Færri leita til sjúkrahússins/þetta á ekki bara við Akureyri einnig R.vik.!!!!

Færri leita til sjúkrahússins
Innlent | mbl | 26.1.2010 | 16:09

Eftirspurn eftir þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri hefur dregist saman frá því að kreppan skall á. Forstjóri Sjúkrahússins segir mjög líklegt að það skapist af þjófélagsaðstæðum.
Sparnaðarkrafa Sjúkrahússins á Akureyri árin 2009 og 2010 er um 500 miljónir króna. Stjórnendurnir hafa gripið til fjölbreyttra sparnaðaraðgerða t.d. þurfa konur nú að koma með dömubindin með sér á fæðingadeildina, legudögum hefur verið fækkað, auk þess sem gripið hefur verið til uppsagna.

Sjúkrahúsið gerir upp árið 2009 réttu megin við núllið, en það er ekki eingöngu til komið vegna þessara sparnaðaraðgerða stjórnenda, heldur einnig vegna þess að eftirspurnin hefur hreinlega dregist saman. Halldór Jónsson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, segir að stöðugildum hafi nú þegar fækkað um 30 og komi til með að fækka enn frekar á árinu 2010, en þó verði ekki gripið til beinna uppsagna.Ýmiskonar kostnaðarlækkun og tilfærslur nægi til að mæta sparnaðarkröfunni án þess að það bitni verulega á þjónustu við sjúklinga.

Halldór segir þrátt fyrir það hafi Sjúkrahúsið ekki verið illa rekið fyrir kreppu heldur séu kröfurnar aðrar í árferði líkt og nú.////haldi men að það eigi bara við Akureyri er það mikill misskilningur þetta á við Landspítala einnig og sennilega alla spítala og heilsugæslum og annað einnig meðul sem hækka uppur öllu valdi ,maður var staddur i apóteki i morgunn og horfði á fólk sem    gekk frá vegna þessa að eiga ekki fyrir hækkuðum lifjum ,svona mun þetta enda að fólk fer ekki til lækna nema í braðanauðsin og ekki á spítala því þeir senda það heim innan sólahrings til að láta það borga og kom á göngudeildir þ.að hækkar allt nema koman til heilsugæslu ,meðul sem áttu að lækka,,, hækka mikið og allt eftir  því,það mun verða svo áfram að allt hækkar meira og við getum ekki meir ????/Halli gamli


mbl.is Færri leita til sjúkrahússins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband