Erfitt og krefjandi verkefni/jarðskalfti reið yfir Haíti i gærkvöldi um 7stig á ricter !!!!

Erfitt og krefjandi verkefni
Innlent | mbl.is | 13.1.2010 | 8:52

Gríðarleg eyðilegging er á Haítí.Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin vinnur nú að því að lesta flugvél Icelandair sem mun flytja hana að hamfarasvæðinu á Haíti. Ráðgert er að leggja af stað klukkan tíu og tekur ferðalagið um níu klukkustundir. Framkvæmdastjóri Landsbjargar segir verkefnið erfitt og krefjandi.
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, segir að menn hafi unnið í alla nótt að undirbúningi. Um leið og skjálftinn reið yfir Haíti hafi alþjóðabjörgunarsveitin verið sett í viðbragðsstöðu. Utanríkisráðuneytið bauð í kjölfarið fram sveitina og eftir að yfirvöld í Haíti þáðu hjálpina hófst undirbúningur.

Stutt er síðan alþjóðabjörgunarsveitin hlaut vottun og segir Kristinn að meðlimir hennar séu vel í stakk búnir til að takast á við verkefnið. Flogið verður til Boston og þaðan annað hvort beint til Haíti eða Dóminíska Lýðveldisins. Ræðst það af ástandi flugvallarins á Haíti .
Sveitin verður komin á áfangastað um sólarhring eftir að skjálftinn reið yfir. Kristinn segir mikið starf framundan, enda ástandið skelfilegt í höfuðborginni. Hann mun sjálfur fylgja sveitinni á áfangastað.

 

Á fjórða tug björgunarmanna halda til Haíti og hefur sveitin með sér um tíu tonn af rústabjörgunarbúnaði, þrjú tonn af vatni, tjaldbúðir, fullkominn fjarskiptabúnað og vatnshreinsibúnaðar.

Hægt er að halda sveitinni úti án utanaðkomandi aðstoðar í allt að sjö daga. 

Öfluður jarðskjálfti reið yfir Haíti

Jarðskjálfti sem mældist 7 stig á Richter reið yfir Haíti í gærkvöldi. Óttast er um afdrif fjölda fólks////þetta er rosalegt og mikið mantjón og rústir ,gott að viðbrögð okkar Íslendina eru svo skörp og fljót ekki mun af veita,en viðbröðiin þurfa að vera það fólkið er grafið i rustunum,gott að við höfum svona gott teimi/Halli gamli


mbl.is Erfitt og krefjandi verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband