Senda matvæli til Haítí/ekki mun af veita,þetta er hrikalegt manntjón!!!!!

Senda matvæli til Haítí
Erlent | AFP | 13.1.2010 | 9:38

Sjónvarpsmynd frá Reuters-fréttastofunni sýnir mann, sem...Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) ætlar að senda mat til íbúa Haítí með tveimur flugvélum, en önnur þeirra mun fljúga frá El Salavador og hin frá Panama. Þetta segir talsmaður WFP í Suður-Ameríku, Alejandro Lopez-Chicheri.

Hann bendir á að það sé nauðsynlegt að koma matvælum á hamfarasvæði sem fyrst. Fyrstu tveir eða þrír dagarnir geti skipt sköpum. Þá sé einnig mikilvægt að koma lyfjum, vatni og björgunarsveitum á vettvang, en fjölmargir liggja fastir í húsarústum.

Lopez-Chicheri segir að WFP sé með um 200 starfsmenn á Haítí, sem vinni nú að því að skipuleggja matvælaflutninginn

Mjög harður jarðskjálfti reið yfir Haítí í gær sem olli gríðarlegu tjóni í landinu, sem er eitt það fátækasta í heimi. Skjálftinn mældist vera um 7 á Richter. Óttast er að mörg hundruð hafi týnt lífinu.////það er óhugnanalegt að svona skuli geta skeð byggingar sem hrynja við 7 stig eru ekki vel byggðar ,en svona er þetta og öllum löndum ber að ger eitthvað til hjalpara gott að við höfum þetta teymi til að senda það getur skipt sköpum að komast sem fyrst að bjarga,þetta er allar þjóðir gera  sér skilst að hjálpa við svona aðstæður/Halli gamli 


mbl.is Senda matvæli til Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband