært er um Þverárfjall og frá Hofsósi til Siglufjarðar.

Á öðrum leiðum á Norðurlandi vestra er hálka og jafnvel éljagangur. Meira Frestar framlagningu nauðasamnings 18:39 Slitastjórn Glitnis hefur tilkynnt kröfuhöfum að ekki muni takast að leggja fram frumvarp að nauðasamningi í desember næstkomandi eins og að var stefnt.

Meira Ríkisvaldsins að krefjast aðskilnaðar 17:34 Ríkisendurskoðun leggur áherslu á að enda þótt fjárhagslegur aðskilnaður sé tryggður á milli rekstrarsjóðs og húsrekstrarsjóðs væri æskilegt að hjúkrunarheimilið Eir væri sjálfstæður lögaðili.

Það sé hins vegar ekki á valdi embættisins að gera slíkan aðskilnað að skilyrði fyrir framlögum heldur stjórnvalda.

Meira Formaður Bændasamtakanna vill á þing 19:05 Haraldur Benediktsson, bóndi á Vestri Reyni og formaður Bændasamtaka Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, fyrir kosningarnar næsta vor.

Meira Handteknir í Prag fyrir kókaínsmygl 18:19 Tveir ungir Íslendingar hafa verið handteknir fyrir fíkniefnasmygl á Vaclav Havel-flugvellinum í Prag höfuðborg Tékklands samkvæmt fréttavefnum Idnes.cz.

Fram kemur í fréttinni að átta kíló af kókaíni hafi verið falin í farangri þeirra en götuvirði þess í Tékklandi sé um 12 milljónir tékkneskra króna.

Meira Gert ráð fyrir versnandi veðri 17:15 Veður fer enn versnandi á Norðurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni og er gert ráð fyrir því áfram síðar í kvöld norðaustanlands. Þá bæði vaxandi vindi og aukinni ofanhríð og skafrenningi.

Spáð er veðurhæð allt að 15-23 metrum á sekúndu. Meira Vilja útfærslu skipulagslögsögu 16:52 Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðar í gærkvöldi áskorun á innanríkisráðherra og umhverfisráðherra að beita sér fyrir því að hafin verði vinna við útfærslu skipulagslögsögu sveitarfélaga um eina sjómílu frá grunnlínu landhelginnar.

Meira „Leita lausna logandi ljósi“ 16:33 „Staðan er viðkvæm,“ segir framkvæmdastjóri Eirar sem hefur fundað með fjárlaganefnd Alþingis og borgarráði Reyjavíkur þar sem hann upplýsti bæði þingmenn og borgarfulltrúa um stöðu hjúkrunarheimilisins.

Í lok næstu viku mun fulltrúaráð Eirar koma saman til að fara yfir málið. Meira Leggjast gegn lækkun launa sjómanna 16:36 „Frá okkar bæjardyrum séð eru útgerðir vel aflögufærar, en eins og alþjóð veit þá hafa mörg útgerðarfélög skilað gríðarlegum hagnaði undanfarin 2-3 ár,“ segir meðal annars í ályktun frá stjórn Nemendafélags Stýrimannaskólans í Reykjavík.

Meira Vantar upplýsingar um HSS 16:16 Í fréttum um 6 mánaða afkomu ríkissjóðs eru taldar upp stofnanir sem standa fjárhagslega illa eftir fyrst 6 mánuði ársins 2012. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vill taka fram að HSS sé ekki ein af þeim. ////////////////Þetta er farið vítt og breytt um hlutina,en nóg er úr að velja!!mannaval og kvenna!!svo það er ekki beint verið að spá,en barátta verður þarna ekki lítil nema ég vona að minn Formaður vinni þarna í kraganum,svo nóg val á eftir!!!ég vil ekki spá þar,að neinu viti,En Jón Gunnarsson og Elín Hirst og Ragnheiður og Ragnar+Vilhjálmur eiga þarna séns!!og fleiri ef að 6 mans komast að!!en manni líst mjög vel á formann bænasamtakana Haraldur verði í framboði á vesturlandi,og auðvitað kemst að sem 3 maður þar!!!en svo bara fleiri fréttir,sem eru í gangi,það er af nógu af taka þarna,lesið og skoðið þtta allt um nóg er talað////Halli gamli


mbl.is Svigrúm fyrir nýja þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðar fagnaðarerindi jarðhitans/Hvað segja V.G. um þetta hafa allt á hornum sér með jarhita á Íslandi!!!

Boðar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tekur hér í hönd...fagnaðarerindi jarðhitans Innlent | mbl | 9.11.2012 | 13:53 „Ég tel sjálfur að söguleg kaflaskipti verði með þessu samkomulagi, sem við kynnum hér í dag, milli utanríkisráðuneytisins og Alþjóðabankans um að hraða jarðhitavæðingu í 13 ríkjum Austur-Afríku sem öll liggja á hinum fræga sigdal,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.

Þetta kom fram í ávarpi Össurar á blaðamannafundi þar sem hann kynnti í dag stærsta þróunarsamvinnuverkefni sem Íslendingar hafa tekið þátt í.

Um er að ræða 65 milljarða króna sjóð sem Alþjóðabankinn hyggst koma upp til jarðhitanýtingar í Afríku. Sjóðurinn verður nýttur til að gera hagkvæmniathuganir og tilraunaboranir.

Össur segir að samstarf Íslands og Alþjóðabankans sé mesta átak til jarðhitanýtingar í þróunarríkjum frá upphafi og Ísland verði aðalráðgjafi bankans á því sviði.

Utanríkisráðherra segir að samkomulagið muni stuðla að framrás jarðhita sem orkulindar, þar sem Íslendingar séu í farabroddi. mbl.is/Kristinn „Með þessu samkomulagi er Ísland orðið helsti samstarfsaðili Alþjóðabankans á sviði jarðhita,“ sagði Össur.

Við þetta tilefni var undirritað samkomulag Íslands við Norræna þróunarsjóðinn (NDF) um fjármögnun fyrsta hluta verkefnisins. Það feli í sér að íslensk stjórnvöld og þróunarsjóðurinn leggi 800 milljónir króna hvort til verkefnisins á næstu fimm árum.

„Þetta eru sérlega góð tíðindi og þau sýna að hvernig Íslendingum með útsjónarsemi tekst að margfalda framlög sín með alþjóðlegri samvinnu,“ sagði Össur og þakkaði frumkvæði Engilberts Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ). Össur greindi jafnframt frá því að hann hafi falið ÞSSÍ að vera framkvæmdaaðili fyrsta hluta samkomulagsins.

Taka sögulegt skref „Ég hef litið svo á að það sé skylda mín sem ráðherra að boða fagnaðarerindi jarðhitans, bæði heima en ekki síst erlendis.

Ekki bara til þess að koma á framfæri reynslu og þekkingu Íslendinga heldur ekki síður til að benda á það að jarðhiti hefur oft verið gróflega vanmetinn sem uppspretta áreiðanlegrar og ódýrrar endurnýjanlegrar orku sem að hefur miklu minni umhverfisleg áhrif en flestar aðrar tegundir orkugjafa,“ segir Össur.

Hvað varðar samkomulag Íslands og Norræna þróunarsjóðsins, þá segir Össur að um tímamótasamkomulag sé að ræða. Hvað varðar sjóðinn sem Alþjóðabankinn hyggst koma upp, þá sagði Össur: „Þetta er sá kafli í hverju verkefni sem er áhættusamastur og sem erfiðast er að finna fjármagn til þess að kosta. Þetta er hinn raunverulegi flöskuháls,“ sagði Össur

. „Alþjóðabankinn í samvinnu við utanríkisráðuneytið er nú í óða önn að afla stuðnings annarra ríkja, sem Ísland hefur m.a. átt viðræður við og í sumum tilvikum gert samkomulag við, sömuleiðis alþjóðlegra loftlagssjóða og þróunarbanka til að leggja fram fé til tilraunaboruna.

Það hefur gengið það vel að Alþjóðabankinn stefnir að því að þetta verði risasjóður sem verður allt að 500 milljónir Bandaríkjadala, sem svarar til jafnvirðis nálægt 65 millljarða kr. Ég tel að hér séum við að taka sögulegt skref í það að breiða út notkun jarðhita sem orkulindar í heiminum.“

Í framhaldinu af þessu verði mögulegt að ráðast í skipulegar virkjanaframkvæmdir til að framleiða raforku og til fjölnýtingar jarðhitans í atvinnuskyni með virki þátttöku einkageirans.///////////ÉG verð að segja að þetta er ný tíðindi,hvað segja V.G. við þessa hjá Össsuri er þetta i lagi fyrst þetta er hjáöðrum þjóðum?? það er svo að auðvitað ber að nota jarðvarman ein og við getum og skinnsamlega mjög,en þarna er auðvitað fundið fé að vinna við og gott,af alþjóðarbankin vill borga þá þeir um það ekki mun standa á okkur,við gerum þetta b´æði heima og heiman,hvað sem þessir umhverfissinar segja,auðvitða með góðri aðgát sem á að vera nu. eitt ekki spurning,atvinna er það sem þarf,og innkoma af gjaldeyrir/Halli gamli


mbl.is Boðar fagnaðarerindi jarðhitans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólheimar harma niðurstöðu Hæstaréttar !!//Það er ekki aumingjagott þetta samfélag!!!!

SólheimFrá Sólheimum í Grímsnesi.ar harma niðurstöðu Hæstaréttar Innlent | mbl.is | 9.11.2012 | 11:20 Sólheimar harma niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli Sólheima gegn íslenska ríkinu. Hæstiréttur Íslands kemst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu hafi verið heimilt að skerða fjárveitingu til Sólheima þó svo að Sólheimar hafi einir þjónustuveitenda í málefnum fatlaðra verið skertir á fjárlögum ársins 2009.

„Það er verulegt áhyggjuefni að velferðarráðuneytið og aðrir opinberir aðilar geti mismunað þjónustuveitendum,“ segir í yfirlýsingu frá Sólheimum

. „Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sólheimum í vil og var sá dómur vel rökstuddur. Á tímum þar sem ítrekað er rætt um gagnsæi, réttlæti og jafnræði, þá vekur niðurstaða Hæstaréttar Íslands í senn furðu og vonbrigði,“ segir í yfirlýsingunni./////////////Þetta lýsir bara a´standi þjóðfélagsins ,´það er ekki gott fyrir þá sem  mynna mega sýn eða ekki aumingjavænt,allavega sér ekki æðsti réttur til að lagfæra það,þaðað virkja öryrirlkja er mottóið en hvað ríkið þarfa ð bruðla með peningana eftir geðþótta og hefur með sér dómstólana!!!!Halli gamli


mbl.is Sólheimar harma niðurstöðu Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rooney: Van Persie getur gert útslagið Íþróttir /Æi við mistum hann en þetta mun einnig koma hja´okkur Arsenel!!!

Rooney:Robin van Persie og Wayne Rooney fagna marki. Van Persie getur gert útslagið Íþróttir | mbl.is | 9.11.2012 | 11:27 Wayne Rooney segir að Robin van Persie sé enn betri leikmaður en hann gerði sér grein fyrir og Hollendingurinn geti haft úrslitaáhrif á gengi Manchester United á þessu keppnistímabili. Rooney og van Persie hafa leikið saman í fremstu víglínu United í haust með góðum árangri.

United keypti Hollendinginn af Arsenal í sumar og hann hefur þegar skorað 14 mörk í öllum leikjum fyrir félagið. Hann kom inná gegn Braga í vikunni og hressti heldur betur uppá lið United sem var 1:0 undir. Jafnaði í 1:1 og enska liðið skoraði tvívegis í kjölfarið.

„Þegar við skoðum þau lið sem hafa unnið Meistaradeildina, þá hafa þau verið með einstaklinga sem geta gert útslagið, töfrað eitthvað fram. Robin er stórkostlegur leikmaður.

Hann er mjög yfirvegaður, heldur boltanum vel og virkjar aðra í spili í kringum sig. Hann er frábær fyrir liðið í heild og er okkar lykilmaður. Ef leikmenn ná að spila vel í kringum hann nýtist það öllum,

" sagði Rooney í viðtali við götublaðið The Sun í dag.

„Síðasta tímabil var hans besta með Arsenal hvað markaskorun varðar. Hann hefur í seinni tíð spilað framar og komið sér í betri færi en áður.

Hann er frábær í teignum, sterkur og heldur boltanum. Stórkostlegur leikmaður og strákur sem gaman er að hafa í hópnum," sagði Wayne Rooney.//////////////Það þíðir ekki að gráta orðin hlut,viðvissum að Persie var góður og það mjög góður!!! en hann vildi burt og ekkert við þvi að gera nema hann styrkti erkiféndurnar,og M.U.N.kann að nota hann og stjörnudýrka og jafnvel vinna deildina og meistara einnig!! en það koma dagar og ráð og við eigum góða unga menna sem lofa góðu,og svo kaupir Wenger um áramotin fleiri það gott og við höldum meistarasætinu og sigrum svo allt næst,en Áfram Arsenal og einnig hin liðin þvi góð knattspyrna er málið til að horfa á,og það er bara gaman hvað liðin eru jöfn,nema M.U.N. er best eins og er???!!!/Halli gamli


mbl.is Rooney: Van Persie getur gert útslagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers konar ríkiskerfi? /þetta satt er oftursetur ríkisfjármálavandi!!!

HverJakob F. Ásgeirssons konar ríkiskerfi? Innlent | Morgunblaðið - greinar | 9.11.2012 | 10:32 „Höfuðvandi þjóða heims um þessarmundir er ríkisútgjaldavandi. Ofvaxið ríkisbákn er að sliga þjóðirnar. Þær hafa steypt sér í svimandi háar skuldir til að viðhalda síauknum ríkisumsvifum“, segir Jakob F. Ásgeirsson, útgefandi og rithöfundur, í grein í Morgunblaðinu í dag.

Íslendingar hafa einstakt svigrúm til að takast á við þennan risavaxna vanda, segir Jakob.

Við höfum nefnilega byggt upp ríkiskerfi sem hæfir miklu stærri þjóð en býr í landinu. Niðurlagsorð Jakobs eru þessi: „Hvað telja skattborgararnir í þessu 300.000 manna landi réttlætanlegt að standa undir mikilli yfirbyggingu við stjórn og rekstur þess?

Svona eigum við að spyrja á öllum sviðum opinbers rekstrar.

Ef þetta væri útgangspunkturinn væri hægur vandi að skera niður ríkisútgjöld svo að um munaði. Aðeins með þeim hætti getum við byggt upp öflugt velferðar- og menntakerfi til framtíðar“.///////////Þetta er þörf lesning svo ekki sé meira sagt ,þaðer spurning um að minka þetta sem er hægur vandi mjög ,við getum ekki efnalaust þannig úr ríkisapparat sem bara tekur 328 þus mans,þetta sjá allir sem vilja yfirbygging er að velta samélaginu,og við bara tökum á þessu annars fer ílla þetta er heilagur sannleikur,tökum á honum strax!!!!Halli gamli


mbl.is Hvers konar ríkiskerfi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur lífskjaranna/Það ættla ég að kjósa ekki spurning!!!!

Sigur Bjarni Benediktssonlífskjaranna Innlent | Morgunblaðið - greinar | 9.11.2012 | 10:04 „Með sigri í kosningunum í vor gefst okkur sjálfstæðismönnum ómetanlegt tækifæri til að bæta lífskjör landsmanna

.Það munum við gera meðþví að lækka skatta, hefja sókn í atvinnumálum og gjörbreyta forgangsröðun málefna“, segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í grein í Morgunblaðinu í dag.

Segir Bjarni að of mikill tími hafi á þessu kjörtímabili farið í mál sem snúa engan veginn að því að bæta upp þá lífskjaraskerðingu sem hér hefur orðið. Lokaorð formannsins eru þessi:

„Við eigum mikið inni og mörg tækifæri ónýtt til að gera miklu betur en sitjandi stjórn.

Á næstu mánuðum veljum við þá sem ætla að standa í fremstu röð og tala fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins, fyrir málstað okkar.

Ég skora á alla sjálfstæðismenn, sem eiga á því kost, að taka þátt í að velja öfluga framboðslista. Með því leggjum við grunninn að sigri í alþingiskosningum í vor – og nýrri sókn til betri lífskjara“.//////////Ég er búin að mynda mer skoðun ,og búin að fá nóg af þessari ríkisstjórn og svikum hennar og ættla svo sannarlega að vona að minn flokkur takið við og ég bara vona að fletir átti sig á þvi að kjósa sjálfstæðisflokk það er að eina sem blífar!!!/Halli gamli


mbl.is Sigur lífskjaranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borðar stjórnarskrá//?Það er nú það ekki gerum við það alment!!!

„HVígdís Hauksdóttirver borðar stjórnarskrá? Innlent | Morgunblaðið - greinar | 9.11.2012 | 8:59 Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar er dæmalaus. Harður vetur er í vændum fyrir margar bágstaddar fjölskyldur og biðraðir við matarúthlutanir fyrirsjáanlegar“, segir Vigdís Hauksdóttir alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag.

„Hver borðar stjórnarskrá? „Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar er dæmalaus. Harður vetur er í vændum fyrir margar bágstaddar fjölskyldur og biðraðir við matarúthlutanir fyrirsjáanlegar“, segir Vigdís Hauksdóttir alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Hún segir að unnið sé að samkomulagi milli ríkisins, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaganna um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnulausa sem missa rétt til atvinnuleysisbóta um komandi áramót, en þá rennur úr gildi bráðabirgðaákvæði úr lögum um atvinnuleysisbætur til fjögurra ára

. Þeir aðilar sem hafa verið atvinnulausir í fjögur ár eða lengur þurfa því að þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna. Athyglisvert er, segir Vigdís, að þessir sömu aðilar funda lítið um atvinnuuppbyggingu og lausn á atvinnuleysinu.

Lokaorð þingmannsins: „Hví er ekki staðinn vörður um grunnstoðir samfélagsins, hví er ekki verið að skapa atvinnu fyrir atvinnulaust fólk sem er í örvinglan, hví er ekki staðinn vörður um heimilin í landinu.

Þetta minnir á fleyg ummæli er almúginn mótmælti ofríki stjórnvalda eitt sinn: „Af hverju borðar fólkið ekki kökur" – þegar það gat ekki keypt sér brauð.

Því spyr ég; „Hver ætlar að borða stjórnarskrána" – þegar ekki er til peningur til að kaupa mat?“//////////////Þetta er góð spurning hjá Vigdísi hver borðar stjórnarskrá,það er spurning Þegar fólk fer að svelta og missa allt sitt,er þá forgansgröðin ný stjórnaskrá maður bara spyr/er ekki nær að látta fólkið fá atvinnu og geta framfleitt sér!!!/Halli

gamli


mbl.is „Hver borðar stjórnarskrá?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. nóvember 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband