Feður sem greiða ekki meðlag afhjúpaðir/er þess ekki þörf einnig á Íslandi ?????

Feður sem greiða ekki meðlag afhjúpaðir
Erlent | AFP | 29.1.2010 | 11:43

Frá Tallin í Eistlandi Eftir harða gagnrýni þess efnis að þau hafi brugðist við innheimtu meðlags til einstæðra foreldra hafa eistnesk yfirvöld gripið til aðgerða. Sett hefur verið af stað átak á internetinu þar sem feður sem vanrækja að borga meðlag eru opinberaðir, í tilraun til að þvinga þá til að greiða vegna skammar.
Markmið þess að hafa opna vefsíðu er að hvetja fjarlæga foreldra til að borga skuldir sínar," segir dómsmálaráðherrann Marko Aavik. „Allir, ekki bara vinir þeirra og félagar, geta séð og lesið upplýsingarnar um þá núna."

Síðan var opnuð í dag undir heimasíðu dómsmálaráðuneytis Eistlands og eru þegar 13 nöfn komin á listann, en búast má við því að á næstu vikum verði þau orðin nokkur hundruð. Við hlið nafnanna er kennitala mannanna og skrá yfir bæturnar sem þeir hafa vanrækt að greiða en þær nema allt að tveimur milljónum króna.

Nöfnin verða fjarlægð 10 dögum eftir að viðkomandi hefur gert upp skuld sína, en þau eru ekki birt yfirhöfuð nema með samþykki þess foreldris sem elur barnið upp. Að sögn ráðuneytisins er vitað til um 4.700 foreldra sem hafa svikist undan dómsúrskurði um að greiða meðlag. Þeir séu hinsvegar margfalt fleiri en skráin segi til um því hitt foreldrið kjósi oft að kæra ekki.

Málefnið hefur lengi verið til umræðu í fjölmiðlum og meðal almennings en illa hefur gengið að uppræta vandann fram til þessa. „Ég styð þetta algjörlega, þetta gæti þvingað þá sem hegða sér eins og asnar, til dæmis með því að hafa efni á því að borga fyrir nýjan bíl en ekki fyrir sitt eigið barn, til að borga loksins sinn skerf," hefur AFP eftir embættismanninum Reet Roos sem lengi hefur barist fyrir umbótum í málum einstæðra foreldra.///  er ekki komin tími til þessa aðferða einnig á Íslandi,þá  finnst manni  i-og hefir alltaf fundist !!!!!,annar verðum við skattþegna þessu lands að gera það,manni hefur alltaf fundist þetta þurfa/Halli Gamli


mbl.is Feður sem greiða ekki meðlag afhjúpaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spurning um að nefna líka mæður sem tálma umgengni að ástæðulausu...mín gerir það án þess að hafa nokkra ástæðu :(

Jóhann Waage (IP-tala skráð) 29.1.2010 kl. 14:46

2 identicon

Ég tel að nafngreining fáist seint í þessum málum hér á landi, þó hennar væri jafnvel þörf bæði hjá meðlagsgreiðendum og tálmunarforeldrum.

Haraldur: það er von á frumvarpi til endurskoðunar meðlagslaga svo þú getur kannski glaðst eitthvað þótt það fari ekki allveg eins langt og þú myndir vilja.

Jóhann: það er von á frumvarpi til endurskoðunar barnalaganna (þar sem tekið er á tálmunum) svo þú getur kannski glaðst eitthvað þó hvorki sé um fangelsun né nafnbirtingu að ræða.

kveðja

Nína, sem er á því að fólk eigi að haga sér eins og manneskjur án sérstaks inngrips yfirvalda...

Nína Björg (IP-tala skráð) 30.1.2010 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband