Þak, trampólín og húsbíll á flugi/Þetta er sko ekkert grín!! þetta veður!Ofsaveður!!

Þak, trampólín og húsbíll á flugi Innlent | mbl.is | 10.9.2012 | 17:59 Lausamunir hafa víða verið á ferð og flugi í óveðrinu í dag, en ekki er vitað til þess að slíkt fok hafi valdið teljandi tjóni.

Fiskikör tókust á loft og fuku nokkurn spöl í Bolungarvík rétt eftir hádegi. Þá fuku þar í bæ einnig tveir geymsluskúrar í nóttÍ Hnífsdal fuku járnplötur sem áður höfðu verið losaðar af þaki.

Afar hvasst er í Vestmannaeyjum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þar. Björgunarsveitir og lögregla eru á þönum um bæinn við að aðstoða fólk í vanda, en alls hafa borist 40 útköll vegna foks af ýmsu tagi.

Járnplötur hafa losnað af húsum, ýmsir lausamunir hafa fokið og þak fauk af bílskúr. Á Blönduósi hafa lausamunir verið á hreyfingu, „ýmist drasl og trampólín“ samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ekki er vitað um neitt tjón af þessum völdum. Þá fauk húsbíll og valt á hliðina hjá Kolgrímu í Suðursveit. Að sögn lögreglunnar á Höfn urðu þar engin slys á fólki, en bíllinn skemmdist töluvert.//////Það er aldrei of varlega farið svo ofsaveðri!!! og við eigum að taka mark á viðvörunum ,ekki spurning!!!Þó þessi lægð sé snemma á  ferð var hún það kröpp og stór að þetta var nokkuð víst og hún ekki búinn strax,og við bara vonum að slys verði ekki á fólki og fénaði skipum og sjómönnum,og gangnamönnum sem eru á Fjöllum!!!það er þegar komið tjónn og ófærð mikil fyrir Vestan Norðan og Austan og nánast víða ófært!!!!/Halli gamli


mbl.is Þak, trampólín og húsbíll á flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannfærður um að konur stígi fram/Það er vonandi !!en við verðum að standa saman,ekki sundruð!!!!

SannfærðBjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.ur um að konur stígi fram Innlent | Morgunblaðið | 10.9.2012 | 5:30 „Ólöf hefur verið sterkur stjórnmálamaður og mikilvægur leiðtogi fyrir okkur í Sjálfstæðisflokknum.

Það verður augljóslega mikil eftirsjá í henni þegar hún hættir.“ Þetta segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðinu í dag um þá ákvörðun Ólafar Nordal að láta af embætti varaformanns á næsta landsfundi og stíga af þingi í vor.

Í síðustu viku var einnig sagt frá því að Illugi Gunnarsson tæki við embætti formanns þingflokks sjálfstæðismanna af Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Þrátt fyrir þetta segir Bjarni enga breytingu á stöðu kvenna í forystusveit flokksins.

„Ég er algerlega sannfærður um að það muni koma fram öflugar konur alveg eins og öflugir karlmenn. Ég óttast ekki að með þessari ákvörðun Ólafar halli neitt frekar á konur í forystunni,“ segir Bjarni.

Umræður undanfarið sýni fram á að það sé ákall um að konur láti til sín taka í stjórnmálum. Það skipti máli að þær stígi fram og þær verði að svara því kalli.////////Ég er ekki viss um að þetta með hana blesaða Ragnheiði Elínu verði neitt til að gera veður út af meira!!! hún er í stóru kjördæmin ,og þarf að vinna þar vel og ná þar fyrsta sæti!!! og þá er hún ráðherra efni ekki spurning,en feyki fær kona!!!maður er sammála Formanni mínum Bjarna Ben.:að við eigum að fá nóg af konur til að bjóða sig fram í næsta prófkjör og þær eru til bara koma!!!Samstaða okkar er nú: það sem þarf og ekkert annað,en ég sem leikmaður vil heyra meira í alþingismönnum okkar til að segja hvað við ættlum að gera og einnig velgja þessari óstarhæfu ríkisstjórn til syndanna,reyndar einn maður stendur þar fremstur, og það meiriháttar!!! það er Guðlaugur Þór :og það mega hinir taka sér til athugunar og gera!!!,en ég hlustaði í gær á Þorgerði Kartrínu og sagði hún mikið og margt til dæmis, um ESB og evruna og annað sem hún hefur sterkar skoðanir á!!,þar er bara að segja að allir mega hafa skoðanir í þessum flokki,og vel það,en manni huggnaðist ekki allt sem hún sagði als ekki,en hún virðist ættla í næsta prófkjör,galvösk,enda dugleg kona en umdeild!! en ég helt að á síðasta landsfundi hefði verið sagt að við ættum ekki að fara þarna inn í ESB ,en það hefur versnað mikið síðan, ástandi þarna!!!!,en spyrjum að leikslokum við fáum ábyggilega um 27 alþingismenn næst!!,ekki spurning!!/Halli gamli


mbl.is Sannfærður um að konur stígi fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. september 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 1047926

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband