Ljós í myrkrinu að finna fólk/þetta tekur á hjá þeim blessuðum ,og auðvitað öllum sem þessu verða fyrir!!!

Ljós í myrkrinu að finna fólk
Innlent | mbl.is | 15.1.2010 | 11:25

Erfitt er að ferðast um götur höfuðborgarsinnar sökum braks. „Þar sem við erum í miðjum þessum aðstæðum og upplifum eymdina og sorgina á eigin skinni þá er það vissulega ljós í myrkrinu og veitir ótrúlegan kraft að finna fólk á lífi,“ segir Ólafur Loftsson, stjórnandi hjá alþjóðabjörgunarsveitinni, sem staddur er í höfuðborg Haíti.
Íslenska sveitin hefur bjargað þremur einstaklingum frá því hún kom á vettvang, síðast konu í gærkvöldi í samstarfi við björgunarsveitir frá Spáni og Bandaríkjunum. „Hún var þannig staðsett að það þurfti að fara í gegnum veggi og svo upp í gegnum gólf til að komast að henni. Og þá var gott að vera með fleiri með sér.“ 

Öryggi björgunarsveitarmanna hefur verið í brennidepli í kjölfar þess að nokkrir íbúar Port-au Prince, höfuðborgar Haíti, reyndu að stela bílum og birgðum hjálparstarfsmanna. Ólafur segir alveg ljóst að ástandið sé slæmt. „Sameinuðu þjóðirnar eru með í sínu prótókóli sérstök öryggisstig frá einu og upp í fimm. Við erum á þriðja stigi sem þýðir að við erum ekki í björgun á nóttunni. Ástandið á nóttunni er mjög ótryggt og einu undantekningarnar eru þegar búið er að finna einstakling löngu fyrir myrkur og unnið að því að ná honum úr rústunum.“

Þannig var ástatt hjá sveitinni í gærkvöldi, að unnið var fram í myrkur. Þurfti þá að tryggja vettvang. Það er ýmist gert með viðveru lögreglu eða friðargæsluliða.

Ástandið á eftir að versna

En þó svo að ástandið sé ótryggt yfir nóttina segir Ólafur reiði og örvæntingu íbúa höfuðborgarinnar ekki beinast gegn björgunarsveitarmönnum, ekki enn alla vega. „Þegar við könnuðum svæðið á fyrsta degi vorum við boðnir hjartanlega velkomnir og fólk kallaði vinsamleg orð til okkar. Fólkið var meðvitað um að við værum komnir til hjálpar. Hins vegar eykst auðvitað vonleysið og það má búast við því þegar matarskortur fer að segja til sín og vatnsskortur. Þá er ljóst að líkurnar á að finna fleiri á lífi minnka eftir því sem tíminn liður og því er útséð að ástandið kemur til með að versna.“Íslenska sveitin hefur verið í hvíld í rúmar sex klukkustundir eða frá miðnætti að þeirra tíma. Aftur er haldið til starfa klukkan sjö að morgni eða kl. 12 á íslenskum tíma. Verkefni dagsins liggja ekki fyrir en forsvarsmenn allra björgunarsveita hittast fyrst á fundi. Þá kemur teymi frá Sameinuðu þjóðunum, sem heldur utan um skipulagningu björgunarstarfsins og útdeilir verkefnum.

Óhætt er að segja að íslenska sveitin hafi látið til sín taka. Hún var með þeim fyrstu á svæðið og vel búin tækjum. Íslendingar sjá m.a. um að útdeila svæðum til björgunarsveita sem koma til landsins auk þess að reka sameiginlega fundaraðstöðu forstöðumanna björgunarsveitanna, en þar er fundað tvisvar á dag. Eru þessi verkefni fyrir utan björgunarstarfið í rústunum.///það gott að allur heimur er meira og mynna komin i að hjálpa með öllu sem hægt er peningum og hjálp á allan g hátt,þetta er tjón uppá trilljarða og manntjón mikið en samt  óljósar tölur ennþá en þær skipta þusundum, alir verða að láta eitthvað af hendi rakan margt smátt gerir eitt stórt,þarna  verður allt þegið og mun rauðkross og Kirkja sjá um það og svo auðvitað fleiri,en þetta verður mikil uppbygging og tekur nokkur ár,blessað fólkið það á ekki af því að ganga/Halli gamli


mbl.is Ljós í myrkrinu að finna fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045700

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband