Samfylkingin vill þjóðaratkvæði um fiskveiðistjórnunarkerfið/hótanir á hótanir ofan hjá Jóhönnu !!!!!

  • Samfylkingin vill þjóðaratkvæði um fiskveiðistjórnunarkerfið
    Innlent | mbl.is | 28.3.2010 | 9:17

    Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og... Samþykkt var samhljóða á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um íslenska fiskveiðistjórnkerfið. Tryggt verði í nýjum lögum að eðlilegur arður af fiskveiðiauðlindum Íslands verði nýttur í almannaþágu en ekki í þágu sérhagsmuna eins og hingað til.
    Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Þjóðareign.

    Fundinn sóttu þrír stjórnarmenn úr Þjóðareign - samtökum um auðlindir í almannaþágu, þeir Eiríkur Stefánsson, Lúðvík Kaaber og Þórður Már Jónsson. Þeir lögðu fram tillögu um að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um fiskveiðistjórnkerfið á Íslandi. Eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða.
     
    1. Flokksstjórn Samfylkingarinnar styður hugmyndir Jóhönnu Sigurðardóttur, formanns Samfylkingarinnar, um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um íslenska fiskveiðistjórnkerfið.
     
    2. Nýtt fiskveiðistjórnkerfi verði byggt á atvinnufrelsi og mannréttindi verði virt í samræmi við álit sem Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sendi íslensku ríkisstjórninni í október 2007.
     
    3. Tryggt verði í nýjum lögum að eðlilegur arður af fiskveiðiauðlindum Íslands verði nýttur í almannaþágu en ekki í þágu sérhagsmuna eins og hingað til.
     
     Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingar ítrekaði fyrri yfirlýsingar sínar á fundinum þegar hún lýsti því yfir í ræðu sinni að hún telji það vera góða „leið til þess að útkljá áratuga deilur um innköllun aflaheimilda og endurúthlutun þeirra að láta kjósendur um að leiða málið til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu". Þá sagði Jóhanna í lokaorðum sínum á fundinum að möguleg þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram næsta haust samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnlagabreytingar./////Samfylgingin er alveg að flippa út og V.G. fylgja þeim i þessu,að snua öllu við a´þessu viðkvæma stigi þegar sjálarfaflin skilar okkur mestu og Alið einnig þar á eftir ferðamennskan, hafa þetta í friði meðan þessu kreppa varir,það ma´laga ýmislegt en að bylta öllu og koma okkur endanlega á hausinn er,þarna inn í myndina og ESB umsók muni redda öllu það inn skulum við fara og skipast með þeim auðlindunum/svona aðfarir eru ekki það  sem  við þurfum nú aukna vinnu og peninga til þessa og .eir eru til og nota þá til að bjarga þeim sem eru að missa sitt og fyltækjum um vinnu nóg er að gera/Halli gamli


mbl.is Samfylkingin vill þjóðaratkvæði um fiskveiðistjórnunarkerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband