„Það er verið að kúga okkur"/Forseti vor tekur á málstaðnum !!!!!

Það er verið að kúga okkur"
Innlent | mbl.is | 30.1.2010 | 7:41

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti ÍslandsForseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sakar Breta og Hollendinga um að kúga Íslendinga fjárhagslega. Þetta kemur fram í viðtali bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN við forsetann í gær. Ólafur Ragnar gagnrýnir Gordon Brown og Alistair Darling harkalega í viðtalinu.

Ólafur Ragnar segir að ríkin tvö hafi nýtt sér áhrif sín hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum til þess að koma í veg fyrir að sjóðurinn myndi lána Íslandi þá 2 milljarða Bandaríkjadala sem þyrfti til þess að byggja upp landið á ný.

„Það er verið að kúga okkur. Bretar og Hollendingar eru að nota áhrif sín hjá AGS til þess að koma í veg fyrir að áætlun AGS haldi áfram," segir í viðtali  Richard Quest, fréttamanns CNN við forsetann.

Ólafur Ragnar segir Ísland lítið ríki sem er reiðubúið til að bera sinn hluta af byrðunum en Íslendingar vilja ekki vera settir út í horn á þann hátt að efnahagur landsins næstu tíu árin er í húfi.

Á CNN er farið yfir hvað fellst í Icesave-samkomulaginu og að Ólafur Ragnar hafi neitað að staðfesta lögin sem samþykkt voru 30. desember. Hann tekur í viðtalinu við CNN dæmi af því hve miklar byrðarnar yrðu á hvern Breta ef miðað væri við höfðatölu. Þetta jafnist á við að breskir skattgreiðendur þyrftu að greiða 700 milljarða punda á næstu árum og áratugum. 

Vísað er til orða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á vef CNN þar sem hún ýjar að því að ákvörðun Ólafs Ragnars um að skrifa ekki undir geti tafið efnahagsbatann á Íslandi og að Ísland verði hluti af Evrópusambandinu.

Gert í þágu lýðræðisins

Ólafur Ragnar segir í viðtalinu að ákvörðun hans sé í þágu lýðræðis. Hann hafi farið að vilja þjóðarinnar, að fjórðungur hennar hafi skrifað undir áskorun til hans um að skrifa ekki undir lög sem leggi rúmar 2,2 milljónir króna á hvern íbúa.

„Við höfum gleymt að það eru tveir máttarstólpar í vestrænni arfleið sem við erum stolt af. Annar er þróun frjáls markaðar og hinn er lýðræðisþróunin," segir Ólafur Ragnar í viðtali við CNN.

„Og það sem ég gerði þegar ég varð að velja á milli fjárhagslegra hagsmuna annars vegar og lýðræðis hins vegar þá valdi ég lýðræðið."

Fjármálaleg hryðjuverkastarfsemi af hálfu Breta

Ólafur Ragnar fer yfir í viðtalinu þegar bresk stjórnvöld settu Ísland á lista yfir þá sem grunaðir eru um hryðjuverk. „Þeir settu land mitt á opinberan vef bresku ríkisstjórnarinnar við hlið al-Qaeda og talibana." 

Eins þegar Gordon Brown og Alistair Darling, mættu í sjónvarp í október 2008, þar á meðal CNN, og sögðu að Ísland væri gjaldþrota.

Sem var fullkomin þvæla og ekkert annað er fjármálaleg hryðjuverkastarfsemi af þeirra hálfu, að sögn forseta Íslands. „Þetta hafði þau áhrif að fyrirtæki alls staðar í heiminum sem áttu í samskiptum við Ísland, lokuðu fyrir þau."

Þetta segir Ólafur Ragnar að hafi haft verulega slæm áhrif á efnahag Íslands og hann því orðið verri en hann hefði þurft að verða./////þetta er frábært hjá Forseta vorum Ó.R.G. og hafi ekki aðrir sagt þetta betur og það gott að láta  þessu menn heyra það  sem  þeir hafa gjört okkar þjóð!!!Orð i tíma töluð og ekkert af skafið og er maður mikið hrifin af þessu og hann spilar þarna stórt hlutverk/Halli gamli


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Já Ólafur stendur sig vel fyrir land og þjóð ég er stoltur af honum en um leið ekki sáttur við ríkisstjórn vora þeir standa sig ekki eins vel og er Jóhanna eins og hryðjuverkamaður gegn þjóð sinni alveg óskiljanlegt eins og hún telur sig vera réttlætismanneskju þá er það alger misskilningur.

Sigurður Haraldsson, 30.1.2010 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband