Telur að Stöð 2 fari villur vegar//Mikið sammál Ara Trausta þarna!!!!

Telur að Stöð 2 fari villur vegar Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 17:03 Framboðsstjórn Ara Trausta Guðmundssonar telur að Stöð 2 fari villur vegar og harmar vinnubrögð fjölmiðilsins, en greint hefur verið frá því að StAri Trausti Guðmundsson. öð 2 leggi upp með umræðufund í Hörpu með aðeins tvo forsetaframbjóðendur, þau Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson. Í bréfi sem framboðsstjórn Ara Trausta hefur sent frá sér segir, að eftir því sem málflutningur frambjóðenda sjálfra í útvarpi og sjónvarpi eykst, raskast hlutföll í skoðanakönnunum og þeim óákveðnu og þöglu fækkar. „Það hefði verið fyllilega eðlilegt að hafa fleiri frambjóðendur en þá tvo á fyrsta umræðu- eða kappræðufundi mánaðarins en beina svo kastljósinu ef til vill að þeim 2-3 efstu undir lokin.“ Þá segir að Ari Trausti hafi ríka sérstöðu sé horft til aldurs, reynslu, þekkingar, mótaðrar stefnu og skírskotunar til kjósenda allra flokka jafnt sem óháðra. „Fjölmargir bíða því eftir að hann takist á við meðframbjóðendur sína. Efalítið eiga næstu skoðanakannanir eftir að sýna að Stöð 2 gerir nú leið mistök, fjarri þeim lýðræðislega grunni sem forsvarsmenn hennar telja ákvörðun sína hafa.“///Mikið er maður sammála Ara Trausta þarna,þetta er ekki boðlegt að koma svona fram af ábyrgri Sjónvarstöð als ekki,og við sem verslum við Stöð 2 erum ekki ánægð með svona vinnubrögð,þau væru ekki góð ef RÚV ætti hlut að máli!!!/Halli gamli
mbl.is Telur að Stöð 2 fari vill vegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnur fékk 68 milljónir í laun/Það er ekki furða að þarna hækkar daglega,Það Vantar Jóhannes á Markaðin,enda mun maður versla við hann,þegar hann byrjar!!

Finnur fékk 68 milljónir í laun Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 16:45 Finnur Árnason, forstjóri Haga, var með 68 milljónir í föst laun og árangurstengd laun á síðasta ári. Það gera rúmlega 5,6 milljónir á mánuði. Hann og nokkrir lykilstjórnendur fengu auk þess milljónir í greiðslur frá Eignabjargi, dótturfélagi Arion banka. Finnur fékk 43 milljónir í laun á árinu og 25 milljónir í árangurstengd laun. Guðmundur MaFinnur Árnason forstjóri Haga rteinsson fékk einnig 25 milljónir í árangurstengd laun, auk 32 milljóna í laun og hlunnindi. Guðrún Eva Gunnarsdóttir, fjármálastjóri fékk 8 milljónir í árangurstengd laun og 20,3 milljónir í laun og hlunnindi. Fram kemur í ársreikningnum að á síðasta ári samdi Eignabjarg ehf., sem á þeim tíma var móðurfélag Haga hf., við lykilstjórnendur Haga hf. um afhendingu á hlutafé í Högum hf. til stjórnendanna án endurgjalds. Samkomulagið var til uppgjörs á eldra samkomulagi við stjórnendur Haga hf. Nafnvirði hlutafjárins var 17,0 millj. og voru við undirskrift 7,7 millj. hlutir afhentir lykilstjórnendum en eftirstöðvarnar 9,4 millj. hluta voru afhentar í febrúar 2012. Lykilstjórnendur skuldbundu sig með samkomulaginu til að starfa fyrir Haga hf. til 30 . júlí 2012. Eignabjarg ehf. tók að sér að bera allar skattgreiðslur vegna samninganna. Heildarvirði samkomulagsins var metið um 344,3 millj. kr. en það er sú greiðsla sem lykilstjórnendur Haga fá greidd til viðbótar við föst launa, hlunnindi og árangurstengd laun. 530 milljónir greiddir í arð Hagnaður Haga á síðasta rekstrarári, 1. mars 2011 – 29. febrúar 2012, nam 2.344 milljónum króna. Stjórn Haga leggur til að greiddur verði út um 530 milljónir í arð til hluthafa./////Þetta er svifirðilegt að sjá,og hvar er nú hvörtunardeildin sem lagði Jóhannes og Son i einelti!!! þetta er svona og það sínir að menn hafa engu gleymt í þessum launaskalla eða hitt þá heldur!!Nú hættir maður að versla þarna!!Og geri það bara í Viðir á meðan, að Jóhannes er að hafa sig til að versla við okkur smælingjana/Halli gamli
mbl.is Finnur fékk 68 milljónir í laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brendan Rodgers að taka við Liverpool/Fer þá Gylfi þangað einnig????

Brendan Rodgers að taka við Liverpool Íþróttir | mbl.is | 30.5.2012 | 13:27 Brendan Rodgers verður næsti knattspyrnustjóri Liverpool samkvæmt breska ríkisútvarpinu, BBCBBC segir að Liverpool eigi einungis eftir að semja við Swansea um greiðslu fyrir Rodgers en hún gæti numið allt að fimm milljónum pundaRodgers hafnaði fyrst Liverpool en nú virðist hann vera á... ef marka fá fréttir velskra miðla fyrr í dag. Rodgers náði frábærum árangri með nýliða Swansea í úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en liðið endaði í ellefta sæti deildarinnar. Gylfi Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, hefur verið sterklega orðaður við Swansea og hélt liðið því fram að hann væri búinn að semja um kaup og kjör. Rodgers var maðurinn sem fékk Gylfa til Swansea og er nú alls óvíst hvort af verði félagaskiptum Gylfa til Swansea.Þetta eru góðar fréttir, og fylgir þá bara ekki Gylfi bara meða þangað ,það  væri bara gott/Halli gamli 


mbl.is Brendan Rodgers að taka við Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvöldfundur í atvinnuveganefnd/Eiga þetta þá að kallast mirkraverk????

Kvöldfundur í atvinnuveganefnd Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 13:45 Fundi atvinnuveganefndar, sem frestað var í hádeginu, hefur verið boðaður kl. 19 í kvöld. Á fundinum á að ræða um frumvarp um veiMynd 607669 ðigjöld og frumvarp um stjórn fiskveiða. Ekkert liggur fyrir hvenær atvinnuveganefnd lýkur umfjöllun sinni um frumvörpin, en Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að sjálfstæðismenn vilji að gerð verði úttekt á heildaráhrifum þessara tveggja frumvarp á sjávarútveginn miðað við þær breytingar sem meirihluti nefndarinnar leggur til að gerðar verði á frumvörpunum. Hann segir ekki nægjanlegt að horfa á hækkun veiðigjalda. Taka verði með í reikninginn hvað áhrif breytingar á lögum um stjórn fiskveiða hafi á getu sjávarútvegsins til að greiða veiðigjöld.///////Er það ekki leiðan að skoða afleiðingarnar fyrst en ekki eftirá,eins og þessi ríkisstjórn vill,með flest mál!! það er og verður að  reikna útkomuna núna en ekki þagar skaðin er skeður!!! eða hvað,hitt er bara feigðarflan!!!!/Halli gamli
mbl.is Kvöldfundur í atvinnuveganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur Jónasson: Vaðlaheiðargöng/Allar forsendur breyttar!!!

Ögmundur Jónasson: Vaðlaheiðargöng Innlent | Morgunblaðið - greinar | 30.5.2012 | 8:59 „Á Alþingi fer nú fram umræða um Vaðlaheiðargöng. Í seinni tíð hef ég gerst gagnrýninn á þá framkvæmd vegna þess að áhöld eru um að forsendur hennar standist og síðan hitt að tillögur eru um að flýta Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum og óheppilegt er að vinna að tvennum göngum í einu,“ segir Ögmundur Jónasson í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að aðkoma sín að þessum málum hafi fléttast inn í umræðurnar á þingi og hafi söguskýringÖgmundur Jónasson ar sumra þingmanna verið harla misvísandi. Í grein sinni segir Ögmundur m.a.: „Vorið 2008, nánar tiltekið 29. maí, var samþykkt á Alþingi þingsályktun um viðauka við fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2007-2010. Þar segir: „Gert er ráð fyrir að Vaðlaheiðargöng verði byggð í einkaframkvæmd með veggjöldum. Göngin verði þó fjármögnuð að hálfu úr ríkissjóði með jöfnum árlegum greiðslum eftir að framkvæmdatíma lýkur árið 2011 í 25 ár.“ Þetta var fyrir hrun. Eftir hrun kemur annað hljóð í strokkinn. Framkvæmdafé til samgöngumála skreppur saman um helming og fyrri framkvæmdaáætlanir verða að engu.“ Í niðurlagi greinar sinnar segir Ögmundur: „Allar forsendur taka breytingum og okkur ber að horfa til þess. Það á við um ráðherra, ríkisstjórn og Alþingi sem hefur fjárveitingarvaldið á hendi. En þessa framkvæmd sem og aðrar fjárfrekar framkvæmdir ber að ræða á réttum forsendum.“//////Þetta er rétt hjá Ögmundi aðstæður hafa gjöramlega breyst ekki spurning,þetta fer bara í röð sem verður sett um göng ekki spurning,svona reikningar standast aldrei,svo hugsandi menn ,verða bara að bíða annað hefur forgang!!!Halli gamli
mbl.is Ögmundur Jónasson: Vaðlaheiðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklar breytingar til batnaðar//Menn far ekki í Geitarhús að leita sér ullar!!!!

Miklar breytingar til batnaðar Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 11:29 „Þetta eru miklar breytingar til batnaðar, en það var líka margt sem mátti bæta,“ segir Daði Már Kristófersson dósent við Háskóla Íslands, en hann kom fyrir atvinnuveganefnd Alþingis í morgun þar sem fjallað var um breytingatillögur á frumvarpi um veiðigjöld. Daði Már og Stefán B. Gunnlaugsson, lektor við Háskólann á Akureyri, unnu í vor ítarleMynd 588942 ga úttekt á frumvarpinu um veiðigjöld að beiðni atvinnuveganefndar Alþingis. Segja má að í úttektinni hafi þeir gefið frumvarpinu falleinkunn. Daði tók fram að hann hefði haft stuttan tíma til að skoða breytingartillögur meirihluta atvinnuveganefndar, en augljóst væri að breytingarnar væru til bóta. Nefndin hefði tekið tillit til margra ábendinga sem hann og Stefán settu fram í greinargerð sinni. Eitt af því sem Daði og Stefán gagnrýndu var að í frumvarpinu væri renta ofmetin, svo nemur tugum prósenta vegna villu í útreikningum. Daði sagði að þetta hefði verið lagfært með breytingatillögunum. Heimilaður hefði verið frádráttur vegna neikvæðrar rentu og einnig hefði verið tekið tillit til eigna með skynsamlegri hætti en gert var áður. „Það er samt þannig að sérstaka veiðigjaldið er enn hátt og ég hef af því áhyggjur. Þó gjaldið eitt og sér sé þannig að mörg fyrirtækjanna gætu tekist á við það þá má ekki gleyma því að til viðbótar koma til aðgerðar í hinu frumvarpinu,“ sagði Daði. Í frumvarpinu um stjórn fiskveiða er m.a. gert ráð fyrir að lagt verði 3% gjald á viðskipti með aflahlutdeild. Daði sagði að með því væru útgerðir þvingaðar til að viðhalda óbreyttu rekstrarformi, nú þegar svo miklar breytingar væru að eiga sér stað á rekstrarumhverfinu. Stækkun á pottum þýddi einnig verulega skerðingar á aflahlutdeild margra fyrirtækja. „Það er varasamt að skoða þessi frumvörp hvort í sínu lagi vegna þess að geta útgerðarinnar til að standa undir greiðslu veiðigjalds er að sjálfsögðu háð almennum skilyrðum útgerðarinnar, eins og fyrirkomulagi úthlutun veiðiheimilda á komandi árum og að sjálfsögðu takmörkunum á viðskipti með aflahlutdeild og aflamark,“ sagði Daði.//////Mikkið er rætt við háskolaborgara um fiskveiðar og útgerð!! er ekki nær að tala við Sjómenn og útgeramenn?? það hefði ég haldið,þó svo reikningur liggi ekki eins firði hjá útgerð er það þeir sem gera út og er teista fyrir að afla fiskjar,þetta er dæmigert að ættla að gefa bara sjómnnum langt nef og tala bara við lektora í háskólanum,þetta er þagar grand er skoðað bara árás úr launsátri ,ekkert annað/_Halli gamli
mbl.is Miklar breytingar til batnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplýst um tugi innbrota///Ekki veitir af að nái þessa kauða!!!!!

Upplýst um tugi innbrota Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 10:14 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst um tugi innbrota í heimahús í Grafarvogi í Reykjavík. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar í síðustu viku og sátu tveir þeirra í gæsluvarðhaldi um tíma. Mennirnir, sem hafa áður komið við sögu hjá lögreglu en mismikið þó, játuðu allir aðild sína að innbrotunum. Þeir stálu m.a. myndavéMynd 542011 lum, fartölvum, símum, sjónvörpum, rafmagnsverkfærum, skartgripum og peningum. Tekist hefur að endurheimta hluta af þýfinu. Innbrotin voru framin á nokkurra vikna tímabili. Handtöku þjófanna má þakka árvekni ónefnds íbúa en sá lét lögregluna vita um grunsamlegar mannaferðir og þar með komst hún á sporið með fyrrgreindum árangri, segir í frétt frá lögreglunni./////Á þessu verður að taka með lögæslu, og einnig eginn gæslu, og jafnvel laupa hana!!!Lögregla kemst bara ekki yfir þetta!! kerfi eru góð en þeir færu fara inn fyrir það,en við verum að vera á verði//Halli gamli
mbl.is Upplýst um tugi innbrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplýst um tugi innbrota///Ekki veitir af að nái þessa kauða!!!!!

Upplýst um tugi innbrota Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 10:14 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst um tugi innbrota í heimahús í Grafarvogi í Reykjavík. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar í síðustu viku og sátu tveir þeirra í gæsluvarðhaldi um tíma. Mennirnir, sem hafa áður komið við sögu hjá lögreglu en mismikið þó, játuðu allir aðild sína að innbrotunum. Þeir stálu m.a. myndavéMynd 542011 lum, fartölvum, símum, sjónvörpum, rafmagnsverkfærum, skartgripum og peningum. Tekist hefur að endurheimta hluta af þýfinu. Innbrotin voru framin á nokkurra vikna tímabili. Handtöku þjófanna má þakka árvekni ónefnds íbúa en sá lét lögregluna vita um grunsamlegar mannaferðir og þar með komst hún á sporið með fyrrgreindum árangri, segir í frétt frá lögreglunni./////Á þessu verður að taka með lögæslu, og einnig eginn gæslu, og jafnvel laupa hana!!!Lögregla kemst bara ekki yfir þetta!! kerfi eru góð en þeir færu fara inn fyrir það,en við verum að vera á verði//Halli gamli

Fór betur en á horfist//Já það má nú segja það,svo unarlegt sem það er!!

Fór betur en á horfist Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 0:11 Kona á miðjum aldri slapp svo gott sem ómeidd eftir umferðarslys síðdegis í gær. Þá ók hún bifreið sinni, Volkswagen Polo, á brúarstólpa með þeim afleiðinguMeð ólíkindum þykir að konan hafi sloppi jafn vel og raun ber vitni. m að bifreiðin hafnaði ofan í lok sem rennur við Fornu Fróðá, skammt frá gatnamótunum að Fróðárheiði á norðanverðu Snæfellsnesi. Samkvæmt upplýsingum frá vegfaranda fór bifreiðin af miklu afli fram af brúnni og hafnaði raunar á brúarstólpanum fjær áður en hann hafnaði á hvolfi ofan í læknum. Konan sem var ein í bílnum komst af sjálfsdáðum út og þykir með ólíkindum að hún hafi sloppið svo vel frá slysinu. Meiðsli hennar reyndust lítilsháttar og ekki eru tildrög slyssins enn ókunn.////Guði sé lof að ekki fór verr,og það er eins og myndin sýnir undarlegt!! en gott,og þetta kallar maður vel sloppið!/Halli gamli
mbl.is Fór betur en á horfðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varamenn í stað ráðherra//Byltingin heldur áfram :og stoppar bara ekki!!!

Varamenn í stað ráðherra Innlent | mbl.is | 29.5.2012 | 22:25 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis hefur lagt til að samþykkt verði frumvarp um breytingar á þingsköpum í þá veru að veStjórnarráðshúsið.
ita ráðherra sem jafnframt er kjörinn alþingismaður heimild til að sitja á Alþingi einungis samkvæmt embættisstöðu sinni sem ráðherra. Varamaður ráðherra taki sæti á Alþingi í hans stað á meðan hann gegnir embættinu. Í áliti meirihlutans segir að verði frumvarpið samþykkt eigi ráðherrar samkvæmt embættisstöðu sinni sæti á Alþingi, og eigi þeir rétt á að taka þátt í umræðum eins oft og þeir vilja, en gæta verða þingskapa. Atkvæðisrétt eiga þeir þó því aðeins að þeir séu jafnframt alþingismenn. Frumvarpið felur í sér að ráðherrar sem nýta sér heimildina geta tekið þátt í umræðum og flutt mál en eiga ekki atkvæðisrétt. Varaþingmaður sem tæki sæti ráðherra á Alþingi færi með atkvæðisrétt, hefði öll réttindi alþingismanns og sömu skyldur. Fjallað var um kostnað við breytingar sem frumvarpið felur í sér, ef ráðherra nýtir heimildina. Fyrir nefndinni kom fram að beinn kostnaður sem Alþingi greiðir, þ.e. laun og launatengd gjöld vegna hvers þingmanns, er að meðaltali um 12 millj. kr. á ári. Þessu til viðbótar greiðir forsætisráðuneyti laun og launatengd gjöld til hvers ráðherra sem nemur tæplega 7 millj. kr. á ári. Þannig hefur fækkun ráðherra um fjóra leitt til sparnaðar í launum og launatengdum gjöldum um sem nemur 27,6 millj. kr. á ári. Viðbótarlaunakostnaður við innkomu varaþingmanna í stað ráðherra sem kjósa að víkja sæti getur því numið á bilinu 12–96 millj. kr. en þá eru ótalin útgjöld vegna starfsaðstöðu og þjónustu, ferðakostnaðar og húsnæðiskostnaðar, að meðaltali um það bil 5,5 millj. kr. á hvern þingmann./////Enn er talað um sparnað ,nei hann er sko engin við þetta,bara bruðl og einnig að gera ráðherraræðið  meira ekkert annað,á bak við þetta er bar verið að hringla í Þingsköpum og ger málin erfiðari ekkert annað,en gerir þessi ríkisstjórn ekki annað en spreða i tóma vitleysu,en skera svo niður í Heilsugeiranum og víðar svo,það þarf orðið mann ,til að velja um dauða eða líf!!!/Halli gamli 

mbl.is Varamenn í stað ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 30. maí 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband