31.8.2012 | 17:59
Aukin vanskil benda ekki til bata/Nei það er als ekki: þó klinki daglega fréttir um bata mikin!!!
Aukin vanskil benda ekki til bata Viðskipti | mbl | 31.8.2012 | 12:28 Íbúðalánasjóður leysti til sín 501 íbúð til fullnustu krafna á fyrri hluta ársins, en seldi aðeins 58 eignir á sama tíma.
Í samtali við mbl.is segir Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, að mikið af eignum sé á söluskrá og að á næstunni komi mikið af eignum á bæði sölu- og leiguskrá.
Íbúðalánasjóður birti hálfsársuppgjör sitt í gær og þar kom meðal annars fram að eiginfjárhlutfall sjóðsins væri ekki nema 1,4%, en það er 2,6 prósentustigum undir lágmarki sjóðsins og 3,6 prósentustigum undir langtímamarkmiði hans.
Sjóðurinn á í dag um 2.050 íbúðir, en af þeim er 41% í útleigu, eða 846. Sigurður segir að í dag séu um 300 íbúðir á söluskrá og á næstunni muni rúmlega 200 bætast þar við. Nefnir hann sem dæmi að verið sé að leggja lokahönd á að koma tveimur blokkum í sölu sem eru í byggingu á Akranesi. Einnig sé horft til leigumarkaðarins, en tugir íbúða eru þessa dagana í lítilsháttar yfirhalningu og verið að gera þær leiguhæfar.
Hann segir að markmiðið sé að allavega 75% af eignum sjóðsins séu í virkri leigu eða söluferli og með þessum aðgerðum verði því marki náð. Fjölmargar ástæður eru fyrir því að þau 25% sem eftir standa eru ekki í ferli, en Sigurður segir að það taki tíma að taka við eignum sem komi inn, koma málinu í farveg og ástandsmeta eignina.
Einnig séu eignir í alls konar ásigkomulagi og sumar séu á svæðum þar sem hvorki sé sölu- né leigueftirspurn. Að lokum séu einhverjar eignir sem bíði niðurrifs, en það sé lítill hluti. Vanskil við sjóðinn hafa aukist lítillega, en milli ára hefur hlutfall viðskiptavina í frystingu eða vanskilum aukist úr 14,7% upp í 15,1%.
Tekið er fram að hlutfall vanskila sé að aukast meðan viðskiptavinum í frystingu hefur fækkað. Þróunin hefur verið minna hagfelld en gert var ráð fyrir, segir Sigurður. Bjartsýni í fyrra virðist hafa verið meiri en efni stóðu til og segir Sigurður að bati heimilanna sjáist ekki í lánasafni sjóðsins.
Á síðasta ári var ég þeirrar skoðunar að verið væri að hreinsa út með 110% leiðinni og síðan fengju heimilin niðurfærslur hjá öðrum lánastofnunum. Þegar fólk fengi skýra sýn á fjármál sín og stöðu lána og gæti farið að borga myndu lánin hjá okkur lagast í leiðinni. Þessi bati hefur ekki komið fram í okkar lánasafni.////////Bendir þetta til þess að allt sé á uppleið!!!! ,nei öðru nær þetta bendir til þessa, að það sem sagt er er bara lýgi, og ekkert annað,það eru allir að missa sitt húsnæði sem lánin eru að sliga og það er sko ekki búið þetta er bara toppurinn ísjakanum,svo er Ráðherra að biðja um 14 milljarða í þenann sjóð,nei er ekki nær að gera eitthvað fyrir lántakendur, annað enn að tala og tala ,og gera ekki neitt/Halli gamli
![]() |
Aukin vanskil benda ekki til bata |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.8.2012 | 17:45
Mesta atvinnuleysi síðan 1995/ Ekki er það glæsilegt að sæka þarna um inngöngu!!!!!
Mesta atvinnuleysi síðan 1995 Viðskipti | mbl.is | 31.8.2012 | 16:11 Fjöldi atvinnulausra í ríkjum evrusvæðisins nam 18 milljónum manna í júlí samkvæmt fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph.
Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, greindi frá þessu í morgun.
Fjöldi atvinnulausra jókst um 88 þúsund manns í júlímánuði en uppreiknaðar tölur fyrir júní benda til þess að atvinnuleysið hafi verið óbreytt á milli mánaða eða 11,3% að því er fram kemur í tilkynningu Eurostat.
Fram kemur að atvinnuleysi á evrusvæðinu hafi ekki mælst meira síðaókn stofnunin hóf mælingar sínar árið 1995.//////Þetta er alvarlegt mál !!!og óskar maður engum þessa að hafa ekki atvinnu!!!þetta blessað fólk, sumt veit ekkert annað!!! og svo erum við Íslendingar að sækja þarna um inngöngu,nei það getur ekki verið að við höggnums á þvi,þó svo Össur segi að við verðum á núlli/Halli gamli
![]() |
Mesta atvinnuleysi síðan 1995 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Einn bílanna stórskemmdist Innlent | mbl.is | 31.8.2012 | 16:02 Flytja þurfti eina bifreið með dráttarbíl af vettvangi eftir fimm bíla aftanákeyrslu á Miklubraut vestan Kringlumýrarbrautar fyrir skömmu.
Var bifreiðin stórskemmd en engin slys urðu á fólki við áreksturinn. Samkvæmt umferðardeild lögreglunnar má leiða líkur að því að of stutt bil hafi verið á milli bílanna fimm sem í árekstrinum lentu./////////Við erum alltaf að hlusta á aðvaranir, í útvarpi og sjónvarpi, að passa að hafa bilið gott á milli byfreiða í akstri,samt er þetta að verða ein algengasta slysagildran!!!!við verðum að fara að taka þetta alvarlega,ekki spurning///Halli gamli
![]() |
Einn bílanna stórskemmdist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB-umsókn ekki á dagskrá Erlent | mbl.is | 31.8.2012 | 16:52 Haft er eftir varaformanni norska Verkamannaflokksins, Helgu Pedersen, á fréttavefnum Abcnyheter.no að flokkurinn hafi lagt allar fyrirætlanir á hliðina um að setja aðild að Evrópusambandinu á dagskrá í Noregi.
Þingkosningar fara fram í landinu á næsta ári. Pedersen fer einnig fyrir nefnd innan Verkamannaflokksins sem hefur það verkefni með höndum að semja drög að stefnu flokksins fyrir kjörtímabilið 2013-2017.
Aðspurð um það hver afstaðan til ESB sé í drögunum segir hún hana vera óbreytta en þar er ekki kallað eftir því að sótt verði um aðild að sambandinu. Ég held að það sé breið samstaða um það í stefnumótunarnefndinni að ekki sé ætlunin að sækjast eftir aðild að ESB fyrr en það hefur orðið viðvarandi breyting í afstöðu fólks, segir Eskil Pedersen, formaður ungliðahreyfingar Verkamannaflokksins, AUF.
Ég tel að það sé heimskulegt að gera ESB-aðild að deiluefni núna. Pedersen segir ennfremur að Verkamannaflokkurinn geti ekki horft framhjá því að mikill meirihluti Norðmanna sé andvígur aðild að ESB. Það væri ekki stuðningsmönnum aðildar í hag að setja málið á dagskrá núna. ESB verði fyrst að leysa þau vandamál sem það sé að glíma við og vísar þar til efnahagserfiðleikanna innan sambandsins.///////Þetta er hárr rétta hjá Norðmönnum að gera ,og við eigum einnig að hætta við þetta frumhlaup strax ekki fara lengra ,als ekki,Norðmen sjá engan hag þarna og það gerum við ekki heldur!!!!/Halli gamli
![]() |
ESB-umsókn ekki á dagskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.8.2012 | 13:35
Boðið upp á þriðju leiðina//Hvaða laumuspil er verið að gera þarna!!!!
Boðið upp á þriðju leiðina Innlent | mbl | 30.8.2012 | 10:56 Til þessa hafa tvær leiðir verið í boði við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins, annaðhvort prófkjör eða uppstilling, en á síðasta landsfundi var bætt við þriðju leiðinni að sögn Jónmundar Guðmarssonar, framkvæmdastjóra flokksins.
Þriðja leiðin felur í sér að mögulegt sé að velja lista á fulltrúaráðsfundi og almenn kosing fari þar með fram á meðal þeirra sem þar eiga sæti. Hann segir að reglur varðandi þá leið hafi hins vegar ekki verið útfærðar nánar en starfshópur sé að störfum í þeim efnum.
Það næsta sem gerist í þessu er að kjördæmisráð hvers kjördæmis koma saman, sem ég reikna með að verði fljótlega eftir mánaðamótin víðast hvar, þar sem tekið verður til umræðu og ákvörðunar með hvaða hætti valið verði á lista í viðkomandi kjördæmum, segir Jónmundur.
Spurður um næsta landsfund Sjálfstæðisflokksins segir Jónmundur að væntanlega verði hann á næsta ári í aðdraganda fyrirhugaðra þingkosninga í vor. Ekki hefur hins vegar verið ákveðið hvenær hann verður haldinn en miðstjórn flokksins tekur þá ákvörðun.//////Ég sem flokksmaður hefi ekki heyrt um þessa 3 leið ,enda ekki sæmandi okkar flokki ,allra stétta ,að hafa ekki prófkjör !!!ef svo aðfarir eiga að vera, er ekki vona að við styðjum flokkinn í næstu kosningum als ekki,á nú að fara að sortera okkur út sem þorum að segja okkar meiningu,hvað umboð hefur Jónmundur framkvæmdarstjóri til að segja svona,ég tel það í mótsöggn þorra flokksmanna!!,ég bara vona okkar vegna að prófkör og ekkert annað komi til greina/Halli gamli
![]() |
Boðið upp á þriðju leiðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.9.2012 kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2012 | 13:17
Skoða skatta á ferðaþjónustu/árásinni skal áfram haldið:þessu stjórnarfari er ekki viðbjargandi,:og hefur reyndar ekki verið!!!

![]() |
Skoða skatta á ferðaþjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 31. ágúst 2012
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047927
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar