Ríkisstjórnin héldi velli/vantrú mín á að þetta standist???????

Ríkisstjórnin héldi velli
Innlent | mbl.is | 8.1.2010 | 7:12

Ríkisstjórnin og forseti Íslands á ríkissráðsfundi á Bessastöðum Stuðningur við Vinstri græn eykst verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fylgi við Samfylkinguna minnkar, en stjórnarflokkarnir myndu halda meirihluta yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við útkomuna í könnuninni.

Stjórnarflokkarnir mælast með stuðning 53,2 prósenta kjósenda samkvæmt könnuninni. Flokkarnir fengju 34 þingmenn kjörna samkvæmt könnuninni, jafn marga og þeir eru með í dag, en tveir þingmenn myndu færast frá Samfylkingunni til Vinstri grænna yrðu þetta niðurstöður þingkosninga.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr stærsti flokkurinn, og fengi atkvæði 31,1 prósents kjósenda væru niðurstöður kosninga í samræmi við könnun Fréttablaðsins. Flokkurinn fékk 23,7 prósenta fylgi í síðustu þingkosningum og 16 þingmenn, en fengi 20 þingmenn samkvæmt könnuninni.

Í síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem gerð var 15. október síðastliðinn, mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 34,8 prósenta fylgi. Stuðningur við flokkinn hefur því minnkað um 3,7 prósentustig milli kannana.

Samfylkingin tapar um tveimur prósentustigum frá síðustu könnun. Flokkurinn mælist nú með stuðning 28,7 prósenta kjósenda, en fékk 29,8 prósent atkvæða í þingkosningum síðasta vor.

Samfylkingin er með 20 þingmenn í dag, en fengi 18 þingmenn samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Fylgi flokksins mældist 29,8 prósent í könnun blaðsins í október.

Vinstri græn bæta við sig 5,4 prósentustiga fylgi og fengi 24,6 prósent atkvæða ef kosið yrði nú. Flokkurinn fékk 21,7 prósent atkvæða í síðustu kosningum, og er því umtalsverð yfir kjörfylgi.

Í síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins mældust Vinstri græn með 19,2 prósenta fylgi, og bæta sig því verulega milli kannana, eða um rúman fjórðung.

Vinstri græn eru nú með 14 þingmenn, en bættu við sig tveimur yrðu niðurstöður kosninga í takt við nýja könnun Fréttablaðsins.

Framsóknarflokkurinn stendur því sem næst í stað frá síðustu könnun. Flokkurinn mælist með stuðning 13,7 prósenta kjósenda, en fékk 14,8 prósent í síðustu þingkosningum.

Í síðustu könnun Fréttablaðsins mældist flokkurinn með 14,1 prósents fylgi. Framsóknarflokkurinn er með níu þingmenn í dag og myndi halda þeim öllum samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.////þetta er óvænt mjög og maður trúir ekki sannleiksgildi þessarar skoðunarkönnunar.því miður,það er maðkur i misunni,en ef rétta reynist er þetta rétt er þetta breyting sem maður átti ekki von á,hvað var úrtakið og hvenær var skoðunin gerð,en svo er þetta að stjórnin  myndi standa ,en var fallin i séðustu könnunin,bíð bara eftir nælstu skoðun þar kemur þetta betur i ljós/en ef rétt er að er það furðulegt,eftir það sem   á undan er gengið/Halli gamli


mbl.is Ríkisstjórnin héldi velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband