Víða vonskuveður og ófært///við sleppum vel suð vesturlandið!!!!

Víða vonsMynd 583352kuveður og ófært Innlent | mbl.is | 9.11.2012 | 19:08 Óveður er nú víða á norðvestanverðu landinu samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni, allt frá Snæfellsnesi og norður á Tröllaskaga

. Ófært er um Þverárfjall og frá Hofsósi til Siglufjarðar.

Á öðrum leiðum á Norðurlandi vestra er hálka og jafnvel éljagangurEnnfremur er óveður á Holtavörðuheiði og hálka en snjóþekja og éljagangur á Fróðárheiði. Hálka og skafrenningur er á Vatnaleiði. Að sama skapi er óveður í Staðarsveit og í Svínadal.

Annars staðar á Vesturlandi er ýmist autt eða hálkublettir. Ófært er um Víkurskarð á Norðurlandi eystra og hefur skarðinu verið lokað af þeim sökum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri. Einnig er ófært um Dalsmynni.

Víða er ofankoma og ennfremur hálka, snjóþekja eða krap og skafrenningur. Þá er vonskuveður á Hólasandi og þæfingsfærð og ennfremur skafrenningur á Öxnadalsheiði og við Mývatn. Þæfingsfærð og stórhríð er á Fljótsheiði.

Á Vestfjörðum er einnig víða óveður. Stórhríð og þæfingsfærð er þannig á Gemlufallsheiði og stórhríð og snjóþekja í Önundarfirði og Súgandafirði. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Klettsháls og Hrafnseyrarheiði.

Víðast hvar er hálka á Austurlandi eða hálkublettir. Breiðdalsheiði og Öxi eru ófærar en vegur er að heita má auður með ströndinni frá Reyðarfirði og suður úr. Vegir eru hins vegar að mestu auðir um sunnanvert landið en vonskuveður er á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli./////////////Það er á meðan er að við á suðvesturhorninu sleppum vel núna!!!blessað fólkið fyrir Vesta Norðan og Austan verður fyrir barði vestursins,en er bara á meðan er ,við fáum þetta engin hætta að ég helt að við sleppum,en vetur konungur er að setjast að og við bara tökum því!!!/Halli gamli


mbl.is Víða vonskuveður og ófært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband