Safna fiski fyrir fólk í vanda/hvað segir skattmann við þessu ????

Safna fiski fyrir fólk í vanda
Viðskipti | mbl.is | 12.1.2010 | 11:51

SM Kvótaþing og Eimskip hafa nú fyrir jólin staðið fyrir söfnun þar sem leitað var til útgerðafyrirtækja og fiskverkanda svo og annarra fyrirtækja tengd sjávarútvegi, með það fyrir augum að safna fiski fyrir Íslendinga í fjárhagsvanda. Kemur þetta fram í tilkynningu.
Útgerðir og fiskverkendur á Íslandi hafa í gegnum tíðina aðstoðað einstaklinga í vanda.  Því stóð ekki á viðbrögðum hjá þeim og söfnuðust tæplega 13 tonn af fiskafurðum, sem jafngildir um 52.000 matarskömmtum.  Auk fisks söfnuðust 700 flöskur af lýsi og peningaframlag.
 
Eimskip Flytjandi hefur séð um að flytja sendingarnar í Vöruhótel sitt við Sundahöfn án endurgjalds og mun nú dreifa þeim til hjálparstofnana tveggja. Með afhendingunni núna eftir hátíðarnar vilja SM Kvótaþing og Eimskip minna landsmenn á að þörfin er áfram til staðar.
 
Á sama tíma afhenti Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipafélag Íslands 1.750.000 krónur sem söfnuðust í árlegri skötuveislu félagsins sem haldin 17. janúar sl. til styrktar Mæðrastyrksnefnd. /þetta er þarf og gott verk og ber að þakka ,en skyldi Steingrímur skattmann virta af þessu,þar fer spón úr aski hans,það er ljótt að verða að segja  svona en þetta er bara sannleikurinn ber,maðurinn á að elta skattsvikarana en ekki hin venjulega vinnandi mann/Halli gamli


mbl.is Safna fiski fyrir fólk í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband