Annað Lehman Brothers-hrun á leiðinni?/ekki skemtileg hugvekja þetta???

Annað Lehman Brothers-hrun á leiðinni? Erlent | mbl.is | 27.6.2012 | 11:04 Evrukreppan gæti dregið svo úr tiltrú á stórar bankastofnanir að fall risabanka á borð við Lehman Brothers, fjárfestingabankans sem markaði upphaf niðursveiflunnar í Bandaríkjunum haustið 2008, er hugsanlegt með ófyrirséðum afleiðingum. Kanadíski fjármálasérfræðingurinn Alex Jurshevski heldur þessu fram í viðtalsþætti á kanadísku fjármálasjónvarpsstöðinni BNN en hann aðstoðaði m.a. nýsjálensk stjórnvöld við að greiða úr mikilli skuldaóreiðu fyrir um tveim áratugum og þekkir því innviði skuldabréfamarkaða vel. Jurshevski heldur úti bloggi á vefsíðu fyrirtækisins sem hann starfar hjá, Recovery Partners, og fullyrðir þar að afskrifa verði hluta af skuldunum sem eru að draga evrusvæðið niður í hringiðu ölduróts. Með því að stafla lánum ofan á lán ofan í neyðarpökkum sé aðeins verið að slá vandanum á frest. Útlitið ekki jafn dökkt síðan haustið 2008 Í umræddum þætti er einnig rætt við Roben Farzad, fjármálasérfræðing hjá Bloomberg Businessweek, sem segir að staðan í alþjóðahagkerfinu hafi ekki verið jafn ógnvekjandi síðan í september 2008, eða frá því að Lehman Brothers beið skipbrot. Er tilefnið mikill skuldavandi Spánar og fjármögnunarvandi þarlendra banka. Þá er rætt við Brian Milner, viðskiptablaðamann hjá The Globe and Mail, helsta dagblaði Kanada, sem kallar eftir styrkari forystu Angelu Merkel Þýskalandskanslara andspænis evrukreppunni. Telur Milner að lausnin liggi í útgáfu sameiginlegra skuldabréfa á evrusvæðinu sem geti tekið þrýstinginn af fjármögnunarvanda ýmissa evruríkja, þar með talið Ítalíu sem eigi erfitt með aðgang að lánsfé um þessar mundir. Er þessi lausn vitaskuld mjög umdeild enda yrði hún stórt skref í átt til sameiginlegrar hagstjórnar á evrusvæðinu. Jurshevski telur þessa leið ekki leysa vandann enda eigi hann rætur í mismunandi framleiðni ólíkra hagkerfa með mismunandi launastig. Evrukreppan eigi sér kerfislægar rætur sem fjármálabandalag taki ekki á.//////Hugvekja sem er gott fyrir alla að lesa og reyna úr að bæta,allir geta tekið þetta til sín ekki spurning,manni hrís hugur við að þessir menn sem þarna stjórna skuli ekkert hafa lært,það eru ekki bara við Íslendingar!!!/Halli gamli
mbl.is Annað Lehman Brothers-hrun á leiðinni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pirlo: Þýskaland mun geta skapað sér færi/Þetta verður vonandi spennandi leikur mjög!!!

Pirlo: Þýskaland mun geta skapað sér færi Íþróttir | mbl.is | 27.6.2012 | 10:10 Ítalir mæta Þjóðverjum í uPirlo skoraði glæsilega úr sinni vítaspyrnu gegn Englandi.
ndanúrslitum Evrópumótsins í fótbolta á morgun og Andrea Pirlo býst þar við mun erfiðari leik en í átta liða úrslitunum gegn Englandi. „Við munum nálgast leikinn gegn Þýskalandi á sama hátt og gegn Englandi,“ segir Pirlo sem gefur ekki mikið fyrir frammistöðu Englands í átta liða úrslitunum. „Ólíkt Englandi þá mun þýska liðið geta skapað sér marktækifæri gegn vörninni okkar. England spilaði mjög varfærinn leik. Enska liðið sat til baka allan leikinn eins og Chelsea gerði í Meistaradeildinni. Að komast í vítaspyrnukeppnina voru góð úrslit fyrir Englendingana,“ segir Andrea Pirlo./////Þetta verður vonandi skemmtilegur leikur og spenna mikil!! Ítalir gætu vel fellt Þyska stálið það er ég viss um en það eru fleiri sem veðja á Þjóðverja!! en ég segi að Ítalir vinni  1-0 en það er bara mín skoðun,þetta var bara góður leikur hjá Spánni 4 Portugal 2 í Vítaspyrnukeppni,sem er bara heppni og ekkert annað,það vara jafnræði með liðunum i leiknum sjalfum ,en ekki einstefna ein og margur hélt,við bíðum spennt morgunndagsins,og svo auðvitað úrsliatana,sem ég ættla ekki að spá hvernig fer???/Halli gamli

mbl.is Pirlo: Þýskaland mun geta skapað sér færi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

11 milljarðar fyrir gjaldþrota félag/Auðvitað hefði átta að eiga það áfram og græða!!!

11 milljarðar fyrir gjaldþrota félag Innlent | mbl.is | 27.6.2012 | 19:41 Tap ríkisins vegna lánveitinga til Sjóvár er á bilinu 3,4 – 4,8 milljarðar. Fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar að ríkið hafi „greitt 11,6 milljarða fyrir eignarhlut í félagi sem var gjaldþrota.“ Árið 2010 var krafan færð til eignaumsýslufélags í eigu SHeildartap ríkisins vegna viðskipta í tengslum við Sjóvá...
eðlabanka Íslands, Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf og síðar breytt í hlutafé. Eignarhlutur Seðlabankans í Sjóvá var þá 73%. Sama ár seldi Eignasafn Seðlabankans rúmlega 52% hlut í félaginu og hefur kaupandinn rétt til að kaupa þau tæplega 21% sem eftir standa. Heildartap ríkisins vegna þessara viðskipta nemur á bilinu 3,4 – 4,8 milljörðum króna. Í skýrslunni segir að tapið komi ekki á óvart enda hafi ríkið greitt 11,6 milljarða króna fyrir eignarhlut í félagi sem í reynd hafi verið gjaldþrota. Hins vegar telur Ríkisendurskoðun ekki tilefni til að gera athugasemdir við söluferlið eða ákvarðanir forsvarsmanna Seðlabankans og ESÍ í þessu sambandi.///////Þetta söluferli er ekki afsakanalegt als ekki ,það þurfti ekki að tapa þarna,bara eig félagið þar til það skilaði gróða,og kannski bara að eiga eitt stykki tryggingafélag ein og einn banka!!En SteingrímurStór ráðherra tala'i i kvöld frá Frakklandi og vara að tala um alla uppleið okkar og framfarir allt gott innanlands en einasem gæti verið að væri að markaðir versnuðu kannski í ESB!!! Kalli er búin að kosta okkur í fljotfærni sennilega um 150 milljarða tapi eða meira á vitlausum kaupum og fyrirgreiðslum,eð er það ekki/Halli gamli

mbl.is 11 milljarðar fyrir gjaldþrota félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt að farið sé betur með fjármunina/Já það viljum við öll,en samt leiðréttiréttingu!!!

Mikilvægt að farið sé betur með fjármunina
Innlent | mbl.is | 27.6.2012 | 15:19

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir skynsamlegt að breytingar á bótakerfinu miði einkum að því að einfalda það og draga úr tekjutengingum. En slík endurskoðun verði einnig að miða að betri nýtingu þess fjármagns sem varið sé til málaflokksins.

„Nú segja fréttir að nýjar hugmyndir til breytinga muni einfalda kerfið til muna en kosta um 10 milljörðum meira á ári. Er þetta ráðlegt fyrir þjóð sem rekur ríkissjóð með tuga milljarða halla, með gjaldmiðil í höftum og þarf að grynnka á erlendum skuldum? Myndi hagsýn húsmóðir leggja þetta til?“ spyr Bjarni.///////Þetta er bara svo að það er hægt að leiðrétta þetta með eldra fólkið mikið tekjutengja og svo framvegis,við eigum einnig að taka í gegn örorkukerfið og laga það,þar er víðar maðkur í misuni ,margir sem vinna bara svarta vinnu þar?? en með sannanlega öryrkja er hægt að hækka og einnig við eldri Borgara sem háfa litið  í lífeyrissjóð ,við verðum að fá leiðréttingu!!!Halli Gamli


mbl.is Mikilvægt að farið sé betur með fjármunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liggur samningsafstaðan fyrir?/Hvað er í gangi :allt til????

Liggur samningsafstaðan fyrir? Innlent | mbl | 27.6.2012 | 13:48 „Ísland verður reiðubúið að uppfylla niðursÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. töður viðræðnanna,“ sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, á blaðamannafundi í Brussel spurður að því hvort Íslendingar væru reiðubúnir að opna efnahagslögsögu sína fyrir sjómönnum frá Evrópusambandinu í viðræðum um inngöngu í sambandið. Össur sagði ennfremur að fyrst þyrfti að hefja viðræðurnar um sjávarútvegsmálin og takast á við vandamálin í þeim efnum og út úr því kæmi samkomulag sem Ísland myndi fara eftir. Hann lagði ennfremur áherslu á að sjávarútvegsmálin yrðu „erfitt vandamál“ og að viðræður um þau myndu taka tíma. Því þyrfti að hefjast handa sem fyrst við að takast á við þær. Össur tók þó fram að hann stefndi ekki að undanþágum (e. derogations) í þeim efnum. Hins vegar hefði sambandið alltaf sýnt hugkvæmni í því að finna klæðskerasaumaðar sérlausnir fyrir umsóknarríki. Þá sagði Össur fyrr á blaðamannafundinum að aðildarferlið yrði að byggjast á löggjöf Evrópusambandsins og engu öðru. Voru ummæli Össurar slitin úr samhengi? Össur sagði ennfremur á blaðamannafundinum að íslensk stjórnvöld væru reiðubúin að leggja fram samningsafstöðu sína í sjávarútvegsmálum eins og mbl.is hefur áður fjallað um. Fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar síðastliðinn mánudag að líklega hefðu orð Össurar verið slitin úr samhengi í frétt evrópsku fréttaveitunnar Agence Europe sem mbl.is vísaði til en í frásögn hennar síðastliðinn föstudag kom meðal annars fram að ráðherrann hefði sagt á blaðamannafundinum að samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum væri tilbúin. Í frétt Bylgjunnar kom jafnframt fram að hugsanlega hefði í frétt Agence Europe verið átt við samningsmarkmiðin í ályktun meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis sem fylgt hefði þingsályktunartillögunni um að sótt yrði um inngöngu í Evrópusambandið í júlí 2009 og lengi legið fyrir. Össur sagði við Bylgjuna að vinna við samningsafstöðuna væri enn í gangi en að sú vinna væri þó tiltölulega langt komin. Hann vissi þó ekki nákvæmlega hvenær henni yrði lokið. Myndskeið frá fundinum á heimasíðu ESB Ummæli Össurar á blaðamannafundinum verða þó vart skilin öðruvísi en svo að samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum hafi þá verið tilbúin og ekkert að vanbúnaði að leggja hana fram. Á heimasíðu Evrópusambandsins er að finna myndskeið frá fundinum þar sem hlýða má á ummæli Össurar en þau voru hluti af svari við fyrirspurn erlends blaðamanns um sjávarútvegsmálin í tengslum við umsókn Íslands og þann árangur sem náðst hefði í þeim málaflokki (sjá hér að neðan, spurning blaðamannsins og síðan svar Össurar hefst á 10:50). „En sá árangur sem ég vísaði til er að stöðuskýrsla Evrópusambandsins er á réttri leið. Hún hefur þegar hafið vegferð sína í gegnum stofnanir Evrópusambandsins. Heima á Íslandi höfum við einnig náð verulegum árangri. Ég á við að við erum reiðubúin að leggja fram samningsafstöðu okkar (e. „we stand ready to put forth our negotiating position“) og við iðum í raun í skinninu að klóra yfirborðið á vandamálinu [þ.e. sjávarútvegsmálunum],“ sagði Össur í svari sínu. Liggur samningsafstaðan í sjávarútvegi fyrir? Enginn af viðmælendum Morgunblaðsins síðastliðinn mánudag kannaðist við að samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum lægi fyrir en þar var rætt við Gunnar Braga Sveinsson, þingflokksformann Framsóknarflokksins sem sæti á í utanríkismálanefnd Alþingis, Kolbein Árnason, formann sjávarútvegshóps í samninganefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu, og Vilhjálm Egilsson sem situr í sjávarútvegshópnum. Hins vegar sagði Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, að vinnu við samningsafstöðuna væri „í raun lokið“ og málið hefði „svo bara þann gang sem það á að fara.“ Reynt var að ná í Össur vegna fréttarinnar en án árangurs. Þá sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, í samtali við mbl.is síðastliðinn laugardag að hún furðaði sig á þeim ummælum utanríkisráðherra í Brussel að samningsafstaðan lægi fyrir þar sem hún hefði ekki verið lögð fyrir utanríkismálanefnd þingsins. Össur sagði hins vegar í samtali við Bylgjuna að þegar samningsafstaðan væri tilbúin yrði hún „umsvifalaust“ kynnt nefndinni. Eftir stendur sú spurning hvort samningsafstaðan í sjávarútvegsmálum liggur fyrir eða ekki. Þá er einnig ósvarað hvers vegna utanríkisráðherra sagði á blaðamannafundinum í Brussel síðastliðinn föstudag að samningsafstaðan lægi fyrir en sagði síðan að svo væri ekki í samtali við Bylgjuna um þremur sólarhringum síðar.///////Þetta er undarlegt svo ekki sé meira sagt að allt sé til reyðu að semja,eða er karlinn Össsur að flippa bara út alveg,eða er það Jóhann sem blífur þarna ,þetta er manni alveg óskyljanlegt!!!/Halli gamli
mbl.is Liggur samningsafstaðan fyrir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarsveit flutti farþega í land//Allt fór vel það gott!!

Björgunarsveit flutti farþega í land Innlent | mbl.is | 27.6.2012 | 16:22 Farþegar hvalaskoðunarbáts Norðursiglingar á Húsavík voru fluttir í land á öðrum tímanum í dag eftir að drepið var á aðalvél skipsins vegna gHvalaskoðun með Norðursiglingu. angtruflana. Að sögn framkvæmdastjóra Norðursiglingar var aldrei hætta á ferðum en til að gæta fyllsta öryggis var björgunarsveit kölluð út. Björgunarsveitarmenn buðust til að ferja alla níu farþega bátsins í land og var boðið þegið, því annars hefði orðið veruleg seinkun á heimkomu farþega. Skömmu eftir að farþegar voru farnir frá borði leysti áhöfn báts Norðursiglingar vandamálið og sigldi báturinn fyrir eigin vélarafli til hafnar.////allt er gott þá endar vel segir máltækið,og það sannast þarna,það er aldeilis mikið um hvalskoðun núna það bara gott,en verra er að geta ekki veitt hann þegar 30% heimsins sveltur/Halli gamli
mbl.is Farþegar fluttir í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundað verði um samingafstöðu í sjáfarútvegsmálum//Nú liggur mikið á???

Fundað verði um samningsafstöðuna í sjávarútvegsmálum Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Friðrik Tryggvason Fundað var í utanríkismálanefnd Alþingis í morgun þar sem rætt var um samningsafstöðu Íslands í þremur köflum í viðræðunum um inngöngu landsins í Evrópusambandið. Kaflarnir sem fundað var um voru skattamál, samevrópskt net og umhverfismál. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd, gat ekki setið fundinn þar sem hún er stödd erlendis en í bréfi til starfandi formanns nefndarinnar, Árna Páls Árnasonar, fyrir fundinn gerði hún athugasemd við það að ekki stæði til að ræða um samningsafstöðuna í sjávarútvegsmálum á fundinum í ljósi frétta í fjölmiðlum um að hún lægi fyrir. Hún sagðist ennfremur gera ráð fyrir því að fundað yrði hið fyrsta um samningsafstöðuna í sjávarútvegsmálum í utanríkismálanefnd þingsins. Þá óskaði hún eftir því í ljósi fyrirsjáanlegra forfalla nefndarmanna á fundinum í morgun að umræðuefni hans yrði aftur til umfjöllunar í nefndinni síðar. Frétt mbl.is: Liggur samningsafstaðan fyrir?///////Hvaða flítimeðferð  er þetta er virkilaga verið að íta á eftir þessu,þetta er furðulegt dæmi um ESB samninga,liggur svona á að gera þetta einmitt núna????Það er eitthvað ekki gott á bak við þetta/Halli gamli

ESA samþykkir ríkisaðstoð/Hver skilur þetta ríkistyrktur fyrir vogunarsjóði???

ESA samþykkir ríkisaðstoð Innlent | mbl.is | 27.6.2012 | 14:14 Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) samþykkti í dag ríkisaðstoð sem veitt var til endurskipulagningar á Íslandsbanka. ESA segir að með þessari endanlegu ákvörðun varðandi ríkisaðstoð til Íslandsbanka sé lokið einu af veigameistu málunum sem ESA hafi haft til rannsóknar í kjölfar hruns fjármálakerfisins á Íslandi árið 2008. „Bankinn mun áfram mæta  áskorunum í því að tryggja rekstrarhæfi til frambúðar, en ég lýsi ánægju minni með þann árangur sem hefur náðst. Íslensk stjórnvöld hafa beitt sér fyrir umtalsverðum umbótum á löggjöf og reglum um fjármálastarfsemi og eftirlit með henni. Jafnframt hafa þau nú boðist til að taka á sig skuldbindingar sem ætlað er að tryggja að fjármálamarkaðir á Íslandi muni njóta góðs af vikri samkeppni,“ er haft eftir Odu Helen Sletnes, forseta Eftirlitsstofnunar EFTA. Íslandsbanki var stofnaður haustið 2008 í framhaldi af hruni Glitnis banka. Innlend starfsemi Glitnis var færð til Íslandsbanka sem og að mestu innlendar eignir og skuldbindingar. Við endurreisnina veittu íslensk stjórnvöld nýja bankanum ríkisaðstoð í formi eiginfjárframlaga, lausafjárfyrirgreiðslu og ótakmarkaðrar ríkisábyrgðar á innlánum í innlendum bönkum og sparisjóðum. Fram kemur á vef ESA, að við rannsóknina hafi verið lagt mat á það hvort aðstoðin teljist samrýmanleg EES-samningnum á grundvelli b-liðar, 3. málsgreinar 61. greinar samningsins. Það ákvæði heimili að samþykkja aðstoð til að ráða bót á alvarlegri röskun á efnahagslífi EES-ríkis. Til þess að slík aðstoð teljist samrýmanleg þurfi að leggja fram áætlun um endurskipulagningu, sem þrufi að sýna fram á að: með áætluninni náist fram rekstrarhæfi til langs tíma; kostnaður við endurskipulagningu skiptist hæfilega milli eigenda bankans, bankans sjálfs og ríkisins og að ríkisaðstoðin takmarkist við það sem nauðsynlegt er; fullnægjandi ráðstafanir séu gerðar til að draga úr röskun á samkeppni. Þá segir að þar sem ríkisaðstoð til Íslandsbanka hafi verið veitt áður en hún var tilkynnt ESA, ákvað stofnunin þann 15. desember 2010 að hefja formlega rannsókn á viðkomandi ráðstöfunum. Í mars 2011 lögðu íslensk stjórnvöld fram upphaflega áætlun um endurskipulagningu, en breytt áætlun var svo lögð fram í febrúar 2012. „Eftir ítarlegt mat á lokaáætlun um endurskipulagningu komst ESA í dag að þeirri niðurstöðu að ráðstafanirnar fælu í sér ríkisaðstoð sem þó væri samrýmanleg reglum EES-samningsins. Hvað varðar endurnýjun á rekstrarhæfi bankans til frambúðar er í ákvörðun ESA lögð áhersla á að þótt bankinn og íslenskt efnahagslíf mæti ennþá áskorunum, hefur Íslandsbanki tekist á við brotalamir forvera síns. Bankinn býr nú við sterkt eiginfjárhlutfall og hefur náð árangri varðandi endurskipulagningu lána skuldsettra viðskiptavina sinna. ESA hefur einnig tekið tillit til þess að margvíslegar umbætur hafa verið gerðar á löggjöf um fjármálastarfsemi frá hruni fjármálakerfisins haustið 2008. Þessar breytingar hafa styrkt regluverk um fjármálastarfsemi á Íslandi og þar með aukið á öryggi í rekstri fjármálafyrirtækja. Þar sem fyrrum eigendur Glitnis banka hafa glatað hlutafjáreign sinni og lánadrottnar bankans þurfa einnig að sæta miklu tapi, telur ESA að kröfu um nægjanlegt framlag eigenda og fjárfesta sé mætt og bót sé ráðin á svonefndum freistnivanda. Íslandsbanki og íslensk stjórnvöld hafa boðist til að taka á sig ýmsar skuldbindingar sem draga úr röskun á samkeppni. Þar til tímabili endurskipulagningar lýkur er Íslandsbanka þannig óheimilt að kaupa aðrar fjármálastofnanir nema með samþykki ESA. Þá skuldbindur bankinn sig til að selja áfram eignarhluti í fyrirtækjum. Ennfremur mun bankinn veita upplýsingar á vefsíðu sinni um hvernig skipta megi um viðskiptabanka og gera skjöl þar að lútandi aðgengileg. Við mat á áhrifum aðstoðarinnar á samkeppni á Íslandi hefur ESA átt náið samstarf við Samkeppniseftirlitið. Ákvörðunin í heild sinni, án trúnaðarupplýsinga, verður birt á vefsíðu ESA, eftir u.þ.b. einn mánuð,“ segir á vef ESA.///////Hvað er eiginlega í gangi þarna Ríkisstyrkir fyrir svo vogunarsjóði,sem keyptu þetta á topbóluvirði til að græða á því ,maður er svo hissa að það hálfa væri nóg!!!!/Halli gamli
mbl.is ESA samþykkir ríkisaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama með meira fylgi en Romney/Það er ágætt því Obama mun gera meira í seinna tímabilinu ekki spurning!!!

Obama með meira fylgi en Romney Erlent | AFP | 27.6.2012 | 11:06 Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, er með mest fylgi í þremur stærstu ríkjum Bandaríkjanna. Forsetakosningar fara fram í landinu í nóvember og stendur baráttan á milli Obama, sem er frambjóðandi Demókrataflokksins, og Mitt Romney, Barack Obama
sem verður frambjóðandi Replicana. Samkvæmt könnun Quinnipiac háskólans nýtur Obama stuðnings 45% kjósenda í Flórída á meðan Romney er með 41%. Í Ohio er Obama með 47% en Romney 38%. Í Pennsylvaníu er Obama með 45% fylgi á meðan Romney nýtur stuðnings 39% kjósenda. Er þetta mun meiri munur heldur en var á frambjóðendunum tveimur í síðustu skoðanakönnun Quinnipiac.//////Þetta er svo að ég var ekki fyrst hrifin af Obama en hann  hefur unnið á og það er ýmislegt sem hann getur gert rétt seinna kjörtímabilið ekki spurning ég treysti honum betur en Mormónanum og milljarðamæringnum Rommey,mér finnst hann svolítill Rekan sem mundi setja allt á hausinn/Halli gamli

mbl.is Obama með meira fylgi en Romney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Giroud: Valdi Arsenal frekar en Chelsea/Mínir menn heppnir !!!!!

Giroud: Valdi Arsenal frekar en Chelsea Íþróttir | mbl.is | 27.6.2012 | 11:11 Franski framherjinn Oliver Giroud sem er að ganga í raðir Arsenal frá Montpellier í Frakklandi segist hafa hafnað því að semja við Evrópumeistara Chelsea. Chelsea er að leita að eftirmanni Didier Drogba og hafði Roman Abramovich, eigandi Oliver Giroud spilar á Emirates-vellinum næsta vetur. Chelsea, sýnt Giroud áhuga en hann varð markahæstur í frönsku úrvalsdeildinni í vetur. „Valið stóð á milli Chelsea og Arsenal. Ég valdi Arsenal vegna hugmyndafræði klúbbsins og stöðugleika hans. Þessir hlutir skipta mig miklu máli,“ segir Giroud sem kostar Arsenal 13 milljónir punda. „Mig hefur alltaf dreymt um að spila í ensku úrvalsdeildinni og Arsenal er frábært félag með mikið af frönskum leikmönnum,“ segir Oliver Giroud.////////Þetta er flott og gott fyrir mitt lið eða svo þagar maður er hrifin af svona knattspyrnu og heldur meðliði sýnu í bliðu og stíðu,eins og maður gerði með Leeds hér áður,en það hefur bleikur brugðist á mörgum sviðum,svo heldur maður með Fram en þar er maður frá barns aldri og ekki breytist það þó á móti blási um hríð,en Arsenal skal ná sýnum styrk aftur ekki spurning/Halli gamli
mbl.is Giroud: Valdi Arsenal frekar en Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 27. júní 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband