Hvatti forsetann til að segja af sér/ Skipstjórin V.G.tekur völdin!!!!!!

Hvatti forsetann til að segja af sér
Innlent | mbl.is | 13.4.2010 | 22:15

Björn Valur Gíslason Umræðum um skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður haldið áfram á Alþingi á morgun, en rætt var um skýrsluna á þingi í allan dag.

Gagnrýndi Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar, þátt Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í skýrslunni harðlega í ræðu sinni í kvöld og var hann beðinn að gæta orða sinna. Sagði hann forsetann hafa dásamað útrásarvíkingana allt frá upphafi og hvatti Ólaf Ragnar til að segja af sér./////þarna sést best hvernig V.G. haga sér,ráðast á Forseta Vorn og ófrægja hann og segja hann  sekan um að hafa dregið taum útrásarinnar/þetta er skömm og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Hvatti forsetann til að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En var ÓRG ekki einn helsti stuðningsmaður útrásarinnar?  Er ekki svolítið til í þessu sem Björn er að segja með það? Mig minnir að flestallir hafi sagt það á sínum tíma og flestum fannst hann ætti að fara fyrir þátt sinn í útrásinni. Er fólk alveg búið að gleyma því?

Skúli (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 23:07

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mega menn nú ekki lesa úr skýrslunni ?

Held að sjálfstæðismenn ættu að líta í eigin barm núna, sem og forsetinn.  Annars verða aldrei neinar breytingar til góðs á Íslandi.

Anna Einarsdóttir, 13.4.2010 kl. 23:19

3 identicon

Tek undir það

Skúli (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 23:54

4 identicon

Hvað er verið að blanda flokkum í þetta. Er ekki Ólafur Ragnar VG maður ég veit ekki betur er ekki Össur Samfylkingarmaður sem nýtti sér innherjaupplýsingar og seldi bréfin í Sparisjóðnum áður en hann fór á hausinn og laug fyrir tveim mánuðum að þjóðinni um það mál. Nú hefur komist upp um strákinn Tuma. Er ekki Björgvin G. Samfylkingarmaður, og Ingibjörg Sólrún blóðseka í Samfylkingunni? Eru ekki Vg á bak við kaup Ingibjargar Og Jóns Ásgeirs á 365 með þegjandi samkomulagi yfir láni Landsbankanns á kaupunum? Það eru allir flokkar sekir. En einkum þó bankamafían, sem rændi bankana innanfrá.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.4.2010 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045709

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband