Ísland höfuðstaður femínismans/"ja herna krakkar"!!!!!!!

Ísland höfuðstaður femínismans
Innlent | mbl.is | 5.4.2010 | 16:46

Femínistar láta til sín taka við dómsmálaráðuneytið.Ísland stefnir í að verða Mekka femínismans í heiminum að mati dálkahöfundar breska blaðsins The Guardian. Ástæðan er meðal annars nýlegt bann við nektardansi.
Mun Íslandi takast það ómögulega, að útiloka kynlífsiðnaðinn? Þetta er meðal þess sem dálkahöfundur breska blaðsins The Guardian fjallar um í pistli sínum sem hún byggir m.a. á viðtölum við Guðrúnu Jónsdóttur hjá Stígamótum og Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrrverandi þingkonu. Julie Bindel skrifar að Ísland sé að verða höfuðstaður femínismans. „Þrátt fyrir að telja aðeins 320 þúsund íbúa er Ísland við það að takast það ómögulega, að útloka kynlífsiðnaðinn.“

Á meðan kvenfrelsishreyfingin í Bretlandi berst fyrir því að reglur verði settar um súludansstaði hefur Ísland sett lög sem banna starfsemi þeirra. Súludansstöðum hefur að sögn Bindel fjölgað gríðarlega hratt undanfarinn áratug.

 „Jafnvel enn merkilegra er að þetta litla norræna land er fyrsta landið í heiminum sem bannar kjöltudans út frá femínískum sjónarmiðum en ekki trúarlegum.“

Fréttirnar af nektardansbanninu á Íslandi eru eins og vítamínsprauta fyrir femínista um heim allan, skrifar Bindel. „Þetta sýnir okkur að þegar heil þjóð sameinast að baki ákveðinni hugmynd er allt mögulegt.“

Dálkahöfundurinn veltir fyrir sér hvernig tekist hafi að ná breiðri samstöðu um bann við nektardansi. „Í fyrsta lagi er sterk kvennahreyfing á Íslandi og hátt hlutfall kvenna í stjórnmálum,“ skrifar Bindel. Þá eigi forsætisráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, þátt í sigrinum en hún hafi lagt baráttu gegn nauðgunum og öðru kynbundnu ofbeldi lið.//ja herna segir maður bara,hvað er að ske herna í Íslandi ,verðum við kallar að fara að flia landi eða hvað,eigum við að láta kveða okkur i kútin/Halli gamli


mbl.is Ísland höfuðstaður femínismans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Leyfum kvenþjóðinni að vera hér og enn betra... Skildum kvenþjóðina til að ´vera hér á þessu skeri meðan við karlarnir förum um allann heiminn að leika okkur... Svo komum við bara hingað einusinni á ári og þá eingöngu til að geta börn... Þannig losnum við við að kvenþjóðin flækist fyrir á meðan við leikum okkur...

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 5.4.2010 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045719

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband