Þak, trampólín og húsbíll á flugi/Þetta er sko ekkert grín!! þetta veður!Ofsaveður!!

Þak, trampólín og húsbíll á flugi Innlent | mbl.is | 10.9.2012 | 17:59 Lausamunir hafa víða verið á ferð og flugi í óveðrinu í dag, en ekki er vitað til þess að slíkt fok hafi valdið teljandi tjóni.

Fiskikör tókust á loft og fuku nokkurn spöl í Bolungarvík rétt eftir hádegi. Þá fuku þar í bæ einnig tveir geymsluskúrar í nóttÍ Hnífsdal fuku járnplötur sem áður höfðu verið losaðar af þaki.

Afar hvasst er í Vestmannaeyjum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þar. Björgunarsveitir og lögregla eru á þönum um bæinn við að aðstoða fólk í vanda, en alls hafa borist 40 útköll vegna foks af ýmsu tagi.

Járnplötur hafa losnað af húsum, ýmsir lausamunir hafa fokið og þak fauk af bílskúr. Á Blönduósi hafa lausamunir verið á hreyfingu, „ýmist drasl og trampólín“ samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ekki er vitað um neitt tjón af þessum völdum. Þá fauk húsbíll og valt á hliðina hjá Kolgrímu í Suðursveit. Að sögn lögreglunnar á Höfn urðu þar engin slys á fólki, en bíllinn skemmdist töluvert.//////Það er aldrei of varlega farið svo ofsaveðri!!! og við eigum að taka mark á viðvörunum ,ekki spurning!!!Þó þessi lægð sé snemma á  ferð var hún það kröpp og stór að þetta var nokkuð víst og hún ekki búinn strax,og við bara vonum að slys verði ekki á fólki og fénaði skipum og sjómönnum,og gangnamönnum sem eru á Fjöllum!!!það er þegar komið tjónn og ófærð mikil fyrir Vestan Norðan og Austan og nánast víða ófært!!!!/Halli gamli


mbl.is Þak, trampólín og húsbíll á flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045804

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband