Hafði óeðlileg afskipti af Glitni//Nú er um að gera að beita sérsökum saksóknara rétt fyrir áramót,til að sína árangur einkvern af 3 árum!!

Hafði Jón Ásgeir Jóhannesson.óeðlileg afskipti af Glitni Viðskipti | mbl.is | 16.12.2012 | 18:45 Jón Ásgeir Jóhannesson hafði mikil, bein og óeðlileg afskipti af daglegum rekstri Glitnis og mikil ítök og áhrif.

Þetta kemur m.a. fram í ákæru sérstaks saksóknara á hendur honum og þremur Jón Ásgeir Jóhannesson hafði mikil, bein og óeðlileg ,Þetta kemur m.a. fram í ákæru sérstaks saksóknara á hendur honum og þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans.

Í ákæru sérstaks saksóknara vegna Aurum-málsins svokallaða kemur fram að rannsókn málsins leiddi í ljós að fljótlega eftir að FL Group hf. tryggði sér yfirráð yfir Glitni í lok apríl 2007 hóf Jón Ásgeir Jóhannesson að hlutast til um það hverjir tækju sæti í stjórn bankans. Einnig samdi Jón Ásgeir við Bjarna Ármannsson, þáverandi bankastjóra Glitnis, um starfslok hans hjá bankanum og hafði hönd í bagga með því að samið var við Lárus Welding um að hann tæki við starfi forstjóra Glitnis í apríl 2007.

Lárus Welding í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun desember. mbl.is/Styrmir Kári Jón Ásgeir var á árinu 2008 eigandi 45% hlutar í Fjárfestingarfélaginu Gaumi ehf. sem var að öðru leyti í eigu fjölskyldu hans. Gaumur átti 75,39% hlutafjár í Baugi Group hf. en Jón Ásgeir var stjórnarformaður þess félags til 18. júlí 2008.

Baugur átti 36,4% í FL Group hf. á árinu 2008 en Fons um 11%. Að teknu tilliti til framvirkra samninga og eignarhluta 101 Capital ehf., í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, þáverandi sambýliskonu og síðar eiginkonu Jóns Ásgeirs, réðu þeir Pálmi Haraldsson og Jón Ásgeir yfir meira en helmingi hlutafjár í FL Group hf. í júlí 2008.

Jón Ásgeir var kosinn stjórnarformaður FL Group 8. júní 2007 en varð að segja sig frá stjórnarformennskunni 19. júní 2008. Baugur átti einnig 30% hlut í Jötni ehf., Fons 10% og West Coast Capital átti 60% en Baugur var á meðal eigenda þess félags. Samanlagt áttu FL Group og Jötunn 39,75% hlutafjár í Glitni.

Í krafti þessa stóra eignarhluta gat Jón Ásgeir ráðið meirihluta stjórnar félagsins og í gögnum málsins má sjá hvernig hann beitti áhrifum sínum við val á stjórnarmönnum. Mikil ítök og áhrif Þá segir að gögn málsins beri með sér að Jón Ásgeir hafi haft mikil, bein og óeðlileg afskipti af daglegum rekstri Glitnis og mikil ítök og áhrif.

Þessum áhrifum sínum hafi hann beitt, einkum gagnvart Lárusi Welding og Bjarna Jóhannessyni, fyrrverandi viðskiptastjóra Glitnis banka, en þeir eru báðir einnig ákærðir í málinu.

Þótt Jón Ásgeir væri ekki í formlegri aðstöðu til að stýra Lárusi, sýna tölvupóstsamskipti að Jón Ásgeir sendi Lárusi reglulega erindi sem orðuð voru sem fyrirmæli og lagði fyrir hann lista með verkefnum sem tengdust bæði fjárfestingum bankans sem og lánveitingum til ýmissa aðila, bæði tengdra og ótengdra Jóni Ásgeiri.

Þessa verkefnalista sendi Lárus jafnvel beint til undirmanna sinna með fyrirmælum um að framkvæma þau erindi sem þar komu fram.

Í ákærunni segir að ljóst sé að starfsmenn Glitnis litu á Jón Ásgeir sem aðaleiganda bankans og framlögð gögn sýna að Lárus og Bjarni brugðust við erindum hans með öðrum hætti en ætla má um erindi venjulegra hluthafa eða almennra viðskiptavina bankans.

Lárus hafði ástæðu til að óttast um stöðu sína Sérstakur saksóknari nefnir þessu til stuðnings að Bjarni sendi Jóni Ásgeiri trúnaðarupplýsingar um skuldastöðu Fons við bankann í lánveitingaferlinu, sem nú er ákært fyrir, að forsvarsmanni Fons forspurðum.

Þá gera gögn málsins með sér, að sögn saksóknara, að Jón Ásgeir hafi gefið Lárusi tilefni til að óttast um stöðu sína innan Glitnis léti Lárus ekki að vilja hans.

Gögnin sýna einnig að undirmenn Lárusar vöruðu hann við því að láta að vilja Jóns Ásgeirs í tengslum við þessa lánveitingu og að hann gerði sér grein fyrir í hvaða hættu hann stefndi hagsmunum bankans með undanlátssemi við Jón Ásgeir.//////////////////////Það er svo að umfjöllun mín er ekki um sekt eða sakleysi þessara manna,það ætti löngu að vera komið í ljós að öllu sjálfráðu,en það virðist aukaatriði,að manni finnst!!sérstakur Saksóknari er búin að starfa í 3 ár og starfsfólki hefur fjölgað árlega og telur um 105 mans allavega,hvað kostar þetta,spyr engin um það,þegar allt er á vonarvöl hjá okkur heilsugæslan öll svelt og allt í peningaleysi,og skuldir hlaðast hjá því opinbera  og heimilanna í landinu!!!,sem tóku lán!!en það hækkaði um 40% í kreppunni,en þessi mál þessa manna sem spiluðu hátt,eru nú sett á oddinn 4 árum eftir hrun,og það á að dekka þessi vitleysu sem þessi ríkisstjórn hefur klúðrað á öllum þessum tíma,þetta gengur í fólkið,og í augnablikinu beina menn augum að þessum svokölluðum býssum frá aðal býsnunum sem eru þessir stjórnmálamenn sem stjórna meirihluta Alþingi í dag,spyrjum svo að leikslokum,það verður við kosningar í vor ,eða manni finnst nú að verði fyrr!!!/Halli gamli


mbl.is Hafði óeðlileg afskipti af Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil neyð hjá mörgu fólki//hvað segja Jóhanna og Steingrímur við þessu í uppganginum þeirra???

Mikil nSigurveig Bergsteinsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Akureyrareyð hjá mörgu fólki“ Innlent | mbl.is | 16.12.2012 | 8:48 Hjálparstarfinu á Eyjafjarðarsvæðinu bárust 300 beiðnir um aðstoð fyrir jólin.

Á bak við hverja umsókn getur verið allt fá einum einstaklingi upp í sex til átta manna fjölskyldu, þannig að ekki hægt að áætla nákvæmlega hversu margir njóta hjálpar.

Sigurveig Bergsteinsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Akureyrar segir sannarlega víða þröngt í búiÞetta kemur fram í viðtali við hana í Vikudegi.

„Já, það er mikil og skelfileg neyð víða og margir þarfnast aðstoðar. Í stærsta hópnum er fólk sem er á einhverjum bótum.Hjá þessu fólki er þröngt í búi og nánast ekkert má út af bregða.

Ef bíllinn bilar, aukast útgjöldin og ef einhver önnur óvænt útgjöld verða, fer fjárhagurinn hreinlega úr skorðum.

Og staðan hjá fólki sem er í eigin húsnæði er í mörgum tilvikum brothætt, svo ekki sé meira sagt.“ Að hjálparstarfinu standa Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn á Akureyri.//////////////svo dæmi séu tekin er þetta bara eitt af þeim!!þetta er því miður alltof algengt því miður!!!það er sagt að alt sé á uppleið,en er það rétt,við gætum sagt frá svo miklu að það hálfa væri nóg sem sannar þetta,þó svo þessir stjórnarsinnar með Jóhönnu og Steingími í forystu segi ,þetta bara að kenna íhaldinu als ekki þeim sem hafa öllu reddað eða flestu,ekki sjáum við það aem fylgjumst vel með,ég segi og skrifa það að þetta er meðvitað gert,ekkert annað kemst að en að koma okkur í ESB og koma okkur yfirleitt á hausinn með brölti sínu og byltingu í kommúnisma!!!stoppa allar framkvæmdir og lifa bara í lyginni!!!/Halli gamli


mbl.is „Mikil neyð hjá mörgu fólki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingstörfum hvergi nærri lokið///engin samvinna í boði!!!!!

Þingstörfum hvergi nærri lokið Innlent | mbl | 16.12.2012 | 14:12 Ekki er útlit fyrir að þingstörfum ljúki á næstunni.

Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að staðan sé óbreytt, mörg mikilvæg mál liggi fyrir þinginu og að ekki sé búið að semja um meðferð þeirra.

Á meðal þeirra mála sem stjórnarflokkarnir vilji klára sé rammaáætlunin. Illugi segir að hann eigi alveg eins von á því að þinghald verði nánast ofan í jólin, því að málin sem verið sé að fást við séu þess eðlis að þau muni taka tíma.

„Þeirra á meðal eru rammaáætlunin, fjárlögin, bandormurinn og breytingar á tollum og vörugjöldum sem allt eru mjög umdeild og stór mál og síðan fjöldi annarra smærri mála sem verður að klára fyrir áramótin.

Við það bætast svo önnur mál sem menn eru að velta fyrir sér hvort að nauðsynlegt sé að klára í desember eða hvort þau geti beðið fram í janúar, þannig að það er heilmikið eftir hjá þinginu.

“ Illugi segir að það sé mjög rík krafa hjá stjórnarflokkununum að rammaáætlunin verði á meðal þeirra mála sem verði kláruð núna fyrir áramótin.

Hann eigi þess vegna von á því að umræðan um rammaáætlunina muni halda áfram á morgun þó að hann geti ekki fullyrt neitt um það

. „Umræðu um rammaáætlunina er ekki lokið og í kjölfar sameiginlegs fundar umhverfis- og samgöngunefndar og atvinnuveganefndar á laugardaginn með fulltrúum ASÍ og Samtaka atvinnulífsins er eðlilegt að málið verði rætt í þingsalnum á morgun.“/////////////Þetta bara sýnir okkur hvernig ástandið er á Alþingi allt í heglum þara,enginn samvinna bara vaða fram með ofurvaldi,kommana sem ætla ekki að gefa neitt eftir í byltingu sinni með allt á síðustu stundu koma öllu í bobba Fjárlögum-rammaáættlun -stjórnarskána+fiskveiðum og útgerð!!!þetta mun ekki takast sem betur fer,því meirihlutinn er ekki fyrir hendi í þjóðfélaginu///Halli gamli


mbl.is Þingstörfum hvergi nærri lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forysta í öllum kjördæmum ákveðin///einn flokkur ESB sinna,erum við ekki kát???

ForystBjört Ólafsdóttir leiðir listann í Reykjavíkurkjördæmi norður.a í öllum kjördæmum ákveðin Innlent | mbl.is | 16.12.2012 | 13:03 Fjörutíu manna stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti skipan í efstu sæti framboðslista flokksins um land allt á fundi sínum á miðvikudagskvöld.

Björt Ólafsdóttir og Heiða Helgadóttir leiða listann í Reykjavíkurkjördæmi norður. Sex manna nefnd, sem hefur unnið að því að stilla upp listum fyrir Bjarta framtíð undanfarna mánuði, lagði fram tillögur að fjórum til fimm efstu mönnum í öllum kjördæmum. Stjórnin samþykkti tillögurnar einróma.

Efstu sætin í Reykjavíkurkjördæmi norður verða þannig skipuð: 1. Björt Ólafsdóttir, fráfarandi formaður Geðhjálpar og ráðgjafi hjá Capacent. 2. Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar og framkvæmdastjóri Besta flokksins. 3. Eldar Ástþórsson, markaðsmaður hjá CCP. 4. Friðrik Rafnsson þýðandi. 5. Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík.

Aðrir listar Bjartrar framtíðar verða kynntir á næstu dögum. Þegar hefur verið tilkynnt að efstu sætin í Suðvesturkjördæmi en þar verður Guðmundur Steingrímsson alþingismaður í fyrsta sæti.

Fjölmiðlar hafa greint frá því að Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins leiði listann í norðausturkjördæmi og að Róbert Marshall alþingismaður leiði listann í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Þar verður borgarfulltrúinn og tónlistarmaðurinn Óttarr Proppé einnig á lista./////////////þetta er skrautlegur listi flóttafólks úr öðrum flokkum,sem bölva fjórflokknum og halda að það eitt skapi þeim gengi,sennilega hópur sem segir eins og Jón Gnarr Borgarsjóri mig vantar bara gott starf sem ég get bara hirt launin mín og haft það gott,frían bíl og næs,þarf ekkert að gera hefi bara nóg fólk til þessa,einhver vegin svona var hans mottó og þarna finnur hann sig!!en við höfum smjörþefinn af besta flokknum ,og ég held að þarna sá það lifandi komið,utan að þetta eru ESB sinnar flest eða allavega yfir póstarnir///Halli gamli


mbl.is Forysta í öllum kjördæmum ákveðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RUV.og Sifur Egils til skammar,þetta er orðið opinber samtök,með ríkkisstjórn núvernadi!!!!

Var að horfa og hlusta á Silfur Egils áðan ekki alveg búin að ná mér,Aldrei kemur það betur fram en núna að þetta er bara þáttur fyrir núverandi stjórnar samstarf,ekkert annað!!!!Þetta kemur svo sterkt fram að.það þarf ekki að undra að menn hætti að horfa á þáttinn!!Algjörlega alla sem þarna komu fram nema Eyþór sem valla komst að!!Svo með Landspiltalan  bara já fólk Arkintektin og Peninga læknirinn sem, bæði sögðu þetta verða að vera svona engin mótmæli!!! Við tökum þennan þátt af lífi fyrir alla tíð okkur sem er misboðið og sagt  að RÚV sé hlutlaust//Halli gamli

11 breytingartillögur við rammann///þetta gengur ekki upp,als ekki!!!!!

11 breytEin breytingartillagan gengur út á að flytja virkjanakosti...ingartillögur við rammann Innlent | mbl.is | 16.12.2012 | 11:20 Lagðar hafa verið fram ellefu breytingartillögur á Alþingi við tillögu um rammaáætlun.

Tillögurnar ganga ýmist út á að færa virkjanakosti úr biðflokk í nýtingarflokk, að færa virkjanir úr biðflokki í verndarflokk eða færa virkjanir úr nýtingarflokki í biðflokk. Rammaáætlun var rædd í fjóra daga á Alþingi í síðustu viku.

Óvíst hvenær samkomulag næst um afgreiðslu málsins, en forystumenn þingflokka hafa rætt saman um afgreiðslu málsins og annarra umdeildra mála á Alþingi.

Jón Gunnarsson alþingismaður og fleiri hafa lagt fram sex tillögur sem gera ráð fyrir að virkjanakostir verði færðar úr biðflokki í nýtingarflokk.

Þetta eru m.a. virkjanir í neðri hluta Þjórsár, en verkefnisstjórn lagði á sínum tíma til að þær yrðu í nýtingarflokki.

Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður hefur einnig lagt fram tvær tillögur um að virkjanakostir á Suðurlandi verði fluttar úr biðflokki í nýtingarflokk.

Jón Bjarnason hefur lagt fram tvær tillögur um að virkjanakostir á Norðurlandi verði fluttar úr biðflokki í verndarflokk. Þetta eru m.a. virkjanir í Jökulsá í Skagafirði.

Þá hefur Atli Gíslason lagt fram breytingartillögu um að virkjanir á Reykjanesi, á Hengilssvæðinu og Bjarnarflagsvirkjanir, sem eru samkvæmt rammaáætlun í nýtingarflokki, færist í biðflokk.

Sjá nánar um stöðu rammaáætlunar á Alþingi////////////////Þetta er ekkert samkomulag,og verður ekki,að mínu mati og fl. það sjá allir sem vilja,að þetta mun hnjóta sammælis þetta stopp V.G. sem samfylking er búin að samþykja í kaupum um að fá sitt fram!!!þetta er það sem við Íslengingar viljum nýta orkuna og auðlindirnar við bara krefjumst þessa ekkert annað!!!enda eigum  við þetta  öll og veðum að borga skuldir og lifa!!!annað ekki í dæminu!!!!/Halli gamli


mbl.is 11 breytingartillögur við rammann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. desember 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband