Skoða skatta á ferðaþjónustu/árásinni skal áfram haldið:þessu stjórnarfari er ekki viðbjargandi,:og hefur reyndar ekki verið!!!


Mynd 622315
 Skoða skatta á ferðaþjónustu Innlent | mbl.is | 31.8.2012 | 12:27 Fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir, hefur í samráði við aðila ferðaþjónustunnar stofnað starfshóp um skattlagningu ferðaþjónustugreina og málefni sem henni tengjast.
Ákveðið var að stofna hópinn í framhaldi af gagnlegum fundum sem fjármálaráðuneytið hefur haldið, m.a. með hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu, segir á vef ráðuneytisins.
Í starfshópinn hafa eftirfarandi verið tilnefndir: Gunnar Tryggvason, formaður, Guðrún Þórdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af fjármálaráðherra, Jón Guðmundsson frá ríkisskattstjóra, Erna Hauksdóttir og Kristófer Oliversson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Helga Haraldsdóttir frá iðnaðarráðuneyti og Gunnlaugur Geirsson frá innanríkisráðuneyti.
Starfshópurinn á að skila fjármálaráðherra niðurstöðum sínum og tillögum fyrir lok september. Hópnum er sérstaklega ætlað að fjalla um eftirfarandi: forsendur og áhrif þess að breyta álagningu virðisaukaskatts á gistiþjónustu samkeppnisstöðu og jafnræði greina innan ferðaþjónustunnar í skattalegu tilliti og leyfisveitingar til aðila sem bjóða gistiþjónustu aðgerðir til að koma í veg fyrir undanskot frá skattgreiðslum og til að styrkja stöðu ferðaþjónustunnar Auk þess hefur ráðuneytið óskað eftir að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vinni skýrslu um áhrif væntanlegra breytinga á virðisaukaskatti á gistiþjónustu á ríkissjóð og á ferðaþjónustu. Verður skýrslan kynnt í næstu viku.//////Þetta fólk í þessari Ríkisstjórn er ekki af baki dfottið og heldur áfram við að reyna að drepa mjólkukúnna!!Það skal ganga frá Ferðaþjónustinni og einnig útgerð og fiskveiðum!!!Það er svo að þessir mánuðir sem eftir eru skal koma þessu öllu fyrir kattarnef eins og sagt er,ef fólk sem er skynsamt sér þetta ekki,er ílla farið með okkur öll!!!En Alþingi fer að koma saman!!! og þá verður tekið á þessu öllu og ef þessir flokkar eiga ekki að þurkast út hlýtur að verða bakkað???Annars ef lýðræðið gengur eftir gerist það hvort eða er!!!!í næstu kosningum/Halli gamli

mbl.is Skoða skatta á ferðaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband