Skattsvikahagkerfi þreifst í skjóli leyndar/sammála Jóhönnu þarna !!!!!

Skattsvikahagkerfi þreifst í skjóli leyndar
Innlent | mbl.is | 21.4.2010 | 16:09

Jóhanna Sigurðardóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins, að það þurfi nýja siði, nýjan hugsunarhátt og ný vinnubrögð í bönkunum. Ofurlaun og bónusar, leynimakk og ógagnsæ eignarhaldsfélög eigi að heyra sögunni til og sömuleiðis skattsvikahagkerfið sem þreifst í gömlu bönkunum í skjóli leyndarinnar.
á einnig að heyra sögunni til," sagði Jóhanna. „Skilanefndirnar hafa starfað á gráu svæði eða óljósu og þær eiga ekki að vera við líði deginum lengur en bein þörf er á. Pukur, óhóf og sjálftaka í fjármálakerfinu á að heyra sögunni til, aðeins þannig tekst okkur ætlunarverkið um að öðlast traust þjóðarinnar á fjámálakerfinu."

Jóhanna sagði, að vitnisburður rannsóknarskýrslunnar um háttalag helstu forkólfa atvinnulífsins sem var, hljóti að verða lagður til grundvallar með öðru þegar metið sé hvort viðkomandi aðilar séu verðir áframhaldandi samstarfs eða trausts.

„Róttækar breytingar á lagaumhverfi fjármálastofnana og stóreflt eftirlit Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka munu auðvitað breyta miklu en nýjir stjórnendur munu axla mikla ábyrgð í þessum efnum. Eitt af mikilvægustu verkefnum þeirra er að byggja upp traust þjóðarinnar til þessa nýja bankakerfis og til þess nýja atvinnulfís sem hér er að mótast," sagði Jóhanna meðal annars. 

Skera verður verulega niður

 

Hún sagði, að samhliða endurreisn bankanna hafi  það verið annað helsta nauðsynjamálið að ná tökum á skuldum ríkisins. Bætt skuldastaða hins opinbera hafi skilað þeim árangri að draga megi úr áætluðum samdrætti ríkisútgjalda miðað við fyrri viðmið.

„Engu að síður verður að skera verulega niður hjá hinu opinbera á næsta fjárlagaári. Ríkisstjórnin hefur þegar kynnt áform um 30-40% fækkun ríkisstofnana, sameiningu og einföldun í ríkisrekstri, samruna ráðuneyta og fækkun ráðherra. Rannsóknarskýrsla Alþingis bendir okkur á að smáar og vanburða einingar í stjórnkerfinu, sem margar fást við áþekk verkefni eru ekki líklegar til að skila tilætluðum árangri. Uppstokkunar og endurskoðunar er þörf. Sameiningar á ýmsum sviðum eru þegar komnar til framkvæmda og aðrar eru í umfjöllun á vettvangi Alþingis. Ljóst er að með slíkri hagræðingu má ná umtalsverðum sparnaði til frambúðar án þess að grundvallarþjónusta skerðist. 

Eitt atvinnuvegaráðuneyti er markmið hjá ríkisstjórninni og með slíkri sameiningu má styrkja og efla umhverfi atvinnuvega hér á landi. Það hafa allar atvinnugreinar á Íslandi þörf fyrir stefnumótun, rannsóknir, nýsköpun og þróun og um það á starfsemi nýs atvinnuvegaráðuneytis að snúast. Í því efni veit ég að þið eruð mér sammála en það er hins vegar að halda í liðna tíð að viðhalda ráðuneytum kringum sérhagsmuni einstakra atvinnugreina," sagði Jóhanna Sigurðardóttir.///þarna er maður sammála Jóhönnu að öllu leiti nema með atvinnumálaráðneitið,það er mikið til i flestu þessu og ber að virða það sem Forsætisráðherra segir þarna að mestu ,en það þarf að fylgja þessu eftir og hún hefði átt að koma að mali sem við öll erum að verða búin að fá nóg af það er að segja svikin i máli Icesave og þar liggur hundurinn grafin þar er verið að setja okkur i fjötra sem við aldei getum borgað,nema að fara niður á lægra plan/Halli gamli


mbl.is Skattsvikahagkerfi þreifst í skjóli leyndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045699

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband