Aska skemmdi orrustuþotu NATO! !!!!!!!

Aska skemmdi orrustuþotu NATO
Erlent | mbl.is | 19.4.2010 | 15:00

F-16 orrustuþota tekur eldsneyti í háloftunum. Myndin er úr...Skemmdir urðu á hreyflum að minnsta kosti einnar F-16 orrustuflugvélar Atlantshafsbandalagsin, NATO, vegna gosösku úr Eyjafjallajökli. Askan ummyndaðist í glerung í hreyflinum, að því er fram kemur í frétt Aftenposten.

Bandarískur talsmaður NATO sagði í Brussel í dag að frumvarnarviðbúnaður NATO verði fyrir áhrifum dragi ekki fljótlega úr öskunni yfir Evrópu. Hann vildi ekki upplýsa nánar um hvar eða hvenær skemmdir urðu á F-16 þotunni.

Sem kunnugt er urðu finnskar orrustuþotur af gerðinni F-18 Hornet fyrir miklum skemmdum við að fljúga í gegnum eldfjallaösku í háloftunum.

Askan bráðnar í hreyflunum og myndar eins konar glerhjúp sem sest á innviði hreyflanna veldur því m.a. að loftvegir þeirra stíflast. Hætt er við að hreyflarnir ofhitni og stöðvist af völdum skemmdanna sem askan veldur/////þetta sannar að þetta tal um hættu er ekkert gabb !!! og öryggið er fyrir öllu,ekki bara fjarmálin og ferðasþjónusta og afkoma hennar,"kapp er best með forsjá" segir maltækið og menn ættu að fara varlega/Halli gamli


mbl.is Aska skemmdi orrustuþotu NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er bara einn hreyfill á Lockheed Martin F-16.

Egill Örn Guðmundsson (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 18:27

2 identicon

4 þotur.. 4 hreyflar. ekki flókin reikningur Egill.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045720

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband