Verðbólgan mælist 6,6%/vertrygginguna samt af,endilega!!!!allir vextir neikvæðir!!!!

Verðbólgan mælist 6,6%
Innlent | mbl.is | 26.1.2010 | 9:00

Verð á fatnaði og skóm lækkaði í janúar enda útsölur í... Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,31% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,03% frá desember. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,9%. Í desember mældist verðbólgan 7,5%.

Minnsta verðbólga í tvö ár

Verðbólgan hefur ekki mælst jafn lág í tvö ár, en í janúar 2008 mældist hún 5,8%. Að meðaltali var verðbólgan 12% á síðasta ári. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur ekki mælst jafn lítil síðan í apríl 2008 er hún var 10,6%. Á síðasta ári var hún að meðaltali 16,1%.

Fatnaður og skór lækkuðu um 10,1% og flugfargjöld um 21,3%

Vetrarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,1% (vísitöluáhrif -0,63%) og verð á húsgögnum, heimilistækjum o.fl. lækkaði um 3,8% (-0,31%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,9% (-0,37%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,33% en af lækkun raunvaxta -0,04%. Þá lækkuðu flugfargjöld til útlanda um 21,3% (-0,21%).

Eldsneyti, áfengi og tóbak hækkaði

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 5,7% (0,28%) og verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,3% (0,22%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,0% (0,14%). Þá hækkaði verð á rafmagni og hita um 4,3% (0,11%).

Vísitala neysluverðs á fastskattagrunni (virðisaukaskatti, áfengis- og tóbaksgjaldi, olíugjaldi og orkusköttum á rafmagn og heitt vatn haldið föstum miðað við desember 2009) lækkaði um 1,05% frá fyrra mánuði, að því er segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,7% verðbólgu á ári (6,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

 

Spáðu hækkun en raunin var lækkun

Greining Íslandsbanka spáði því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,9% í mánuðinum en það hefði þýtt að verðbólga hækkaði úr 7,5% í 7,9%.

IFS Greining spáði því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 1,3%. Ef spáin hefði gengið eftir myndi 12 mánaða verðbólga mælast 8,3%. /////þetta synir okkur svart á hvítu að verðbólgan heldur hækkar þegar útsölunum ´likur og það verður bar að stoppa verðtrygginguna af allavega um tima ,annar missa allir sitt/Halli gamli


mbl.is Verðbólgan mælist 6,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband