60 sagt upp í hópuppsögnum/er ríkisstjórnin nokkur að pæla i þessu ??????

60 sagt upp í hópuppsögnum
Innlent | mbl.is | 3.2.2010 | 11:59

RÚV sagði upp fjölda starfsmanna í janúar Alls bárust Vinnumálastofnun 4 tilkynningar um hópuppsagnir í janúarmánuði þar sem sagt var upp 60 manns. Þetta eru færri en á sama tíma í fyrra þegar 10 tilkynningar bárust Vinnumálastofnun og sagt var upp 167 manns.

Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og upplýsinga og
útgáfustarfsemi. Ástæður uppsagnanna eru verkefnaskortur, endurskipulagning, rekstrarerfiðleikar og minni fjárframlög til opinbers rekstrar. Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu febrúar til júlí 2010, flestar í apríl, að því er segir á vef Vinnumálastofnunar.

Flestar uppsagnanna eru á höfuðborgarsvæðinu. Nú er ljóst að rúm 300 manns munu missa vinnuna á næstu mánuðum vegna hópuppsagna sem þegar hefur verið ráðist í, að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

 

1.789 sagt upp í hópuppsögnum í fyrra

Alls bárust Vinnumálastofnun 54 tilkynningar um hópuppsagnir á síðastliðnu ári þar sem sagt var upp 1.789 manns. Hafa því að meðaltali um 150 einstaklingar misst vinnuna í mánuði hverjum síðasta árið. Stærsti hluti þeirra starfaði í mannvirkjagerð, eða um 42%, og svo í fjármálastarfsemi, um 18%. Þessar hópuppsagnir sem tilkynntar voru í fyrra hafa flestar komið til framkvæmda nú þegar.

„Í næstu viku mun Vinnumálastofnun birta tölur um atvinnuleysi í janúar og reikna má með að atvinnuleysi komi til með að aukast nokkuð milli desember og janúar, hvort tveggja vegna árstíðaráhrifa svo og undirliggjandi efnahagsþróunar. Skráð atvinnuleysi í desember síðastliðnum var 8,2% og hafði aukist um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði. Alls misstu 113 manns vinnuna vegna hópuppsagna í janúar og áætlaði Vinnumálastofnun fyrir um mánuði síðan að atvinnuleysi kæmi til með að vera á bilinu 8,6%-9,1% í þeim mánuði," samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka.///að hlusta á Alþingi þessa daga frá byrjun eftir áramót er ekki ert um þetta fjalla',það er eins og þessari Ríkisstjórn komi þetta bara ekkert við hægagangur á að koma  atvinnuhjólum af stað eins og hægt er að er algjör,þetta hlytir að vera með ráðum gert,annað fær maður ekki út,það má bara allt fara niður i svaðið/á því lifir þessi stjórn vist !!!!!/Halli gamli


mbl.is 60 sagt upp í hópuppsögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GAZZI11

Það er ekkert að marka þessar % tölur tómt fals og skrípaleikur.

Nær væri að tala um töpuð störf.

Hvað hafa margir flutt erlendis ?

Hvað hafa margir farið í nám ?

Hvað eru margir á skrá hjá Vinnumálastofnun ?

Hvað eru margir heima og vilja ekki skrá sig atvinnulausa ?

Eftir því sem ég kemst næst eru um 17.300 skráðir hjá VMstofnun.

Ca 5.000 hafa flutt sig af vinnumarkaði í nám

kannski 15000 +/- flutt til útlanda

Fjölmargir vinna við skert vinnuhlutfall

Við erum örugglega að tala um 30.000 + störf sem hafa tapast.

Núna eru um 70.000.- Íslendingar að glíma við nám og atvinnuleysi.

Hvernig getur þetta gengið upp. 

Alþingisumræður ganga út á Skötusel enda er þar allt í skötulíki. Hvar er forgangsröðunin hjá þessu volaða fólki sem mætir þarna í vinnuna. Hvar er skjalborgin okkar, af hverju fá fjárglæframenn að nauðga okkur alla daga. Af hverju er ekki verið að gæta hagsmuna okkar almennings. 

Stóru atriðin í skjaldborginni voru þau:

Að leyfa mér að opna sparibaukinn minn.

Dreifa lánagreiðslum á lengri tíma og svo afskrifa þær. Glætan að einhver Íslendingur borgi lánin sín til enda, þannig að þetta loforð virkar ekki.

Fresta nauðungaruppboði. ( segir sig sjálft )

Það hefur nákvæmlega ekki neitt verið gert.

GAZZI11, 3.2.2010 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband