Þingstörfum hvergi nærri lokið///engin samvinna í boði!!!!!

Þingstörfum hvergi nærri lokið Innlent | mbl | 16.12.2012 | 14:12 Ekki er útlit fyrir að þingstörfum ljúki á næstunni.

Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að staðan sé óbreytt, mörg mikilvæg mál liggi fyrir þinginu og að ekki sé búið að semja um meðferð þeirra.

Á meðal þeirra mála sem stjórnarflokkarnir vilji klára sé rammaáætlunin. Illugi segir að hann eigi alveg eins von á því að þinghald verði nánast ofan í jólin, því að málin sem verið sé að fást við séu þess eðlis að þau muni taka tíma.

„Þeirra á meðal eru rammaáætlunin, fjárlögin, bandormurinn og breytingar á tollum og vörugjöldum sem allt eru mjög umdeild og stór mál og síðan fjöldi annarra smærri mála sem verður að klára fyrir áramótin.

Við það bætast svo önnur mál sem menn eru að velta fyrir sér hvort að nauðsynlegt sé að klára í desember eða hvort þau geti beðið fram í janúar, þannig að það er heilmikið eftir hjá þinginu.

“ Illugi segir að það sé mjög rík krafa hjá stjórnarflokkununum að rammaáætlunin verði á meðal þeirra mála sem verði kláruð núna fyrir áramótin.

Hann eigi þess vegna von á því að umræðan um rammaáætlunina muni halda áfram á morgun þó að hann geti ekki fullyrt neitt um það

. „Umræðu um rammaáætlunina er ekki lokið og í kjölfar sameiginlegs fundar umhverfis- og samgöngunefndar og atvinnuveganefndar á laugardaginn með fulltrúum ASÍ og Samtaka atvinnulífsins er eðlilegt að málið verði rætt í þingsalnum á morgun.“/////////////Þetta bara sýnir okkur hvernig ástandið er á Alþingi allt í heglum þara,enginn samvinna bara vaða fram með ofurvaldi,kommana sem ætla ekki að gefa neitt eftir í byltingu sinni með allt á síðustu stundu koma öllu í bobba Fjárlögum-rammaáættlun -stjórnarskána+fiskveiðum og útgerð!!!þetta mun ekki takast sem betur fer,því meirihlutinn er ekki fyrir hendi í þjóðfélaginu///Halli gamli


mbl.is Þingstörfum hvergi nærri lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband