England sigurvegari í D-riðli - mætir Ítalíu/óréttlát úrslit þarna mjög!!!

England sigurvegari í D-riðli - mætir Ítalíu Íþróttir | mbl.is | 19.6.2012 | 20:38 Englendingar stóðu uppi sem sigurvegarar í D-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu eftir sigur á Úkraínu, 1:0, í lokaumferðinni í kvöld.John Terry í þann veginn að bjarga á marklínu Englands gegn...
 Svíar unnu Frakka, 2:0, en Frakkar komast samt áfram í öðru sæti riðilsins. England fékk 7 stig, Frakkland 4, Úkraína 3 og Svíþjóð 3 stig. England mætir Ítalíu í 8-liða úrslitunum og Frakkland mætir Spáni. Wayne Rooney lék sinn fyrsta leik með Englendingum í keppninni, eftir að hafa tekið út leikbann í fyrstu tveimur leikjunum. Hann skoraði sigurmarkið á 48. mínútu með skalla af örstuttu færi eftir frábæran undirbúning hjá fyrirliðanum Steven Gerrard. Englendingar sluppu fyrir horn á 63. mínútu þegar John Terry bjargaði á marklínu frá Devic en miðað við sjónvarpsmyndir fór boltinn allur innfyrir marklínuna. Svíar, sem þegar voru úr leik, gerðu sér lítið fyrir og unnu Frakka 2:0. Zlatan Ibrahimovic skoraði stórglæsilegt mark á 54. mínútu og Sebastian Larsson innsiglaði sigurinn í uppbótartíma./////Þetta var ósangjarn sigur Breta svo ekki sé meira sagt,Úkranía mikið betra liðið og átti að fá að mynnsta tvö mörg annað vara inni en ekki dæmt,sem slíkt!!!!Úkranía var langtum betra,en mörkin gilda,Svíar tóku Frakka í nefið en það er svo einnig Frakkar fara áfram!!!!svona er knattspyrnan bara/Halli gamli

mbl.is England sigurvegari í D-riðli - mætir Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forbes-listinn: Tiger ekki lengur tekjuhæstur/Þetta eru svimandi tölur!!!!

Forbes-listinn: Tiger ekki lengur tekjuhæstur Íþróttir | mbl.is | 19.6.2012 | 15:00 Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather Jr. er tekjuhæstur allra íþróttamanna en tímaritið Forbes birti í dag árlegan lista sinn yfir 10Mayweather verður í fangelsi næstu mánuðina vegna...0 tekjuhæstu íþróttamenn síðustu tólf mánaða. Mayweather rakaði inn 85 milljónum dollara á þessum tíma eða því sem nemur ríflega 10,5 milljörðum íslenskra króna. Hann barðist tvívegis á síðustu tólf mánuðum og vann báða bardagana en Mayweather hefur aldrei tapað á sínum atvinnumannaferli. Mayweather fær tekjur fyrir að vinna bardagana en hann græðir þó mest á því að að kynna sína eigin bardaga í gegnum fyrirtækið sitt, Mayweather Promotions. Þannig fær Mayweather skerf af miðasölu, sjónvarpstekjum og peninga frá styrktaraðlum hvers bardaga. Tiger er ekki lengur efstur en á þó fyrir salti í grautinn. AFP Woods ekki lengur efstur Annar hnefaleikakappi, Manny Pacquiao, er í öðru sæti en hann þénaði tæplega 8,8 milljarða króna á síðasta ári. Báðir koma þeir á undan Tiger Woods sem fellur úr efsta sætinu sem hann hefur setið í síðan 2001. Tiger þarf þó lítið að kvarta þar sem hann þénaði tæpa 7,5 milljarða króna á síðasta ári þrátt fyrir að gera afar lítið á vellinum. LeBron James er efstur af körfuboltamönnum NBA-deildarinnar en laun þeirra alla minnkuðu um 20 prósent þar sem deildin hófst ekki fyrr en í desember. Hann og Kobe Bryant eru báðir á lista yfir tíu efstu. Amerískur fótbolti með fleiri en knattspyrnan Engin íþrótt á fleiri fulltrúa á listanum yfir efstu 100 tekjuhæstu íþróttamennina en amerískur fótbolti en 30 leikmenn úr NFL-deildinni komast á listann. Aðeins einn er þó á meðal efstu tíu en það er leikstjórnandi Denver Broncos, Peyton Manning, sem spilaði þó ekkert á síðasta tímabili með Indianapolis Colts vegna meiðsla. Sharapova var nýbakaður meistari á opna franska meistaramótinu. AFP Tekjuhæsti knattspyrnumaðurinn er að vanda David Beckham, leikmaður Los Angeles Galaxy, en auk þess að hafa verið á síðasta ári risasamnings síns hjá liðinu eru tekjur hans fyrir auglýsingar gríðarlegar. Næstur kemur Cristiano Ronaldo. Konur í miklum minnihluta Íþróttamennirnir 100 koma úr ellefu íþróttagreinum en þar má finna tvo krikket-spilara og eina frjálsíþróttastjörnu, spretthlauparann Usain Bolt. Þessir 100 þénuðu samtals 2,6 milljarða dollara á síðustu tólf mánuðum eða því sem nemur 326 milljörðum íslenskra króna. Konur eru í miklum minnihluta á listanum en aðeins tvær konur eru á topp 100. Tennisdrottningin Maria Sharapova er í 26. sæti en tekjur hennar námu 27,9 milljónum dollara á síðustu tólf mánuðum eða því sem nemur 3,5 milljörðum íslenskra króna. Önnur tenniskona, Li Na, er svo nr. 81 á listanum með 18,4 milljónir dollara í tekjur á síðustu tólf mánuðum eða samtals 2,3 milljarða króna.

Hér má sjá listann í heild sinni. Topp tíu: 1. Floyd Mayweather, hnefaleikar - 10,7 milljarðar króna 2. Manny Pacquiao, hnefaleikar - 7,8 milljarðar 3. Tiger Woods, golf - 7,5 milljarðar 4. Lebron James, körfubolti - 6,7 milljarðar 5. Roger Federer, tennis - 6,6 milljarðar 6. Kobe Bryant, körfubolti - 6,5 milljarðar 7. Phil Mickelson, golf - 6 milljarðar 8. David Beckham, fótbolti - 5,8 milljarðar 9. Cristiano Ronaldo, fótbolti - 5,3 milljarðar 10. Peyton Manning, amerískur fótbolti - 5,3 milljarðar//////Þetta eru svimandi upphæðir og það segir okkur hvernig þessi vitleysa er orðin að mati flestra!!!Þetta er ekki íþróttalegt að manni finnst þetta eru bara öfgar og ekkert annað//Halli gamli


mbl.is Forbes-listinn: Tiger ekki lengur tekjuhæstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spánverjar og Ítalir áfram/sanngjarnt með Ítali en ekki með Spánverja???

Spánverjar og Ítalir áfram Íþróttir | mbl.is | 18.6.2012 | 20:37 Spánverjar og Ítalir tryggðu sér sæti í 8 liða ú Jesus Navas fagnar sigurmarki sínu fyrir Spánverja gegn Króötum.rslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu karla í kvöld. Spánverjar lögðu Króata, 1:0, í Gdansk á sama tíma og Ítalir unnu Íra, 2:0, í Poznan. Spánn endar með sjö stig, Ítalir fimm, Króatía fjögur en Írland ekkert. Spánn og Ítalía fara í átta liða úrslit og mæta liðum úr D-riðli, Frakklandi, Englandi eða Úkraínu.///Horfði á báða leikina og Ítalir unnu þetta og átti það skilið!! en Spánn Króatía var ekki sanngjarnt als ekki Króatar áttu að fá tvær vítaspyrnur,Dómaraskandall þar!!!Halli gamli


mbl.is Spánverjar og Ítalir áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdaframsal til Frakka?/Þetta er allvega á gráu svæði!!!!

Valdaframsal til Frakka? Innlent | mbl.is | 19.6.2012 | 15:42 Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður sagði á Alþingi í dag að hún efaðist um að breyting sem lögð er til í frumvarpi til breytinga á útlendingalögum stæðist stjórnarskrá. Samkvæmt frumvarpinu verður Frökkum falið vald til að synja um útgáfu vRagnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður Sjálfstæðisflokks... egabréfsáritunar fyrir Íslands. Samkvæmt lögum um útlendinga tekur Útlendingastofnun ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar, en heimilt er þó að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Á þessum grundvelli hafa verið gerðir samningar við nokkur ríki um að annast áritunarmál fyrir Íslands hönd í um 90 löndum og fara viðkomandi ríki með fyrirsvar fyrir Íslands hönd í áritunarmálum. Frakkar hafa séð um útgáfu á vegabréfum fyrir Íslands hönd í 13 löndum: Armeníu, Brúnei, Dóminíska lýðveldinu, Fidjieyjum, Georgíu, Hvíta-Rússlandi, Kambódíu, Katar, Líbanon, Makedóníu, Máritíus, Papúa og Úsbekistan. Einungis Útlendingastofnun er heimilt að synja umsókn um vegabréfsáritun samkvæmt núgildandi lögum og því hefur þurft að bera umsóknir undir Útlendingastofnun. 9. mars 2010 tilkynntu Frakkar að þeir myndu ekki lengur fara með fyrirsvar vegna útgáfu vegabréfsáritana fyrir Íslands hönd nema þeir fengju vald til að hafna umsóknum án þess að bera þær undir Ísland. Danir eru einnig í þessari sömu stöðu, en þeir ákváðu að gera ekki nýjan samning við Frakka. Þuríður Backman, sem gerði grein fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar, styður frumvarpið en segist hafa efasemdir um stjórnskipulega stöðu málsins. Ragnheiður Ríkharðsdóttir gagnrýndi að nefndin hefði ekki fengið umbeðnar upplýsingar frá innanríkisráðuneytinu. Hún sagði að þeirri spurningu hefði ekki verið svarað hvort Alþingi væri heimilt að framselja vald til Frakka með þeim hætti sem frumvarpið gerði ráð fyrir. Meðan þeirri spurningu hefði ekki verið svarað væri eðlilegt að láta stjórnarskrána njóta vafans./////Þetta ber að endusrskoða vel !!!þetta er ábyggilega á gráu svæði ekki spurning!!! Það er svo að við eigum ekki að framselja vald okkar til sannara hvorki þarna eða í ESB. svo það sé á hreinu,en þetta verður skoðað betur/Halli gamli
mbl.is Valdaframsal til Frakka?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæslan æfir með þýskum herskipum /þetta er hálf neiðarlegt,þessi þjóð sökti nokkrum Íslenskum skipum!!!

GÆfingar á Faxaflóa í morgun. æslan æfir með þýskum herskipum Innlent | mbl.is | 19.6.2012 | 15:22 Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA var í morgun við æfingar með þýsku herskipunum Frankfurt og Emden á Faxaflóa. Með báðum skipunum voru æfðar hífingar, aðflugi stjórnað frá skipinu með þeirri tækni sem notuð er í mjög litlu skyggni og lending á þyrlupalli. Var þyrlan fest niður, sleppt og tekið á loft. Gekk æfingin mjög vel, góð þjálfun fyrir báða aðila, en nokkur munur virðist vera á verklagi þeirra og Landhelgisgæslunnar./////Eftir Striðsárin var samkomuleg um að þetta land Þyskaland hefi ekki her eða tæki til sríðs,en það virðist einum of fljótt grafið yfir þetta,en er verið að dæma strísglæpamenn,en þessi þjóð sem kannski ekki á að gjalda feðar sinna ,en kom af stað tveimur heimstyrjöldum,á ekki að geta það aftur einu sinn ennþá,við sem urðum fyrir þvi að missa í styrjöldini af þeirra völdum, höfum engu geymt/Halli gamli
mbl.is Gæslan æfir með þýskum herskipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með enga formlega stöðu samkvæmt þingsköpum/Sammála Þór Saari þarna!!!

Með enga formlega stöðu samkvæmt þingsköpum Innlent | mbl.is | 19.6.2012 | 15:29 Fulltrúi Hreyfingarinnar í atvinnuveganefnd Alþingis, Þór Saari, lét á fundi hennar í morgun bóka mótmæli gegn því að Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. sérstakur trúnaðarmannahópur fulltrúa stjórnmálaflokkanna haldi áfram vinnu við frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og skili í kjölfarið af sér niðurstöðu í þeim efnum. Er þess krafist að unnið verði að málinu með atvinnuveganefnd enda hafi trúnaðarmannahópurinn enga formlega stöðu samkvæmt þingsköpum Alþingis. Bókunin er svohljóðandi: „Hreyfingin mótmælir því fyrirkomulagi við vinnu við frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld (mál 657 og 658) að svo kallaður trúnaðarmannahópur fulltrúa fimm stjórnmálaflokka haldi áfram vinnu sinni og skili frá sér samantekt/greinargerð til grundvallar frekari vinnu við frumvarp um stjórn fiskveiða. Slíkur hópur hefur enga formlega stöðu samkvæmt þingsköpum Alþingis og það er óásættanlegt að vinna við þingmál fari fram með þessum hætti. Hreyfingin krefst þess að hópurinn sem samanstendur af fulltrúum í atvinnuveganefnd vinni að málinu með atvinnunefnd allri og að nefndin öll hafi beina aðkomu að öllum fundum og tillögum hópsins.“//////Algjörlega sammála Þór Saari þarna þetta er ekki i lagi að skiða nefnt á vegum ríkistjórnar til þessa að fjalla um þetta það ber að hafa samráð Alþingis als þarna ekki spurning,nóg er komið af þökkun þarna,allt uppi á borðum/Halli gamli
mbl.is Með enga formlega stöðu samkvæmt þingsköpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólína segir ekki farið að reglum/Það er ekki í hennar hug að semja um neitt!!!

Ólína segir ekki farið að reglum Innlent | mbl.is | 19.6.2012 | 15:17 „Þingsköpin eru varnargirðing þingÓlína Þorvarðardóttir
ræðisins – þau eru leikreglurnar sem okkur ber að fara eftir og beita. Það hefur ekki verið gert að undanförnu. Þess í stað hefur verið samið í bakherbergjum.“ Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í pistli á vefsvæði sínu. Eins og greint var frá á mbl.is sagði Ólína við upphaf þingfundar í dag, að hún teldi sig óbundna af samkomulagi sem þingflokkarnir gerðu um þinglok. Ólína segir í pistli sínum að stjórnmálaflokkar geti í stjórnarmyndunarviðræðum dregið úr ítrustu kröfum og samið um útfærslur þegar gerður er nýr stjórnarsáttmáli tveggja flokka „en þingmenn hafa ekki umboð til þess að fara í þveröfuga átt eða semja um „málamiðlanir“ til skaða fyrir stefnumál eigin flokks eða þvert gegn stjórnarsáttmála.“ Hún segist áfram munu berjast fyrir heilbrigðum og farsælum breytingum á fiskveiðistjórnun okkar „en þá baráttu vilj ég heyja með opnum og heiðarlegum aðferðum, á grundvelli lýðræðislegrar umræðu og eðlilegra vinnubragða.“///////Þetta er ekki gott að vera svona þver!!! og vilja ekki semja ,þegar fólk sér að það er komið í mikinn minnihluta eins og þessi ríksstjórn er með bara 18% þjoðarinar á bak við sig eins og kannanir sýna!!!En þessir stælar Ólínu eru henni tamir mjög!!! manni dettur oft i hug Jóhanna Formaður hennar,að vera á móti öllu,ég sem hélt að V.G. hefðu þar einkaleyfi/Halli gamli

mbl.is Ólína segir ekki farið að reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3,7 milljörðum varið í Norðfjarðargöng/Mæli með að þessar 54 milljarðar sem koma inn á skatt tolla af Bifreiðum og eldneiti verði notað í vegi og göng!!

3,7 milljörðum varið í Norðfjarðargöng Innlent | mbl.is | 19.6.2012 | 14:36 Alþingi samþykkti í dag samgönguáætlun til ársins 2014, en samkvæmt henni verður 3.700 milljónum varið til gerðar NorðfjAlþingi samþykkti í morgun samgönguáætlun til ársins 2014.

arðarganga á næstu tveimur árum. Áætlaður kostnaður við Norðfjarðargöng er 10,5 milljarðar, en þau verða 16 km að lengd. Samkvæmt samgönguáætlun á að verja 1.200 milljónum til verksins árið 2013 og 2.500 milljónum árið 2014. Samkvæmt samgönguáætlun á að verja samtals 19.553 milljónum til samgönguframkvæmda á næsta ári, en fjárveitingin í ár er 16.244 milljónir.//////Þetta kemur út eftir mikið tal og múður,og Búið að afgreiða Vaðlaheiðargöng g sagt að sé einkaframkvæmt sem er það als ekki er ekki Kristján Möller þar í stjórn og ríkið borgar!!!En þessir 54 milljarðar sem inn koma af bifreiðim og eldsneyti i skatta og tolla að fara í þetta á næstu árum.þvi ekki við eigum það inni!!!svo og ætti þar að vera í fremsta flokki Sundabraut sem hefur verið á dagskár i 20 ár en gæti bjargað lífiokkar borgabúa ef yrði her hraungos og tala nú ekki um sparnaðin sem 1/4 landsmanna færu vikulega á norðir og vesturleið,svo auðviðat þessi göng 2-4 og svo brýr og breikka veg númer eitt hringvegin og svo alla hina,ef ekki er tími til þessa þegar svona árar þá hvenær??Það er löngu komin tími til að við fáum akfæra vegi og slysalausa!!!¨!/Halli gamli

 


mbl.is 3,7 milljörðum varið í Norðfjarðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn vildi lágmarka tjónið/Það viljum við öll,nema kommarnir!!!

Framsókn vildi lágmarka tjónið Innlent | mbl.is | 18.6.2012 | 23:58 „Við litum svo á að annað hvort myndi stjórnin keyra áfram með fiskveiðistjórnarfrumvarpið eða einfaldlega leggja fram nýtt frumvarp strax í september, sem hefði getað verið mjög skaðlegt og við ekki í neinni aðstöðu til þess að hafa áhrif á þaSigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
ð,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. formaður Framsóknarflokksins, um ástæður þess að flokkur hans samþykkti þinglok og þar með afgreiðslu veiðigjaldafrumvarpsins í núverandi mynd. Sigmundur Davíð rökstyður þá ákvörðun svo: „Við litum á það sem hlutverk okkar úr því sem komið var að lágmarka tjónið sem af þessu frumvarpi hlytist. Við höfum verið fylgjandi hækkun veiðigjalds en höfum lagt áherslu á að það mætti ekki vera hærra en svo að sjávarútvegurinn yrði áfram arðbær og að ekki þyrfti að segja upp hundruðum eða þúsundum starfsmanna eins og menn bentu á að hefði líklega fylgt frumvörpunum eins og þau litu út í upphafi.“ Hefðu viljað mat á áhrifunum - Hvernig getið þið tryggt að þetta hafi ekki neikvæð áhrif á afkomu útgerðarinnar? „Við hefðum að sjálfsögðu viljað fá mat á því hvaða áhrif þetta veiðigjald, eins og það lítur út núna, hefði haft. Það var hins vegar ekki fallist á það. Í staðinn var hótað beitingar 64. greinar þingskapa til þess að taka málið út úr umræðu. Þingmenn stjórnarliðsins fóru upp í ræðustól í umræðum og lýstu sig reiðubúna að beita þessu ákvæði. Niðurstaðan var sú að veiðigjaldið var aðeins lagt á til eins árs. Svo verður það endurskoðað af sérfræðinganefnd en auk þess var sett inn varúðarákvæði þess efnis að ef að forsendur veiðigjaldsins standa ekki eða að það verður aflabrestur eða verðfall á mörkuðum að þá verði veiðigjaldið endurskoðað innan ársins,“ segir Sigmundur Davíð og víkur að frumvarpinu um stjórn fiskveiða. Varasömustu ákvæðin tekin út „Svo samþykktu forystumenn stjórnarflokkanna með undirritun að ef að það kæmi fram nýtt sjávarútvegsfrumvarp, þ.e.a.s. um stjórn fiskveiða, yrði ekki í því þau ákvæði sem við og sérfræðingarnir sem fóru yfir málin höfðu helst varað við. Þar nefni ég meðal annars ákvæði sem hefðu dregið enn frekar úr úthlutun aflaheimilda til þeirra sem hafa fjárfest í þeim. Ef það kemur fram nýtt frumvarp mun það ekki innihalda þau atriði sem við og sérfræðingarnir sem skiluðu inn athugasemdum um gamla frumvarpið töldum varhugaverðust. Auk þess mun vinnuhópur fara yfir hvort hægt sé að ná sameiginlegri niðurstöðu um sjávarútvegsmálin. Hvað sem kemur út úr því er ljóst að umdeildustu ákvæðin eru komin út og búið að skapa lágmarksstöðugleika um greinina. Jafnframt er ljóst að þær breytingar, ef það kemur nýtt frumvarp næsta haust, munu ekki taka gildi fyrr en fiskveiðiárið 2013/2014. Miðað við þá stöðu sem upp var komin er þetta mjög ásættanlegt en við vildum hins vegar ganga frá þessu öllu skriflega í ljósi reynslunnar af viðræðum við stjórnvöld.“ Staðan metin út frá hættunni - Er réttlætanlegt að setja á svona veiðigjald til bráðabirgða sem kann að hafa jafn neikvæðar afleiðingar og hagsmunaaðilar halda fram? „Nei. Auðvitað er það ekki réttlætanlegt. Það er ástæðan fyrir því að við beittum okkur svo mikið og lengi gegn því að það yrði gert, að gjaldið yrði lagt á án þess að búið væri að reikna út afleiðingarnar. Þegar við stóðum frammi fyrir því að vera sagt að þetta færi í gegn á einn eða annan hátt og jafnframt í ljósi hættunnar á því að sjávarútvegsmálin almennt færu í uppnám ákváðum við að fara þessa leið. Við litum svo á að annað hvort myndi stjórnin keyra áfram með fiskveiðistjórnarfrumvarpið eða einfaldlega leggja fram nýtt frumvarp strax í september, sem hefði getað verið mjög skaðlegt og við ekki í neinni aðstöðu til þess að hafa áhrif á það. Því töldum við að á heildina litið væri það þess virði að reyna að lágmarka skaðann og ná fram um leið lágmarks stöðugleika um framtíð greinarinnar.“//////Þetta er alveg hárr rétta hja´Sigmundi og stjórnaranstöðunni,stór leikur i stöðunni og seinnlega farsælla þegar grannt er skoðað ekki spurning,þessi ríkisstjórn er þá í haust komin á Eindaga og kosningar í vor eða fyrr svo þetta var ágætt,á Komanna/Halli gamli

mbl.is Framsókn vildi lágmarka tjónið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. júní 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband