„Fá mann til að gleyma brælunni“/það er nú reyndar vlitil bræla um þessar mundir!!

Fá mann til að gleyma brælunni“
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 15:33

Guðmundur í Nesi RE 13 frystitogari Brims. „Svona túrar fá mann til að gleyma brælunni,“ segir Kristján H. Guðmundsson skipstjóri á Guðmundi í Nesi sem kom með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni ferð til hafnar.Skipið var 32 daga á sjó og reyndist aflinn 580 tonn í heild, þar af er um að ræða um 490 tonn af grálúðu, en afgangurinn er karfi. Heildar verðmæti aflans er um 450 milljónir króna.     


„Veðrið var frábært allan tímann og það hafði sitt að segja. Við áttum þess vegna von á því að fiskeríið myndi dragast saman þegar leið á túrinn en það gerðist aldrei. Við gátum veitt nánast allan tímann,“ segir Kristján. Skipið var á veiðuður slegið m á Hampiðjutorginu undan Vestfjörðum.

Aðspurður að því hvernig tilfinning það væri að koma með slík verðmæti í land segir Kristján það vera eins og hver annar túr. ,,Maður var kannski ekki að spá neitt sérstaklega í því. En þetta er vissulega gaman eftir á," segir Kristján.

Löndun úr togaranum stendur yfir og er útlit fyrir að naaæsta áhöfn komist ekki af stað í kvöld eins og til stóð sökum þess hve tímafrekt er að landa aflanum. Næsta áhöfn mun einnig njóta góðs af góðum afla þar sem áhafnirnar tvær skipta á milli sín launum af hverjum túr.

Samkvæmt upplýsingum frá Brimi hf sem gerir út Guðmund í Nesi er allur farmurinn þegar seldur. Mikil eftirspurn er eftir grálúðu á mörkuðum./////////Þetta er Íslandsmet og sennilega ekki slegið strax,grálúða í háu verði núna,og svo er þetta skipti á milli 2 áhafna svo þetta verður bara að deila með 2 til að sjá hlutinn!!!og kvótinn búinn!!!nýtt tímabil ekki fyrr en 1 September,svo það reytist af þessu!!!!en samt er þetta met///Halli gamli


mbl.is „Fá mann til að gleyma brælunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045752

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband