Má flytja inn en ekki framleiða////Landbúnaðarráherra Steingrímur sakvæmur sjálfum sér snuningurin 180'

Má flytja inn en ekki framleiða
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 18:29
Reglugerð ráðherra heimilar innflutning á ógerilsneyddum... Landssamband kúabænda hefur lýst yfir furðu sinni á því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi heimilað að flytja inn til landsins til einkanota ost sem unninn er úr ógerilsneyddri mjólk.
Óánægja kúabænda snýr að því að innlendum framleiðendum er óheimilt að framleiða vörur til sölu úr ógerilsneyddri mjólk.

Þann 23. maí sl. undirritaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. Í f-lið 3. gr. reglugerðarinnar segir svo: "Þó er heimilt að flytja til landsins allt að 1 kg af ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk til einkanota en ráðherra getur heimilað innflutning á meira magni í sama tilgangi."

„Vegna þessa þykir Landssambandi kúabænda rétt að benda á að hér á landi er í gildi reglugerð frá 2002 um mjólk og mjólkurvörur. Samkvæmt 16. gr. hennar er hérlendum framleiðendum óheimilt að framleiða til sölu, vörur úr ógerilsneyddri mjólk. Sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila innflutning á vörum sem innlendum framleiðendum er með öllu óheimilt að selja neytendum á Íslandi, hlýtur því að vekja mikla furðu,“ segir í tilkynningu Landssambands kúabænda./////////Þetta er ekki par fínt að leifa ekki framleiðslu á þessari vöru en leifa að flytja inn,Karlinn Steingrímur er ekki í lagi þarna fremur en annarstaðar,þetta er fáránlegt og eiginlega grátlegt/Halli gamli


mbl.is Má flytja inn en ekki framleiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantaði allan rökstuðning í niðurstöðu héraðsdómara///Góður dómur þetta og setur feminista í rökþrot í bili????

Vantaði allan rökstuðning í niðurstöðu héraðsdómara

Vísir Innlent 10. júlí 2012 19:30
Björk Eiðsdóttir segir umhverfi blaðamanna betra í dag en í gær.
Björk Eiðsdóttir segir umhverfi blaðamanna betra í dag en í gær.
Hugrún Halldórsdóttir skrifar:
Umræða um mansal og nektardansstaði á erindi við alla Evrópubúa, þetta kemur fram í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn tjáningarfrelsi blaðamannanna Björk Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur.

Björk og Erla voru dæmdar í héraði og Hæstarétti hvor í sínu lagi til að þola ómerkingu ummæla sem þær höfðu réttilega eftir viðmælendum og greiða skaðabætur vegna umfjöllunar um nektardansstaði á Íslandi. Þær fóru með mál sín fyrir Mannréttindadómstólinn og var það samhljóma niðurstaða sjö dómara þar að íslenska ríkið hefði gerst brotlegt gegn 10.grein Mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi og hefur ríkissjóði verið gert að greiða fjölmiðlakonunum um 9 milljónir króna í skaðabætur. Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður kvennanna segir dóminn sem féll í morgun fela í sér harða gagnrýni á íslenska dómstóla.

„Já það er ekki hægt að segja annað en að dómstóllinn finni verulega að rökstuðningi í báðum þessu málum og telur að rökstuðning í báðum málum og telur að rökstuðning skorti að öllu leyti fyrir því að gera blaðamennina ábyrga fyrir þessum ummælum sem þarna voru til umfjöllunar," segir Gunnar Ingi.

Þá kemur fram í dómnum að þeir sem reka nektardansstaði þurfi að þola meiri gagnrýni en aðrir í hefbundnum fyrirtækjarekstri.

„Þetta er til dæmis sjónarmið sem fékk enga vigt fyrir íslenskum dómstólum," segir Gunnar Ingi. Þá hafi dómstólum hér á landi láðst að útskýra afhverju málið hafi ekki átt erindi við almenning.

„En það er niðurstaða dómstólsins að þau mál sem þarna voru þarna til umfjöllunar varði almenning miklu, ekki bara á Íslandi heldur í öllum Evrópuríkjum," bætir Gunnar Ingi við.

Björk telur að dómarnir sem féllu á sínum tíma hafi fælt fjölmiðlafólk frá því að fjalla um viðkvæm mál á borð við nektardansstaði.

„Það er búið að sanna að þessi dómur var ekki sanngjarn og ég held að starfsvettvangur blaðmanna sé miklu betri í dag en í gær."//////Þessi dómur er það sem vantaði alveg hér að forræðishyggjan má ekki bara ráða,og fólk verur að taka tillit hvort til annars,og það segir þarna að þessir staðir hvað sem þeir kallast mega þola meiri gagnrýni en aðrir staðir,og kallaðir öllum illum nöfnum/loks kom það í ljós að þetta er bara mannréttindi ekkert annað!!!/Halli gamli


Obama og Romney hnífjafnir/////Þetta ekki góðar fréttir finns mér allavega!!!!

Obama og Romney hnífjafnir,og vonar
Erlent | AFP | 10.7.2012 | 15:50

Mynd 620404Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og frambjóðandi Repúblikanaflokksins, Mitt Romney, eru hnífjafnir samkvæmt nýrri skoðanakönnun Washington Post og ABC-sjónvarpsstöðvarinnar.
Samkvæmt könnuninni eru þeir Obama og Romney báðir með 47% fylgi en forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum í nóvember///////Þetta finnst manni vondar fréttir vonar maður að þetta breytist fljótt aftur ,allra hluta vegna/Halli gamli
mbl.is Obama og Romney hnífjafnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi mun koma með marga góða hluti inn í liðið/Ekki spurning um það!!!!!

Gylfi mun koma með marga góða hluti inn í liðið“
Íþróttir | mbl.is | 10.7.2012 | 17:00

Gylfi Þór á æfingu Tottenham-liðsins,Steven Caulker fagnar því mjög að hann og Gylfi Þór Sigurðsson verði áfram samherjar. Þeir léku saman með Swansea á síðustu leiktíð en verða í herbúðum Tottenham á komandi tímabili.

Caulker var í láni hjá Swansea frá Tottenham á síðasta tímabili en hann gerði í síðustu viku nýjan fjögurra ára samning við Tottenham og verður með Lundúnaliðinu á komandi tímabili sem og Gylfi sem samdi við Tottenham til fimm ára í síðustu viku.

„Hann er frábær leikmaður og frábær náungi utan vallar,“ sagði Caulker um Gylfa við Tottenham-sjónvarpið en undirbúningur Tottenham-liðsins fyrir komandi leiktíð hófst í gær.

„Hann er hógvær og er alltaf síðastur af vellinum enda leggur hann ákaflega hart að sér. Ég held að hann muni koma með marga góða hluti inn í liðið og er mjög góð viðbót í hópinn. Hann getur skotið bæði með vinstri og hægri fæti og er afar hættulegur fram á við,“ sagði Caulker.///////UM þetta er maður nokkuð viss að hann mun gera það,drengurinn er frá bær og vel það,og við gerum miklar vonir um hann Íslendingar ein og fleiri////Halli gamli


mbl.is „Gylfi mun koma með marga góða hluti inn í liðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja þjóðaratkvæði um veruna í ESB//alveg rétt hjá Bretum að gera !!!!!

ilja þjóðaratkvæði um veruna jög siptarí ESB
Erlent | mbl.is | 10.7.2012 | 17:02

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.Mikill meirihluti Breta vill að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin fyrir næstu þingkosningar um það hvort Bretar eigi að vera áfram í Evrópusambandinu eða yfirgefa það, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar breska fyrirtækisins YouGov.
Fréttavefur breska dagblaðsins Daily Telegraph greinir frá þessu.

Samtals vilja 67% að framfari þjóðaratkvæði um veruna í ESB en 19% eru því hins vegar andvíg. Þá taka 14% ekki afstöðu samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Ef kosið yrði um málið nú myndu 48% styðja úrsögn úr sambandinu en 31% greiða atkvæði með áframhaldandi aðild að því.

Á hinn bóginn væru 42% hlynnt áframhaldandi veru í ESB ef David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, tekst að standa við loforð sitt um að semja upp á nýtt um aðild landsins að sambandinu og endurheimta mikilvæg völd frá Brussel en 34% væru því andvíg.////////Auðvitað á Breska þjóðin að fá að segja sitt álit og það er svo að þarna eru mjög skiptar skoðanir um þetta og sennilega fellt að vera þarna áfram!!!!!/Halli gamli


mbl.is Vilja þjóðaratkvæði um veruna í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan tók Jarðarberið í notkun///allt er einu sinni fyrst,þetta mun í framtíð spara mikið!!!

Lögreglan tók Jarðarberið í notk erun
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 16:38

Rafmagnsbíllinn sem lögreglan er með í notkun kallast Jarðarberið.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið rafmagnsbíl í notkun. Bifreiðin sem er af gerðinni Mitsubishi MiEV og er kölluð Jarðarberið, verður tímabundið í notkun.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að aðstoðarlögreglustjórarnir Jón HB Snorrason og Hörður Jóhannesson hafi prófað bílinn í dag og báðir gefið honum góða einkunn.

Jarðarberið er fjögurra manna og hefur um 60-70 km drægni á einni hleðslu. Það á því að að henta einstaklega vel til innanbæjaraksturs. Það er iðnaðarráðuneytið sem á bíllinn, en þessar vikurnar er hann lánaður út til fyrirtækja og stofnana.///////Þessi kynning er mjög svo góð og það kemur að því að löggæslan tekur þetta í notkun það er stór spanaður ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Lögreglan tók Jarðarberið í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skapar 150 störf////Gott betur með öllu í kringum þetta!!!!!!

Skapar 150 störf
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 15:55

MakríllVinnslan á síld og makríl er komin í gang af fullum krafti á Vopnafirði. Um 2.700 tonn af fiski hafa borist að landi frá því að veiðar hófust um sl. mánaðamót og nú vinna hátt í 150 manns við vinnslu á aflanum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á staðnum.

Öll þrjú uppsjávarveiðiskip HB Granda hafa komið tvívegis að landi með afla á vertíðinni og ekki er nema um átta tíma sigling á miðin úti fyrir Austfjörðum, samkvæmt vef HB Granda.

Að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra HB Granda, hefur aflinn verið ferskur en nokkuð er um átu í fiskinum um þessar mundir. Hann segir að fram að þessu hafi hlutfall síldar í aflanum verið um 60% en reynt er að haga veiðum þannig að meira veiðist af síld en makríl nú í byrjun vertíðarinnar./////////þetta er aldeilis búbót að fá og svo er svikamylla í gangi að fá okkur til að veiða litið af eigin afla sem er í okkar lögsögu!!!við bara veiðum þetta skinsamlega ein og eigin fisk því hann er okkar ,þó svo svo hann flakki eins og Hvalurinn gefum ekkert eftir svona átakalaust//Halli gamli


mbl.is Skapar 150 störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Fá mann til að gleyma brælunni“/það er nú reyndar vlitil bræla um þessar mundir!!

Fá mann til að gleyma brælunni“
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 15:33

Guðmundur í Nesi RE 13 frystitogari Brims. „Svona túrar fá mann til að gleyma brælunni,“ segir Kristján H. Guðmundsson skipstjóri á Guðmundi í Nesi sem kom með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni ferð til hafnar.Skipið var 32 daga á sjó og reyndist aflinn 580 tonn í heild, þar af er um að ræða um 490 tonn af grálúðu, en afgangurinn er karfi. Heildar verðmæti aflans er um 450 milljónir króna.     


„Veðrið var frábært allan tímann og það hafði sitt að segja. Við áttum þess vegna von á því að fiskeríið myndi dragast saman þegar leið á túrinn en það gerðist aldrei. Við gátum veitt nánast allan tímann,“ segir Kristján. Skipið var á veiðuður slegið m á Hampiðjutorginu undan Vestfjörðum.

Aðspurður að því hvernig tilfinning það væri að koma með slík verðmæti í land segir Kristján það vera eins og hver annar túr. ,,Maður var kannski ekki að spá neitt sérstaklega í því. En þetta er vissulega gaman eftir á," segir Kristján.

Löndun úr togaranum stendur yfir og er útlit fyrir að naaæsta áhöfn komist ekki af stað í kvöld eins og til stóð sökum þess hve tímafrekt er að landa aflanum. Næsta áhöfn mun einnig njóta góðs af góðum afla þar sem áhafnirnar tvær skipta á milli sín launum af hverjum túr.

Samkvæmt upplýsingum frá Brimi hf sem gerir út Guðmund í Nesi er allur farmurinn þegar seldur. Mikil eftirspurn er eftir grálúðu á mörkuðum./////////Þetta er Íslandsmet og sennilega ekki slegið strax,grálúða í háu verði núna,og svo er þetta skipti á milli 2 áhafna svo þetta verður bara að deila með 2 til að sjá hlutinn!!!og kvótinn búinn!!!nýtt tímabil ekki fyrr en 1 September,svo það reytist af þessu!!!!en samt er þetta met///Halli gamli


mbl.is „Fá mann til að gleyma brælunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkur dagur í sögu tjáningarfrelsis/////ekki gott það okkur veitir ekki af að tjá okkur á sliljanlegu máli!!

„Merkur dagur í sögu tjáningarfrelsis“
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 11:48

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands. „Ég tel að þetta sé merkur dagur í sögu tjáningarfrelsis á Íslandi,“ segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, en það studdi málarekstur Bjarkar Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur fyrir mannréttindadómstól Evrópu.

Hjálmar sagði mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að tjáningarfrelsið sé virt og að blaðamenn fái að sinna störfum óhindrað. „Það er best fyrir alla, sérstaklega í litlum samfélögum. Við sjáum það eftir þetta hrun að óheft umræða skiptir gríðarlega miklu máli. Opin umræða er besta vörnin gegn spillingu og þess vegna bera að styrkja umræðuhefð í landinu.“

Blaðamannafélagið studdi málssókn Bjarkar og Erlu. Hjálmar sagði að það hefði kostað fjármuni og mikla vinnu að reka þetta mál fyrir dómstólnum. Hann sagði að lögmenn blaðamannanna hefðu staðið sig vel og ættu skilið þakkir.

Tvö önnur mál hjá dómstólnum

„Ég hafði sannfæringu fyrir því að sú niðurstaða sem nú er fengin væri hin rétta niðurstaða í málinu,“ sagði Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður sem rak þessi mál fyrir mannréttindadómstólnum.

Gunnar hefur vísað tveimur öðrum málum til dómstólsins, en Erla er aðili að þeim báðum. Þau snerta fréttir sem Erla skrifaði um Byrgissmálið og um svokallað skútumál, þar sem maður var dæmdur fyrir innflutning á miklu magni fíkniefna. Gunnar sagði að dómstólinn hefði boðið íslenska ríkinu að semja um niðurstöðu málsins, en það hefði hafnað því. Hann sagðist gera sér vonir um að ríkisvaldið endurskoðaði þá niðurstöðu í ljósi dómsins sem féll í dag. Gunnar sagði málin sambærileg. Í öðru væri tekist á um ummæli sem Erla hafði eftir viðmælenda og í hinu málinu var hún látin bera ábyrgð á fyrirsögn á forsíðu sem ritstjóri blaðsins samdi.

Alþingi er búið að breyta prentlögum, en Gunnar sagðist ekki vera sannfærður um að svona mál gætu ekki komið upp eftir gildistöku nýrra fjölmið menn lalaga. „Vissulega kveða nýju fjölmiðlalögin á um það að sá sem beri ábyrgð á ummælum sé sá sem þau eru höfð eftir, en hins vegar eiga dómstólar eftir að túlka þessi lög. Það getur verið að það verði ágreiningur um það hvenær haft er orðrétt eftir og ekki. Í þessu Vikumáli [máli Bjarkar] voru ummælin ekki höfð orðrétt eftir, orð fyrir orð [þ.e. innan gæsalappa] og því taldi dómurinn að blaðamaðurinn bæri ábyrgð á þeim. Ég vil því ekki slá því föstu að það hafi orðið einhver grundvallarbreyting með nýjum fjölmiðlalögum.“

Gunnar sagðist vera þeirrar skoðunar að tilgangur prentlaga hefði aldrei verið sá að gera blaðamenn ábyrga fyrir ummælum. Lögin kvæðu á um að höfundur bæri ábyrgð á ummælum. Gunnar sagðist líta svo á að þessi höfundur væri sá sem viðhefði ummælum, en ekki sá sem skrifaði þau niður á blað.///////Eg segi það enn og aftur að tjáningarfrelsi verður að vera og opið fyrir menn að tjá sig og tala opinskátt á öllum sviðu einnig EES ekki spurning,hvað verður þegar og ef þau skötuhjú koma okkur í ESB ein og þau ætla en sem betur fer sjáum við við því/Halli gamli


mbl.is „Merkur dagur í sögu tjáningarfrelsis“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð/ svo segja þessir vísu að þetta sé bara hægt að veið á smábáta???

Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð

Vísir Viðskipti innlent 10. júlí 20.oo
Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð
Frystitogarinn Guðmundur í Nesi, sem er í eigu Brims, kom til hafnar seint í gærkvöldi með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni samfelldri veiðiferð til þessa.

Farmurinn eftir 30 daga á sjó er rúmlega 490 tonn af grálúðu og er verðmæti hans 450 milljónir króna eða sem svarar til 15 milljóna króna á dag. Ekki þurfti að sækja þennan farm langt því grálúðan fékkst á Hampiðjutorginu undan Vestfjörðum.

Löndun úr togarnum hefst fyrir hádegið í dag en þess má geta að allur farmurinn er þegar seldur enda mikil eftirspurn eftir grálúðu á mörkuðum heimsins um þessar mundir.///////Guðmundur í nesi er þarna að slá met og það bara gott og Guðmundir vinarlausi sem á hann hefur og rekið  hann og á að stórum hluta,fær þarna góðan hlut og skipshöfnin sem gerir nokkra millur/Það  er svo að menn sjá ofsjónum í þessu sem er okkar bjargvættur í gjaldeyri//Halli gamli

Næsta síða »

Bloggfærslur 10. júlí 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband