Árni Þór: Staðan þung/vegna átka innann þings,engin samningur fyrir okkur!!!!

Árni Þór: Staðan þung
Innlent | mbl.is | 7.1.2010 | 11:59

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar. Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman í morgun til að ræða stöðuna í samskiptum Íslands við Breta og Hollendinga. Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir stöðuna vera þunga í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja Icesave-lögunum staðfestingar en unnið sé að því að lægja öldurnar.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mætti á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir viðbrögðum og aðgerðum stjórnvalda. 

„Staðan er auðvitað að mörgu leyti þung gagnvart þessum viðsemjendum okkar í þessu máli. En viðbrögðin hafa gengið út á það að reyna lægja öldurnar eins og hægt er, og reyna að tryggja það að það verði ekki neinar skjótráðnar ákvarðanir eða aðgerðir teknar sem að valda okkur skaða. Það má segja að fyrstu sólarhringarnir hafi einkennst af bráðaaðgerðum,“ segir Árni Þór í samtali við mbl.is.

Sér jákvæð teikn

Hann kveðst vera ánægður með fyrstu viðbrögð stjórnvalda í því að slökkva elda. Nú þegar megi sjá árangur af því starfi. Menn hafi fyrst og fremst einblínt á lánamálin, þ.e. gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum, og unnið að því að endurreisnaráætlunin stöðvi ekki þrátt fyrir erfiða stöðu. „Ég sé jákvæð teikn í því. Ég sé hvernig utanríkisráðherra Noregs hefur tjáð sig um þetta. Það er mikilvægt að þessar norrænu lánalínur stoppi ekki.“

Hann segir að menn verði einnig að velta stöðunni fyrir sér til lengri tíma. Fyrstu skyldur stjórnvalda séu að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu, sem hafi verið ákveðin með synjun forsetans.

Árni Þór segir að farið hafi verið yfir stöðuna, menn hafi skipst á skoðunum og viðrað hugmyndir. Fundurinn hafi hins vegar ekki leitt til neinnar niðurstöðu.

Aðspurður segir Árni Þór að hljóðið í öðrum nefndarmönnum hafi verið gott. Allir vilji finna lausn á þeirri stöðu sem sé komin upp með heildarhagsmuni Íslands að leiðarljósi.

Hann á ekki von á öðru en að nefndin verði mjög virk og að boðað verði til fleiri funda á næstunni.////það er gott að vera vitur eftirá,en svo er staðan og hun á ekki að vera svona,ef samvinna hefði verið viðhöfð en svo var ekki!!!það hefði eitthvenrtiman þótt saga til næsta bæjar að Komunisti væri Formaður utaneikismalanefndar!!!! en svo er þetta orðið ,svo það er ekki von á góðu/Halli gamli


mbl.is Árni Þór: Staðan þung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045687

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband