Vigdís gerð að heiðursborgara í Reykjavík/ Mjög svo gott mál !!!!!

Vigdís gerð að heiðursborgara í Reykjavík
Innlent | mbl.is | 15.4.2010 | 14:00

Hanna Birna Kristjánsdóttir og Vigdís Finnbogadóttir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri tilkynnti að Vigdís Finnbogadóttir hefði verið gerð að heiðursborgara í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Borgarráð samþykkti tillögu Hönnu Birnu borgarstjóra þess efnis á fundi ráðsins í morgun. 
tilefni af áttatíu ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur heiðra borgaryfirvöld hana með því að gera hana að heiðursborgara í Reykjavík. Auk þess hefur Reykjavíkurborg í samvinnu við Háskóla Íslands ákveðið að taka þátt í uppbyggingu torgs til heiðurs Vigdísi við fyrirhugaða nýbyggingu Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur á lóð Háskóla Íslands við Brynjólfsgötu, vestan Suðurgötu. Torgið mun hafa beina skírskotun til starfsemi stofnunarinnar og þar af leiðandi helstu hugðarefna Vigdísar.
 
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri rifjaði upp við athöfnina að ævi Vigdísar væri samofin sögu Reykjavíkur. Vigdís og hennar kynslóð væri í raun fyrsta borgarkynslóðin í Reykjavík. Vigdís hefði hvergi dregið af sér í þágu borgar og þjóðar, að því er segir í tilkynningu.
 
Hanna Birna vakti sérstaka athygli á framlagi Vigdísar til íslenskrar kvennabaráttu. „Kjör Vigdísar markaði ekki aðeins söguleg tímamót hérlendis og erlendis,“ sagði hún og benti á að Vigdís hefði orðið kynslóðum íslenskra kvenna fyrirmynd. „Framganga hennar, hugrekki og festa, hefur beinlínis haft mótandi áhrif á sjálfsmynd okkar í áratugi. Hún hefur hvatt okkur konur til dáða, talið okkur trú um að ekkert sé okkur ómögulegt og þar af leiðandi stuðlað að því að við höfum beitt okkur af enn meira afli í þágu okkar góða samfélags í borginni og landinu öllu.“
 
Tveir Reykvíkingar hafa áður verið gerðir heiðursborgarar í Reykjavík, þeir séra Bjarni Jónsson  árið 1961 og Kristján Sveinsson augnlæknir árið 1975./////þetta er frábært og er Vigdís Finnbogadóttir vel að þessu komin,og heiður einnig fyrir Reykjavíkurborg!! þessi kona er öðrum fyrirmynd ,sennilega okkur öllum/Halli gamli
mbl.is Vigdís gerð að heiðursborgara í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045761

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband