Þjóðarsorg vegna fórnarlamba skjálftans/ í Kína átakanlegt mjög !!!!

Þjóðarsorg vegna fórnarlamba skjálftans
Erlent | AFP | 20.4.2010 | 11:29

Tíbetskir munkar taka þátt í fjöldabæn til handa...Þjóðarsorg verður á morgun í Kína vegna þeirra rúmlega 2.000 einstaklinga sem létust í jarðskjálfta í Qinghai-héraði Tíbet á þriðjudaginn í síðustu viku.

Jarðskjálftinn sem mældist 6.9 á richter skala hefur kostað a.m.k. 2.046 manns lífið. 190 til viðbótar er enn saknað að sögn kínverskra ríkisfjölmiðla, 12.000 hafa slasast og tugir þúsunda hafa misst heimili sín.

Kínverska ríkisstjórnin hefur hins vegar neitað að tjá sig um bón Dalai Lama, hins útlæga andlega leiðtoga Tíbeta, um að fá að heimsækja hamfarasvæðið sem er í heimahéraði hans.

Dalai Lama biðlaði fyrst til yfirvalda í Peking á laugardag um að fá að heimsækja Kína í fyrsta skipti í 51 ár og með „uppfylla óskir margra íbúa þar.“ Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins hefur neitað að tjá sig um það hvort leyfið verði veitt.

Björgunarmenn héldu áfram að leita í rústum bæjarins Jiegu í dag. Snjókoma og kólnandi veðurfar gera aðstæður fórnarlamba jarðskjálftans enn erfiðari, en margir hafst við í tjaldbúðum eftir að heimili þeirra hrundu í skjálftanum.

Hátt í 13.000 hermenn og starfsmenn öryggissveita lögreglunnar  taka þátt í björgunaraðgerðunum. Tíbetskir munkar hafa einnig unnið að björgunarstarfinu, en vonin lifir um að fleiri finnist á lífi eftir að það tókst að bjarga þremur úr rústunum í gær.

Qinghai-hérað liggur í um 4.000 metra hæð og segja stjórnvöld það hamla björgunarstarfinu. „Einn versti vandinn er háfjallaveikin sem hrjáir björgunarmenn,“ sagði Wang Zhenguo hershöfðingi. Vel flestir hermenn á jarðskjálftasvæðinu hefðu fundið fyrir a.m.k. mildum einkennum háfjallaveiki.

Björgunarsögur berast þó einnig frá svæðinu.  Þannig eiga 830 nemendur og kennarar barnaskóla að hafa bjargast er aðstoðarskólastjóri fann fyrir smá skjálfta nokkrum stundum fyrir stóra skjálftann. Lét hann flytja alla úr heimavist skólans í kjölfarið að sögn kínversks dagblaðs.

16 ára stúlka á þá að hafa grafið níu meðlimi fjölskyldu sinnar með berum höndum úr rústunum eftir skjálftann að sögn Xinhua fréttastofunnar.////þetta átakanlegt mjög og mikið áfall fyrir þetta blessað fólk þarna i hálöndunum i Kína eru reyndar Tíbetar flesti ,þetta er stór tala 2046 látnir og um 12,000 slasaðir,þetta er átakanlegt og við sendum auðvitað samúð,eða forráðamenn okkar/Halli gamli


mbl.is Þjóðarsorg vegna fórnarlamba skjálftans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045755

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband