Kosið 6. mars/auðvitað segjum við nei!!Höfnum samningnum!!!

Kosið 6. mars
Innlent | mbl.is | 19.1.2010 | 11:31

Stjórnarráð Íslands.Ríkisstjórnin hefur ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave-skuldbindingarnar muni fara fram 6. mars nk. Þann 28. janúar hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla. Þetta var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur í samráði við landskjörstjórn ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram 6. mars nk. um framtíðargildi laga um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu.

Alþingi samþykkti lögin en forseti synjaði þeim staðfestingar. Því ber að leggja lögin undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu.

Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa þeir kjósendur sem hafa kosningarrétt til Alþingis. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Munu einstök sveitarfélög auglýsa nánar um kjörstaðina samkvæmt venju skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna, m.a. hvenær þeir eru opnir, hvar þeir eru, hvernig er skipt í kjördeildir o.fl.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 28. janúar 2010, bæði innan lands og utan. Kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag, er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með þeim degi til kjördags. Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á erlendri grundu hefst sama dag á vegum utanríkisráðuneytisins sem mun kynna fyrirkomulag þar að lútandi.

Þá er kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða er vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Einnig er kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans////auðvitað fellum við þetta og segjum nei,eftir að hafa hlustað og horft á Steingrím Fjármalaráðherra i gær hjá Ingva Hrafni í Inn stöðinni,þa´verð maður alveg viss ,hefir reyndar alltaf verið það,en þetta tók af öll tvímæli,maður sá einfaldlega ekkert annað en að borga og við kæmumst létt með það.þetta yrði ekki nema 1-2% af þjóðarframleiðslu okkar til 2016 svo þegar við förum að borga eftir það yrði þetta bara 12,13% af þjóðarframleiðslu !!!!,það er svo 100 milljónir á dag eða meira í vexti svo er þetta allt i puntum og evrum og engin veit hvað þetta verður mikið þegar upp er staðið,svo manni finnst eftir þetta viðtal að semja við þennan man er ekki hægt,þetta hlytir að vera svona a´fundunum sem  verið er að halda nú til að reyna að sameyna alla flokka sem einn i þessu máli,þar er þetta ábyggilega svona og ekki von á góðu/nei úr þessu er best að fella þetta og svo komast i nýja samninga ef ekki þá bara dómstóla/Halli gamli


mbl.is Kosið 6. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045655

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband